Morgunblaðið - 28.07.1974, Side 29

Morgunblaðið - 28.07.1974, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JULl 1974. 29 Grtmur Thomsen flytur konungi ávarp Þingvallafundar. Myndin er úr lllustratet Tidende. var hinsvegar bókmenntirnar, einkum og sér I lagi Ijóðlistin. Fyrir hundrað árum var óhugsandi að halda veglega þjóðhátíð én þess að yrkja ættjarðarljóð. þar sem hreysti fornra kappa var veg- sömuð og hið norræna hetjublóð. Þjóðhitiðarnefndin efndi ekki til samkeppni um þau 6 eða 7 hátlðarljóð. sem hún vildi fá. Eitt helzta skáld þjóðarinnar, Stein- grlmur Thorsteinsson. var fjarver- andi. svo nefndin fór með „pöntunina" til séra Matthlasar. sem lét til leiðast með semingi, enda var fyrst hafið máls á þessu daginn fyrir konungskomuna og hátlðarljóðin skyldu liggja full- kláruð á borðinu daginn eftir, takk. Lengi hefur landinn verið á veiku svelli, þar sem skipulagning er annars vegar. En það bjargaði málinu og þessari „listahátlð". að séra Matthias var enginn meðal- maður. Þegar þess þurfti með, brá hann fyrir sig hraðyrkingum. Hann brá við skjótt og talaði við Jónas Helgason, sem þá var helztur söngme'istari I Reykjavik. Þeir komu sér saman um sönglög og klerkurinn hristi sjö kvæði fram úr erminni sama daginn. Hann sagði sfðar: „Og þótt þau væru I meira lagi „hraðkveðin", voru þau þakksamlega þeg- in og sungin, og flestir fs- lendingar kunna þau eða kannast við til þessa dags. Sjálfum fannst mér fátt um þau." Kvæðin komu út I bæklingi og var þar það áttunda eftir Stein- grlm. En hver voru skáldalaunin á þjóðhitlðinni? Kóngurinn drakk honum að vlsu til I veizlu á langa loftinu I Latinuskólanum, senni- lega fyrir kvæðið Konungsminni. En þeir, sem ritstýrðu blöðunum á þvl herrans þjóðhátlðarári, minnt- ust ekki með einu orði á þetta afrek séra Matthfasar. Hástemmdar yrkingar Þótt minnstu munaði, að hátlðarljóðin færu I vaskinn, voru einhver lifandis ósköp ort þetta sumar og er hætt við, að sumt af þvf þætti full skrúfað. hástemmt og væmið nú á dögum. Allt um það leyndi sér ekki, að eldheit þjóðernisvitund er að vakna. Benedikt Gröndal yrkir um „Gull- fagra Garðarsey, glampandi jökul- mey" og Jón Sigurðsson er „Þú eðla mögur ísalands". Um allt landið fluttu skáldin Ijóð. Sigur- bjöm fri Fótaskinni flutti langt kvæði yfir Þingeyingum að Brúar- fossum og Jón Arnason. óðals- bóndi á Víðimýri, flutti frumort kvæði á samkomu á Reynistað. Mývetningar létu heldur ekki sitt eftir liggja. Kvæði það, sem Jón Hinriksson á Helluvaði flutti. er hvorki meira né minna en 20 löng erindi. Á þjóðhátlð Svarfdæla flutti Jónas Jónsson frá Sigluvlk langt og mikið kvæði. sem er að mörgu leyti eins og samnefnari fyrir allt það, sem ort var á þessu ári. Fyrsta erindið er þannig: Nú gyllir sunna gamla fjallatinda, og geislum slær á Ingólfs fornan haug. I Svarvardals hjá svoldar bláum linda, þar sjótir verma brjóst við unaðs- laug; þvf nú er runnin næsta mikill dag- ur, og nú er liðin þúsund ára tlð, frá þvl er hólmi hér var Garðars fagur af hetjubornum Noregs byggður lýð. Gestur Pálsson, skáld orti kvæði, sem sungið var á Þjóðhátið skólapilta I Reykjavik og höfuð- skáld