Morgunblaðið - 05.12.1973, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1973
33
... / dagsins önn
Kreola-kótilettur
4 stórar kótilettur (má sjálfsagt
nota lærissneiðar i staðinn).
2 matsk. hveiti
1 matsk. smjörlíki
1 ds. niðursoðnir tómatar
1 saxaður laukur
1 Vt tsk. salt, dálítið cayenne
súputeningar.
Kótilettunum velt upp úr hveit-
inu, kryddaðar, brúnaðar á
pönnu, öllu hinu bætt út i og látið
krauma í u.þ.b. 1 klst.
Kótilettur með góðu
6 kótilettur (eða lærissneiðar)
1 egg, rasp, salt, pipar, 1 tsk.
karrý
50 g smjörlíki
1 pk. fryst broccoli
250 g sveppir, 4 tómatar
1/2 peli rjómi
Kótilettunum velt upp úr þeyttu
egginu og síðan úr raspinu, salti
stráð yfir. Smjörlíkið brúnað á
pönnu, karrýið sett út í og kóti-
letturnar síðan steiktar. Síðan
settar I eldfast fat, og soðið
broccolíið yfir.
Sveppirnir og smátt skornir
tómatarnir aðeins brúnaðir á
pönnu og siðan settir á fatið yfir
broccóliið. Rjöma hellt yfir og
fatið látið i ofn og haft þar til
kjötið er orðið vel meyrt (u.þ.b.
45 — 60 mín)
í sneiðar, settar i botninn á eld-
föstu fati. Kótiletturnar brúnaðar
á pönnu og lagðar ofan á kartöfl-
urnar. Laúkurinn brúnaður á
pönnunni, tómatarnir og baun-
irnar sett á augnablik, en siðan
öllu hellt yfir kjötið. Lok eða ál-
pappír lagður yfir og sett í ofn í
3/4 — 1 klst. við meðalhita.
Kótilettur f
karrý og ananas.
6 — 8 kótilettur
1 — 2 iaukar
2 — 3 tómatar
1 lítil dós af ananas
125 g sveppir
Kótiletturnar barðar aðeins
brúnaðar i smjöri og dálitlu
karrý. Laukarnir skornir í sneiðar
og þeir aðeins steiktir i smjörinu
ásamt niðurskornum sveppunum.
Kótiletturnar, laukurinn og
sveppirnir sett i eldfasta skál,
hellt af pönnunni yfir og látið
krauma i 20 mínútur. Þá er
ananasbitunum, sem aðeins hefur
verið brugðið á pönnu i smjöri, og
tómatsneiðunum bætt í. Kryddað
með salti og pipar. Með þessum
rétti er borið fram heitt brauð eða
kartöflur og gott salat. Þetta er
mjög þægilegur réttur, sem má
búa til nokkru áður en hann á að
og bera fram.
Kótilettur á fati
500 g kartöflur
500 — 600 g kótilettur (eða fram-
hryggur)
2 stórir, smátt saxaðir laukar
30 g smjörlíki,
2—4 matsk. tómatpuré
1 pk. frystar, grænar baunir eða 1
ds. niðursoðnar baunir.
Kartöflurnar afhýddar og skornar
Hvers vegna við notum X til að
tákna koss'f bréfi.
X hefur verið notað til að tákna
kossa allt frá því á miðöldum.
Fólk var þá almennt hvorki læst
né skrifandi, og ef þurfti að
undirrita skjöl, setti almenningur
x í stað nafns síns.
Sömuleiðis var fólk látið kyssa
Bibliuna, ef það átti að sverja eið,
eða annað í þeim dúr.
Þessir tveir hlutir, að kyssa á
Bibliuna og setja x sem undir-
skrift, urðu svo eitt og hið sama i
hugum fólks, þegar tímar liðu.
Þannig er uppruni þessa siðar,
sem enn er við lýði og hefur sjálf-
sagt glatt marga, sem bréf hafa
fengið.
Hnappar á vinstri og hœgri hlið
Hver skyldi vera ástæðan fyrir
því, að karlmenn og kvenfólk
hneppir ekki fötum sinum út á
sömu hlið? Eru það duttlungar
framleiðenda, sem ráða? Ekki al-
deilis, ástæða er fyrir þessu sem
öðru.
Karlmenn allflestir hafa á öll-
■ » * mm »»»**»**•*'•*•-»«* ■ ■ ■ m*mm
um tímum klætt sig sjálfir og þvi
augljóslega þótt þægilegra að
hneppa frá vinstri hlið með hægri
hendi. En það er ekki sömu sögu
að segja um konurnar, að minnsta
kosti þær, sem settu fordæmi um
klæðnað og tízku. Þessar konur
klæddust ekki sjálfar, heldur
höfðu þær ti4 þess þjónustustúlk-
i n «■»■*»» ■'» »»»*■»»«»»*»■****«
ur. En. það var auðvitað miklu
þægilegra fyrir þessar stúlkur að
hneppa út á vinstri hlið með
hægri hendi, þegar þær stóðu
fyrir framan frúna. Þessi siður
helzt enn, þó að allar aðstæður
hafi breytzt mikið og þjónustu-
stúlkur horfið úr sögunni.
„Verzlunin gengur listavel
„ÞAÐ er mikil og vaxandi umferð
og gott hljóð í fóikinu,“ sagði
Axel Ó. Lárusson kaupmaður,
þegar við röbbuðum við hann um
verzlunina í bænum, en hver
verzlunin á eftir annarri hefur
verið og er að opna um þessar
mundir,. Axel rak skóbúð fyrir
gos og nú er hann aftur búinn að
opna í miðbænum á sínum gamla
stað.
