Morgunblaðið - 04.08.1973, Síða 11

Morgunblaðið - 04.08.1973, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1973 „VIÐ erum rétt að fara af stað. Flugleiðir tóku form- lega til starfa í gær, 1. ágúst, og það tekur tíma að. sameiningin fari að grípa inn í starfsemi flug- félaganna tveggja. Það er varla tímabært að ræða (Ljósm. Mbl.: Kr. Ben.) Alfreð Elíasson og Öm Johnson ræða við blaðamann Mbl. in eru undir einni stjóm, en sittt í hvoru lagi til að nýta viðsikiptaviJd og viðskipta- sambönid beggja tii heilla íyr ir félögin bæði og íslenzkt þjóðfélag." Alfreð kvað það líklegt að samband félaganna myndi verða nánara og nánara eftir Flugleiðir h.f. a5 fara á loft: flugsamgöngum ekki innbyrðis samkeppni66 „íslenzkum þjónað með Rætt við Alfreð Elíasson og Örn Johnson forstjóra Flugleiða breytingar á starfsemi í smáatriðum nú, því þetta er að verulegu leyti á um- ræðu- og undirbúnings- stigi.“ Þetta var það fyrsta, sem þeir Alfreð Elíasson og Örn Johnson tóku fram, er Morgunblaðið ræddi við þá sL finuntudag, daginn eftir að Flugleiðir hf. tóku formlega við öllum eign- um og hlutabréfum í Loft- leiðum og Flugfélagi ís- lands. En þeir létu þó til- leiðast að ræða svolítið frekar um nokkuð af því sem í bígerð er, og þær vonir sem bundnar eru við þessa sögulegu sameiningu tveggja af stærstu fyrir- tækjum landsins. „Það fyrsta, sem vi8 bein- um athygli okkar aS, er öll óeðlileg eyðsla. Að kanna hvaða þætti starfseminnar væri hagkvæmara að reka sameiginlega, — og hefur þar helzt komið til greina t. d. rekstur farþegaaf- greiðslna, eldhúss, flugstöðv- arinnar á Keflavikurflug- velli og flelra. Einnig að koma á samræmingu á þeim flugleiðum þar sem er óþarf lega mikið flogið. Það þarf að samræma áætlanir og ferðafjölda. Þetta er mjög viðamikið og erfitt verk, en unnið er að þessu nú þessa dagana í undimefnd, sem skipuð er tveimur mönnmn frá hvoru félagi. — Sumir liðir þessarar hagræðingar komast af stað strax i haust, en annað mun taka langan tíma, — mánuði, jafnvel ár.“ Færri ferðir til Norðurlanda Varðandi breytingar á flug áætluniuim fyrir veturinn, sagðd Alfreð, að síðastliðiinn vetur hefðu Loftleiðir verið með 12 ferðir á viku frá Evr ópu til Bandaríkjanná. Nú í vetur yrðu þær færri. Gert er ráð fyrir um 3 ferðum til Chicago og um 7 til New York. Á Norðurlandaleiðum ætla félögin að fljúga sameigin- lega. „Ferðimar voru of margar til Norðurlanda, sl. vetur og það er nauðsyn að fækka þeim,“ sagði Öm Johnson. „Þetta hefur meðal annars þau áhrif,“ sagði Alfreð, „að Loftleiðir ætla ekki að taka tvær vélar á leigu eins og ráð var fyrir gert, heldur fer örmur þeirra til Cargolux, til þess að ferðir Flugfélagsins standi befur að vígi,“ Flug- áætl-uniin til Norðurlanda í vetur liggur ekki fyrir nú, en verið er að vinna að und- irbúningi hennar. Hundruð milljóna sparnaður Ætkmin er að reyna að fella þá liði starfsemin.nar saman, sem betur eru reknir í einu lagi en tvennu, og kemur þar t. d. til afgreiðsl- ur erlendis, eldhús og fleira, eins og áður segir. Þessi mál eru þó erun á frumstigi. „En óhætt er að segja að sá spamaður, sem mun nást við slíkar samræmingar nemi hundruðum mölljóna, þótt ekki liggi meinar ákveðnar tölulegar áætlanir fyrir nú,“ sagði Öm. Þeir félagar kváðu þó ekki þurfa endilega að koma til þess, að starfsfóTki verði fækkað, alla vega ekki í bráð. „Sá tími er nú að koma, þegar fjöldi sumar- fóiks fer að hætta. Og kannski mua sameiningin kioma þvi tifl ledðar, að ráðn- img suimárfólks verði ónauð- synleg,“ sagði Alfreð. „Stefn- an er því sú, að segja ekki upp fólki, en ráða heldur ekki nýtt. Þetta er eðlileg hagræðingaraðferð.