Morgunblaðið - 22.12.1973, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1973
Island fær stóran hlut
í bók um abstraktlist
Dráttarbáturinn Magni var f g*r að brjóta fs á Elliðavogi. Astæðan var
sú, að við Bátanaust þurfti að koma skipi á flot, og þar sem allt var
gaddfreðið var Magni fenginn til þess að brjóta ísinn. — Ljósm.:
Ol.K.M.
f PARlS er komin út merkileg
bók um abstraktlist, eitthvert
stærsta verk, sem gefið hefur ver-
ið út um þessa tegund myndlistar.
I þriðja bindinu, sem kom út fyr-
ir skömmu, er fjallað um ab-
straktlist í Evrópu 1939—1970.
Þar er kafli um tsland með fjölda
mynda og er hann lengri og ftar-
legri en kaflar um hin Norður-
löndin. Bókina skrifa tveir mjög
þekktir listgagnrýnendur í Parfs,
þeir Michel Dragon og Michel
Seuphor, og ritar sá síðarnefndi
íslenzka kaflann. Verkið er gefið
út af sýningarsamtökunum
Maeght f París, sem reka stóran
og kunnan sýningarsal, sem nýtur
virðingar.
Til bókarinnar er mjög vel
vandað og ummælin um íslenzka
abstraktlist ákaflega vinsamleg. I
upphafi greinarsinnar skrifar
Michel Seuphor: „Til eru þeir, '
sem halda, að eyjaskeggjar séu
fólk, sem af eðlilegum ástæðum
útilokist frá umheiminum. E.t.v.
hafa þeir rétt fyrir sér. Þeirra
kenning nær þó a.m.k. ekki til
Islands. Varla er til sá staður sem
— Friðar-
ráðstefnan
Framhald af bls.l
Þjóðabandalagsins gamla tafðist
um 40 mínútur, því að deiluaðilar
gátu ekki komið sér saman um
sætaskipan við hringlaga samn-
ingaborð. Eban hótaði að ganga út
ef ísraelska sendinefndin fengi
sæti við auða stóla Sýrlendinga.
Egyptar vildu ekki sitja við hlið
Israelsmanna. Waldheim skar
loks á hnútinn með miðlunartil-
lögu, þannig, að sendinefndirnar
fengu stóla í þessari röð: SÞ, Isra-
el, Sovétríkin, Sýrland (auðir
stólar), Jórdanía, Bandaríkin og
Egyptaland.
Bandaríski utanríkisráðherr-
ann Henry Kissinger sagði, að
fyrsta verkefni ráðstefnunnar
yrði að koma til leiðar brottflutn-
ingi herjanna á Súezvígstöðvun-
um bak við örugga vopnahléslínu.
„Eftir þær viðræður, sem ég hef
átt síðustu daga, tel ég, að slíkur
samningur sé mögulegur,“ sagði
hann.
Öllum á óvart mismælti Kiss-
inger sig í ræðu sinni og sagði
óvart „und“ á þýzku en leiðrétti
sig.
Þorlákur sýnir í
ÞORLAKUR Halldórsson listmál-
ari opnaði í fyrradag málverka-
sýningu í húsakynnum Listmálar-
ans að Laugavegi 21. Þorlákur
sýnir þarna 21 mynd, landslags-
myndir, sjávarmyndir og uppstill-
ingar. Eru myndirnar málaðar á
þessu ári og í fyrra.
Þetta er 14. einkasýning Þor-
er opnari fyrir báðum helmingum
heimskringlunnar en þessi eyja,
sem okkur sýnist vera töpuð langt
norður í íshafi. Ekki þarf annað
en að fara í gegnum æviágrip
þessara íslenzku listamanna.
Allir hafa þeir stundað nám í sínu
eigin landi og einnig erlendis, á
Norðurlöndum, í París og New
York. Allir hafa farið i námsferð-
ir til meginlandsins en þjóðernis-
tilfinning þeirra hefur ekki liðið
við það. Ég veit aðeins um einn
þeirra, sem ekki hefur snúið aftur
og setzt að í sinu landi. Þessi
undantekning er Nína Tryggva-
dóttir, sem dó í New York, en átti
þó íbúð í Reykjavík, sem hún
heimsótti mjög oft.“
Og í lok greinarinnar segir
Michel Seuphor: „Við sjáum, að
SJÓMENN á fiskiskipum og tog-
urum hafa lagt fram kröfur sínar
á fundi með útgerðarmönnum og
hefur deilunni verið vfsað til
sáttasemjara. Torfi Hjartarson
sagði, að að öllum líkindum
myndi það verða hans fyrsta verk
eftir hátfðarnar að boða til sátta-
fundar með þeim, en þó taldi
hann það geta dregizt fram yfir
nýár. Eru það bátakjara-
samningarnir, sem komnir eru til
sáttasemjara.