Austurlands, Páll Ólafsson á Hallfreðarstöðum, orti Minni fs- lands. sem flutt var I Hallorms- staðarskógi. Þegar farið er yfir hinn keimllka þjóðhátlðarkveðskap frá 1874, finnst mér, að tvö skáld beri þar af. Annarsvegar Matthlas Jochumsson með orðkynngi og andlegt fjör. sem vart átti sinn líka, en hinsvegar Bólu-Hjálmar, sem þá var heilsuþrotinn sveitar- limur og gamalmenni. Um þetta leyti varð hann að binda penna- stöngina við hendina til að geta skrifað. En andinn var ekki út- kulnaður og undir dulnefninu Feigur Fjörgynjarson orti hann kvæði, sem kannski er magnaðast af öllu þvl. sem þá var ort. Hjálm- ar leggur kvæðið landinu I munn; það heitir „Island fagnar konungi sfnum á Þingvelli 1874". Þar er meðal annars þetta erindi. sem á að lýsa ártandi landsins: Sjá nú, hvað ég er beinaber. brjóstin visin og föiar kennar, eldsteyptu lýsa hraunin hér hörðum búsifjum ævi minnar; kóróna mln er kaldur snjár. klömbrur haflsa mitt aðsetur, þrautir minar I þúsund ár þekkir guð einn og talið getur. En þetta áhrifamikla Ijóð Bólu- Hjálmars var þó hvorki lesið né sungið á nokkurri þjóðhátlðarsam- komu. Enginn var minni spámaður I sinu föðurlandi en hann. Konungsför til Geysis — hátíð á Þingvöllum Áður en sjálf þjóðhátiðin hófst á Þingvöllum. hélt konungur með frfðri fylgd austur yfir Mosfells- heiði og var för hans heitið til Geysis. Meðal höfðingja landsins voru þar með þeir Hilmar Finsen og Jón Hjaltalin, landlæknir. Hélt konungsfylgdin sem leið lá frá Þingvöllum og austur um Gjá- bakkahraun. Laugarvatnsvelli. Laugardal og þaðan upp með hllð- um að Geysi. Er sagt að konungi hafi þótt búsældarlegt I upp- sveitunum. En nú fór sem oftar, bæði fyrr og slðar, að Geysir vildi ekki gjósa fyrir hin kónglegu mæistet; aftur á móti var varpað moldarhnausum I stokk unz hann skvetti úr sér. I bakleiðinni kom konungur við I Múla I Biskups- tungum; þar bjó þá Egill Pálsson, gildur bóndi, og hafði hann danne- brogsfána uppi. Llkaði konungi vel að ræða við Egil I Múla og hélt fylgdin síðan áleiðis til Þingvalla, þar sem þjóðhátfðarsamkoma var I þann veginn að hefjast. Það var hinn 6. dag ágústmánaðar. Þingvallasamkoman hófst með þjóðfundi. en þegar von var á konungi austan um Gjábakka- hraun, þótti tilhfýðilegt að mót- tökunefnd færi til móts við kon- ungsfylgdina og skipuðu þessa sveit tólf „gildir bændur". Tryggvi Gunnarsson, alþingismaður. hafði orð fyrir þeim. Enn sem fyrr var kóngurinn mið- punktur athyglinnar. Var „vor allramildasti konungur" ávarpað- ur með mörgum virðulegum orð- um á hinum fornhelga stað. Hall- dór latfnuskólakennari Friðriksson hafði öðrum fremur borið hita og þunga af þessari þjóðhátfð. Flutti hann fagnaðarkveðju konungi og Grlmur Thomsen, skáld, las hon- um ávarp þjóðfundar. Ekki hirði ég að tina upp alla þá. erlenda menn og innlenda, sem þarna stóðu upp til að flytja þjóðinni og kónginum kveðjur. en af frásögnum má ráða, að mikill helgibragur hefur verið á þessari samkomu. Brynleifur Tobiasson segir svo I bók sinni: „Var á öltu Ijóst, a8 kon- ungur var gagntekinn af tign og fegurð staðarins ekki siður en fyrra skiptið, er hann var þar, en nú rikti ekki sú kyrrð