Morgunblaðið - 22.12.1973, Qupperneq 1
36 SÍÐUR
288. tbl. 60. árg. LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1973 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Stöðvast fiskiflotinn um
áramót?
Landsamband (slenzkra útvegsmanna hefur ákveðið að stöðva alla
útgerð báta og togara um áramótin, verði rekstrargrundvöllur útgerð-
arinnar ekki tryggður á árinu 1974. Alyktun um þessa stöðvun var í
gær samþykkt einróma á stjórnarfundi LlÚ, en hún er í samræmi við
samþykkt aðalfundar Landssambandsins, sem haldinn var f haust.
Framhaldsaðalfundur hefur verið boðaður 4. janúar næstkomandi.
Morgunblaðinu barst í gær
fréttatilkynning frá LIÚ, sem er
svohljóðandi:
Frá setningu friðarráðstefnu landanna fyrir botni Miðjarðarhafs f höll Þjóðabandalagsins gamla f Genf
í gær. Eftir nokkurt þóf tökst samkomulag um þá röðun á sætunum sem myndin sýnir. Autt borð
Sýrlendinga er fremst fyrir miðju en sfðan koma borð sendinefnda Jórdanfu, Bandarfkjanna,
Egyptalands, Sameinuðu þjóðanna, Israels og Sovétrfkjanna. Sjá frétt neðar á sfðunni.
„I framhaldi af samþykkt aðal-
fundar L.Í.Ú. í haust, samþykkir
stjórn L.I.Ú., að útgerð báta og
togara hefjist ekki eftir næstu
áramót, fyrr en tryggður hefur
verið rekstrargrundvöllur fyrir
útgerðina á árinu 1974.
Fundurinn felur einstökum út-
vegsmannafélögum að sjá um
framkvæmd þessarar stöðvunar.
Fundurinn samþykkir að boða
til framhaldsaðalfundar í Reykja-
vfk 4. janúar 1974.“
Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenzkra útvegs-
manna, sagði i viðtali við Mbl. i
gær, að vandamál útgerðarinnar
væru fyrst og fremst vegna gífur-
legrar olíuverðhækkunar, en
einnig hækkuðu öll veiðarfæri
mjög, þar sem framleiðsla þeirra
hráefna, sem til veiðarfæranna
væri notuð, væri mjög nátengd
olíu. I þriðja lagi sagði Kristján
að allur tilkostnaður innanlands
hefði hækkað mjög vegna verð-
bólgunnar í landinu. T.d. hefði
allt viðhald hækkað mjög, hækk-
anir hefðu orðið vegna visitölu
o.s.frv. Þá hefðu sjómenn og lagt
fram miklar kaupkröfur 18. des-
ember, en sökum þess hve
skammt er síðan þær hefðu verið
Iagðar fram, hefði ekki unnizt
tími til þess að kanna þær.
Alit fastaráðs NATO:
Þá reyndi Morgunblaðið í gær
að ná í sjávarútvegsráðherra, Lúð
Ekkert getur komið 1
vík Jósepsson, til þess að spyrja
hann að því, hvað rikisstjórnin
hygðist gera til þess að leysa
þennan aðsteðjandi vanda, en án
árangurs.
stað Islands
stætt hernaðarlegt gildi sökum
landfræðilegrar legu landsins,
sem gefur einstæða möguleika til
eftirlits með flugi og flota-
hreyfingum á N-Atlantshafi.
Staða Islands hvað þetta snertir
CaDey synjað
Brússel 21. des. einkaskeyti
til Mbl. frá C.M. Thorngren.
Areiðanlegar heimildir innan
Fastaráðs Atlantshafsbandalags-
ins í Brussel hermdu í dag, að
nokkurs kvfðboga gætti hjá ráða-
mönnum NATO um lausn á
ágreiningi Bandarfkjamanna og
tslendinga um varnarstöð NATO
á Keflavíkurflugvelli. Viðræður
Viðbúnaður við
útför Blancos
[ Sjá mynd á bls. 17. ]
hrópuð gegn róttækum vinstri-
sinnum.
um málið eiga, sem kunnugt er,
að hefjast á ný eftir áramótin.
Á fundi utanrikisráðherra
NATO fyrr i þessum mánuði sagði
Einar Ágústsson utanríkisráð-
herra íslands í ræðu sinni, að 3
möguleikar væru fyrir hendi
varðandi varnarstöðina. 1. óbreytt
ástand, 2. alger brottflutningur
bandariskra hermanna og 3. að
óbreyttir borgarar annist rekstur
stöðvarinnar. Innan NATO er það
von manna, að samkomulag verði
um óbreytt ástand.
Afstaða NATO til málsins er
sem hér segir: Island hefur ein-
hefur orðið mun mikilvægari á
undanförnum árum samfara stór-
auknum flotastyrk Sovétríkjanna
og auknum siglingum á þessum
slóðum. Sovétríkin sækjast mjög
eftir því, að ná yfirburðastöðu á
hafinu og það leikur enginn vafi á
því, að í þvf sambandi er ísland
þeim mjög mikilvægt.
Menn verða því að vera á verði
gegn hættunni á að valdajafn-
vægið í N-Evrópu raskist. Vilji
ísland halda óbreyttri stöðu sinni
má þetta valdajafnvægi ekki
breytast.
