Alþýðublaðið - 21.09.1930, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 21.09.1930, Blaðsíða 2
sr AEÞÝÐBBLAÐIB 5 daga vikan 1 flestum iðngreinum menning- arlandanna er vinnutíminn um 48 stundir á viku, f>. e. að meðaltali 8 stundir á dag; í 6 daga, og 7. dagurinn pá hvíldardagur. Pað á hann líka að heita hér hjá okkur, pö verkamenn verði lítið varir við það hér við höfnina æði-langan tíma ársins (að ekki séu nefndir sjómenn). Það hefir mjög lengi verið sið- ur viða erlendis, að verkamenn ynnu ekki nema hálfan laugar- daginn, og er nokkuð farið að tiðka pað hér. Hér er það þó engin stytting á vinnuvikunni, því hjá þeim atvinnurekendum, þar sem ekki er unnið seinni hluta laugardags, er byrjað þeim mun fyr á morgnana. En erlend- is er þessi hálfi laugardagur viða að verða að heilum frídegi, það er, að fimm virkra daga vikan er að ryðja sér til rúms. Um áramótin 1928 og 29 er talið, að 400 þús. verkamenn í Bandaríkj- unum hafi unnið við þetta fyr- irkomuiag, þ. e. fimm daga vinnu og tveggja daga frí í viku og fult vikukaup. En síðan í árs- byrjun 1929 hefir tala þeirra fyr- irtækja, sem tekið hafa upp þetta vinnulag, stórum aukist, og er talið að um miljón verkamanna í Bandaríkjunum vinni nú á þenna hátt. Nýlega sagði einn af helztu iðnrekendum Bandaríkj- anna, John K. Roskob, að það gæti ekki hjá því farið, að fimm Bátarnlr komn báðir heilu os hölðnu. Síðdegis á sunnudaginn var réri héðan úr Reykjavík vélbát- urinn „Sigurfari“ frá Innri-Njarð- vik. Fréttist ekkert til hans í nokkra daga, og voru menn farnir að óttast um hann. Hafði hann fyrst verið í fiskiróðri, en síðan farið vestur á Sand. Þar beittu bátverjar lóðirnar á ný. Á fimtudagskvöldið kom báturinn aftur hingað til Reykjavíkur og sama dag „Ingólfur" frá Vest- mannaeyjum, á leið frá Siglufirði, en um hann var einnig tekið að qttast. Hafði sjór komist í olíuna Og það tafið ferð hans. Bátamir komust báðir heilu og höldnu leiðar sinnar, ' , Sraokkfisknr á fsafirði. Frá fsafirði er FB. simað 19. sept.: Lítils háttar hefir veiðst hér af smokkfiski síðustu daga. 25 ára hjúskaparafmœli eiga á morgun hjónin Sigurlaug Sig- valdadóttir og Eggert Theódórs- son kaupmaður á Njálsgötu 12. Pelr flngn f 27 sólarhrlnga* Bandankinnum. daga vikan myndi á næstu árum verða almenna venjan í iðnaði Bandarikjanna. í bók, sem er nýútkomin í Bandaríkjunum og heitir „The Five-Day Week in Manufacturing Industries", gefin út af National Industrial Conference Board Lnc., New York, er ítarleg skýrsla um 5 daga vikuna í Bandaríkjunum. Er hún bygð á því hvað at- vinnufyrirtækin sjálf hafa látið uppi. Hafa 86 af 100 af þeim jafn- framt fækkað vinnutímunum yfir vikuna, en 14 af 100 hafa ekki gert það, heldur bætt laugardags- tímunum við hina dagana. Af þeim atvinnufyrirtækjum, sem styttu vinnutímann um leið og þau tóku upp 5 daga viku, segja 6, að afrakstur vinnunnar hafi minkað nokkuð, 24 að vinn- an hafi rninkað í samræmi við styttinguna, 46 að unnið sé jafn- mikið og áður þrátt fyrir fækk- un vinnustundanna, og 18 aegja að afrakstur vinnunnar hafi auk- ist. Auðvitað er, að stærð fyrir- tækjanna, tegund vinnunnar, mis- munandi aðstaða og hollusta á vinnustöðvunum hefir nokkur á- hrif á útkomuna. En alt um það eru þessar tölur afar-eftirtektar- verðar. Það hefir reynst kleyft að láta nálega helming fyrirtækj- anna afkasta jafn-miklu þó slept sé laugardeginum. ffiapp daffsisas felst áreiðanlega í þvi að fara á hlutaveltu verkakvenna, sem hefst kl. 4 í dag. í Góðtemplara- húsinu við Templarasund. Þessi hlutavelta er, skrumlaust sagt, einhver langbezta hlutavelta, sem hér hefir verið haldin. Munimir eru svo fjölda margir og góðir. Verkakonurnar hafa miðað hluta- veltu sina við það að gera sem allra