Morgunblaðið - 29.09.1974, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 29.09.1974, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER 1974 Benedikt Gíslason frá Miðgaröi F. 15. apr. 1922 D. 23. sept. 1974 Það er gamall og góður íslensk- ursiður aðfesta á blaðnokkurorð til lesningar um gengna vini og granna og er vonandi, að hann leggist ekki niður. Oft verður þó að taka viljann fyrir verkið og mun svo fara að þessu sinni, en með þessum hætti er haldið til haga ýmsum upplýsingum, sem komandi kynslóðir kunna að hafa gagn og gaman af; einskonar þjóðskrá. / . Tilefni er til að hafa með í þessari þjóðskrá góðan dreng, sem á morgun mun fara í sína hinstu för í skaut móður okkar allra. Benedikt Gislason fæddist að Galtarvík á Hvalfjarðarströnd 15. apríl 1922 og varð því ekki gamall maður. Hann var sonur hjónanna Gísla Jónssonar og Guðborgar Ingimundardóttur einn sex systkina. Þau misstu föður sinn ung og leystist heimilið upp, en börnin voru tekin i fóstur. Það var gott fólk, skylt og óskylt, sem tók þessi ungu föðurlausu börn, enda munu þau hafa launað fóstr- ið með þeim hætti, sem best verð- ur á kosið. Benedikt ólst upp í Stórholti i Dölum, ásamt systur sinni, hjá Guðmundi Theódórssyni og konu hans. Má segja f þvi tilviki, að verkið hafi lofað meistarann, svo vel, sem Benedikt bar fósturfor- eldrum sínum vitni i lifi sínu og starfi. Eftir að hafa lokið námi f Héraðsskólanum f Reykholti hóf Benedikt iðnnám hjá föðurbróður sínum, Ólafi Hvanndal, í prent- myndagerð hans í Reykjavík. Kom strax í ljós, að þama var á ferðinni dugnaðarpiltur, er gekk að starfi sínu af áhuga og skyldu- rækni. Hann vann síðar í nokkur ár að iðn sinni hjá þeim, er þetta ritar, og reyndist hinn besti starfskraftur, þótt vinnudagurinn væri stundum langur, enda dag- blöðin í Reykjavík stærsti við- skiptavinurinn og að mestu unnið á kvöldin og nóttunni. Stuttu eftir að Benedikt lauk iðnnámi, giftist hann eftirlifandi konu sinni, Helgu Jónsdóttur frá Sælingsdalstungu í Dölum og bjuggu þau hér í Reykjavík í nokkur ár. Þau áttu 2 börn, Sigríði og Jón, sem nú býr að Miðgarði. Oft varð þess vart í fari Benedikts, að sveitin og æsku- stöðvarnar áttu sterk tök f hon- um. Stundum var deilt um það við Benedikt, hvor sveitin væri ríkari að sögustöðum, Rangárvallasýsla eða Dalasýsla, og var ekki við annað komandi en að Dalasýslan hefði vinninginn. Ekki mun gifting Benedikts hafa dregið úr þrá hans eftir æskuslóðum, enda fór svo, að und- an varð að láta og hófst hér nýr þáttur f lífi hans og sá er gerði lífshlaup hans sérlega athyglis- vert öðru fremur. Á þessu ári er mikið rætt um landnám og að vonum. En þótt landnámsmennirnir, sem að verki voru fyrir 11 hundruð árum, séu ofarlega í hugum okkar, þá má ekki gleyma þvl, að okkar land- nám hefir staðið jafnlangan tíma. Ennþá er landið hvergi nærri numið, þótt nærri þvf hafi verið gengið af vankunnáttu og ófor- sjálni. Að visu eru bændur enn að nema land, með aukinni ræktun, stækkun jarða og fjölgun búpen- ings. En þeir eru hlutfallslega ekki margir, sem í dag gerast land- námsmenn í þess orðs fyllstu merkingu og reisa nýja byggð. Þeir, sem fjársterkir eru, fjár- festa ekki á svo bamalegan hátt. Það má ávaxta fé vfðast hvar ann- Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför, DAGNÝJAR ÓLAFSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til eigenda og starfsfólks verzlunarinnar Geysis hf. fyrir einstakan vinarhug. Magnús Stefánsson Arndís Magnúsdóttir Anna Pálsdóttir Arndís Kr. Magnúsdóttir Stefán Guðlaugsson og aðrir vandamenn. t Við þökkum af alhug öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför mannsins míns, föður okkar og bróður KRISTJÁNS V. KRISTJÁNSSONAR, frá Seyðisfirði. Fyrir hönd aðstandenda Sigrún Eyjólfsdóttir. t Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför eigin- manns mins, föður okkar, tengdaföður og afa, GUÐLAUGS ÞORSTEINSSONAR, Hringbraut 54. Guðrún Jónsdóttir, Hilmar Guðlaugsson, Jóna Steinsdóttir, Þorsteinn Guðlaugsson, Sigríður Eggertsdóttir, Kristin J. Guðlaugsdóttir, Kristján K. Pálsson. Ástríður Guðlaugsdóttir Ginsberg, H. Dieter Ginsberg og barnabörn. arsstaðar með miklu ábatavæn- legri hætti. Fyrir hina er þetta að reisa sér hurðarás um öxl, þótt samfélagið reyni að létta nokkuð róðurinn — enda nær sú aðstoð skammt. Benedikt hafði hér allgóða at- vinnu og var byrjaður að reisa sér hús og fluttur í kjallara þess. Hann var mjög félagslega sinnað- ur og kunni vel við sig f marg- menni og hefði áreiðanlega kom- ist „vel áfram“ hér. Hann var greindur vel og hrókur alls fagn- aðar. En uppruni hans sagði til sfn. Hvort sá uppruni átti rætur sínar í Dalasýslunni eða var eitt- hvað í ætt við þrjósku þeirra, sem við höfum verið að minnast svo hátíðlega f sumar, varð það úr, að hann fetaði í þeirra fótspor. Hann fékk óbyggðan hluta úr landi tengdaföður síns og nam þar land og þar stendur nú reisu- legt bú með góð efni, Miðgarður f Dölum. Ávöxtur ótal vinnu- stunda. Ekki mældra dagvinnu- stunda, eða eftirvinnu eða nætur- vinnutíma. Heldur látlaust strit dag og nótt — hvfldarlaust starf þeirra hjóna í rösk 20 ár. Meira en helminginn af þeim tíma gekk Benedikt ekki heill til skógar. Eins og sjórinn getur jörðin lfka tekið sinn toll, gerir og hefir gert. A 20 árum hafði Benedikt unn- ið heilt ævistarf. Byggt mjög gott býli með góðum bústofni og feng- ið syni sínum f hendur. Sjáifur hélt hann á nú til Reykjavíkur. Hann keypti sér þar hús og hugðist fara sér hægar, þótt hann væri enn á góðum aldri. En þótt landnámið hefði skilað honum nokkrum arði, hafði það verið honum dýrkeypt. Hann stóð and- spænis því, eins og þúsundir ann- arra landnámsmanna um aldirn- ar, að þótt landið okkar geti farið mjúkum höndum um okkur stundum, eru högg þess þung og við verðum að færa þvi fórnir fyrir lffsgæðin. Benedikt hafði aðeins dvalið eina eða tvær vikur í hinu nýja húsi sínu og nýju starfi, er hann hvarf á vit sækustöðvanna í sfð- asta sinn. Hann fór f göngur og réttir. Hann kvaddi heimamenn, sveitunga sína, f sfðasta sinn, án þess að vita það, og þeir kvöddu vin sinn, hjálpsaman og hugljúf- an nágranna í sfðasta sinn líka án þess að vita það. Nokkrum klukkustundum sfðar bar sjúkrabifreið máttvana líkama hans síðustu ferðina frá æskustöðvunum. Eftir stóð býlið, sem hann hafði byggt og sonur- inn, tengdadóttir og bamabarn. Landnámsferðin f Dalina var á enda — landnáminu lokið. ‘Samhygð vina í garð konu og ættingja Benedikts hlýtur að vera djúp. Samfélagið skuldar henni þökk fyrir gifturíkt starf þeirra hjóna í þess þágu. Það er svona fólk, sem hleður styrkustu stein- ana í samfélagsbygginguna; hin hógláta, starfsmikla alþýða — hún færir lfka stærstu fórnirnar. Páll Finnbogason Það er sagt, að það sé stutt fótmál milli lífs og dauða, það er því miður oft, og ekki spurt um hvort maðurinn sé ungur eða gamall. Þegar dauðann ber skjótt að, er það sárt fyrir ástvini og aðstandendur hins látna. Þannig gerðist það að Miðgarði í Dala- sýslu, að fyrrverandi bóndi þar, Benedikt Gfslason, veiktist snögg- lega aðfaramótt 23. sept. Var flugvél fengin eftir honum úr Reykjavfk, og allt gjört, sem í mannlegu valdi stóð, til að bjarga lffi hans, en hann andaðist á Borgarspítalanum að morgni hins 23. sept. Þau hjónin Benedikt og Helga vom nýflutt til Reykjavfk- t Eiginmaður minn PÉTUR GUÐMUNDSSON frá Ófeigsfirði, Borgarholtsbraut 55 verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni ! Rvk. mánudaginn 30. þ.m. kl. 1 3.30. Ingibjörg Ketilsdóttir. