Morgunblaðið - 27.11.1973, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 27. NÖVEMBER 1973
25
fclk í
fréttum
Edward yngri og Edward eldri.
MINNISSTÆÐUR
SAGA Kennedy-fjölskyldunnar
er viðburðarík og margir dagar
verða meðlimum fjölskundunn-
ar minnisstæðir um langa hríð,
dagar gleði og dagar sorgar.
Miklu hefur fjölskyldan áorkað
— og mikið hefur fjölskyldan
Laugardagurinn 17. nóv. var
einn af þessum minnistæðu
dögum í sögu fjölskyldunnar.
Enn einu áfallinu hafði
Edward Kennedy orðið fyrir:
Tilkynnt hafði verið, að 12 ára
sonur hans, Edward yngri,
þjáðist af beinkrabba, sjaldgæf-
DAGUR
um, en stundum banvænum
barnasjúkdómi. Á laugardags-
morgun gekkst drengurinn
undir skurðaðgerð, þar sem
tekinn var af hægri fóturinn, í
von um að með því yrði stöðvuð
frekari útbreiðsla sjúkdómsins
um likama hans. Sama morgun
gekk elzta barn Roberts heitins
Kennedy, Kathleen, 22 ára, í
hjónaband. Edward breytti í
engu fyrri áætlun sinni, þrátt
fyrir veikindi sonar síns, og
var svaramaður bróðurdóttur
sinnar við hjónavíglsuna.
ÞINGMAÐUR 1
FÆÐINGARFRl
Á meðan fulltrúadeild banda-
ríska þjóðþingsins tók-
st á við stórmál eins og orku-
kreppuna, endurbætur á fjármál-
um kosninga og staðfestingu á
útnefningu nýs varaforseta,
veittu þingmenn Yvonne Brath-
withe Burke, 41 árs gamalíi, þing-
manní frá Kaliforníu, fyrsta
fæðingarfrí f sögu þjóðþingsins.
Hún var komin viku fram
yfir tímann og sagðist bara
bfða. Hún vonaðist til að komast
sem fyrst til þings aftur, sérstak-
lega til að geta greitt atkvæði um
útnefningu Geralds Fords sem
varaforseta.
Skipstjórinn á
ST. LEGER.
Sem kunnugt er var skipstjór-
inn á brezka togaranum St. Leger
kallaður fyrir rétt á ísafirði á
dögunum, er togarinn kom þar
inn vegna bilunar. Var fyrir rétt-
inum gengið úr skugga um, að
skipstjórinn hefði ekki verið á
togaranum, er togarinn sigldi á
varðskipið Þór, og enginn ann-
arra yfirmanna á togaranum held
ur.
Myndin vartekin af skipstjóran-
um, Arthur Ball, við réttarsalinn.
(Ljósmyndastofa Isaf jarðar.)
★ ,r .. BORGAR EKKI
SKATTINN, ÞVl..
Nær 100 erlendir leik-
arar, þeirra á meðal
Kirk Douglas, Brigitte Bardot,
Yul Brynner og Marcello
Mastroianni, skulda Spáni nær
30 milljónir peseta — um 44
milljónir ísl. króna — í skatta
vegna kvikmynda, sem gerðar
hafa verið á Spáni, að sögn fjár-
málaráðuneytisins í Madrid.
Efstir á lista:
Kirk Douglas:
Rúmar3 millj. fsl. kr.
Yul Brynner:
2,7 millj. kr.
Brigitte Bardot:
2,4 millj. kr.
Charles Bronson:
1,6 mill. kr.
Marcello Mastroianni:
915 þús. kr.
Næst á eftir koma:
Anna Maria Rerangeli,
Florinda Bolkan, Ursula Andr-
ess, Monica Vitti, Elsa Martin-
elli, Michael Craig og Terence
Hill.
GÓÐAN MAT — EÐA..
Dómstóll í París hefur dæmt
mann i átta ára fangelsi fyrir
að myrða seinni konu sfna —
eins og þá fyrri — vegna mat-
seldar hennar.
Fyrir dómnum kom fram, að
Noel Carriou, umræddur mað-
ur, 54 ára að aldri, hafði myrt
konu sína Clemence, eftir að
hún bar hinum ofsteikta steik.
Fyrir sautján árum sfðan
fékk Carriou æðiskast, af þvf að
kona hans hafði borið honum
hálfhrátt kjöt, og kastaði hann
henni svo hranalega út úr rúm-
inu, að hún hálsbrotnaði. Ári
sfðar var hann dæmdur til tólf
ára þrælkunarvinnu.
Eftir sjö ára refsivist var
hann látinn laus vegna góðrar
hegðunar, og fljótlega kvæntist
hann á ný.
