Morgunblaðið - 22.12.1973, Side 6

Morgunblaðið - 22.12.1973, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1973 DJtCBÓK I dag er laugardagurinn 22. desember, 356. dagur ársins 1973. VetrarsólstöSur. Sólarupprás er kl. 11.05, en sólarlag kl. 13.20. Ardegisháflæði er kl. 05.00, síðdegisháflæði kl. 17.19. Svo sem ritað er hjá Jesaja spámanni: — Sjá, ég sendi sendiboða minn á undan þér, er búa mun þér veg. Rödd manns er hrópar í óbyggðinni: Greiðið veg Drottins og gerið beinar brautir hans. (Markúsar guðspj. 2—3). IÁRIMAÐ HEK-iA 75 ára er ( dag Pálfna Guðjóns- dóttir vistkona á Hrafnistu. Hún tekur á móti gestum að t reyju- götu 27 frá kl. 4 i dag. I dag verða gefin saman í hjóna- band í Dómkirkjunni af séra Öskari J. Þorlákssyni Pálfna Guð- laug Steinarsdóttir fóstra og Stefán Björnsson læknanemi. Heimili þeirra er að Bakkagerði 5, Reykjavík. Vikuna 21. — 27. desember er kvöld-, nætur- og helgidaga- varzla lyfjabúða 1 Reykjavík í Reykjavíkurapóteki og Austurbæjarapóteki. Nætur- varzlan er 1 Reykjavíkur- apóteki. Læknastofur eru lokaðar % laugardögum og helgidögum, en læknir er til viðtals I göngudeild Landspítalans i síma 21230. Almennar upplýsingar um lækna- og lyfjabúðaþjónustu Reykjavík eru gefnar í simsva^* 18888. Mænusóttarbóiusetning fyrti* fullorðna fer fram i Heilsu- verndarstöðinni á mánudögum kt 17.00—18.00. Vaktmaður hjá Kópavogsbæ - bilanasími 41575 (símsvari). Tannlæknafélag Islands gengst fyrir tannlæknavakt f Reykjavík um hátíðarnar. Opið verður i Heilsuverndar- stöðinni kl. 14—15 eftirtalda daga: Þorláksmessa, aðfangadag, jóladag, 2. jóladag, laugardag- inn 29. desember, sunnudag- inn 30. desember, gamlársdag og nýársdag. Heimspekingur trúir ekki því, sem hann sér, af því að hann er önnum kafinn við að velta fyrir sér því, sem hann sér ekki. (Anatole France). INIÝIR BORGARAH lngibjörgu Friðbertsdóttur og Guðmundi Sörlasyni, Vesturbergi 21, Reykjavík, dóttir þann 11. desember kl. 03.25. Ilún vó 13 merkur og var 49 sm að iengd. Gáttaþefur NÚ er Gáttaþefur kominn á vettvang. Honum finnst svogóð ur ilmurinn af öllum jólamatn- um, að hann getur nærzt af honum einum. Hann er nefni- lega með allt öðruvfsi melt- ingarfæri en aðrir. Hann hefur bara eitt meltingarfæri, og það er nefið. Þess vegna fær hann til dæmis aldrei magapínu, en þegar hann er búin að ganga um allt þefandi í marga daga fær hann stundum nefpínu. Þá bólgnar nefið á honum upp og verður helmingi stærra en venjulega. Einu sinni var Grýla að sjóða hangikjöt. Gáttaþefur stóð yfir pottinum allan tfmann, og þeg- ar kjötið var loksins soðið var ekkert vatn eftir f pottinum. Kjötið var orðið hálfþurrt og skrýtið, vegna þess að Gáttaþef- ur hafði tekið lokið af pottinum og dregið að sér alla gufuna jafnóðum. Annars kemur nefið á Gáttaþefi alveg f staðinn fyrir loftræstingaviftur, eins og eru í mörgum eldhúsum nú til dags. Það hefur aldrei verið nein matarlykt f hellinum hjá Grýlu, Leppalúða og jólasveinunum. Gáttaþefur sér fyrir þvf. Þann 17, nóvember gaf séra Ragnar Fjalar Lárusson saman i hjónaband í Hallgrímskirkju Sigurlfnu Arnadóttur og Pál Sveinsson. Heimili þeirra er að Njálsgötu 83, Reykjavik. (Ljósmyndast. Þóris) Þann 17. nóvember gaf séra Jón Auðuns saman í hjónaband í Dómkirkjunni Kristlnu Margrétí Axelsdóttur og Arna Arnason. Heimili þeirra verður að Barða- vogi 22, Reykjavík. (Ljósmyndast. Þóris). MUNIÐ JÓLASÖFNUN MÆÐRASTYRKS- NEFNDAR NJALSGÖTU 3. ást er. . . I2-2S . . . að finnast eins og jólin séu á hverjum degi TM Reg U.S. Pat. Off.—All rights reserved ■ 1972 by los Angeles T.mei | BRIDC3E ~| HÉr fer á eftir spil frá leiknum milli Tékkóslóvakiu og Frakk- lands í Evrópumótinu 1973, en þar vinnur franski spila’rinn Boulenger lokasögnina á skemmtilegan hátt. Norður S. A-K-9 H. A-K-7-5-4 T. G-8-3 L. A-7 Vestur Austur S. 10-8-2 S. D-6-5-3 H^ G-3-2 H. 6 T. 10-7 T. K-D-9-4-2 L. D-G-6-3-2 L. K-9-4 Suður S. G-7-4 H. D-10-9-8 T. A6-5 L. 10-8-5 Lokasögnin var sú sama við bæði borð þ.e. 4 hjörtu og var norður sagnhafi. Tékkneski sagnhafinn varð einn niður eftir útspil á tígui kóng frá austri. Hann gaf einn slag á spaða, 2 á tígul og einn á lauf. Franski spilarinn Boulenger var sagnhafi við hitt borðið, og var útspil einnig tígul kóngur, sem var gefinn. Austur lét næst út laufa 4, vestur drap með gosa og sagnhafi drap með ási. Nú tók sagnhafi 3 slagi á tromp og lét út laufa 8, vestur gaf og austur fékk slaginn á níuna. Austur lét síðan út laufa kóng, sagnhafi trompaði heima, tók ás og kóng í spaða og lét enn spaða. Austur drap með drottningu og varð nú að láta út tígul og þar með var spilið unnið. — Ef við hugsum okkur að vestur hefði drepið laufa 8 og látið út tígul, þá hefði sagnhafi drepið með tígul ás, látið út lauf, trompað heima og síðan látið út tígul gosa. Austur verður að drepa, og nú er sama hvort hann lætur út tigul eða spaða; sagnhafi vinnur alltaf spilið. Jólagetraunin Jólagetrauninni lauk 1 gær með birtingu áttundu og síð- ustu myndarinnar. Nú hvetjum við ykkur til að senda svör ykkar fljótt til okkar. Myndirnar komu 8 daga í röð og sendið okkur seðlana úr öllum blöðunum með kross- unum við rétta textann. Skila- frestur er til 30. des. Og við byrjum svo nýja árið með því að draga út nafn þess heppna og sá eða sú getur skautað að vild á nýjum skautum, enda hefur nú aldeilis gefið til skautaferða að undanförnu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.