Morgunblaðið - 27.02.1974, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRUAR 1974
Fréttir og hugleið-
ingar úr Holtum
Kjördæmisráðið í Reykjaneskjördæmi:
Jóhann Petersen endur-
kjörinn formaður
M.vkjunesi, Holtum, 25. febr.
NÚ er góða gengin í garð og
þorri gamli genginn veg
allrar veraldar. Ekki var
hann neitt grimmur að þessu
sinni, umhleypingasamur að
vísu, en fór vandræðalaust um
að öðru leyti. Ennþá er mikill
klaki í jörð og ekki gott að sjá,
hve iengi hann veröur. Að vonum
eru ýmsir uggandi um, að tún geti
kalið ef ekki vorar vel, því að víða
er klaki búinn að liggja á túnum
síðan I desember. Einkanlega á
það við í uppsveitum.
Ennþá er eftir að baða sauðfé
víðast hvar hér. Einhverra hluta
vegna virðast Rangæingar hafa
orðið hornreka innflytjanda bað-
lyfsins, en nú er það komið og
verður sjálfsagt hægt að baða
fyrir vorið.
Nú hefur brugðið til rigninga
öðru hverju, og má búast við, að
vegir spillist víða, því að i þeim er
mikill klaki. Annars eru vegamál
hér í miklum ólestri, vegir víða
illa uppbyggðir og viðhald mjög
litið. Mikið er hér af sýsluvegum,
en fjármagn allt of lítið þeim til
viðhalds. Hér í Holtum er jarðlag
VORKAUPSTEFNAN í Leipzig
verður haldin dagana 10.—17.
marz n.k. en sýningin er eins og
kunnugt er, ein hin stærsta sinn-
ar tegundar f heiminum. Rúm-
lega 60 lönd úr öllum heimsálfum
munu hafa sýningardeildir á sýn-
ingunni og munu nokkur stærstu
fslenzku útflutningssamtökin
verða með sýningardeildir á sýn-
ingunni, þ.á.m. Sölumiðstöð hrað
frystihúsanna, Samband fs-
lenzkra samvinnufélaga og Sölu-
stofnun lagmetisiðnaðarins. Gert
er ráð fyrir að sýningargestir,
kaupsýslumenn og sérfræðingar á
ýmsum sviðum, verði frá rúmlega
90 þjóðlöndum.
Vorkaupstefnan f Leipzig nú í
ár, er hin fyrsta síðán eðlilegt
stjórnmálasamband var tekið upp
milli Islands og Þýzka alþýðulýð-
veldisins og síðan samningur var
gerður um frjáls gjaldeyrisvið-
skipti, í stað vöruskipta áður. Is-
lenzku útflutningssamtökin, sem
taka þátt í sýningunni, munu öll
sýna framleiðsluvörur sjávarút-
vegsins og verður sýningarsvæði
þeirra í sýningarhöllinni Messe-
hof í miðbænum, en það sýningar-
hús er eitt af 52 sem notuð verða
undir sýninguna.
þannig, að vegagerð og vegavið-
hald hlýtur að verða nokkuð dýrt.
Á hitt er svo að lita, að búskapur
án sæmilegra samgangna er alveg
dauðadæmdur nú á tímum.
Nýlega gat að líta í Tímanum,
að lokið væri hönnun vegar frá
Selfossi austur að Skeiðavegi, en
ekki víst, að í framkvæmdirnar
yrði ráðizt á þessu ári. Ekki er nú
stórmannlega á málum tekið í
samgöngumálum Sunnlendinga,
þar sem hér er ekki nema um
góða bæjarleið að ræða. Vitanlega
þarf að leggja kapp á að koma
vegi með varanlegu slitlagi að
Hvolsvelli sem fyrst, því að með
tilkomu hringvegarins eykst
álagið á Suðurlandsveginn gífur-
lega.
Og nú eru samningar að takast
með launþegum og vinnuveitend-
um fjórum mánuðum eftir að
eldri samningar runnu út. Ein-
hvern tíma hefði það þótt langur
samningstími, en það sýnir, að
menn ganga ekki alltaf jafnhratt
til verks. Það liggur nú fyrir, að
lausn samninganna er fyrst og
fremst fleiri krónur og smærri.
Framhald á bls. 35
Að venju munu margir íslenzk-
ir kaupsýslumenn sækja Vorsýn-
inguna í Leipzig og hafa þegar
margir gefið sig fram. Fá þeir alla
fyrirgreiðslu hjá ferðaskrifstof-
um hér og umboði Kaupstefnunn-
ar hér, sem er Kaupstefnan-
Reykjavík h.f. Lágmúla 5, en um-
boðið gefur jafnframt út kaup-
stefnuskírteini sem jafngilda
vegabréfsáritun og eru aðgangs-
kort að öllum sýningardeildum
auk þess sem þau veita ýmiss kon-
ar afslátt með járnbrautarferð-
um, útvegun gistingar o.fl.
