Alþýðublaðið - 21.09.1930, Side 4

Alþýðublaðið - 21.09.1930, Side 4
4 AEÞÝÐOBLAÐIÐ Drengjapeysur Drengjafðt. með aillIlUUIlU Enskar húfur. S. Jóhannesdðttir. bláar og mislitar. Vetrarkápur og kjólar, ný sending tekin upp í dag. ■I1IIIIIIIIIIIIIII[IIIIIIÍI1IIIIIII1ÍB I Nýkomlðs 1 |IIII1III!IIII1II1III1II1I1II!I!I!I| |Sokkar| = úrull, ísgarni, baðmull og ss == Afarmikið úrval bæði fyr- m = ir dömur, herra og börn. §s 1 Bolir 1 = úr ull, ísgarni. silki og == ||| baðmull. = = Mjög mikið og smekklegt H|j IH úrval nýkomið. = ■ Silki-nærfðt | = fyrir dömur. = m Undirkjólar, §|§ = Náttkjólar, ||| § Skyrtur og buxur. = = Mjög mikið úrval tekið ;=s = upp síðustu dagana. §§§ I Vðrnhúslð. 1 Hversvegnaaðborga 7—8 kr. fyrir oð sóla og hæla karlmannsskó, þegar það fæst fyrir kr. 6—6,50. Hvers vegna að borea ð-7 kr. fyrir að sóla og hæla kvenskó, fiegar það fæst fyrir kr. 4,50—5,00. Reyoslan er sannleiknr. Ódýrastar viðgerðir á öllum skó- fatnaði eru hjá Kjartani írnasyni, Frakkastíg 7. Simi 814. Hún verður í G. T.-húsinu. — Hina heldur „f. R.“ í „K. R.“- húsinu. Fegurð undirdjúpanna. 11. dag júnímánaðar komust tveir menn niður á 1426 feta dýpi í Atlantshafi, undan Ber- múda. Dýpi þetta, sem er nær 238 faðmar, er langtum meira en nokkru siinni áður hefir verið kafað niður á, enda var áhaldið, sem til þess var nofað, af alveg nýrri gerð. Það er stálkúla, sem er 57 þuml. (hátt á annan met- er) að ytra þvermáli, en um 11/2 þuinl. að þykt. Á henni er gegn- sær gluggi úr kvartsgleri, og er hægt að lýsa með sterku raf- magnsljósi sjóinn utan við glugg- ann. Þeir heita dr. William Beebe og Otis Bai'tan, sem fóru þetta æfintýralega ferðalag. Er kúlan búin til eftir þeirra fyrirsögn, og hefir hinn síðarnefndi staðið straum af kostnaðinum við til- búnimg hennar og kafanirnar. Fjórum sinnum köfuðu þeir fé- lagar niður á 350 feta ctýpi, þrisvar niður á 800 feta dýpi (liðlega 130 faöma) og einu sinni á dýpi það, er fyrst var íilgreint, 1426 fet. Var kúla þeirra i síma- sambandi við skiþið, er kafað var frá, og höfðu þeir ,með sér súrefni á ílátum, til þess að anda að sér. Þeir höfðla ýmis konar beitu utan við gluggann til þess að hæna að sér fiska, enda tókst það vel, og hefir þeim þótt ferða- lag sitt margborga sig, en þeir gerðu þetta í rannsóknarskyni eingöngu, en ekki til þess að komast dýpra en aðrir og hljóta blaðafrægð, enda hefir lítið verið um þetta rætt i blöðum. Merkilegast þótt þeim félögum þó að sjá litabreyringarnar í sjónum, eftir því sem dýþra var farið. Dr. Beebe segir svo frá: „Rauði liturinn var gersamlega horfinn þegar við vorum komn- ir nokkur fá fet niður. Þegar við vorum komnir um það bil 60 fet, var glóaldinsliturinn horfinn líka, og guli liturinn var horf- inn áður en við komum niður í 400 feta dýþi. 1 dýþi því, er við vorum í (800 fet), máttí enn sjá grænan lit, en hann var mjög daufur, annars var alt fjólublátt og blátt, en slíkur blár litur, sem aldrei nein mannleg augu hafa áður litið." Ætla félagar þessir að gera nýjar tilraunir næsta ár, og er búist við, að með kafarakúlu þessari sé fundin ný leið til rannsóknar á undirdjúpunum. (New York Zoological Society.) Hvað ®r &H fréfta? Af Grœnlandsmíðum kom fær- eyskur „kútter“ hingað í gær. Eigendaskifti hafa orðið á Kaffibrenzlu Reykjavíkur og kaffibætisgerðinni „Sóley". Gunn- laugur Stefánsson kaupmaður í Hafnarfirði kaupir hvoratveggju af Jóni Bjarnasyni. Mun