flesta ánægða, en síður við það, að margir yrðu óánægðir en örfáir ánægðir, eins og títt hefir verið um þær hlutaveltur, sem haldnar hafa verið hingað til. Þess er vænst, að sem allra flestir sæki hlutaveltuna, því að þáð borgar sig. Vegna mikilla breytinga í alþýðuhúsinu Iðnó verður hlutaveltan í Góðtempl- arahúsinu. Togararnir. „Gulltoppur" fór á veiðar í gær og „Baldur" kom frá Englandi. Skipafréttfr. Búist er við, að „Alexandrína drottning" komi ekki að norðan og vestan fyrri fen í fyrsta lagi annað kvöld. — Kolaskipið, sem kom til „KoLa og salts“, fór héðan í gær á- leiöis til Spitsbergen. í vor gerðu bræður tveir, er Hunter heita, alla veröldina hissa með því að fljúga samfleytt í 24 sólarhringa. Sldftust þeir til þess að sofa, en benzín, smurn- ingsoiíu og vistir fengu þeir úr annari flugvél, er tveir aðrir Huntersbræður stýrðu — þeir eru fjórir alls. Fór sú flugvél upp við og við og flaug yfir hinni, og lét eldsneyti og vistir renna eftir slöngu niður í vélina, sem lang- flugið þreytti. Á myndinni, sem tekin er úr efri flugvélinni, sézt gúmmíslangan, sem gengur niður í neðri vélina. Það var í Banda- ríkjuíium, í nánd við Chicago, að þeir Huntersbræður unnu afrek þetta. Mun vegalengdin, er 'þeir þannig flugu stanzlaust, hafa ver- ið viðlíka og tvisvar sinnum kringum jörðina um miðjarðar- linu. En það var ekki lengi að þeir bræður hefðu heimsmetið í þol- „Ný|a lsiand,“ Lundúnum (UP.), 20. sept., FB. Frá Stokkhólmi er símað: Stjórnin hefír birt skýrslu, sem byggist á dagbók Andrée, frá því flugið hófst 11. júlí 1897 til 2. október sama ár. I dagbókinni segir, að loftfarið hafi lent á ísn- Um þ. 14. júlí, eftir að kviknaðt hafði lítilsháttar í belgnum. Þeir lentu á 83. gr. öl. br. og 30. gr. austl. 1., héldu því næst í áttilna til Franz Jósefs-lands, en hættu síðar við að komast þangað, vegna matvælaskorts. Þ. 4. ágúst voru þeir staddir á 82.17 gr. nl. br. og 29.43 gr. austl. 1. Síðiar komust þeir loks til Hvíteyjar og bygðu sér þar kofa, sem þeir köllúðu „Nýja Island". — Sein- ustu orðin, seam Andrée skrifaði í dágbók ,sína, voru á þá leið, að með jafn-góðum og dugandi fé- lögum ætti að vera kleift að vinna sigur á öllum erfiðleikum. I flugi. 1 júlímánuði lyftu tveir aðrir Bandaríkja-flugmenn sér upp til þess að þneyta þolflug; heita þeir Jackson og O’Brien. Flugu þeir stanzlaust dag eftir- dag og nótt eftir nótt út júlí og fram í ágústmánuð; fengu þeir eldsneyti, vistir og hreina ílibba(!) á sama hátt og Hunters- bræður. Nálguðust þeir nú mjög þetta 24 sólarhringa met bræðr- anna, og 14. ágúst fóru þeir fram úr því. En þrem sólarhringum síðar bilaði vélin lítilsháttar, svo þeir urðu að hætta fluginu og lenda. Höfðu þeir þá flogið Stanzlaust í 647 klukkustundir, þ.; e. það vantaði eina klukkustund uppá 27 sólarhringa. Þegar vinir þeirra Jacksons og" O’Brien óskuðu þeim til hamingju tóku þéir því dauflega. Þeir sögð- ust hafa ætlað að fljúga í 1000 klukkustundir. Ræninnlar á Englanði. Lundúnum (UP.), 20. sept., FB.; Frá Lundúnum er simað: Bar- átta lögreglunnar við bifreiðabóf- ana, sem hafa upp á síðkastið tekið „stéttarbræður" sína í Vest- urheimi til fyrirmyndar, fer harðnandi. í dag réðust þrír bóf- ar inn í Barkinstöðina í Essex, nálægt Lundúnum, kl. I2V2, bundu og kefluðu stöðvarþjónana, létu greipar sópa um peningahirzluna og náðu um hundrað sterlings- pundum. Því næst héldu þeir á brott í bifreið, sem þeir höfðu stolið. Fanst hún hálfa aðra mílu vegar frá stöðinni nokkru síðar.. — Lögreglunni hefir ekki enn; tekist að ná í bófana. Á. Einarsson & Eunk hafa fengið 300 fermetra lóð leigða við höfn- ina undir vörugeymsluhús, með sömu skilmálum og Samb. ísl. samvinnufélaga.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.