Morgunblaðið - 22.12.1973, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 22.12.1973, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1973 Stækkun hafnar í Þorlákshöfn Forval verktaka. Hafnarmálastofnun ríkisins mun á næstunni bjóða út á alþjóðlegum markaði stækkun hafnarinnar í Þorlákshöfn. Þeir verktakar, sem áhuga hafa á að bjóða í verkfram- kvæmdina, skulu fyrir 20. janúar 1974 senda inn til Hafnarmálastofnunar ríkisins fullnægjandi upplýsingar um hæfni og reynslu við sambærileg verk. Forvalsgögn má sækja til Hostrup-Schultz og Sörensen c/o Al- menna verkfræðistofan hf., Fellsmúla 26. Hafnarmálastjóri. Tilkynning um innheimtu þinggjalda í Hafnarfirði og Gullbringu- og Kjósarsýslu. Til þess að auðvelda gjaldendum að standa í skilum með greiðslu þinggjalda verður skrifstofa embættisins opin til móttöku þinggjalda, föstudaginn 28. desember frá kl. 10.00 til kl. 22 00. Mánudaginn 31. desember verður skrifstofan opin frá kl 1 0.00 til 1 2 00. Gjaldendum utan Hafnarfjarðar, er greiða til hreppstjóra, er bent á að gera það eigi síðar en 28. desember. Dráttarvextir falla á ógreidd þinggjöld ársins 1973 þann 1. janúar n.k Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu. Staða fjármálafulltrúa Rafmagnsveitu Reykjavíkur er laus til umsóknar. Æskilegt er að umsækjendur hafi viðskiptafræði- menntun, hagfræðimenntun, eða hliðstæða háskóla- menntun, ennfremur starfsreynslu. Launakjör skv. kjarasamningi Reykjavíkurborgar og starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Uppl. um starfið gefur Rafmagnsstjóri. Umsóknarfrestur er til 5. jan. '74. RAFMAGNS VEITA REYKJAVÍKUR ADVENTULJÓS er jólagjöfin fyrir ömmu og afa, mömmu og pabba eða fyrir giftu börnin. Lýsið upp stofugluggann í skammdeginu. GUNNAR ÁSGEIRSSON H.F., Suðurlandsbraut 1 6, Laugavegi 33 og Glerárgötu 20, Akureyri. JÚLAGJAFIR # # POSTULINSENGLAR SMAPLATTAR ÖSKUBAKKAR JÓHANNES NORÐFJÖRÐ HVERFISGOTU49 LAUGAVEGI5 sprinv“ Switzerland <—J FONDUSETT úr kopar, stáli og emeleruð. Margar gerðir. FRÁ JÓHANNES NORÐFJÖRÐ d&b HVERFISGÖTU 49 LAJGAVEGI 5 Skila skal ólöglega fengnum safngripum Hinn 18. desember sl. var til umræðu á allsherjarþingi Sam- einuðu þjóðanna tillaga um endurheimt safngripa og menn- ingarverðmæta, sem á ólöglegan hátt hafa verið flutt Ur landi. I ræðu, sem varafastafulltrúi íslands, dr. Gunnar G. Schram, flutti um mál þetta, gat hann þess, að Danir hefðu sýnt öðrum þjóðum lofsvert fordæmi í þess- um efnum, er þeir hefðu sam- kvæmt ákvörðun danska þingsins skilað íslendingum aftur hand- ritunum. Hefðu Islendingar kunnað vel að meta þessa breytni þings og þjóðar Danmerkur og mættu þjóðir, sem héldu rang- lega menningarverðmætum ann- arra þjóða í söfnum sinum, margt af henni læra. Mælti íslenzki full- trúinn með samþykkt tillögunnar í ræðu sinni. Tillaga þessi fjallar um skil á listmunum, handritum og öðrum menningarverðmætum, sem rænt hefur verið í rikjum, er áður voru nýlendur, eða verið gerð upptæk, án þess, að fullnægjandi bætur hafi komið fyrir. Er tillagan flutt af allmörgum þróunarlöndum og er Zaire fyrsta flutningsríki. Tillagan var samþykkt á alls- herjarþinginu með 113 samhljóða atkvæðum, en 17 ríki sátu hjá, þar á meðal Danmörk, Noregur, Svi- þjóð og önnur Evrópuríki. Gjafir til Egilsstaða- kirkju Unnið hefur verið að smíði Egilsstaðakirkju síðan snemma á sl. sumri og er ætlunin, að hUn verði fullgerð á næsta ári. Kirkjunni hafa borizt margar gjafir, m.a. 100 þUs. kr. gjöf frá Þorsteini Jónssyni fyrrverandi kaupfélagsstjóra til minningar um konu hans, Sigriði Þorvarðs- dóttur KjerUlf, sem andaðist á sl. sumri. Færir sóknarnefnd honum sérstakar þakkir fyrir þá höfðing- legu gjöf. Aðrar gjafir og áheit eru: kr. 1000,00 frá B.S., kr. 1000,00 frá S.B., kr. 100000 frá Þ.E., kr. 1000,00 frá N.Á., kr. 5000,00 frá D.S. og kr. 500,00 frá N.N. Þá hefur Gísli Sigurbjörnsson forstjóri Grundar sent söfn- uðinum bækur til styrktar starf- seminni. Öllum þessum gefendum færir sóknarnefndin innilegar þakkir fyrir góðan hug til kirkjunnar og biður þeim blessunar. Barnasam- koma í Dóm- kirkjunni A sunnudag, Þorláksmessu, verður barnasamkoma í Dóm- kirkjunni, og hefst kl. 11 f.h. Sungnir verða jólasálmar, sr. Þórir Stephensen talar við börnin og segir þeim jólasögur og lUðra- sveit unglinga leikur jólalög und- ir stjórn Páls P. Pálssonar. — Foreldrar eru hvattir til að koma til kirkju með börnum sínum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.