Morgunblaðið - 27.11.1973, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÖVEMBER 1973
7
ísraelar hafa hertekið fjöldann allan af sovézkum skriðdrekum, sem þeir gera
nú við og bæta síðan við skriðdrekasveitir sínar.
Með
Rússa
í vasanum
EGYPTAR skulda Sovét-
ríkjunum nú eitthvaS um tvo
milljarða sterlingspunda (um
400 milljarða krðna), eða því
sem næst andvirði 8—9
mánaða heildarframleiðslu
þjóðarinnar, eða sex ára út-
f lutningstekna landsins. Ef þú
skuldar bankanum þínum
þúsund pund, ert þú á hans
valdi. Ef þú skuldar honum
milljón pund, er hann á þínu
valdi. Egyptar hafa Rússa I
vasanum.
Á undanförnu hálfu öðru ári
hefur það komið berlega f ljós,
hve áhrif Sovétríkjanna eru
takmörkuð í Egyptalandi. í
fyrra voru foringjar í egypzka
hernum orðnir mjög óánægðir
með það, sem þeir nefndu
bandalag við djöfulinn. Var
þetta um það leyti, er sovézkir
sérfræðingar í Kaíró voru
opinberlega aðandmæla þeirri
stefnu egypzku stjórnarinnar
að ýta undir einkaframtak,
leita eftir einkafjármagni og
semja um stórframkvæmdir
við peningamenn, eins og gert
var varðandi Su med-olíu-
leiðsluna. Varð þetta til þess,
að 15 þúsund sovézkir ráðgjaf-
ar fóru heim frá Egyptalandi í
júlí í fyrra.
Ýktar skuldir
Getgátur um það, hve mikið
Egyptar skulda Sovétríkjun-
um eru ekki samhljóða.
Flestar eru þær byggðar á upp-
lýsingum Kaíró-blaðsins A1
Ahram snemma á árinu 1972,
þar sem þær voru þá taldar
nema tveimur milljörðum
punda, eða andvirði alls
ræktaðs lands í Egyptalandi,
og þá var talið, að upphæðin
hækkaði að jafnaði um tvær
milljónir punda á dag. Um það
leyti, sem sovézku ráðgjafarnir
voru að snúa heim, var svo
haft eftir egypzkum heimild-
um, að skuldimar nálguðust
þrjá milljarða punda, og þá
bersýnilega reiknað með efna-
hagsaðstoð Rússa. Ekki er þó
talið, að síðari upphæðin sé
rétt, heldur að hún hafi verið
notuð í þágu Sadats forseta til
að draga úr vinsældum Sovét-
ríkjanna.
Bandaríska utanríkisráðu-
neytið telur skuld Egypta við
Sovétríkin hafa verið mun
lægri en að ofan greinir. Tel
ur ráðuneytið Egypta hafa
skuldað Sovétríkjunum rúman
milljarð punda í fyrra (fyrir
hernaðaraðstoð), og öðrum
kommúnistaríkjum, að Kína
meðtöldu, um 320 milljónir
punda. Ef svo efnahagsaðstoð-
in er reiknuð með, og vopna-
sendingar á þessu ári, telur
ráðuneytið, að heildarskuldin
nemi nú um 2'/í milljarða
punda.
Ólíklegt er, að Egyptar
greiði fyrir síðustu vopna-
sendingarnar frá Sovétríkjun-
um. öðru máli skiptir efna-
hagsaðstoðin, enda þar um
mun lægri upphæðir að ræða.
Á árunum 1954—72 buðu
kommúnistaríkin Egyptumalls
800 milljónir punda í efna-
hagsaðstoð, þar af 500 milljón-
ir frá Sovétríkjunum. Sam-
kvæmt egypzkum heimildum
hafa Egyptar ekki notað nema
200 milljónir af þessari upp-
hæð. Er álitið, að endurgreiðsl-
ur vegna efnahagsaðstoðarinn-
ar nemi svipaðri upphæð og
andvirði áframhaldandi að-
stoðar. Lán Sovétríkjanna
vegna efnahagsaðstoðar eru
venjulega til 12 ára með 2H
prósent vöxtum, en kínversku
lánin er vaxtalaus og til lengri
tima.
Rússar sitja á hakanum
Venjulega hafa Egyptar
greitt afborganir sínar með
baðmull, en uppskeran er tak-
mörkuð, og hefur útflutnings-
verðmætið numið um 100
milljónum punda á ári. Áður
fengu Sovétríkin og Kína um
58% þessa útflutnings, en á
siðasta ári lækkaði hlutur
þeirra niður fyrir 50%. Vilja
Egyptar láta þau ríki ganga
fyrir kaupunum, sem greiða í
alþjóða gjaldmiðli, jókst
hlutur þeirra ríkja á fyrra ári
á kostnað hinna. Kommúnista-
rikin þurfa einnig að greiða
hærra verð fyrir baðmullar-
uppskeruna en ríkin, sem
greiða f peningum.
