Morgunblaðið - 08.01.1974, Qupperneq 1
tHfc
5. tbl. 61. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 8. JANUAR 1974
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bretland:
Barátta upp á
líf og dauða
eftir 2 vikur
Kissinger fer til Tel-Aviv
og Kaíró á næstu dögum
Tel Aviv og Washington
7. janúar AP-NTB.
HATTSETTUR ísraelskur
embættismaður sagði í kvöld, að
von væri á Henry Kissinger utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna f
skyndiheimsókn til ísraels og
Egyptalands á næstu dögum, til
aðgreiða fyrir samkomulagi.
Er látið að því liggja, að
Kiásinger muni koma með
tillögur til að leggja fyrir deilu-
aðila um framkvæmd brottflutn-
ings herja þeirra frá Súezskurð-
inum. Hér er talið, að um stórtíð-
indi sé að ræða, því að ljóst só, að
Egyptar hafi fallizt á tillögur þær,
sem Kissinger kemur með, þvi að
vitað er, að Sovétríkin hafa lagt
blessun sína yfir þær og ferð hans
til Tel-Aviv og Kaíró.
israelskir og sýrlenzkir
hermenn skiptust á skotum á
Golanhæðum i dag, en ekki kom
til alvarlegra átaka að sögn tals-
manns friðargæzlusveita Samein-
uðuþjóðanna.
Ekki er vitað hvort ísraelar
hafa lagt tillögur sínar, sem frá
var skýrt fyrir helgi, fyrir full-
trúa Egypta við friðarvið-
ræðurnar í Genf. Moshe Dayan,
sem kom til ísraels um helgina,
eftir viðræður við ráðamenn í
Washington, sagði við komuna í
gær, að nú gæti stjórnin lagt til-
lögur sinar fram. Atti Dayan fund
með stjórninni i dag, en Golda
Meir forsætisráðherra mætti
ekki, og var sögð rúmliggjandi
með kvef. Telja ýmsir, að fjarvera
fo'rsætisráðherrans kunni að vera
i sambandi við orðróm um að
Dayan ætli að ganga úr verka-
mannaflokknum ásamt 8—10
London 7. janúar AP—NTB
ÁSTANDINU í efna-
hagsmálum í Bretlandi
hrakar hægt og síg-
andi þótt enn hafi ekki
komið til hið stórkostlega
atvinnuleysi, sem spáð var.
Er því að þakka, að stjórn-
endum fyrirtækja hefur
tekizt vel að aðlaga sig
orkuskortinum og skipu-
öðrum þingmönnum yfir í
stjórnarandstöðuflokkinn Likud,
sem þá myndi fá meirihluta á
þingi t>g þar með mynda stjórn.
Hins vegar þykir ýmsum stjórn-
málafréttariturum nú horfa
vænlegar i viðræðum deiluaðila
fyrir botni Miðjarðarhafs. Mikil
leynd hvílir annars yfir
viðræðum, en heimildir herma. að
ísraelar séu reiðubúnir að draga
lið sitt 18 km frá Súezskurði ef
Egyptar fækki í sinu liði í staðinn.
leggja framleiðsluna. Nú
fá aðeins iðnfyrirtæki, sem
framleiða lífsnauðsynja-
vörur, að nota rafmagn
meira en 3 daga í viku.
Helzta hættan framundan á
næstu 10 dögum er að nauðsyn-
legt verði að minnka enn fram:
leiðslu ríkisstálverksmiðjanna, en
framleiðsla þeirra hefur þegar
verið minnkuð um helming.
Stjórnendur verksmiðjanna vör-
uðu i dag við þvi, að draga yrði
enn meir úr framleiðslunni, ef
ekki rættist úr orkuskorti mjög
fljótlega. Fari svo að framleiðslan
verði enn minnkuð er hætt við að
til algers öngþveitis komi og að
fjöldi fyrirtækja, sem notar stál
við framleiðslu sfna verði að loka.
Haft var eftir forstjóra hjá stóru
iðnfyrirtæki f Bretlandi i dag,
að hægt yrði að bjargast á hunda-
vaði i u.þ.b. tvær vikur í viðbót,
en eftir það yrði um hreina bar-
áttu upp á lif og dauða að ræða.
Sem kunnugt er, minnkaði kola-
framieiðsla i Bretlandi um 38% i
sl. viku eftir að námaverkamenn
settu á algert yfirvinnubann, en
70% af orkuþörf landsins er full-
nægt með kolum. Er talið ólíklegt
í dag, að lausn á launadeilunni
milli ríkisins og námamanna fáist
á næstunni, þar sem mjög mikið
ber enn i milli. Engir fundir hafa
Framhald á bls. 21
Dollarinn aftur sterkastur
Stórhækkaði í verði í gær — Yenið fellt um 6,7%
Watergate:
Ford er vongóður
um samkomulag
Washington 7. janúar AP.
GERALD Ford varaforseti
Bandaríkjanna sagði í sjónvarps-
viðtali í gær, að hann vonaðist til
að hægt yrði að komast að sam-
komulagi í deilu Nixons forseta
og Watergaterannsóknarnefndar
öldungsdeildarinnar um
afhendingu á 400 skjölum og
segulbandsspólum forsetans.