þar, sem áður hafði verið, er konungur kom þar við á austurleið sinni. Allt var nú á ferð og flugi. Alls staðar var fullt af fólki, á völlunum, að Lög- bergi, í hrauninu. á túninu og í gjánni. Niðri á völlun- um hjá tjöldunum fóru fram leikar, einkum glimur, og glimdu þar margir knálega og lipurlega." Að sjálfsögðu var kónginum sýnd þjóðarlþróttin sérstaklega og voru valdir til þess tveir guðfræði- kandldatar. Ekki er þess getið. hversu kóngi leizt i, en hann bað þá fyrir alla muni að brjóta ekki á sér fótleggina. Um kvöldið var haldin veizla og sat kóngurinn I öndvegi. Merki Danakóngs, niu hjörtu og þrjú Ijón, var yfir sæti hans. Grlmur skáld Thomsen mælti þar fyrir minni konungs. en hann þakkaði kurteislega og kvað sér þykja leitt, að hann kynni ekki Islenzku. Á eftir gekk hans hátign um vellina og var til þess tekið. að margan manninn hafði hann tekið tali og hafði hann verið I bezta skapi þetta kvöld. Og ekki var brottfararstundin áhrifaminnst. Mannfjöldinn fylkti sér hljóður beggja vegna götunnar, en þeir Grlmur Thomsen og kóngurinn gengu samslða og teymdu hesta slna upp úr gjánni. En þegar þeir voru komnir upp. dunaði gjáin af fagnaðarópi. Nokkuð þótti það skyggja á hátfðleika Þingvallasamkomunn- ar. að Jón Sigurðsson var þar ekki viðstaddur. En á Þingvallafundin- um var samið ávarp til Jóns 09 sent utan með konungsskipinu. A fundinum var þvl og hreyft. að sá hinn flatti þroskur, sem notaður hafði verið I merki landsins. væri hreint óhafandi. Vildu menn hafa fálka I merki landsins. Nú fóru þeir að raka sig eins og kóngurinn Reykjavlkurblöðin gerðu þjóð- hátlðina að umtalsefni og voru sammála um, að hátlðlegri stundir hefðu menn naumast lifað, og jók það ekki lltið ánægjuna. að veður hélzt blltt og gott allan tlmann. Ekki er minnst einu orði á áfengis- vandamát. né þann óskunda, sem gjarnan fylgir útisamkomum nú á dögum. Um klæðaburð og tlzku þessa tlma segir Kristleifur Þor- steinsson fræðimaður á Stóra Kroppi: „Mikill munur var á ktæðaburði bændalýðs á þessari hátíð og embættis- manna. Flestir bændur voru í heimunnum vað- málsfötum og með heima- gerða skinnskó á fótum. Stigvél sáust þá naumast nema á embættismönnum og það aðeins á þeim finni. Flestir bændur höfðu þá kragaskegg likt og Jón Sigurðsson forseti, og það höfðu margir heldri menn líka á þeim árum. Fáir höfðu þá alskegg, en naum- ast sást þá alrakaður full- orðinn maður. En strax eftir konungskomuna fór fjöldi manna, einkum þeir yngri, að raka sig eins og sjálfur kóngurinn. Flestir höfðu þá stýft hár, um augabrýr að framan og neðan við hárs- ræturnar að aftan." Þeir, sem ekki komust á Þjóð- hátlðina á Þingvöllum reyndu að gera sér dagamun heima. Jafnvel afdalabændur höfðu einhver ráð með það, Kristleifur á Stóra- Kroppi hefur eftir Bergþóri bónda á Þorvaldsstöðum: „Ég fór til Reykjavíkur og keypti þar hunangsköku og sex franskbrauð I bakartinu og svo keypti ég þrjár flöskur forsiglaðar af dýrasta vtni I apótekinu." Svo er að sjá. að Kristján kon- ungu IX hafi orðið vinsæfastur Danakonunga á fslandi og átti för hans á Þjóðhátlðina mestan þátt I þvl. Liklega hefur hann verið held- ur litill andans