Eins og áður segir munu rúm-
lega 60 lönd hafa sýningardeildir
í Leipzig að þessu sinni og af þeim
samtals um 9000 sýningardeildum
sem þar verða, munu um 5000
sýningardeildir vera frá öðrum
löndum en þýzka alþýðulýðveld-
inu og er það meiri þátttaka en
nokkru sinni fyrr. Sýningarsvæð-
ið nær yfir 350 þúsund fermetra
svæði, sem jafngildir á annað
hundrað sýningarhöllum eins og I
Laugardalnum hér í Reykjavík.
Hlutur Austur-Þjóðverja í sýn-
ingunni er að sjálfsögðu lang-
mestur og eru sýningarfyrirtækin
þaðan um 4000. Þá munu 15 út
A AÐALFUNDI Kjördæmis
Sjálfstæðisflokksins í Reykjanes-
kjördæmi var Jóhann Petersen,
Hafnarfirði, endurkjörinn for-
maður Kjördæmisráðsins. Fund-
urinn sendi Jóhanni Hafstein
skeyti með svofelldri kveðju:
,AðaIfundur Kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins í Reykjanes-
kjördæmi sendir þér og fjöl-
skyldu þinni bezt kveðjur, með
þakklæti og virðingu fyrir störf
þín fyrir Sjálfstæðisflokkinn fyrr
og sfðar. Megi gæfa og blessun
margfaldast þér til handa.“ Hér
fer á eftir frásögn af fundinum:
Aðalfundur kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins í Reykjanes-
kjördæmi var haldinn f félags-
heimilinu á Seltajrnarnesi 23.
þ.m.
Fundurinn hófst kl. 10 árdegis.
Fundarstjóri var Snæbjörn Ás-
geirsson, Seltjarnarnesi. Fundar-
ritari Ásthildur Pétursdóttir,
Kópavogi.
Að loknum skýrslum formanns
og gjaldkera hófst kosning stjófn-
ar, varastjórnar og endurskoð-
enda.
Formaður var endurkosinn Jó-
hann Petersen, Hafnarfirði. Með
honum í stórn voru endurkosin:
Sigríður Gisladóttir, Kópavogi,
Jón Sæmundsson, Keflavík, Páll
Ölafsson, Brautarholti, Kjalar-
nesi, og Albert K. Sanders, Njarð-
víkum í stað Péturs Antonssonar
flutningsmiðstöðvar frá Sovét-
ríkjunum taka þátt í sýningunni
auk mikillar þátttöku frá öðrum
sósíalistalöndum, en þessi lönd
sýna jöfnum höndum iðnaðar- og
neyzluvörur. Þróunarlöndin
munu og hafa fjölbreyttar sýning-
ar og 2300 fyrirtæki frá vestræn-
um þjóðlöndum munu taka þátt í
sýningunni. Er þar um að ræða
framleiðendur frá 26 ríkjum, þ. á
m. fjölda heimsþekktra aðila, t.d.
frá Vestur-Þýzkalandi, Frakk-
landi, Italiu, Bretlandi, Belgíu,
Svíþjóð, Austurríki, Hollandi,
Sviss og Bandaríkjunum. Sýning
Japana í ár er mun stærri en áður
og hafa þeir deildir í hinum ýmsu
vöruflokkum auk myndalegrar
samsýningar.
Kaupstefnan í Leipzig, sem
fyrst hóf göngu sína fyrir átta
öldum var endurreist með stofn-
un Þýzka alþýðulýðveldisins fyrir
25 árum og hefur síðan gengt
mikilvægu hlutverki í alþjóðavið-
skiptum og þá sérstaklega sem
miðstöð verzlunar milli austurs og
vesturs. Kjörorð sýningarinnar
er: „Fyrir frjálsum heimsvið-
skiptum og tæknilegum framför-
um“.
Grindavík, er baðst undan endur-
kosningu.
I varastjórn voru kosin:
Jakobína Mathiesen, Bragi
Michaelsson, Óskar Guðjónsson,
Sesselja Magnúsdóttir og Sigur-
geir Sigurðsson. Endurskoðend-
ur: Stefán Jónsson og Reynir
Eyjólfsson. I flokksráð Sjálf-
stæðisflokksins voru kosnir: Jón
Kr. Jóhannesson, Ólafur St.
Sigurðsson, Karl B. Guðmunds-
son, Ellert Eiríksson, Aðalsteinn
Gíslason.
i sambandi við fundinn var
málverkasýning. Sýnd voru 35
verk félaga í Listaklúbbi Sel-
tjarnamess. Félagar úr lista-
klúbbnum heimsóttu fundinn og
ávarpaði formaður kjördæmis-
ráðs, Jóhann Petersen, klúbbfé-
laga og þakkaði þeim ánægjulega
sýningu.
Formaður listaklúbbsins þakk-
aði.
