Morgunblaðið - 27.11.1973, Page 10

Morgunblaðið - 27.11.1973, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÖVEMBER 1973 Frá innrásinni f Tékkóslðvakfu 1968. tryggja eigið öryggi með innrás sinni. En auðvitað er þetta ekki annað en yfirklór ráðamanna í Kreml, herstyrk sínum beindu þeir ekki gegn Vestur-Þjóðverj- um og Bandaríkjamönnum held- ur alþýðu manna í Tékkóslóvakíu og réttkjörnum stjórnendum hennar, sem allir voru settir úr embættum sínum. Ahrif innrásar- innar voru ekki meiri en það á valdajafnvægið í Mið-Evrópu, að skömmu slðar ítrekuðu Vestur- veldin tillögur sínar umsamdrátt I vörnum þessa hluta álfunnar, þau Hverra kosta er völ, ef málið er hugsað til enda? NIÐURSTAÐA þeirra fimm greina, sem birzt hafa hér í Morg- unblaðinu undanfarið undir sam- heitinu „Varnir Islands", er í stuttu máli sú, að ekki sé ráðíegt við núverandi aðstæður að breyta fyrirkomulagi vama landsins. Fyrir niðurstöðinni hafa verið færð rök, sem bæði snerta öryggi íslands og öryggi vinsamlegra ná- grannarikja. Einnig hefur verið bent á það, að óraunhæft sé að ræða um skiptingu á hlutverki varnarliðsins, þ.e. sleppa varaar- hlutverki þess og leggja einungis áherzlu á eftirlitshlutverkið, sem þá yrði unnið meira og minna af íslendingum. Itrekað hefur verið, að enginn stjórnmálaflokkur hef- ur flutt tillögu, um að stofnaður verði íslenzkur her, en skortur á slíkum tillögum veldur því, að raunverulega er um orðaleik að ræða, þegar rætt er um það, að íslendingar taki að sér varnir lands síns. Varnir Dana og Norðmanna Viðbrögðin við greinum þessum þessu hafa verið allsnörp einkum í Þjóðviljanum, og til dæmis um þau má vitna til eftirfarandi úr forystugreinum blaðsins: „Hér er þvf til að svara, að sé öðrum Norðurlöndum sú lífsnauðsyn, sem Morgunblaðið vill vera láta, að amerískur her hafi setu á ís- landi, þá er þess vissulega að vænta, að þau sömu Norðurlönd hikuðu ekki við að hýsa svo ágætt varnariið í eigin löndum. En þarna steytir nú kenning Morgun- bl. heldur betur á skeri, þvf að öll Norðurlönd utan íslands hafa ætíð og ævinlega talið það full- komna frágangssök að veita bandarfsku herliði viðtöku í lönd- um sínum, og væri sérhver stjórn- málamaður á Norðurlöndum póli- tiskt feigur, sem slíkt boðaði. Og hér stoðar ekkert fyrir Morgun- blaðið að benda á þá málamynda heri, sem Norðmenn og Danir halda uppi, því að ekki er nú rússneski bjöminn svo vígalegur, sem af er látið, ef Danaher stenst honum snúning." (Föstudagur 16. nóvember.) 1 þessu sambandi er vert að vekja athygli á því, að samkvæmt skýrslu International Institute of Strategic Studies eru á þessu ári 39.800 manns í danska hernum og rekstur hans kostar 3.196 milljón- ir danskra króna á ári, í norska hernum eru aftur á móti 35.400 manns og hann kostar norsku þjóðina 3.485 milljónir norskra króna á ári. í bandaríska vamar- liðinu á Keflavíkurflugvelli eru um 3.300 manns. Ef til átaka kæmi myndi allur þessi herafli lúta sameiginlegri herstjórn Atlantshafsbandalagsins og hon- um til liðsauka kæmi herstyrkur frá öðrum Atlantshafsbandalags- ríkjum. Þá er einnig vert að vekja athygli á þeirri staðreynd, að aðeins risaveldin tvö eru sjálfum sér nóg um vamir. í Vestur- Evrópu. treysta öll rfki á aðstoð Bandarfkjanna, ef til ófriðar skyldi koma ekki sízt Vestur- þjóðverjar. Til eilífðarnóns? Þá hefur því verið haldið fram, að stefna sú, sem boðuð hefur verið f greinum þessum, sé þess efnis, að hér á landi skuli vera erlendur her til eilífðarnóns. Slík- ir sleggjudómar standast ekki gagnrýni. í greinunum hefur ver- ið tekið mið af aðstöðu íslands um þessar mundir, og þeir menn vilja ekki horfast í augu við stað- reyndir, sem fást ekki til að viður kenna, að breytt hernaðaraðstaða á Atlantshafi í kjölfar útþenslu sovézka flotans hefur stórkost- lega