Gunn- laugur ætla að halda áfram að reka fyrirtæki þessi hér í Reykja- vik. Kaffibætirinn „Sóley“ er al- gerlega innlendur iðnaður og gefur að gæðum ekki eftir bezta erlenda kaffibæti, en er að mikl- um mun ódýrari. Ætti fólk að athuga þetta og kaupa að öðru jöfnu það, sem innlent er, og auka með því atvinnuna í land- inu, þó að í smáum stíl sé. Armfinn. Á síðasta fundi hafn- arnefndar var lagt fram bréf frá róðrardeild glímufélagsins Ár- mann, þar sem beðið er um lóð við höfnina fyrir bátaskýli, fyrir kappróðrabáta félagsins. Lóðina óskaði félagið áð fá endurgjalds- laust til 5 ára, ef mögulegt væri. Beiðninni var frestað og hafnar- stjóra falið að athuga, hvort eigi væri tíl annar staður heppilegri eta sá, sem félagið fer fram á að fá leigðan (vestanvert við bátabryggjuna fram af vestur- uppfyllingunni). Frekja. Fyrir fundi hafnar- nefndar 9,- þ. m. lá beiðni frá Dansk Sandpxunperkompagni, þar sem það óskar eftir, að 32 þús. kr. bankatrygging sú, er þeir hafa sett fyrir bryggjubyggingunni, sem nú er lokið, en sú trygging á að standa samkv. samningi til 2. júní 1931, megi einnig gilda scm trygging fyrir endurbygg- ingu á járnbólvirkinu, sem það nú lætur vinna að, en samkvæmt Scmmingi um það verk ber því aÖ setja 28 þús. kr. sem sérstaka tryggingu, er gildi í eitt ár, eftir að endurbyggingunni er lokið. — Hafnarnefndin sá auðvitað ekki ástæðu til að verða við þessari beiðni. Ljón slapp úr búri og hvarf út í buskann. Daginn eftir kom sveitamaður með það í bandi og skilaði eigandanum. Hann fékk vænan skilding fyrir, og þegar búið var að láta ljónið inn í búrið, dáðist eigandinn að mann- inum fyrir hugrekki að hafa einn þorað að leggja í ljón. „Ja, hver þremillinn,“ sagði sveitamaðurinn, „var það ljón? Ég skildi sízt í hvað þessi hund- ur var afskaplega stór!“ Með síðustu skipum höfum við fengið feiknin öll af nýjum vörum, svo sem karlmannafótum og frökkum, drengjafötum og frökkum, manchett- skyrtum, peysum, sokkum, nærfatn- aði, húfum og bindum, Jafn-fallegar vðrur kaupið þér hvergi ódýrari eftir gæðum. Munið, að bezt er að verzla við Fatabúðina, Hafnarstræti 16 og Skólavörðustig 21. Alt af nýjar vörur með hverri skipsferð! Vetrarkápur, skinnkápur, peysufatafrakkar, kjólar (frá 11 kr. stk.), golftreyjur, svuntur, morgun- kjólar, barnapeysur, undirföt, — fyrir fullorðna og börn, — sokkar, hand- klæði, metravara og smávara. Enn fremur saumum við fyrir viðskifta- vini okkar alls konar fatnað, svo sem drengjaföt, upphluti, upphlutsskyrtur, kjóla, sloppa, svuntur o. fl. o. fl. Fijót og vönduð vinna. Allir veiða ánægðir, sem skifta við Fatabúðina, Hafnarstræti, og Útbúið, Skólav.st. Athugið verð og gæði annars staðar og komið siðan í Tízku- búðina, Grundarstíg 2. ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN, Hv@rfisgötu 8, sími 1284, tekur að sér alls koss- ar tækifærisprentuœ, svo sem erfll]óB, aö- göngumiða, kvtttanií, relknlnga, bréf o. 8. frv„ og afgreiðir vlnnune 'tjótt og vtð réttu veiói. Mf kæfa KLEIN, Baldursgötu 14. Sími 73. Vinnuföt alls konar. Einnig Skrúfur, Bolt- ar og Rær. Klapparstíg 29. Sími 24, „Kann dóttir yðar mörg út- lend tungumál?“ „Já, hér koma svo margir ríkir útlendingar, að hún er búin a& læra að siegja „já“ á fjórum tungumálum.“ Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Haraldur Guðmundsson. Alþýðuprentsmiðjan.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.