Frú Guðríður Magnúsdóttir
skrifar bréf í Morgunblaðið ný-
lega um leitina að gömlu altaris-
töflunni frá Þingvöllum. Frúin
telur skaða að því, að i sjónvarps-
frétt um endurheimt altaristöfl-
unnar hafi ekki verið minnzt á
hina- réttu upphafsmenn leitar-
innar, þar sem þess var aðeins
getið, undirritaður hefði haft upp
á töflunni samkvæmt beiðni Þórs
Magnússonar þjóðminjavarðar.
Frú Guðríður heldur því fram,
að hugmyndin að leit umræddrar
töflu hafi fyrst komið fram síð-
sumars 1971, er Frank Ponzi list-
fræðingur fór til Þingvalla til að
skoða predikunarstól kirkjunnar,
og hin týnda altaristafla komst til
tals. Séra Eiríkur Eiríksson þjóð-
garðsvörður upplýsti þá, að taflan
hefði verið seld rétt fyrir alda-
mótin tiltekinni skozkri
konu, og eins og stendur í athuga-
semd frúarinnar: „Verður Frank
glaður við, skrifar nafnið á servi-
ettu sína og kveðst sjálfur vilja
hefja leit að töflunni ^a snúa sér
til þjóðminjavarðar og fá honum
málið í hendur.“
Allt þetta kann vel að vera
sannleikanum samkvæmt frá
hennar sjónarmiði. En hafa ber
það, sem réttara reynist. Svo vill
til, að búið var að finna töfluna
nærri ári áður en frúin hyggur, að
Frank Ponzi hafi tekið málið að
sér. I nóvember 1970 fékk ég fyr-
irspurn frá þjóðminjaverði um,
hvort nokkuð væri vitað um feril
töflunnar í Bretlandi, og að þrem
vikum liðnum gat ég sagt honum,
að ég hefði fundið hana á eynni
Wight fyrir sunnan England.
Að loknum aðalfundarstörfum
hófust þegar fjörugar umræður,
en að loknu matarhléi er fundur
hófst á ný hófust stjórnmálaum-
ræður.
Geir Hallgrímsson alþingismað-
ur, form. Sjálfstæðisflokksins,
hóf umræður og flutti mjög þrótt-
mikla og athyglisverða ræðu, þar
sem hann rakti gang helstu mála
er á dagsskrá eru með þjóðinni.
Var gerður framúrskarandi
góður rómur að máli Geirs og
honum fagnað vel og iengi.
Fjöldi ræðumanna tók til máls
að ræðu Geirs lokinni.
Jóhann Petersen, formaður Kjör-
dæmisráðsins í Reykjaneskjör-
dæmi ávarpar fundarmenn
og meðlimi mynd listarklúbbs Sel
tjarnamess, er opnuð var mynd-
listarsýning á vegum klúbbsins I
tengslum við aðalfund Kjör-
dæmisráðsins.
Vel kann að vera, að frú Guðríð-
ur Magnúsdóttir hafi ruglazt í ár-
tali eða prentvillupúkinn hafi
verið á ferðinni, og þá er eins gott
að birtaþað, sem réttara er.
Þá vil ég ennfremur láta þess
getið, að í sjónvarpsþætti um töfl-
una, sem ég hef nýlokið við fyrir
brezka sjónvarpið og sýndur verð-
ur bráðlega í Bretlandi og á Is-
landi, er skýrt tekið fram, að
séra Eiríkur Eiríksson er sá
maður, sem fyrst hreyfði þessu
máli og hrinti því af stað þannig
að það er nú farsællega til lykta
leitt með því að taflan er, eftir
nokkurt þóf loksins komin heim
til íslands.
En að minni hyggju er það
aukaatriði, hverjum tókst að
koma altaristöflunni góðu heim.
Hins er meira vert að minnast,
að við tslendingar stöndum
í mikilli þakkarskuld við
kirkjuna á eynni Wight,
fyrir það höfðingslund að
telja sjálfsagt að gefa Is-
landi aftur grip, sem var orðinn
hluti af þeirri eigin kikjusögu og
arfi. Gott væri nú að muna forna
speki: Æ sér gjöf til gjalda, og
hugleiða, hvernig bezt má endur-
gjaldaþetta einstæða vinarbragð.
Kirkjan á eynni Wight er þekkt
fyrir það að eiga merkilegt safn af
gömlum biblíum. Hver er sá höfð-
ingi meðal okkar, sem vill gangast
fyrir því, að þessi kirkja eignist
t.d. ljósrit af Guðbrandsbiblíu?
Hvað segir frú Guðríður sjálf?
Skotlandi 18. febrúar 1974.
Séð yfir hluta sýningarsvæðisins 1 Leipzig.
Islenzkar sjávarafurðir á
Vorkaupstefnu í Leipzig
Magnús Magnússon:
Altaristaflan góða
frá Þingvöllum