Morgunblaðið - 27.02.1974, Side 36
ÞEIR RUKR
umsKiPTin sEm
nucivsn í
iflorfiunWtatiinu
iDrönmWní>Íí>
JHörgMnt>laí>lí>
RucivsincnR
4H*-»224B0
MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRUAR 1974
V ar samið um geng-
isfall krónunnar?
„Mér Ifzt mjög illa á þetta samkomuiag og miðað við aðstæður er það
út í hött,“ sagði Gunnar Guðjónsson, stjórnarformaður Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna, er Mbl. ræddi við hann í gær áður en undirskrift
samninganna fór fram. Gunnar sagði, að samningarnir hlytu að kalla á
ieiðréttingu áður en langt um liði. Nokkurn veginn f sama streng tók
Árni Benediktsson hjá Sambandi fslenzkra samvinnufélaga, en um-
mæli hans eru birt á bls. 3 í dag. Arni sagði: „Með þessum samningum
er verið að semja um aukna verðbólgu og gengisfall. Um það blandast
engum hugur.“ Þá má benda á ummæli Eðvarðs Sigurðssonar, for-
manns Dagsbrúnar f blaðinu í gær, þar sem hann sagðist óttast það, að
samningarnir fengju á sig verðbólgustimpil.
NOKKRAR vegaskemmdir
hafa orðið víða um land af
völdum regn- og leysingavatns
og er ráðlegt fyrir ökumenn,
að aka með gát vegna þessa.
Þessi mynd sýnir, hvernig slfk-
ar vegaskemmdir geta orðið:
Vatnselgurinn sker í sundur
vegina með djúpum skurðum.
Myndin var tekin í gær á
Vatnsendavegi — Ljósm. Mbl.
Sv. Þorm.
Gunnar J. Friðriksson, formað-
ur Félags íslenzkra iðnrekenda
sagði í viðtali við Mbl. í gær:
„Þessir samningar eru tvímæla-
laust verðbólguhvetjandi, þar
sem vísitalan leikur enn lausum
hala að undanskildu áfengi og tó-
baki, þannig að ég efast um, að
raunveruleg kjarabót verði neitt í
líkingu við það, sem samið hefur
verið um.“
Þá ræddi Morgunblaðið í gær
við Hermann Guðmundsson, for-
Félagsfundir
samþykktu
1 GÆR voru vfða haldnir
fundir í verkalýðsfélögum, þar
sem fjallað var um nýgerða
kjarasamninga og þeir bornir
undir atkvæði. Ekki var Mbl.
kunnugt um annað, en að öll
félögin hefðu samþykkt
samningana. Fjölmennustu
fundirnir voru fundur Dags-
brúnar í Háskólabíói, þar sem
voru um 600 manns, fundur
V.R. í Giæsibæ, þar sem voru
um 1.000 manns og fundur
Iðju í Lindarbæ, þar sem var
húsfyllir, nokkur hundruð
manns.
mann Verkamannafélagsins Hlíf-
ar í Hafnarfirði. Hermann sagðist
telja, að þessir samningar væru
athyglisverðir fyrir tvennt. Ann-
ars vegar fyrir hin miklu afskipti
ríkisstjórnarinnar af samninga-
gerðinni og hins vegar fyrir það,
hve mikil kjarabót hafi náðst,
einkum kauphækkun. Hann sagð-
ist hafa búizt við svo miklum
kauphækkunum, þar sem verka-
lýðshreyfingin hefði staðið vel að
vígi vegna hækkandi dýrtíðar að
undanförnu. Hins vegar sagði
Hermann, að sér fyndist allur sá
tími, sem farið hefði í samninga-
gerðina furðulegt fyrirbæri og
hann sagðist vona, að það endur-
tæki sig ekki.
„Það má ýmsa lærdóma draga
af þessari samningagerð,“ sagði
Hermann Guðmundsson, „og þá
einkum þá, að sá mikli fjöldi
manna, sem þátt tók í henni, hlýt-
ur óhjákvæmilega að valda því, að
samningar taki langan tíma. Með
þessu er ég ekki að segja, að sem
flestir eigi ekki að fjalla um
samningana, en hins vegar er það
ljóst, að 200 manna hópur hefur í
för með sér, að samningagerð
gengur alltof hægt. Því hlýtur
þetta fyrirkomulag að verða end-
urskoðað fyrir næstu samnings-
gerð.“
„Afskipti ríkisvaldsins af þess-
Framhald á bls. 35
Búið að frysta loðnu
fyrir 770 milliónir kr.
Tillaga um 1200 þús.
kr. húsnæðislán felld
Á FUNDI Húsnæðismálastjórnar
í gær var felld tillaga um að
hækka lán Ilúsnæðismálastjórnar
í 1200 þús. kr. Tillaga þessi var
flutt af tveimur fulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins, þeim Gunnari
Helgasyni og Jóhanni Petersen,
og öðrum fulltrúa Framsóknar-
flokksins, Hannesi Pálssyni. Hins
vegar var samþykkt að hækka lán
Húsnæðismálastjórnar í 1060 þús.
kr. en þau hafa verið 800 þús. kr.
Til þess að fylgja hækkun
byggingarvísitölu hefðu lán Hús-
næðismálastjórnar þurft að
hækka í 1260 þúsund og er því um
hlutfallslega lækkun að ræða.
