Morgunblaðið - 27.05.1973, Side 10

Morgunblaðið - 27.05.1973, Side 10
10 MORGUNHLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MAl 1973 Saklaust að eig a ljóð í bók Vona aö það móðgi engan, segir Indriði G. Þorsteinsson, sem er að ganga frá sinni fyrstu ljóðabók INDRIÐI G. Þorsteinsson sat við vinnu sína í skrifstofu t,jóðhátíðarnefndar við Lauga veg. Við vorum þó ekki til hans komin til að ræða við hann um þjóðhátið 1974 eða plaga hann með jafn nauðsyn- legu en lítt aðlaðandi um- ræðuefni ogr kömrum á Þingr- völlum, sem mönnum er nú svo tíðrætt um. Við höfðum heyrt að Indriði fengist við mun skemmtilegra viðfangs- efni ii m þessar mundir — ljóðagerð. Og væri hann að undirbúa útgáfu sinnar fyrstu ljóðabókar. Það þótti okkur tíðindum sæta. Indriði staðfesti að þetta væri rétt. Ljóðabóldn mundi sennilega koma út hjá Al- menna bókaféiaginu, sem hef- ur gefið út síðustu skáldsög- ur hans, og hann væri að ganga frá henni. Það væri ákaflega notalegt að geta snúið sér að því á kvöldin að fága ljóð, einkum þegar und- irbúningsstarfið fyrir þjóðhá- tíðina væri ekki sérlega skemmtilegt. Það kom á daginn, að Indr- iði hefu.r raunar ort frá bam- æsku, eins og aðrir Skagfirð- ingar. — En ég hefi al'ltaf litið á þetta sem sérstakan heim- iiisiðnað, sem ekki væri ástæða til að flíka, segir hann. — En hvernig stendur þá á ljóðabók núna? — Á tímabili var ég svo oft á ferðalögum í blaðaimennisku- erindum, útskýrir Indriði. — Að aöoknu dagsins jagi, sat ég þá stundum uppi i hótel- herbergi og fór að setja eitt- hvað saman i ijóð, iðulega í sambandi við það, sem ég hafði upplifað yfir daginn. Á ferð í París er kannski siglt undir brýmar á Signu og það leiðir hugann að sögunni, eða að manni er í Kína sýndur af- tökustaður fjöida manna og hugurinn reikar, eða þegar 'ber fyrir mynd af manni að róta í rusliaitunnu í vertshúsi i Idaho og það kemiur á dag- inn að þetta eru sérstök for- réttindi i lífi hans. Svona at- vik eru ekki þess eðlis að maður noti- þau i sögu. Þá verða þau fremur að ljóði. Ég hefi þann vana að lesa áður en óg fer að sofa. Og hefði ég ekki svo mikið sem Gideon- biiblíu að lesa, þá tók ég stundum að krassa á þennan pappír, sem alltaf er þarna viið höndina. Þesis vegna bera þessir miðar mínir nöfn Missiionshótela og Grand- hótela. Ekki hafði óg þó í huga að gera mér neinn mat úr þessu efni. Sneplamir höfðu svo legið hjá mér og viljað týnast. Þess vegna ákvað ég að setja þetta sam- an í bók og bjarga því frá að glatast alveg. — Ég hefi svo verið að ganga frá þessuim ljóðum síð- an í febrúar. Það er nokkuð mikið verk. Margt af því er ekki sem bezt gert. Ekki þó svo að skilja að ijóðin séu öll af þessu tagi. Um helmingur- inn er héðan að heiman. Og eitt ljóðið orti ég til dæmis um það leyti, sem þeir voru að bardúsa með Stalín, flytja lík hans ýmist inn eða út fyr- ir Kreml. Út af þessum erfið- leikum þeirra gerði ég nokk- urs konar erfiljóð. Ég hefi haft mjög gaman af að ganga frá þessu að undanförnu. Það er nokkurs konar hjástunda- gaman. — Svo þú gefur ekki út ljóðabók þér til frægðar eða til að hreppa listamannaverð- laun? — Ég