Morgunblaðið - 22.01.1974, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JANUAR 1974.
7
iSSðt THE OBSERVER
,—wtr—
THE OBSERVER
—Gaddafi“
kemur enn á
___óvart____
EFTIR IRENE BEESON
Arabaþjóðirnar eru svo til
hættar að láta sér bregða þótt
Muammar Gaddafi forseti
byltingarráðs Líbýu sendi frá sér
furðulegar og frumlegar yfirlýsing-
ar, en þegar tilkynnt var um næst
síðustu helgi, að hann og Habib
Bourguiba Túnisforseti hefðu
orðið sammála um að sameina ríki
sín, kom það öllum mjög á óvart.
stjórnin í Kairó viðhafði þó meiri
gát, og Abdel Kader Hatem vara-
forsætisráðherra sagði: „Egyptar
vilja alltaf styðja sameiningu
tveggja Arabarikja." Hafði Hatem
áður átt langan fund með fulltrúa
úr byltingaráði Libýu, til að fá
nánari skýringar á fyrirætlunum
Gaddafis. Egyptar álita, að
Gaddafi sé nú með þessari fyrir-
til fyrri afstöðu hans til þess máls.
í desember 1972 kom Gaddafi i
heimsókn til Túnis, og hvatti þá á
opinberum vettvangi til
sameiningar ríkjanna, og að Bour-
guiba yrði forseti sameinaða rikis-
ins. Greip þá Bourguiba fram i
fyrir honum og sagði, að
sameiningin kæmi ekki til greina
„næstu ár eða aldir". í september
oaddati og Bourguiba undirrita sáttinálann uin saineiningu Líbýu og
Túnis.
Þessir tveir leiðtogar virðast eiga
fátt sameiqinlegt, og stefna hvor i
sína áttina í alþjóðamálum.
Gaddafi ofursti hefur krafizt
allsherjarstyrjaldar gegn ísrael til
að frelsa Palestinu undan yfirráð-
um Gyðinga. Er hann algjörlega
andvígur öllum talsmönnum
samninga við ísraela, og allt frá
þvi styrjöldin hófst í október hefur
hann gagnrýnt Egypta fyrir undan-
látssemi.
Hann mætti ekki til leiðtoga-
fundar Araba i Algeirsborg i
nóvember í fyrra, en hélt því þá
fram, að Egyptar og Sýrlehdingar
væru að leita samþykkis annarra
Arabarikja á „uppgjafaáformum"
sínum, eins og hann orðaði það.
Hefur hann siðan hvatt til upp-
reisna i hverju því Arabalandi,
sem gerist aðili að friðarsamning-
um við ísrael og viðurkennir þetta
ríki Gyðinga.
Bourguiba forseti hefur um
margra ára skeið verið talsmaður
bættrar sambúðar við Israel, og
oft hlotið gagnrýni annarra Araba-
leiðtoga að launum. Á undanförn-
um tiu árum hefur hann hvað eftir
annað lagt til, að fulltrúar Araba
og Ísraela settust saman að
samningaborði til að reyna að
koma á friðarsamningum.
ELDUR OG VATN
Þegar tilkynnt var um fyrir-
luigaða sameiningu Túnis og
Libýu, heyrðust raddir i Egypta-
landi, seni liktu sameiningunni við
hjónaband vatns og elds. Rikis-
huguðu sameiningu að bæta sér
upp vonbirgðin frá þvi í september
i fyrra, þegar honum mistókst að
fá Sadat forseta Egyptalands til að
fallast á fulla sameiningu Egypta-
lands og Libýu. Hafði Sadat þá
verið að velta þessari hugmynd
Gaddafis fyrir sér i tvö ár. Þegar
Sadat brást, sneri Gaddafi sér í
vestur, og lagði til, að stofnað yrði
Sambandsriki Norður-Afriku, með
sameiningu Líbýu, Alsir, Marokkó
og Mauritaniu. Hlaut sú tillaga
hans engar undirtektir.
Viðbrögðin í Alsir við fréttinni
um fyrirhugaða sameiningu Libýu
og Túnis voru efasemdir um að
nokkurn tima tækist að koma
henni á. Sama er að segja um
viðbrögðin i Egyptalandi. Þar var á
það bent, að úr þvi ekki var unnt
að koma á sameiningu Libýu og
Egyptalands vegna ólikra þjóð-
félagshátta, væri sameining við
Túnis út i bláinn af sömu ástæðu.
Forsvarsmenn ýmissa samtaka í
Egyptalandi hafa fordæmt
þráfylgni Gaddafis við lögmál og
kenningar múhammeðstrúarinnar.
Efast þeir um að þessar
kenningar, sumar hverjar, fái
hljómgrunn hjá konum og
menntamönnum i Túnis, enda
hefur Bourguiba sjálfur hvatt þjóð
sína til að leggja ýmsar þeirra á
hilluna.