NÚ HAFA verið frystar a.m.k. 14
þús. lestir af loðnu, að því er
fulltrúar Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna, Sambands ísl. sam
vinnufélaga og tslenzku umboðs-
sölunnar töldu i gær, er Mbl. leit-
aði upplýsinga hjá þeim. Á veg-
um SH hafa verið frystar um 10
þús. lestir, á vegum SÍS um 3 þús.
lestir og á vegum Lsl. umboðssöl-
unnar um eitt þús. lestir. Að sögn
Eyjólfs Isfelds Eyjólfssonar,
framkvæmdastjóra SH, mun láta
nærri, að fob-verð frystu loðnunn-
ar, þ.e. þegar hún er komin um
borð í flutningaskip í íslenzkri
höfn, sé um 55 kr. á kg. og sam-
kvæmt þvf nemur heildarverð-
mæti þeirrar loðnu, sem nú hefur
Umræður utan dagskrár á Alþingi:
Kommúnistar farnir á taugum
UMRÆÐUR urðu utan dag-
skrár á Alþingi í gær um undir-
skriftasöfnunina Varið land.
Gerðu þingmenn Alþýðubanda-
lagsins undirskriftasöfnunina
að umtalsefni og töldu, að í
tölvuúrvinnslu undirskrifta-
listanna fælust víðtækar per-
sónunjósnir.
Geir Hallgrímsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, tók til
máls við umræðurnar og sagði,
að kommúnistar væru algjör-
lega farnir á taugum vegna
hins stórglæsilega árangurs,
sem söfnun undirskrifta um
varið land hefði borið. Við um-
ræðurnar benti Matthías Á.
Mathiesen einnig á, að undir-
skriftalistarnir kæmu til með
að liggja frammi á lestrarsal
Alþingis og færu síðan í skjala-
safn ríkisins, þar sem allir ættu
að þeim aðgang.
Ragnhildur Helgadóttir benti
á, að kommúnistar reyndu að
haldaþví fram, að undirskrifta-
listamir væru falsaðir með því,
að á þeim væru nöfn sömu
manna oftar en einu sinni og
eins nöfn manna, sem ekki
hefðu náð kosningaaldri. Nú
þegar þessar dylgjur væru af-
sannaðar með tölvuúrvinnslu,
rykju kommúnistar upp til
handa og fóta og reyndu að
draga athyglina frá hinum
glæsilega árangri undirskrifta-
söfnunarinnar með fáránlegum
ásökunum um tilraunir til per-
sónunjósna. Nánar er sagt frá
þessum umræðum á þingsiðu
blaðsins i dag, bls. 14.
verið fryst, um 770 milljónum fsl.
króna.
Þegar hafa fimm skip á vegum
japanskra kaupenda lestað frysta
loðnu í höfnum hér á landi, þrjú
eru að lesta hana þessa dagana og
átta eða níu skip eiga eftir að
koma ennþá, ef næg loðna verður
fryst fyrir þau að lesta. Skipin
eru flestöll japönsk og koma hing-
að til lands frá Bandaríkjunum,
en þangað hafa þau yfirleitt flutt
frystan ufsa. Lesta þau loðnu hér
eftir því sem birgðir leyfa og lesta
einnig í Noregi til viðbótar. Fara
skipin hér á milli hafna, rétt eins
og strætisvagnar, og lesta loðnuna
nær jafnóðum og hún er fryst. Á
vegum SH hafa tvö skip þegar
lestað hér, eitt er að lesta, annað
kemur eftir 7—10 daga og síðan
eitt enn, ef næg loðna er fryst. Á
vegum SÍS hafa tvö skip lestað
hér þegar, önnur tvö eru að lesta
þessa dagana og síðar koma þrjú,
ef frysting er næg. Á vegum ísl.
umboðssölunnar hefur eitt skip
þegar lestað og fjögur koma síðar,
ef farmur fæst, en þess skal getið,
að að einhverju leyti mun um það
að ræða, að skip lesti sameigin-
lega frá SÍS og isl. umboðssöl-
unni, þar sem sami kaupandi hef-
Framhald á bls. 35
Bræla
NÁNAST engin loðnuveiði hefur
verið undanfarna sólarhringa
vegna brælu á loðnumiðunum; í
gær tilkynntu einungis fimm skip
um afla og hann sáralítinn, 620
lestir. Loðnulöndun hófst af full-
um krafti í fyrrinótt eftir verk-
fallið og var víðast hvar lokið við
að landa úr bátunum, sem biðu, i
gær.
Tollskrárfrumvarpið:
Söluskattsákvæð-
ið dregið til baka
I GÆR kom til 2. umræðu og
atkvæðagreiðslu I neðri deild toll-
skrárfrumvarpið, sem frestað var
að afgreiða í þinginu fyrir jól.
Gerði meiri hluti fjárhags- og við-
skiptanef ndar tiliögu um, að
bráðabirgðaákvæði f frumvarp-
inu um hækkun söluskatts um
1% yrði fellt út úr þvf.
Þegar frumvarpið var til
afgreiðslu fyrir jól höfðu þing-
menn Sjálfstæðisflokksins og Al-
þýðuflokksins auk Bjarna Guðna-
Framhald á bls. 35