aukið hernaðarlegt mikil- vægi Islands. Hér hefur verið bent á það, að þess vegna sé mjög övarlegt fyrir Islendinga að auka óvissuna með því að breyta um stefnu í öiyggismálum. Þessar breyttu aðstæður valda þvi, að meira en 20 ára gamlar röksemdir eiga ekki lengur við, en hins veg- ar gefa þær ekki annað en vfs- bendingu um það, hver þróunin kann að verðaf framtfðinni. Ilver hefði spáð því á sinum tíma, að sá „postuli" kalda stríðs- ins, sem Nixon Bandaríkjaforseti var talinn, skyldi gjörbreyta heimsmyndinni f forsetatíðsinni með þvf aðs að sættast við Kfn- verja og verða eins konar milli- göngumaðurmilli þeirra og Rússa? Utanrikisstefna Bandarikjanna um þessar mundir sýnir, að á sviði alþjóðamála skiptast veður eft fljótt i lofti. Þótt breytt and- rúmsloft f samskiptum austurs og vesturs gefi vissulega tilefni til bjartsýni um það, að hinir fornu deiluaðilar muni nálgast, þegar f ram lfða stundir, hefur þó ekkert enn gerzt, sem sýnir ótvírætt, að andvaraleysi sé leyfilegt í örygg- ismálum. Þeir tfmar kunna að koma, og þá lagar fslenzk utanrík- isstefna sig að því. ístuttu rnáli má segja.að við vit- um. hvað við höfum nú. Við vitum, að núverandi skipan varnarmála á Atlants- hafi hefur tryggt þar frið frá lokum síðari heimstyrjaldar- innar. Viðvitum einnig, að varnarleysi íslands hefur ekki f för með sér, að Sovétríkin breyti um stefnu f flotamálum. Við vitum hins vegar ekki, hvern- ig leitazt yrði við að fylla það tómarúm, sem skapaðist, ef Is- land yrði varnarlaust. En með hliðsjón af þróuninni til dæmis á Indlandshafi getum við ályktað, að það yrði ekki þolað, að óvissa rikti um það, hver hefði fótfestu á svo hernaðarlega mikilvægum stað. Með breyttri utanrfkisstefnu gæti íslenzk ríkisstjórn því raskað þeim friði, sem tekist hefur að skapa í þessum heimshluta. Samanburður við Tékkóslóvakíu? Andstæðingar varna á Islandi halda því oft fram að þeir, sem vilja tryggja öryggi Islands með varnarsamningi við Banddarikin, séu skoðanabræður þeirra, sem á sfnum tfma stuðluðu að innrás Sovétríkjanna í Tékkóslóvakíu. 1968 var gerð tilraun til þess í Tékkóslóvakíu að framkvæma þar mannúðlegan sósfalisma, þetta gátu þeir aðsjálfsögðu ekki þolað þar í landi, sem vilja ekki veita fólkinu frelsi til orða og athafna, af þvf að þeir vita, að þar með er völdum þeirra lokið. Sovétrfkin þóttust einnig sjá fram á það, að aukið frelsi hefði f för með sér, að tök þeirra á Tékkósló vakfu minnkuðu. Þau gerðu einn- ig titilraun til að setja þróunina í landinu í víðari mynd með þvf að segja, að þau öfl væru að verki, sem vildu skaða öryggi Sovétrfkj- anna og rjúfa samtöðu Varsjár- bandalagslandanna. Þessari rök- semd hefur Þjóðviljinn haldið mjög á loft sem hinni einu gildu fyrir innrásinni. Hann segir: „Sumarið 1968 fékk Sovétstjórnin bréf frá hópi manna í bandalags- ríki sínu, Tékkóslóvakíu. Þeir vildu ekki láta nafns sfns getið, er erindið var að biðja um rúss- neskan her til landsins, svo að ekki yrði röskun á valdajafnvægi f Mið-Evrópu, og vegna þeirrar hættu sem stafaði af dvöl Banda- ríkjamanna f Vestur-Þýskalandi." (Föstudagur 16. nóvember.) Þetta er hin opinbera söguskoð- un Þjóðviljans á atburðunum í Tékkóslóvakíu 1968. Athyglisvert er, að blaðið heldur einmitt þeirri röksemd fram, sem Sovétrfkin helzt kjósa; að þau hafi verið að Islands vissu sem var, að sovézka hernum í Tékkóslóvakíu var ekki beint gegn þeim heldur frelsisþrá Tékka og Slóvaka. Hlutverk br>'n- drekanna var að verja „sósíalísk- an ávinning fólksins" eins og seg- ir f vináttusamningi Tékkósló- vakíu og Sovétrfkjannna. Það er eftirtektarvert, að I ofsa- fengnum tilraunum sínum til að knýja fram vamarleysi tslands, gerir Þjóðviljinn tilbúin rök Sovétríkjanna fyrir innrásinni f Tékkóslóvakíu að sfnum og snýr þeim sfðan upp á þá, sem vilja