í sumar opnaði hann hins
vegar, ásamt Kristmanni Karls-
syni, verzlunina Nýborg, verzlun
með alhliða vörur, og sagði Axel
að hún hefði gengið listavel og
framar öllum vonum. Þeir eru
með alla matvöru nemakjöt.en að
sjálfsögðu fars og allt slikt.
„Það kemur sterkt fram,“ sagði
Axel, „að fólkið hér er þolinmótt
og léttlynt. Það gerir gott úr
hlutunum þótt ekki sé allt komið i
eins gott horf og þyrfti. Aðdráttur
hefur verið mjög erfiður á vörum,
en nú er heildsala Heiðmundar
Sigurmundssonar aftur tekin til
starfa og þá létti mikið.“
„Er skóbúðin ekki fyrsta sér-
verzlunin, sem opnar eftir gos?“
„Jú, liklega, og það hefur
gengið vonum framar, mér datt
satt að segja ekki i hug að svona
mikil skónotkun gæti átt sér stað
eins fljótt og raun ber vitni. Skó-
búðin er opin daglega frá kl. 2—6,
en fyrir jólin verð ég einnig með
jólamarkað á jólabókunum, en ég
er nú að selja mig út úr Nýborg og
þá verður Kristmann líklega einn
með verzlunina.“
Við röbbuðum einnig um þær
verzlanir, sem búnar eru að opna,
eða gera það á næstu vikum og
taldist til, að það væru eftirfar-
andi:
Mjólkurbúðin hefur opnað,
Eyjabúð, Smiður og Virkni með
byggingarvörur, fatabúðin
Mozart, matvöruverzlunin Geysir
er að byrja, Hannyrðaverzlun
Önnu Jóhannsdóttur hefur opn-
að í Víðidal, Húsgagnaverzlun
Trausta Marinóssonar er búin að
opna, Sigurgeir Jónasson og
Jónas Bergsteinsson munu opna
alhiiða raftækjavezlun með meiru
í verzlunarhúsnæði Björns Guð-
mundssonar, Turninn mun opna i
Drífanda, * Friðarhafnarskýlið
hefur opnað, Blómabúð Ingi-
bjargar Johnsen mun opna fyrir
jól, verzlun Páls Þorbjörnssonar
mun opna á næstunni, Karnabær,
Gullsmíðavezlun Steingrims
Benediktssonar, Tanginn opnar á
næstunni, Prentsmiðja Guðlaugs
Guðlaugssonar hefur tekið til
starfa, Kjarni opnar um áramót,
Raggi rakari hefur opið tvisvar i
viku, Utvegsbankinn og Spari-
sjoður Vestmannaeyja hafa
opnað, Samkomuhúsið opnar um
áramót og Alþýðuhúsið hefur
opnað. Þá er apótekið til húsa i
spitalanum fyrst um sinn og vonir
standa til að Sauna baðstofan
verði aftur opnuð, þvi nú er engin
sundlaug lengur í Eyjum um sinn.
Þroski í leik
Ný sérverzlun með þroskaleikföng
Við búðarborðið I Völuskrfni.
FYRIR nokkru var opnuð að
Laugavegi 27 (i kjallaranum)
verzlunin Völuskrín, sem er sér-
verzlun með þroskaleikföng og
barnabækur. Er Iögð áherzla á, að
vera eingöngu með leikföng, sem
hafa uppeldisfræðilegt gildi. I
samræmi við það hafa verið tekin
upp viðskipti við fyrirtæki í Bret-
landi, Sviþjóð og Danmörku, sem
sérhæfa sig í framleiðslu slíkra
leikfanga og njóta aðstoðar sér-
fræðinga við hönnun þeirra.
Sigríður Sigurðardóttir er
verzlunarstjóri og einn af eig-
endum Völuskríns og hún telur
sérlega mikilvægt að leikföng
hafi þroskagildi;
— Frá fæðingu til sjö ára
aldurs er leikur mikilvægasti
þátturinn í athöfnum barnsins.
Allt, sem það lærir, lærir það af
leik. Leikföng eru verkfæri
leiksins og góð Ieikföng hvetja og
vekja ánægju í leik. Það hefur
verið sagt, að við þurfum að læra
meira á fyrstu sjö árunum en það,
sem eftir er ævinnar og mestur
hluti þessa lærdóms er fenginn úr
leikjum á einn eða annan hátt.
— Eftir sjö eða átta ára aldur er
leikur þýðingarminni. Þá eru
börnin farin að ganga í skóla og
orðin læs. Leikföng verða fyrir
þau, eins og fullorðna, skemmtun
eða hvíld frá önnum dagsins.
Fyrir ung börn er leikur vinna og
hvert barn á rétt á því að fá rétt
leikföng sér til hjálpar.
Völuskrin fær mest af sínum
leikföngum frá Galt í Bretlandi,
Bojesen f Danmörku og Brio í
Svíþjóð. Bækurnar eru frá
Borgens Forlag í Kaupmanna-
höfn. Til að hjálpa fólki við að
velja rétt Ieikföng hefur Sigriður
þýtt bækling frá Galt um hvaða
leikföng sé bezt að velja handa
börnum, eftir þvi á hvaða aldurs-
skeiði þau eru. Bæklingurinn er
saminn af uppeldisfræðingum
fyrirtækisins.
Flest leikföngin eru úr tré en
það er einnig mikið til af alls
konar þroskandi spilum og ýmsu.
sem þroskar sköpunarhæfileika,
t.d. sérstökum leir, sem harðnar
án þess að þurfi að brenna hann
og gerir kleift að búa til keramik
hluti án þess að hafa brennsluofn.
Þá er úrval af litum og málningar-
settum fyrir börn.