En svo var það einn sunnu-
dag, að upp úr sauð. Carriou
var þegar kominn í gríðarlega
vont skap yfir sjónvarpsþætti
um trúmál, sem hann þoldi
ekki, og þegar konan bar honum
ofsteikta steik, öskraði hann á
hana: „Þú eldar eins og nasisti"
og stakk hana síðan með hnífi.
Kviðdómur komst að þeirri
niðurstöðu, að Carriou hefði
ekki ætlað sér að myrða eigin-
konu sfna, og mælti með því, að
dómarinn yrði vægur f dómi
sínum. Átta ára fangelsi varð
niðurstaðan.
LÆGRI DÓMSTÓLL
Daniel J. Rayan, dómari í
héraðsdómstól Cook County í
Chicago, samþykkti, að mál
Eugene Owens ætti að taka fyr-
ir hjá „lægra dómstóli". Owens
hafði neitað að mæta í dómsaln-
um hjá Rayan og bar við loft-
hræðslu, enda salurinn á 22.
hæð í háhýsi.
Utvarp Reykjavlk
ÞKIÐJl DAíiL R 27. mivomber.
7.00 MorKunútvarpVeðurfreKnir kl.7.00.
8.15 ok 10.10 MorKunleikfimi kl. 7.20.
Fréttir kl.7.30, 8.15 (or forustuKr. daK-
W.), 9.00 ok 10.00. Morgunhæn kj.
7.55. MorKunstund barnanna kl. 8.45:
Olga Guðrún Amadóttir lýkur lestri
þýðingar sinnar á sögunni ..Börnin
taka til sinna ráða“ eftir dr. Gormand-
er (11). MorKunleikfimi kl. 9.20. Til-
kynninKar kl. 9.30. ÞinRfréttir kl. 9.45.
Létt Iör á milli liða. fcg man þá tfð kl.
10.25: TrynKvi TryKgvason sérum þátt
með frásögnum og tónlist frá liðnum
árum. Tónleikar kl. 11.25: Miian Tur-
kovie og Eugene Ysaye strengjasveitin
leika FaKOttkonsert í C-dúr eftir
Jóhann Gottfried Miihle.
12.00 Dagskráia Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til-
kynningar.
13.00 Eft ir hádegið Jón B. Gunnlaugs-
son leikur létt lög og spjallar við hlust-
endur.
14.30 Jafnrétti — misrétti. IX. þáttur.
Umsj'ón: Þórunn Friðriksdóttir. Stein-
unn Harðardóttir. Valgerður Jónsdótt-
irog Guðrún H. Agnarsdóttir.
15.00 Miðdegistónleikar: Santoliquido —
tríoið leikur Tríó í D-dúr op. 70 nr. 1
eftir Beethoven. Búdapest-kvartettinn
leikur Strengjakvartett í B-dúr op. 67
eftir Brahms.
Á skjánum
ÞRIÐJL'DAGt’R
27. nóvember 1973
20.00 Fréttir
20.25 Veðurog auglýsingar
20.35 Bræðurnir
Bresk f ramhaldsmynd.
2. þáttur. Til starfa
Þýðandi Jón ö. Edwald.
Efni fyrsta þáttar:
Robert Hammond er látinn. sjötugur
að aldri. Hann lætur eftir sig aldraða
eiginkonu og þrjá uppkomna syni. Elsti
sonurinn, Edward. hefur allt frá ungl-
ingsárum unnið af miklum dugnaði við
flutningafyrirtækið. sem faðir hans
kom á fót og nú býr hann sig undir að
taka rekstur þess í sínar hendur. En
þegar erfðaskrá gamla mannsins er les-
in. keínur margt óvænt í ljós. Hann
skiptir fyrirtækinu í fjóra jafna parta
og ánafnar þá sonunum þremur og
einkaritara sínum. Jennifer Kinsley.
sem verið hefur ástkona hans árum
saman. án þess að fjölskyldu hans
grunaði nokkuðþar um.
21.25 Heimshorn
Fréttaskýringaþáttur um erlend mál-
efni.
Umsjónarmaður Jón Hákon Magnús-
son.
22.00 Skák
Stuttur. bandarískur skákþáttur.
Þýðandi og þulur Jón Thor Haraldsson.
22.05 Jóga tii heilsubótar
Bandarískur myndaflokkur með
kennslu í Jógaæfingum.
Þýðandi og þulur Jón (). Edwald.
22.30 Dagskrárlok
MIÐVIKL DAGL R
28. nóvember 1973
18.00 Kötturinn Feli.v
Tvær s tutt ar t eiknimyndir.
Þýðandi Jóhanna Jóhannsdótlir.
18.15 Skippí
Astralskur myndaflokkur.
Haflfffræ'ðingurinn
Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
16.00 Fréttir.Tilkynningar. 16.15 Veður-
fregnir.
1620 Popphornið.
17.10 Tónlistartfmi barnanna Egill Frið-
leifsson söngkennari sér um tfmann.
