Morgunblaðið - 27.05.1973, Síða 14

Morgunblaðið - 27.05.1973, Síða 14
14 MORGÖNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MAl 1973 Ásmundur Sveinsson áttræður Fljúgandi diskar eftir Ásmund Sveinsson. DAGINN eftir að Bernhöftstorf- an var máluð og snyrt, varð Ásmundur Sveinsson áttræður, eða á sunnudaginn var. Það væri efni í lamghunda marga að taka feril Ásmundar Sveinssonar fyrir,' skoða hann oig meta, setja Ásmund á rétt an stað í listasögu íslands og gera upp ævistarf hans ásamt þeirri þýðingu, er list hans hef- ur haft í íslenzkri menningu. Ekki ætla ég mér þann vanda, enda ekki tímabært. Eitt má þó fullyrða, Ásmundur Sveinsson hefur skapað tímamót í íslenzkri listasögu á tuttugustu öld. Þegar ég, sem þessar linur riita, kynntist Ásmundi Sveins- syni, mun hann hafa verið orð- inn rúmlega fimmtugur. Þá man ég, hve hann var sjálfur viss um, að hann væri algerlega bú- inn að slíta sér út við mynd- gerð og húsasmiðar. Ég er hræddur um, að ég hafi ekki reiknað með því þá, að Ásmund- ur Sveinsson ætti eftir að verða áttræður, og hver veit nema hann eigi eftir að ná tiu tug- um. Ásmundur Sveinsson er nefnilega einn þeirra manna, sem eiga sér engan aldur, en það á aðeins við um sérstætt og fágætt fólk. Því er það, að ég fer ekki út í að skrifa nein eft- irmæli á þessum timamótum, eins og oft er venja, sný mér heldur að afmælisgjöf er fyrr- verandi nemendur Ásmundar hafa fært honum með þvi að setja saman sýningu á verkum hans og þeirra í einu af þeim húsum, sem Ásmundur kom upp í fátækt og basli hér fyrr á árum. Það er auðvitað í ÁSMUND- ARSAL við FREYJUGÖTU, sem þessi sýning er til húsa. Hér áð- ur fyrr voru ekki margir er fengust við höggmyndagerð hér á landi, enda sama og engin skilyrði fyrir hendi. Nú er öld- in önnur, og guð má vita, hvað margir fást við skúlptúr hérlend is. Það hefur líka færzt nýtt og ómengað blóð i þessa listgrein að undanförnu, og ég held, að óhætt sé að segja, að ekki hafi áður fyrr verið eins mikið um að vera í skúlptúr í veröldinni. Þessi sýning er bæði í sjálf- um Ásmundarsal og utan dyra á því svæði, sem notað hefur verið undanfarin ár fyrir sýn- ingar á skúlptúr og haft hefur mikla þýðingu. Hér held ég, að segja megi, að gæti áhrifa af ævistarfi Ásmundar. Hann hefur vakið áhuga fjölda fólks, er gefið hefur sig að skúlptúr að undanförnu, og kenusla hans hefur vissulega haft sitt að segja. Það eru rúmlega þrjátiu verk eftir tíu listamenn á þess- ari sýningu. Eins og gefur að skilja, þá eru þetta nokkuð mis- jöfn verk, en samt er viss þráð- ur finnanlegur, sem tengir þessi verk einis og einu og sama upp- hafi. Það skyldi þó aldrei vera, að þetta upphaf, er ég þykist finna, sé sjálfur Ásmundur Sveinsson. í Ásmundarsal er því miður nokkuð þröngt á þingi, og ég er ekki frá því, að það hefði ver- ið betra fyrir sýninguna í heild að rýrnra hefði verið um verk- in. Utan dyra er aftur á móti nægilegt pláss, og þar njóta verk in sín til fuils. „Fljúgandi disk- ar“ heitir eitt af listaverkum Ásmundar á þessari sýningu, og ég held, að það hljóti að vera nýlegt. Sá skúlptúr í jámi finnst mér bera af á þessari sýningu og sýna greinilega, hver er meistarinn og hverjir lærisvein- arnir. Það er líka ánægjulegt, að einmitt sá af yngstu lista- mönnunum, sem mér finnst einna athyglisverðastur, skuli vera bróðursonur Ásmundar, Hallsteinn