Jón Sigurðsson, formaður Sjó-
mannasambands íslands tjáði
Mbl. i gær, að fundur um báta-
kjarasamningana með útvegs-
mönnum hefði verið haldinn 18.
desember, en um togarasamning-
ana í fyrradag. Kröfurnar eru í
allmörgum liðum og taka til
hækkunar á kauptryggingu og
hundraðshluta í afla. Er
hækkunarkrafan mismunandi en
talsverð.
Jón var spurður um afkomu-
möguleika útgerðarinnar með til-
liti til samþykktar stjórnar LlU
og sagði hann að vissulega væru
miklir erfiðleikar aðsteðjandi fyr-
ir útgerðina, en það breytti þó
ekki því, að nauðsynlegt væri að
bæta kjör sjómanna, þótt ekki
Listmálaranum
láks, síðast sýndi hann í Reykja-
vík i fyrra og þá í Bogasalnum, en
síðasta sýning hans var í október
sl. í Keflavík.
Sýning Þorláks verður opin
fram að jólum, og sýningartími
fylgir opnunar- og lokunartíma
verzlana.
Island er langt frá því að vera
einangrað frá mcginlandinu: hin-
ir ýmsu stílar abstraktlistarinnar
speglast þar iðulega með ósvikn-
um persónulegum einkennum."
Með greininni eru birtar mynd-
ir af listaverkum Nínu Tryggva-
dóttur, Finns Jónssonar, Harðar
Ágústsonar, Jóhannesar Jóhann-
essonar, Sigurjóns Ólafssonar,
Þorvalds Skúlasonar, Kristjáns
Davíðssonar, Jóns Gunnars Árna-
sonar, Gerðar Helgadóttur, Guð-
mundu Andrésdóttur, Steinþórs
Sigurðssonar og Svavars Guðna-
sonar. Og í texta nefnir höfundur
auk þeirra, Valtýr Pétursson,
Eirík Smith, Braga Ásgeirsson,
Benedikt Gunnarsson. og Hiör-
leif Sigurðsson, Karl Kvaran,
Guðmund Sveinsson og Jóhann
Eyfells.
væri til annars en að unnt yrði að
manna flotann. Hann kvað sjó-
menn einnig fara fram á aukin
skattfríðindi, þar sem hluti þeirra
skattfriðinda, sem sjómenn
hefðu haft væri bundinn ákveð-
inni krónutölu, sem síðan hefði
brunnið upp í óðaverðbólgu.
Sovézkur
Gyðingur
dæmdur
Moskvu, 21. des. NTB.
SOVÉZKUR Gyðingur, sem hefur
verið neitað um leyfi til að fara úr
landi, hefur verið dæmdur í sex
mánaða fangelsi, ákærður fyrir að
vera snikjudýr á samfélaginu.
Leonid Tsabelisjensky er 32 ára
gamall og hefur verið fyrirlesari
við tækniháskólann í Moskvu.
Honum var sagt upp i maí, þegar
hann hafði sótt um leyfi til að
flytjast til ísraels. Siðan hefur
honum verið neitað um vinnu.
Framhald af bls. 36
Jósepsson til að skipa Jóhannes
Elíasson í það starf, gegn því að
tryggt yrði, að Guðmundur Hjart-
arson yrði ráðinn bankastjóri Ut-
vegsbankans í hans stað.
Fulltrúar stjórnarflokkanna í
bankaráði Utvegsbankans eru
Björgvin Jónsson fyrir Framsókn-
arflokkinn, Halldór Jakobsson
fyrir Alþýðubandalagið og Har-
aldurHenryssonfyrirSFV. Enda
þótt Ölafur Jóhannesson forsætis-
ráðherra talaði persónulega við
fulltrúa stjórnarflokkanna í
bankaráði Utvegsbankans, tókst
honum ekki að tryggja atkvæði
Haralds Henryssonar með ráðn-
ingu Guðmundar Hjartarsonar.
Mun Haraldur hafa talið eðlileg-
ast, að Lúðvík Jósepsson sæti
uppi með þá skömm að skipa
bankastjóra í Seðlabankann í and-
stöðu við mikinn meirihluta
bankaráðsins. Eftir að ljóst var,
að viðskiptin myndu ekki takast
milli Alþýðubandalagsins og
Framsóknarflokksins vegna and-
stöðu þriðja stjórnarflokksins,
skipaði Lúðvik Guðmund Hjartar-
son bankastjóra Seðlabankans frá
og með 1. janúar næstkomandi,
enda þótt hann hlyti aðeins eitt
— Alit NATO
Framhald af bls.l
öryggi annarra þjóða, einkum
Noregs, veikzt, svo og möguleikar
á lífsnauðsynlegum fjarskiptum
milli Evrópu og Bandaríkjanna.