maður og séra Matthias segir einhversstaðar, að hann hafi heldur litið fengizt um kvæðin, sem ort voru honum til heiðurs. I Þjóðólfi er þessi lýsing á hans hátign: „Konungur vor er hár meðalmaður á vöxt, grann- vaxinn, léttur og lipur á fæti, tigulegur sýnum, en þó lítillátlegur, miðaldra og útliti. Hann er allra manna viðfelldnastur í viðmóti og viðtali, manna prúðastur í lund og vinsælastur innan hirðar, og eins og kunnugt er inn ágætasti húsfaðir og faðir barna sinna." „Mér fannst við mæta þar höfðingjum " Kristján konungur IX varð nær 88 ára gamall og bar aldurinn mjög vel. i einkalifi slnu var hann hamingjumaður. Giftust dætur hans þjóðhöfðingjum tveggja stór velda, önnur Alexander III. Zar I Rússlandi og hin Játvarði VII Bretakonungi. Getur mikið af kóngafólki nútlmans rækið ætt slna til Kristjáns IX. enda var hann á sfðustu árum ævi sinnar stund- um nefndur afi Evrópu. I fylgd með Kristjáni kóngi IX á Þjóðhátfðina 1874 var yngsti son- ur hans Valdimar, þá 1 5 ára. Það segir sina sögu. að fréttaritari Morgunblaðsins spurði prinsinn löngu slðar, árið 1937. hvað hon- um væri minnisstæðast úr fslands- ferðinni 1874. Prinsinn svaraði hiklaust. að hátlðin á Þingvöllum væri sér minnisstæðust og bætti við: „Ég hef tekið þátt i mörg- um merkilegum mótum, en það hvilir alveg sérstakur Ijómi i huga mfnum yfir þvi, sem gerðist á Þingvöllum 1874, þessum helga sögu- stað, þótt einstök atriði séu mér gleymd. En ekki fannst mér það væri kúguð þjóð. Mér fannst við mæta þar höfðingjum. . . " Við kveðjum kónginn að sinni, þennan „allramildasta herra" vorn. Eitthvað hefur nú hrakað andaktinni I kringum allt þetta kónglega mæistet með þjóð vorri. Kristján IX virðist hafa verið mjög hrokalaus maður og fremur alþýð- legur eftir þeirrar tfðar mælistiku. Hinsvegar verður návist hans hér uppi á íslandi svo yfirþyrmandi, að þeir ágætu menn gleymdust hálf- partinn, sem báru hitann og þung ann af þjóðhátiðarhaldinu. Það voru framar öðrum tveir menn, Halldór Kr. Friðriksson, latlnu- skólakennari. og formaður þjóð- hátiðarnefndar og Sigfús Eymundsson, sem hafði unnið mikið starf. En gleymdi maðurinn á Þjóðhátiðinni 1874 var Sigurður Guðmundsson. málari. Örlög hans eru hin mikla hneisa þessa þjóð- hátfðarárs. Þegar Þjóðólfur lýsir hátiðinni á Þingvöllum og lýkur opinberu lofsorði á Sigfús Eymundsson, bætir blaðið við: „. . . og þá er víst leyfi- legt að nefna SigurS málara — því þótt honum liggi allt þjóSlegt svo þungt á hjarta, aS hann gleymi öllum eigin hag, þá má þó nefna hann — alténd hér f ÞjóSólfi, — hann fitnar ekki til skaSa fyrir þvf. A8 minnast frekar á listamenn hjá oss — vér ætlum ekki aS nefna skáld- in — er ekki til neins, þess- konar kumpánum er sá kostr beztr aS lifa uppá gamla móSinn, unz þeir komast undir sina grænu torfu." Þjóðólfur reyndist sannspár; Sigurður málari fitnaði ekki til skaða þótt hann væri nefndur. Þessi merki frömuður og hug- sjónamaður veslaðist upp og dó skömmu eftir hátlðina. Gisli Sigurðsson tók saman. „Velkominn yfir íslands sæ, vor öðling hár." Kristjón 9 konungur stígur á land í Reykjavik.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.