Ef þetta jafnvægi breytist, gæti
Framhald á bls. 20.
Washington, 21. desember.
NTB.
HERAFRVJÚNARDÓMSTOLL-
INN í Washington staðfesti í dag
20 ára fangelsisdóm William
Calleys lautinants fyrir vísvit-
andi morð á að minnsta kosti 22
suður-víetnömskum borgurum í
þorpinu My Lai 1969.
Sfðan dómnum var áfrýjað fyr-
ir 11 vikum hafa dómararnir
rannsakað gögn upp á mörg þús-
und blaðsfður allt frá því Calley
var ákærður fyrir f jórum árum.
Dómararnir hafa ekkert fundið
sem þeir telja réttlæta ný mála-
ferli eða breytingu á dómnum.
Madrid, 21. desember. NTB.
LlK Luis Carrero Blanco, forsæt-
isráðherra Spánar, var í dag lagt
til hinztu hvfldar í litlum kirkju-
garði f útjaðri Madrid.
I líkfylgdinni voru Juan Carlos
prins, ríkisarfi Spánar, fulltrúar
margra erlendra rfkisstjórn, en
ekki Francisco Franco rfkisleið-
togi og enginn samstarfsmanna
hans.
Franco er sagður hafa fengið
snert af inflúensu, en kunnugir
benda á, að hann hafi aldrei verið
viðstaddur jarðarfarir samstarfs-
manna sinna.
Strangar öryggisráðstafanir
voru gerðar til að koma í veg fyrir
óeirðir. Rúmlega 10.000 manns
stóðu við götur sem líkfylgdin fór
um.
Baska-samtökin ETA, sem berj-
ast fyrir aðskilnaði Baskahérað-
anna, hafa lýst sig ábyrg á morði
Carrero Blanco. Margir báru
spjöld eða borða þar sem samtök-
in voru fordæmd. Vígorð voru
Leyniskyttur og lögreglumenn
höfðu tekið sér stöðu á húsaþök-
um og margar þyrlur sveimuðu
yfir borgina, en ekki dró til tíð-
inda. Ýmsir heilsuðu að sið
falangista og sumir sungu bar-
áttusöng þeirra.
Samtök Baska segja, að Carrero
Blanco hafi verið veginn til þess
að hefna þess, að nfu Baskarféllu
nýlega í skotbardaga við lögregl-
una samkvæmt ýfirlýsingu sem
franska blaðið ,,Sud-Ouest“ fékk
frá ETA.
Auk þess var Carrero Blanco
kallaður einn fremsti fulltrúi
stjórnar, sem væri fasistfsk og
stæði fyir handtökum, pyntingum
og manndrápum, og hefði getað
tryggt áframhaldandi völd henn-
ar.
Kunnugir telja, að morðið leiði
til þess, að tökin verði hert á
Spáni. Fjölmennt lögreglulið var
kallað út strax eftir morðið og
þyrlur hafa stöðugt verið á sveimi
yfir borginni. Margir hafa verið
Framhald á bls. 20.
Gagnkvæm klögumál
á friðarráðstefnunni
Genf, 21. desember. NTB.
REIÐILESTÚR og gagnkvæmar
ásakanir einkenna fyrstu friðar-
ráðstefnuna, sem tsrael og Araba-
rfkin hafa haldið eftir aldarfjórð-
ungs viðsjár og styrjaldir, þótt
hófsemi setti svip sinn á setning-
arathöfnina í dag.
Abba Eban, utanrikisráðherra
Israels, sakaði Sýrlendinga að
þeim fjarstöddum, um hrotta-
lega meðferð á ísraelskum stríðs-
föngum og likti meðferðinni við
morð nasista á Gyðingum í Au-
chwitz i síðari héimsstyrjöldinni.
Ismael Fahmy, utanríkisráð-
herra Egyptalands, svaraði með
þvi að saka Eban um að sviðsetja
sjónarspil og las upp sundurliðað-
ar ásakanir um árásir og hefndar-
aðgerðir, sem ísraeí hefði staðið
fyrir.
Ráðstefnan gengur fljótar fyrir
sig en búizt var við. Aðeins Kurt
Waldheim, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, og utan-
rikisráðherra Bandaríkjanna og
Svoétríkjanna áttu að tala í dag,
en auk þeirra töluðu utanríkisráð-
herrar Egyptalands, Israels og
Jórdaniu, sem áttu að tala á morg-
un.
Abba Eban hélt uppi eldheitri
vörn fyrir tilverurétti Israel að
baki tryggum og öruggum landa-
mærum og bauð fram samstarf á
sviði efnahagsmála og stjórnmála
við nágrannaríkin fyrir botni Mið-
jarðarhafs. Hann sagði, að Jerú-
salem hefði verið sameinuð ,,að
eilífu".
Ismail Fahmy sagði, að ræða
Ebans hefði verið innlegg i bar-
áttuna fyrir þingkosningarnar,
sem fara fram í ísrael 31. desemb-
er. Hann sagði, að Eban hefði
ekki minnzt einu aukateknu orði
á brottflutning frá arabiskum
svæðum.
Setning ráðstefnunnar í höll
Framhald á bls. 20.
r