“ Örn kvað breytingar ekki verða verulegar fyrir starfs- fólk félaganna; það myndi vinna eftir sem áður að sömu verkefnum og ekki verða vart við sameininguna að ráði fyrst í stað. Til góðs fyrir farþega Og fyrir farþegana ætti sameiníingin að vera til hags- bóta. „Það er síður en svo ætlun okkar að rýra þjónustu við farþega okkar. Hún ætti þvert á móti að batna, t. d. með því að færa á einn stað afgreiðslur, upplýsingamið- stöðvar o. s. frv. Það verða að vísu engar gagngerar breytingar, sem farþegar munu verða varir við nú alveg á næstunini. Þeir kunna kannski að fara að sjá ný skiliti eða því um líkt. En þær breytimgar sem verða, eiga tvimælalaust að vera til bóta.“ Varðandi mat á eignaskipt- ingu fiugfélaganna í Flug- leiðum hf. mun nýskipuð matsnefnd fljótJega hefja störf, en starf hemnar er mik ið og kann að taka mánuði. í henni eru Guðlaugur Þor- valdsson prófessor, Guð- mundur Bjömsson prófessor og Ragnar Ólafsson, hæsta- réttarlögmaður, og er nefnd- in ski.puð af Landsbamkainum. Styrkari staða út á við Við spurðum þá forsitjór- ana hvort staða flugfélag- amna út á við myncK breytast að ráði við sarmeiítímguna. „Hún ætti ekki að breytasit,“ sagði öm. „Þau munu halda sínum viðskiptasamböndum, og nýta þá uppbyggingu og vinBældir, sem þau hafa á- unnið sér.“ „Þetta ætti að styrkja fé- lögin í margs konar samn- ingum,“ sagði Alfreð Elíás- son. „Til dæmis samningar varðandi tryggingar og inn- kaup ýmiss konar ættu að geta orðið hagstæðari.“ Um Júmbó og Fokker í sambandi við hugsanleg- ar breytingar á flugflota fé- laganna, sagðí Alfreð: „Loft- leiðir hafa látið athuga hvaða, flugvélategund henti bezit á þeim leiðum, sem við fljúgum á núna. Þetta; hefur verið gerit bæði af verksmiðj unum og utanaðkomandi að- ilum, og það hefur komið í. ljós að Boeing 747 þota (Júmbó) sé heppiliegust. En hvenær og hvprt af kaup- um verður er enn óvist.“ AðSpurður sagði Alfreð að það væri ékki endilega tregða á rikisábyrgð, sem kærni í veg fyrtir sMk kaup. „Við erum eimfaldlega ekki tilbúnir til að taka ákvörð- un um þetta nú. Þetta þarf allt að jaftia sig.“ örn Johnson kvað allt ó- víst iwn flugvélakaup hjá Flugfélagi Islands. „En það er útíliit fyrir að við verðum að bæta við okkur Fokker Friendsihip. Innanlandsflugið hefur verið í miklum vexti. Við bættum við okkur tveim ur vélum í fyrra, en í sum- ar hefur flugvélakosturinn verið fullnýttur, og við verð- um að gera eitthvað í því máli fyrir næsta sumar.“ Stefnt að algerri sameiningu Þeir Öm og Alfreð kváðu það mikinn miskilning að sameingmgin sé i raun og veru engin sameining, að úr tveimur félögum hafi orðið þrjú en ekki eitt, eins og haldið hefur verið fram. „Sameiningin íelat í því að hluithafar eiga nú hluta í báðum félögunua,\ sem rek- því sem tímar ltðu fram. Og kannski kæmi að því, að alger sameLniing yrði hag- kvæm, — það gæti tekið tvö ár og það gæti lífca tekið tíu ár. „Við verðum að haga seglum eftir vindi, fara var- lega og fyrirgera ekki nein- um rétti. En það er steftit að algerum samruna." „Ég er sammála þessu," sagði Örn, „Allt getur breytzt af ástæðum sem við sjáum' efcki fyrir í; dag. Á stofnfundi Flugleiða var á- kveðið að félagið myndi ekki annast rekstur flugvéla félaganna tveggja, nema því aðeins að samþykki % fé- lagsstjórnar komi til. En það er sem sagt gert ráð fyrir þessum mögulei'ka, að félag- ið yfirtaki lika flugrekstur- inn.“ MHyggjum gott til samstarfsins11 „Við Örn eigum eftir að starfa mjög náið saman," sagði Alfreð Elíasson, er við spurðum þá að lokum, hvemig samvinnan leggðist í þá. „Og ég get fullyrt að ég kvíði ekki samstarfinu." „Ég hef litlu við þetta að bæta,“ sagði Örn Johnson. „Við höfum uninið að þessu saman með augun opin og vituim að þetta er það eina rétta. Það er oft sagt að lenigi lifi í gömlum glæðum. En hitt ber svo að athuga, að það keimur að því að nýir menn taka við með ný við- horf. Aðalatriðið er að ís- lendingar hafi sem b eztar fiugsamigöngur við umheim- inn. Og það hefur sýnt sig í gegnium aldimar, að sam- gönigum okikar er ekki vel borgið ef við eigum þær und ir öðrum. Islerwku flugfélög- in eiga i æ meiri samkeppni við stór, erlend flugfélög, og við munum ekki halda velli ef við erum að berjast inn- byrðis." Á. Þ.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.