Jafnvel þótt ísland féllist á að
veita hernaðarlega aðstöðu, ef til
ófriðar kæmi, gæti það orðið um
seinan. Ekki yrði hægt á
skömmum tíma að byggja upp
aftur þann viðbúnað, sem Kefla-
víkurstöðin veitir. NATO þarf á
íslandi að halda til að geta tryggt
skjóta og óhindraða liðsflutninga
frá Bandaríkjunum til Evrópu.
Það getur ekkert komið í staðinn
fyrir það öryggi, sem dvöl NATO-
hers á Islandi veitir. Með tilliti til
ótryggs ástands í alþjóðamálum
eru gagnkvæmar varnaraðgerðir
og eining Atlantshafsríkjanna
lífsnauðsynlegar, ef takast á að
framfylgja stefnunni um
minnkaða spennu. Einhliða
fækkun í herjum getur breytt
niðurstöðum samninga austur og
vesturs.
atkvæði í bankaráðinu — atkvæði
Inga R. Helgasonar.
Guðmundur Hjartarson er
fæddur 1. nóvember 1914 á Mýr-
um. Hann stundaði nám i eitt ár á
Laugarvatni og í eitt ár í Reyk-
holti á árunum 1935 til 1937.
Stundaði hann siðan almenn störf
til lands og sjávar til ársins 1942,
að hann fluttist til Reykjavikur á
árinu 1939 og starfaði þar sem
lögregluþjónn í 4 ár, eða til ársins
1946. Þá varð hann starfsmaður
og erindreki Sósíalistaflokksins
og gegndi því starfi allt til 1956,
er hann var ráðinn forstjóri Inn-
flutningsskrifstofunnar. Því
starfi gegndi hann til 1960. Hann
hefur siðan jöfnum höndum sinnt
nefndarstörfum, haft umsjón með
byggingum og starfað að ýmsum
öðrum málum í þágu Sósíalista-
flokksins. M.a. hefur hann átt
sæti i verðlagsnefnd, í bankaráði
Búnaðarbankans, í fasteignamats-
nefnd Reykjavíkurborgar, svo og
hefur hann átt sæti í stjórn
KRON frá 1953. Hann var formað-
ur Sósíalistafélags Reykjavíkur í
nokkur ár og átti sæti í stjórn þess
I mörg ár. Eftir að Alþýðubanda-
lagið var stofnað hefur hann
gegnt ’mörgum trúnaðarstörfum
fyrir það.
I samkomulagsumleitunum
verður reynt að taka eftir fremsta
megni tillit til óska íslenzku ríkis-
stjórnarinnar um leið og reynt
verður að framlengja varnar-
samninginn þannig, að hann
tryggi öryggi Atlantshafsbanda-
lagsins, einkum hvað snertir stór-
mikilvægar fjarskiptaleiðir. Hvað
snertir samband milli N, V, og
S-Atlantshafsþjóða, er Ísland þar
á krossgötum og ekkert getur
leyst það af. Til umræðu hefur
komið, að láta stöðvar í Færeyjum
eða Grænlandi taka við af Kefla-
víkurstöðinni, en þeir möguleikar
hafa verið afskrifaðir.
Niðurstöður NATO eru þvi þær
að lokun varnarstöðvarinnar í
Keflavík myndi hafa í för með sér
miklar hættur, þar sem liðs-
flutningar á ófriðartimum myndu
taka of langan tíma. NATO fer
því fram á það við íslendinga, að
þeir leyfi stöðinni að vera og að
Bandaríkjamenn hagi þannig
rekstri stöðvarinnar, að hann
skapi Islendingum sem minnst
óþægindi. Var ályktun þess efnis
samþykkt á fundi 5. desember sl.
Að beiðni Islendinga 25. júní sl.
tók NATO mál varnarstöðvar-
innar til meðferðar og komst að
fyrrgreindum niðurstöðum eftir
umfangsmiklar rannsóknir
hernaðarsérfræðinga. NATO
hefur ekki átt þátt í beinum
samningaviðræðum þótt Josef
Luns, framkvæmdastjóri banda-
lagsins hafi rætt við stjórnir
beggja aðila. Ekkert hefur gerzt f
samningaviðræðum frá því i
nóvember, er síðasti fundur var
haldinn, en „sambandsleiðum
hefur verið haldið opnum“.
Til marks um það, að menn
innan NATO gera sér vonir um að
málið leysist á farsælan hátt,
þrátt fyrir allt, er, að engar ráð-
stafanir hafa verið gerðar með
það í huga að stöðin verði lögð
niður.
— Útför Blanco
Framhald af bls.l
handteknir, en ekki er vitað hvort
meðal þeirra séu þeir, sem
sprengdu sprengjuna.
Verklýðsforingjar höfðu skorað
á verkamenn að efna til mótmæla-
aðgerða um allan Spán áður en
Carrero Blanco var ráðinn af dög-
um. Tilgangurinn er að mótmæla
réttarhöldum gegn tíu foringjum
andstæðinga stjórnarinnar í Mad-
rid.
Sjómenn leggja
fram kröfur
— Lúðvík löðrungar