17.30 Franiburðarkennsla í í frönsku
17.40 Lestur úr nýjum harnahókum. Til-
kynningar.
18.30 Fréttir. 18.45 Veðurfregnir. 18.55
Tllkynningar.
19.00 Veðurspá Fréttaspegill
19.20 A vettvangi dómsmáianna Björn
Helgason hæstaréttarrit ari talar.
19.40 Kona f starfi María Pétursdóttir
skólastjóri flytur hugleiðingu um
hjúkrunarmenntun og skólakerfið.
20.00 Lög unga fólksins Ragnheiður-
Drífa Steinþórsdóttir kynnir.
21.00 Hæfilegur skammtur Gísli Rúnar
Jónsson og Július Brjánsson sjá um
þátt með léttblönduðu efni.
21.30 Á hvftum reitum og svörtum Ingv-
ar Asmundsson flytur skákþátt.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir Kvöldsagan: Minn-
ingar Guðrúnar Borgfjörð Jón Aðils
leikari les (8).
22.35 Harmonikulög LYaneone leikur
nokkur lög.
23.00 A hljóðbergi Úr Gálgaljóðum eftir
þýzka skáldið Christian Morgenstern.
Gúnther LUdersIes.
2.3.25 Fréttir í stuttumáli. Dagskrár-
lok.
18.40 Gluggar
Breskur fræðsluþáttur með blönduðu
efni við ha*fi barna og unglinga.
Þýðandi og þulurGvlfi Gröndal.
19.00 Ungir vegfarendur
Fræðslu- og leiðbeiningaþáttur um um-
ferðarmál fyrir börn á forskólaaldri.
19.15 Hlé
20.00 Fréttir
20.25 Veðurog auglýsingar
20.35 Líf og f jör í læknadeild
Breskur gamanmyndafl okkur.
Ilvaða vandræði.
Þýðándi Jón Thor Haraldsson.
21.00 Nýjasta tækni og vísindi
Ný jungar í kennsluháttum
Gervihandleggir
Hús úrsorpi
l’msjónarinaður Örfiólfur Thorlacius.
21.25 Geðveikrahælið
( Bedlam)
Bresk biómynd f rá ánnu 1Ö46.
Aðalhlutverk Boris Karloff og Anna
Lee.
Þýðandi Ellert Sigurbjörnsson.
Myndin gerist í Lundúnum á 18. öld.
Aðalpersónan er ung stúlka. Xell
Brown að nafni. Hún kynnist ástandinu
á geðveikrahæli. þar sem fremur 'er
litið á sjúklingana sem skynlausar
skepnur en fólk Hún reynú’ sem hún
getur að bæta hag vLstfóIks á hælinu.
en óvildarmenn hennar svífast einskis
til að eyðileggja starf hennar.
22.45 Dagskrárlok
Kristín Sigurðar-
dóttir jarðsett
Björk, 20. nóvember.
Sfðastliðinn laugardae var
gerðfrá Skútustaðakirkju útför
Kristínar Sigurðardóttur,
ekkju sér Hermanns Hjaltason-
ar, fyrrverandi sóknarprests á
Skútustöðum.
Séra Hermann fékk veitingu
fyrir prestakallinu árið 1916 og
þjónaði þar til 1924. Þá fluttust
þau hjón í Laufás í eitt ár, en
komu aftur að Skútustöðum
1925 og voru þar óslitið til 1943.
Það ár segir séra Hermann
brauðinu lausu og er ráðinn
skólastjóri að Laugum. Næsta
ár flytjast þau alfarinn að
Laugum.
Á Laugum er Hermann skóla-
stjóri til dauðadags, árið 1950.
Kristín fluttist til Reykjavíkur
1951. Þar átti hún heima síðan.
Hún andaðist 10. þ.m„ 84 ára að
aldri.
Séra Hermann og Kristín
eignuðust 6 börn og eru 5
þeirra á lífi. Á meðan þau hjón-
in áttu heima hér f sveit settu
þau mikinn svip ámenningarlíf
Mývatnssveitar. Á þeirra heim-
ili var jafnan gott að dvelja,
enda húsráðendur með afbrigð-
um gestrisin. Þau ráku gisti- og
greiðasölu heima hjá sér li
sumrin um margra ára skeið.
Þangað kom mikill fjöldi, bæði
innlendra og erlendra ferða-
manna. Reyndi mjög á hús-
móurina ekki síður en húsbónd-
ann á hinu stóra heimili. Ymsir
minnast enn, hvað allar móttök-
ur voru alúðlegar og veitingar
rusnarlegar. Einnig minnast
margir hinnar myndarlegu fjöl-
skyldu á Skútustöðum.
Blessuð sé minning séra Her-
manns Hjaltasonar og frú
Krístinar Sigurðardóttur.
—Kristjðn.