Sigurðsson. Það er sérstaklega annað listaverk Hall steins, sem vekur aðdáun mína vegna rökréttrar hugsunax og einfaldleika í útfærslu. Hreyfi- myndin eftir Halistein finnist mér ekki eins vei heppnað verk. Þessi ungi listamaður hefur á undanförnum árum látið þó nokkuð til sín taka, en ekki vak- ið þá eftirtekt, sem hann á skil- ið að miínum dómi. Björgvin Sigurður Haraldsson á þama eitt verk, sem gert er í við. Bkki man ég eftir að hafa séð skúlptúr eftir hann fyrr, en hann mun ekki vera hér á ferð með frumnaun sina. Guðmund- ur Benediktsson sýnir ágæt og örugg verk, sem gerð eru af mikilli kunnáttu og hagleik. Jón Gunnar setur spegla og bláma saman í veggmyndum, sem mér finnst ekki nógu frumlegar frá hendi framúrstefnumanns. Sig- rún Guðmundsdóttir sýnir í verk um sinum, að hún hefur feng- ið hefðbundna skólun og kann að notfæra sér hana. Ragnar Kjartansson á þama misjöfn verk, og ég held, að kvinna sú, er stendur utan dyra, sé bezt. Þorbjörg Pálsdóttir á einnig eitt verk á lóðinni. Ekki get ég fellt mig við það efni, er Þorbjörg notar, en ekki er ég svo vel að mér um efnivið til myndgerðar á skúlptúrsviðinu,, að ég viti hvað efni þetta heitir. Þessi sýning er um margt skemmtileg, og það er fróðlegt að sjá hana. Myndlistarskólinn í Reykjavík stendur fyrir þessu fyrirtæki, og finnist mér það sér lega vel til fundið. Ekki held ég, að fyrrverandi nemendur Ás- mundar Sveinssonar hefðu get- að gert honum áttræðum meiri greiða. Sýningu þessari verður íram haldið til sunnudagskvölds þann 27. mai. Valtýr Pétursson. Þaroa hittir þú naglann á höf- uðið. Hér er á ferð ævagömul spurning, sem svarað hefur ver- ið af ótal mönnum á öllum tím- um, án þess að fullnægjandi svar hafi nokkru sinmi fundizt. Eitt er víst, að ekki eru allir sam- mála um svarið við þessari spurn ingu, og verða sjálfsagt aldrei. Hin bókin fjallar um meng- un, en það er vissulega anmað vinsælt umræðuefni, ef svo mætti að orði kveða, og er því vart hægt að telja það efni frum legt fremur en hið fyrra. Myndlistar gætir ekki mikið á þessari sýningu, sem miklu fremur snýst um l'ífisskoðanir og viðhorf þeirra manna, er í hlut eiga, til umhverfis og stjóm- mála. Ég verð að játa, að ég hafði heldur takmarkaðan áhuga á öllum þessum vísdómi og fór því ekki eftir ábendingu forráða manna sýningarinnar að skoða vel og koma aftur og aftur. Bernhöftstorfan nýmáluð. Torfumenn og ... ISLENDINGAR vöknuðu við ó- venjulega hressandi fregn í morg unútvarpi síðastliðinn laugar- dagsmorgun. Fréttamaður til- kynnti, að margmenni hefði haf- ið vinnu snemma um morgun- inn við að snyrta og mála hina umdeildu rikiseign, Bemhöfts- torfuna í Reykjavik. Sáðan var brugðið ættj arðarsöng á fóninn — Fram, fram, aldrei að vikja! — og færðist þá svolitið morg- uniíf í hlustendur. Veður var fagurt, og það var engu líkara en sjáltfur a’lvaldur vildi taka þátt í þessum þrifastörfum, sem unnin voru af áhugasömu og ó- lötu fólki við hlið aðseturs þess fulltrúa þjóðarinnar, sem ráðið getur öriögum þeirra verðmæta, sem þama voru færð í sumar- Skrúða án leyfis eða afskipta yfirvalda. Það er blindur maður, sem ekki verður heillaður af breyt- ingunni, sem orðið hefur á þess- um húsum, sem lengi hafa blas- að hrjáð við augum vegfarenda. Loksins hefur miðbær Reykja- vílkur fengið þann svip, er hon- um ber, og vonandi hefur nú öli- um orðið það Ijóst, hversu frá- leitt það væri að láta þessa bæj- airprýði víkja fyrir einum stein- kumbaldanum enn. Hafi Torfu- fólk ævarandi þakkir fyrir fram tak sitt og jákvæðar mótmada- aðgerðir. Ég segi mótmælaað- gerðir, því að vissulega fólust um finnist það framhleypni og tómt mál að setja þessar hug- leiðingar í grein um myndlist. Þeim, er þannig hugsa, svara ég því til, að það er stundum meira listgildi í þeim hlutum, er við umgöngumst daglega en þvi, sem er rammað inn eða sett á fótstall. 