Nixon neitaði, sem kunnugt er, að
afhenda nefndinni þessi skjöl og
spólur sl. föstudag og kemur það
því enn einu sinni í hlut Sirica
Watergaredómara að kveða upp
úrskurð í deilu forsetans og
nefndarinnar.
Ford lýsti sig sammála
ákvörðun Nixons og sagði kröfu
nefnarinnar eins konar „veiði-
ferð." En ég vona og held, að
hægt verði að komast að sam-
komulagi, en fyrst verður nefndin
að slaka á kröfu sinni, sagði vara-
forsetinn að lokum.
Niðurstöður Gallupkönnunar í
Bandaríkjunum, sem kunngerð
var í New York um helgina, sýna,
að 29% Bandaríkjamenn voru
ánægðir með störf Nixons forseta.
Er það 2% fleiri en í siðustu
könnun, sem gerð var 5. nóvem-
ber sl., en 39% færri, en í
könnun, sem gerð var í janúar sl,
skömmu eftir Vietnamsamkomu-
lagið.
London 7. janúar AP.
BANDARÍKJADOLLAR
hækkaði mjög í verði á alþjóðleg-
um gjaldeyrismörkuðum í dag og
var staða hans gagnvart sterlings-
pundi við lokun markaða í kvöld
hin bezta, sem hún nokkru sinni
hefur verið. Jafngilti 1 sterlings-
pund 2,24 dollurum, en um mitt
síðasta ár kostaði 1 sterlingspund
um 2,56 dollara.
Þróunin á gjaldeyrismörkuðum
f Evrópu fylgdi í kjölfar ákvörð-
unar Japansbanka um að lækka
tímabundið gengi yensins um
6,7% gagnvart Bandaríkjadollar.
í Frankfurt fengust 2,83 mörk
fyrir einn dollar, og er það í
fyrsta skipti á 8 mánuðum, sem
dollarinn fer yfir 2,80 mörk
Svipaða sögu er að segja af öðrum
gjaldeyrismörkuðum. Þurfti
Þýzkalandsbanki að selja um 100
milljón dollara í morgun, til að
stöðva hækkun dollars.
Mjög mikil eftirspurn er eftir
bandai-iskum dollurum um allan
heim og telja fjármálasérfræðing-
ar að flest bendi nú til, að dollar
verði innan skamms orðín
sterkasti gjaldmiðillinn á erlend-
um mörkuðum. A sumum
mörkuðum í Evrópu var dollarinn
i dag orðinn sterkari en hann var
fyrir gengisfellinguna i febrúar.
Telja ýmisir sérfræðingar, að
haidi þessi þróun áfram verði lagt
hart að Bandaríkjamönnum siðar
Framhald á bls. 27
Sakharov ver Solzhenitsyn
Deilur í Kreml um aðgerðir
Moskvu og París 7. jan. AP-
NTB
SOVÉZKI kjarnorkufræðing-
urinn Andrei Sakharov og fjór-
ir aðrir þekktir sovézkir
menntamenn og rithöfundar
hafa gefið út yfirlýsingu, þar
sem þeir styðja og verja
ákvörðun Aiexanders Solz-
henitsyn um að gefa út f
Parfs bókina Archipelago
Gulag, sem Ijallar um vinnu-
búðir á Stalintfinunum í Sovét-
ríkjunum. Bókin kom út f París
í sl. viku og varð metsölubók
samdægurs.
Þegar eftir útgáfuna hófu
sovézk yfirvöld mikla óhróðurs-
herferð á hendur Solzhenitsyn
og kallaði Tassfréttastofan
hann svikara og leikbrúðu i
höndum endurskoðunar-
sinnaðra áróðursmanna. í yfir-
lýsingu Sakharovs og félaga
hans segir, að réttur til útgáfu á
verkum rithöfundar, sé einn
mesti grundvallarréttur í
siðmenntuðu þjóðfélagi og sá
réttur sé ekki bundinn við
landamæri. Spyrja þeir í yfir-
lýsingunni hvernig sovézkir
fjölmiðlar geti kallað lygi og
óhróður það, sem þegar hefur
verið viðurkennt af opinberri
hálfu sem mistök, þ.e.a.s.
fjöidahandtökur, pyntingar,
aftökur, þrælkunarbúðir,
ómannúðlegan aðbúnað og
beina útrýmingu milljóna
manna í vinnubúðum eins og
gerzt hafi á tímum Stalíns.
Þeir, sem skrifa undir yfir-
lýsinguna með Sakharov, eru
rithöfundarnir Alexander
Galich, Vladimir Maximov og
Vladimir Voinovich og
prófessor Igor Safarevich við
stærðfræðideild Moskvu-
háskóla.
Fjölmiðlar i A-Þýzkalandi og
Tékköslóvakíu hafa tekíð undir
gagnrýni sovézkra yfirvalda á
Solzhenitsyn og þar hafa um-
mæli Tass verið flutt óbreytt.
Eins og fram hefur komið, ótt-
ast Solzhenitsyn nú mjög, að
hann verði handtekinn og
leiddur fyrir rétt í Moskvu.
Kom þetta fram í samtölum
hans við þrjá franska lög-
fræðinga fyrir helgi.
Fréttaskýrandi AP-frétta-
stofunnar i Moskvu, Roger
Leddington, segir i dag, að út-
gáfa bókar Solzhenitsyns hafi
Framhald á bls. 27