tryggja ötyggi Islands. Hvert veit nema Þjóðviljinn haldi því fram, takist kommúnistum að gera ísland vamarlaust, að það sé ógríun við öryggi Sovétríkjanna og þess vegna þurfi að gera ráð- stafanir til að róa þau? Það væri svo sem í samræmi við fyrirlitn- ingu þeirra á örlögum Tékkósló- vakfu. Þjóðerniskenndin Dvöl bandarfska varnarliðsins á íslandi særir þjóðerniskennd margra. Með því að höfða til hennar í b&ráttu sinni gegn varn- arliðinu hefur Alþýðubandalagið leitast við að sveipa sig þjdðernis- hulu. Hér verður ekki gerð úttekt á þessa baráttu aðferð Alþýðu- bandalagsins. Hins vegar er vert að gefa þvf gaum, að margir þeir, sem með hliðsjón af öllum aðstæð- um telja nauðsynlegt að hafa hér viðbúnað til varna í þeirri mynd, sem nú er, gagnrýna margt í þessu tilliti frá þjóðernislegum sjónarmiðum. Sú gagnrýni er ef til vill rétt- mæt, að þeir, sem af mestum krafti hafa barizt fyrir núverandi skipan vamarmála landsins, hafi ekki tekið nægilegt tillit til þeirra skoðanabræðra sinna, sem vara við skaðvænlegum áhrifum varn- arliðsdvalarinnar á þjöðerni Is- lendinga. Ilér er einkum átt við menningarleg áhrif, en á þvf sviði hafa deilurnar orðið mestar vegna sjónvarps og útvarps varn- arliðsins. Hér er komið að vandamáli, sem einkum verður rætt út frá tilfinningalegum sjónarmiðum. Þjóðarmetnaður birtist í svo ólfk- um myndum, að ógerningur er að takmarka hann við sérgreint mál- efni, en hins vegar má alls ekki sniðganga hann, þegar fjallað er um varnarmálin. Auðvitað er unnt að tryggja Islandi varnir án þess af því hljótist deilur um sjón- varpsrekstur í landinu. Það má alls ekki stenfa öryggi Iandsins í hættu með því að efna til árekstra vegna málefna, sem eru til þess eins fallin að valda mönnum gremju. Niðurlagsorð Um þessar mundir er staðan f varnarmálunum þessi: Islenzka rfkisstjórnin hefur tilkynnt þeirri bandarfsku, að hún óski endur- skoðunar vamarsamningsins frá 1951. Tilkynning um þetta var send 25. júní s.l. Samkvæmt varn- arsamningnum hefur Atlants- hafsbandalagið, þ.e. fastaráð þess, utanríkisráðherrar bandalagssfkj- anna og þar með ríkisstjörnir þeírra, frest til 25. desember n.k. að segja álit sitt á mikilvægi varna á Islandi fyrir bandalagið. A meðan þessi frestur er að Iíða hafa viðræður farið fram milli ríkisstjórna tslands og Bandarikj- anna um endurskoðun vamar- samningins, ekkert hefur verið látið uppi, um hvað þessar við- ræður snúast. Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandlagsins hefur flutt íslenzku ríkisstjdrninni skýrslu um hernaðarlegt mikil- vægi Islands, en þessi skýrsla hef- ur vafalítið verið staðfest af f asta- ráði bandalagsins, þar sem fram- kvæmdastjórinn starfar f umboði þess. Hinsvegar ber ekki að líta á þess. Hins vegar ber ekki að 1 fta á þessa skýrslu sem sfðasta orð Atlantshafsbandalagsins f þessu desember til að segja álit sitt. Komist islenzka og bandaríska ríkisstjdrnin ekki að sameigin- legri niðurstöðu í viðræðuum sín- umfyrir25. desember, getur hvor þeirra um sig sagt varnarsamn- ingnum upp með eins árs fyrir- vara. Bæði forsætisráðherra og utanríkisráðherra islands hafa lýst því yfir, að málið verði lagt fyrir Alþingi. Væntanlega verður það gert, áður en þingið verður slitið næsta vor. ÁJtessum vetri verða því teknar örlagarfkar ákvarðanir um öryggi og sjálf- stæði íslands. Vonandi fást þeir, sem andvígir eru vörnum ís- lands til að færa málefnalegri rök fyrir máli sínu en hingað til, svo að betur skýrist, hvert valið er, og öllum almenningi gefist kostur á að hugsa málið til enda. Þessi greinaf lokkur hefur verið samin f þeim tilgangi að draga fram þau sjónarmið, sem efst eru á baugi bæði með og á mdti dvöl varnarliðsins. Það er Jesenda að meta, hvor rökin eru haldbetri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.