1 Galderí SÚM eru til sýnis tvær ljósritaðar lausblaðabækur, sem þýzkur listamaður hefur saman sett í samvinnu við fjölda listamanna um Víða veröld. Fyrri bókin heitir „HVAÐ ER LIST?", og er þar að finna, að þvi er mér skilsf, álit þeirra listamanna, er hinn þýzki bók- arútgefandi leitaði til, á þeirri spumingu, er felst i heiti bók- arinnar. Já, það er nú það. í þessum framkvæmdum mót- mæli, en af þeirri tegund, sem sjaldgæf eru í nútímaþjóðfélagi, þar sem al.gengara er við mót- mælaaðgerðir, að unnin séu spjöll á verðmætum en að reynt sé að vemda þau frá tortímingu. Ég veit ekki, hvort fólk hefur tekið eftir þvi, að raunverulega var þennan laugardagsmorgun brotið blað í sögu Reykjavi’kur og jafnvel Islandssögunni. Von- andi verður árangur af þessu framtaki Torfufólks eins jákvæð ur og mótmæli þeirra. Þeir, sem ekki hafa séð Bem- höftstorfuma, síðan hún var mál- uð, ættu ekki að láta langt um líða að sjá þá bæjarprýði, enda viðrar vel þessa daga. Það má vel vera, að einhverj- HANS WERNER KALMANN heitir hinn framtakssami Þjóð- verji. Það eru liðin allmörg ár, frá því er ég reit uim sýnimgu hjá Kára Eirikssyni, og ég held, að engum hafi þá blandazt hugur um, að ég var ekki sérlega hrif- inn af framleiðslu hans. Það er gömul synd, sem ég rifja hér upp í tilefni af þvi, að nú hefur Kári Eiriksson efnt fyrstur lif- andi manna til umfangsmikillar sýningar í hinu nýja myndlist- arhúsi á Miklatúni. Því miður, ekki batnar Bimi enn. Ég hrifst engu meir en áður. Það væri aðeinis að erta gott fólk að elta ólar við Kára, og þvi segi ég eins og Jóhannes Sveinsson Kjarval, er hann sá listaverk eftir einn samtíðarmann sinn: „Þetta er sjálfsagt stórkostlegt, en þvi miður skil ég hvorki upp né niður.“ Þetta er ef til vill ekki orðrétt eftir haft, en inn- takið er það sama. Það rignir nú yfir okkur hér í Reykjavik einhverjum ósköp- um af sýningum, sem auðvitað eru misjafnar að gæðum og eðli. Það er engu líkara en að myndlistin vaxi árlega að magni til að minnsta kosti. Um það er ekiki nema gott eitt að segja. Samt verð ég að játa það hér, að skelfing er ég orðinn þreytt- ur á mörgu þvi dóti, sem sett er saman undir þvi yfirskini, að um myndlist sé að ræða. Ég held nefnilega, að allir ættu að gera myndir í fristuindum sín- um og hafa af því gaman, en hins vegar trúi ég þvi ekki, að aliir séu Skáld, sem komið geta saman vísu. Ég hnýti þessu hér aftan við, þar eð ég undrast þá tilhneigingu, sem gætir svo mjög nú á dögum hjá mörgum, að vilja kallast skáld, þótt þeir yrki ekki. Þama hafið þið aftur- haldið í honum Valtý, segja ef tii vill einhverjir. Þeir, sem þannig tala, hafa ef til vfll rétt fyrir sér, um það ætla ég ekki að dæma, en ég vaari fjáiri falisk ur við sjálfan mig og lesendur, ef ég skrifaði ekki eins og ég hugsa. Valtýr Pétursson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.