Vegna slæmrar reynslu af
efnahagsaðstoð við önnur ríki
hafa Sovétríkin verið að gera
breytingar á aðstoðinni, þann-
ig að hún færist i form vöru-
skipta. Flytja þá Sovétríkin út
verksmiðjuhluta og vélar, og
fá í staðinn framleiðslu verk-
smiðjanna.
Meðan Súezskurðurinn helzt
lokaður fá Egyptar greiðslur,
sem nema 130 milljónum
punda á ári, frá Kuwait, Lýbfu
og Saudi-Arabíu, auk ótil-
greindrar aðstoðar frá öðrum
Arabarikjum. Ekki er að efa,
að þessar greiðslur komu til
umræðu á fundum Sadats með
Feisal konungi Saudi-Arabíu
og Gaddafi forseta Lýbfu rétt
áður en stríðið hófst. Vfst er,
að þrálátur orðrómur gekk í
Beirut um, að Arabaríkin
væru að kosta 500 milljön
punda vopnakaup fyrir
Egypta. Þessi upphæð átti alls
ekki að ganga upp í skuldina
til Rússa, þeir gátu beðið.
Biðja samt um mei r
En hvers vegna fara Rússar
svona fáum orðum um skulda-
söfnun Egypta? Því er þannig
varið, að fátt kemur verr við
almenning í Sovétríkjunum en
upplýsingar um, að fjármun-
um hans sé deilt út til van-
þakklátra útlendinga til að sóa,
útlendinga, sem f þokkabót
fangelsi svo kommúnista í
heimalöndunum. Ileima fyrir
verða Rússar því að láta sem
efnahagsaðstoðin komi að til-
ætluðum notum. Egyptar, hins
vegar, geta séð sér hag í að
básúna það, hve háar skuldir
þeirra eru við Sovétríkin. Það
hefur samt aldrei hindrað þá í
að biðja um meir.
(UrThe Economist).
BROTAMÁLNIAR
Kaupi allan brotamálm langhæsta
verði Staðgreiðsla
Nóatún 27, sími 25891
HEIÐRUÐU LESENDUR
Tökum að okkur úrbeiningu á öllu
kjöti og göngum frá því i neyt-
endapakningar bæði fyrir heimili
ög verzlanir.
Sækjum og sendum
Uppl. isimum 32496 — 72475.
FRÁ HOFI
Við gefum-20% af allri jólahanda-
vinnu.
Hof,
Þmgholtsstræti 1
BÍLAVIÐGERÐIR
Bilaverkstæðið Biaro Biarqi við
Sundlaugaveg, simi 38060
Tökum að okkur allar almennar
bilaviðgerðir Bilaverkst Bjarg
Bjargi, s. 38060
TOYOTA COROLLA
árg. 1973 til sýnis og sölu að
Gautlandi 19.
Er á nýjum nagladekkjum og ný
teppalagður.
Uppl. i sima 81994 eftir kl. 8 á
kvöldin.
HAFNARFJARÐARAPÓTEK
Opið öll kvöld til kl 7, nema
laugard til kl. 2 Helgidaga frá
kl 2—4
STÚLKUR — KONUR
óskast i borðsal og eldhús
Hrafmstu. Hálfan eða allan dag-
inn, Upplýsingar hjá bryta. simi
35133
URVALS SÚRMATUR
Súrsaðir lundabaggar, hrútspung-
ar, sviðasulta, svinasulta Úrvals-
hákarl, síld og reyktur rauðmagi.
Harðfiskur, bringukollar.
Kjötmiðstöðin, Laugalæk 2,
simi 35020
NÝÍBÚÐ
3 herb. og eldhús, óskast til leigu i
Hafnarfirði
Hringið i .24324 biðjið um Mr.
Cardollo simi 79273
„Silver Imperial"
„forystupenni White Dot"
..White Dot frá Sheaffer, er sérstæð gjöf fyrir sérstakt
fólk. Ótakmörkuðum tíma hefur verið varið til þess, að
gera beztu ritföngin. Frá „White Dot"-safninu kemur
hinn stórkostlegi „Silver Imperial". Svartur oddur, en
penninn er úr sterling silfri. Sjálfblekungur og kúlupenni í
sama stíl.
SHEAFFER
the proud craftsmen
SHEAFFER, WORLP WIDE, AtextPOfnCOMPANY