ÞÁ VAR OLDIN ÖNNUR
Skyndiákvörðun Bourguiba um
að löndin tvö skuli sameinast er
ekki hvað sizt undarleg með tilliti
i fyrra fór svo Bourguiba til Tripoli
til að vera viðstaddur hátíðahöld i
sambandi við fjögurra ára afmæli
byltingarinnar í Libýu. Þar sagði
hann í ræðu, að engar þær að-
stæður væru fyrir hendi, er mæltu
með sameiningu landanna.
í Kaíró er almennt talið, að
efnahagsmálin hafi verið efst í
huga Bourguiba þegar hann féllst
a sameininguna, og að hún sé
nokkurs konar „gifting til fjár" frá
hans hendi. Augljóst er, að oliu-
tekjur Libýu, sem nama nú um
þremur milljörðum dollara á ári,
verða góð búbót fyrir efnahag
Túnis, sem stendur hölium fæti.
Eftir að Gaddafi heimsótti Túnis
fyrir tveimur árum, hafa þúsundir
verkamanna flutzt þaðan til Libýu
til að vinna i oliuiðnaðinum
Heldur þessi straumur áfram, og á
trúlega enn eftir að aukast ef
sameiningin verður samþykkt i
fyrirhugaðri þjóðaratkvæða-
greiðslu. Þá hafa sérfræðingar frá
Túnis verið fengnir til að aðstoða
Libýu varðandi fiskveiðar og fjar
skipti.
Áður en Muhammad Masmoudi
lét af embætti utanrikisráðherra
Túnis i fyrri viku, tilkynnti hann,
að nýja sameiningarríkið fengi
einn sameiginlegan forseta, sama
fána, löggjafarþing, dómstóla og
her, og að efnt yrði til þjóðarat-
kvæðagreiðslu iTúnis 20 marz.
Gengið er út frá þvi, að
Bourguiba verði fyrsti forseti nýja
rikisins, bæði vegna aldurs (hann
er sjötugur) og vegna reynslu.
ÞORRAMATUR — VEIZLUMATUR Matarbúðin. Hafnarfirði sér um þorramatinn í þorrablótin, -1 6 teg- undir innifaldar Einnig köld borð og annan veizlumat Matarbúðin Hafnarfirði. S. 51 186. BROTAMÁLMUR Kaupi allan brotamálm lang hæsta verði . Staðgreiðsla Nóatúni 27. simi 25891
CAPE — PELS — RADIOFONN Fallegur cape og stuttur pels, ónotaður, til sölu Einnig tveir næl- onpelsar og einn gamall pels og góður Philips stereofónn m/út- varpi. Uppl. í s. 81115. SKATTFRAMTÖL Veiti aðstoð við skattframtöl og reikningsskil einstaklinga og fyrir- tækja. Jón Ó. Hjörleifsson. viðskiptafræðingur, sími 3331 3
ÍBÚÐ ÓSKAST Barnlaust par óskar eftir 1 til 2ja lEsm Y Y V
herb. ibúð á leigu sem fyrst. Fyrir- framgr. möguleg. simi 2-1 7-84 i dag og næstu daga JWj jTöumunytv ancLEcn
Flugmenn
Fundur verður haldinn í Félagi íslenzkra atvinnuflug-
manna að Háaleitisbraut 68, Reykjavík, fimmtudaginn
24. janúarog hefst kl. 20.30. Fundarefni: Samningarnir.
Stjórnin.
Sími 13000
JÖRÐ TIL SÖLU
Meðalstór bújörð, grasmikil og hentug bæði fyrir kúabú
og fjárbú. Jörðin er í Rangárvallas. Upplýsingar hjá
sölustjóra Auðunni Hermannssyni, í síma 1 3000. Opið
alla daga til kl. 1 0 e.h.
FasteignaúrvaliÓ
SELJENDUR
— TÆKIFÆRI
4ra — 5 herb. íbúÓ
Höfum kaupanda að góðri 4ra — 5 herb.
nýlegri ibúð á hæð, á góðum stað í borginni.
Mjög góð útborgun í boði fyrir góða eign.
Rýming ekki nauðsynleg fyrr en á næsta ári.
AÐALFASTEIGNASALAN
Austurstræti 14, 4. hæð. Simar 22366 og
26538.
Heimasímar 8221 9 og 81 762.
|Hor0unIiIa&ib
óskar eftir starfsfólki í eftirtalin störf:
BLAÐBURÐARFÓLK ÓSKAST
Upplýsingar í sima 35408
AUSTURBÆR:
Bergstaðastræti, Sjafnargata, Freyjugata 28 — 49,
Háahlið, Grænuhlið, Grettisgata frá 2 — 35,
Ingólfstræti, Baldurqata,
VESTURBÆR:
Seltjarnarnes: (Skólabraut, Nesvegur frá 31 — 82,
Lynghagi, Lambastaðahverfi,
ÚTHVERFI:
Laugarásvegur, Selvogsgrunnur. Sóheimar I,
Kambsvegur, Álfheimar II.
ftorgimtitAfefó