hefi aldrei sótzt eftir neinu slíku og raunar aldrei sótt um styrki — jú, einu sinni sótti ég um starfsstyrk og fékk hann. Þá varð „Norð- an við stríð“ til. Og ljóðagerð- ina tek ég ekki svo hátíðlega. Ég hefi verið að leika mér að hienni. Hjá mér eru ljóðin meára epískrar gerðar en að ég sé að reyna að fara með heimspeki. Þar skilur á milli mín og ljóðskáldanna. Ljóð- skálldin sækja djúpt i við- fanigsefnin. Sé maður að leika sér, er ekki mikið verið að huigsa um slíkt. Ástæðan til þess að ég tek þessi ljóð mín saman í bók er sú, eins og ég sagði áðan, að óg vil ekki týna þeim. Ég týni yfirleitt öllium pappírum. Allt slíkt fer í ruslakörfuna hjá mér, nema það sem ég er að nota. Og þá spyrjum við hefð- bundinna spurninga: — Eru þetta löng Ijóð? Verður þetta stór og mikil bók? Hvað á hún að beita? — I bókinni verða um 40 'ljóð. Það er sæmileg fyrir- ferð. Og ljóðin eru allt upp í 10 erindi. Ekki veit ég hvaða nafn verður á þessu ljóða- safni. Ég er í hreinustu vand- ræðum með það. Ég stoil mæta vel menn, sem kaliia bækur sín-ar bara Kvæði, Kvæða- safn eða Ljóð. Ætli það verði ekki endirinn á hjá mér. Kannski eru þetta bara vand- ræðakvæði — Þá er það formið. Yrk- irðu í heföbundnum stíl eða nútímastíl? — Mest eru þessi ljóð í hefðbundinum stíl. En ég er þó alveig laus við að hengja mig í form. Þetta er mæölt fram og formið er ekki látið þvinga það. — Nú ert þú alinn upp við hefðbundna ljóðagerð og stöfcur, ef ég þekki Skagfirð- inga rétt. — Já, já. Sannleikurinn er sá, að faðir minn þótti sæmii- legur hagyrðingur og tölu- vert mikið Itjóðskáld í simu umhverfi. Þeir Gilhagabræð- ur voru þekktir að því að setja allan fjárann í rim. Það er alveg vandalaust fyrir mig að setja orð í rim. Faðir minn var mikill rétttrúarstefnu- maður í þessum efnum. Þeg- air ég var að basla við að setja saman stöku, þá vandaði hann mjög um við mig, svo ég hætti aiiveg á tímabili. Hljóð- fall, atkvæðafjöldi og allt sllikt þurfti að vera mjög ná- kvæmt. Og svo þurfti meim- ingu. Hún varð að vera Ijós og einföld. Það var mikið um skáldskap í ætt þeirra Gil- hagabræðra. Þorgrím-ur, fað- ir Grims Thomsen, var i föð- urætt þe'rra. Þeir höfðu mi'k- ið dálæti á Grími. En töldu hann ekki nógu kórréttan í hljóðfallinu. Köliluðu hann gott en stirt skáld. — Þú segist hafa hætt að yrkja á tímabili. Hvenær byrjaðirðu þá aftur. — Áður fyrr var þetta þanniig að þeir, sem voru að hugsa um að skrifa, byrjuðu á að gefa út ljóðabók og urðu svo kainmskii sagnaskáld síðar. Hj á mér og fleirum á mímum aHdri snerist þetta við. Þeir sem ekki ætluðu að verða Ijóðskáld, lögðu ekki út í það. E.t.v. af þvi að ljóðagierðin stóð þá á svo mikliuim tíma- mótum. Við byrjiuðum á smá- sögum. Það var eðlilegt. Menn byrja oft smátt, ráðast ektói í stór verkefni í upphafi. Og þá eru bæði smásögur og ijóð góð, effla máJikenndina og menn finna farveg fyrir það sem þarf að segjast. Annars átti óg fleiri að með ljóðin en föður minn, heldur Indriði áfram. Við Kristján frá Djúpalæk áttum sálluféiiag á Ak uneyri. Hann las yfir þessi ljóð, sem óg var að setja sarnan, og tók þeim af mikli. En ég fainm að hainm stökk ekkert upp úr sætinu a,f hrifniingu yfir þeim. Og það dró úr mér kjarkinn. — Og nú hefiurðu fen-gið kjarkinn aftur og gefur út ljóðabók? — Já, það er saklaust að eiga þessi ljóð í bók. Ég voma að það móðgi engan. Ég hefi nefnt það við ljóðskáld, sem eru vinir min'r, að ég æffli að gefa út ijóð. Þeir taká þvi kurteislega, og svara því til að þeir ætli að fara að gefa út smásögur. Talið berst nú að stökunná, hliutverki hennar í dagliegu Mfi fólksins í landinu og að ljóðagerð ailimenmit. Og Tndriði segir: — Sannleikurinn er sá, að við Islendingar eiigum slíka hefð í Ijóðaigerð, að við erurn raunar útortir. Það eru ekki svo margir fletir eftir á þe-ssu. Sé gefin út ljóðabók, er eins ag þurfi að gera það öllium mögulegum fyrirvör- um. Þessi nýja ljóðagerð er stórkostlega heiðarleg tilraun tii að brjótast inn á nýjam vettvamig með Ijóðið. — Þú segir tilraum. Held- urðu að það verði bara til- raun? — Ég held að rétta matið á ljóðiunum hljóti að koma eft- ir á. Og ég er ekki í vafa um að það mat á eftir að koma mjög á óvart þeim sem sitainda gegn nýrri ljóðagerð. Hvað sögðu menm ekki um Jónas Hal'lgrímsson. Jú, hanm Jónas gerði lagiieg ljóð. Ef einhverj- um mönnum, eins og Gai- mard, var haldin veizla, þá var Jónas fenginn til að yrkja um hann. Engimn hefði vaðið að stórskáldi og beðið hann um að suUa saman einhverju fyrir veialiu. Það er svo mangt þess háttar, sem bend- ir til þessa viðhorfs til hans. Maður á að bíða rólegur að leyfa timanum að myíja þetta og sigta. Svo þú hefur ekki áhyggjur, þegar þú situr á kvöldim og býrð fyrstu ljóðin þin á markað? — Nei, þau íþyn'gja mér ekki. Þau eru heldur ekki svo djúp, aið maður sé lengi að koma úr kafimu. — E. Pá. Finnland — Sovétríkin — A-Þýzkaland ÁKVEÐIÐ hefur verið að dag- ana 15. og 16. september n.k. fari fram þriggja landa lands- fc$ppni í frjálsum iþróttum á Olýmpiuleikvanginum i Helsinki. Mætast þar Finnar, Sovétmenn og Austur-Þjóðverjar. Vakti frétt in um að samningar um keppni þesisa hefðu tekizt mikla gleði í Finnlandi, og gera Finnar sér vom ir um að eiga sigurmöguleika í keppninni. Þrír menn frá hverju landi keppa í öllum greinum og eimnig verður keppt í maraþon- hlaupi og tugþraut. Finnskir frjálsíþróttamenn hafa náð frá- baerum árangri það sem af er sumrinu og gífurlegur áhugi er á frjálsíþróttamótunum þarlend- 1». Lærið ensku i Englandi í sumarfríinu Enn er möguleiki að komast á hin vinsælu sumarnámskeið SCANBRIT er sótt er um strax. Upplýsingar gefur Sölvi Eysteinsson i síma 14029. LÓUBÚÐ BANKASTRÆTI 14, II. HÆÐ. Nýkomið! Finnskir unglingajakkar, smekkbuxur, stærðir 1—18, dömublússur, verð frá 545,00, dömu- peysur, verð frá 540,00. LÓUBÚÐ, Bankastræti 14, II. hæð. Sími13670. Sérhœð til leigu Á góðum stað í Vesturbænum nú þegar. Ibúðin er 2 svefnherbergi. 2 samliggjandi stofur. eldhús, bað og stór skáli. Sérhiti. Vönduð íbúð. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 1. júní, merkt: „Reglusemi — 8366“. ÍSLANDSMÓTIÐ 1. DEILD (|f MELAVÖLIUR BreiBablik — Í.B.A. í DAG KL. 4. BREIÐABLIK.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.