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ÞÓRARINS LÝÐSSONAR, HHðartúni 3, Mosfellssveit. Sigrlður Þ. Tómasdóttir, Sigurður Þórir og fjölskylda. t Ég þakka öllum er auðsýndu mér og börnum mínum samúð og vinarhug við fráfall eiginmanns míns, STEFÁNS AGNARS MAGNÚSSONAR. Fyrir hönd vandamanna. Árný Fjóla Stefánsdóttir. t Sonur okkar, faðir, bróðir og mágur, BOLLI DANIEL HARALDSSON, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju þriðjudaginn 1. okióber kl 13.30. Jóhanna Sigbjörnsdóttir, Bryndís Bolladóttir, Björn Bollason, Sjöfn Haraldsdóttir, Millý Haraldsdóttir, Auður Haraldsdóttir, Haraldur Björnsson, Sigfús Orri Bollason, Auður Bolladóttir, Ólafur Vilhjálmsson, Ari Pálsson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför mannsins mlns, föður, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUNDAR JÓHANNSSONAR fyrrv. skipstjóra. Margrét Vilborg Sigurðardóttir, Jóhann K. Guðmundsson, Guðríður Matthíasdóttir, Baldur Guðmundsson, Glsli Guðmundsson, Guðbjörg Á. Guðmundsdóttir, Karl Á. Torfason, Sigurður H. Guðmundsson, Elísabet María Viglundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ur, en Jón sonur þeirra tekinn við jörðinni. Þau hjón ætluðu að vera f heimarétt sinni, og fóru því til að hitta sveitunga sfna, en til þess kom ekki, þar sem Benedikt veiktist svo skyndilega. Hann var í smalamennsku að. deginum og var mjög kalt í veðri. Benedikt fékk kransæðastfflukast fyrir nokkrum árum, og var þá sóttur f flugvél heim til sín og lengi talið tvfsýnt um líf hans, en allt f ór vel, hann komst til það góðrar heilsu, að hann gat gengið að vinnu og gaf ekkert eftir, kannski of bjart- sýnn um heilsuna, enda ákafa- maður til allra verka. Við hjónin vorum stödd I Döl- um hjá dóttur okkar og tengda- syni og börnum þeirra þremur. Stefán tengdasonur okkar er bróðir Benedikts heitins svo þetta var mikið áfall fyrir okkur öll, en mest fyrir konu hans og börn. Hann var nýbúinn að kaupa hús vestur á Seltjamarnesi og höfðu þau flutzt f það fyrir nokkrum vikum, og var hann kominn í at- vinnu hér. Þau ætluðu að hjálpa syni sfnum í sfðasta sinn við rétta- annir. Benedikt var fæddur 15. apríl 1922 í Galtarvík í Skil- mannahreppi, og var þvi aðeins 52 ára er hann lézt. Þar bjuggu foreldrar hans, Guðborg Ingi- mundardóttir og Gísli Jónsson bóndi þar, annáluð dugnaðarhjón. En Gísli dó ungur frá konu og sex ungum börnum, er síðar ólust upp hjá frændfólki sínu. Ekkjan fór ráðskona með tvö börn sín, Ingu og Benedikt, að Stórholti í Saur- bæ, til Guðmundar Theódórsson- ar hreppstjóra. Eftir nokkur ár giftust þau, en það hjónaband stóð aðeins f tvö ár, þvf hún dó af barnsförum, svo nú voru systkin- in búin að missa báða foreldranna á bezta aldri, en börnin, er voru með móður sinni, ólust upp f Stórholti eftir dauða hennar. Benedikt fór frekar ungúr til náms, til föðurbróður síns, Ölafs Hvanndals Jónssonar, að læra prentmyndagerð. Var Ólafur fyrsti maður með prent- myndagerð hér á landi. Hjá frænda sínum var Benedikt í nokkur ár, en á þessum árum kynntist hann ungri stúlku, Helgu Jónsdóttur frá Sælings- dalstungu f Dalasýslu. Þau giftu sig 1946, bjuggu sfðan í Reykjavfk til 1953, er þau fluttust aftur í Dalasýslu, þvf römm er sú taug, er rekka dregur föðurtúna til. Þar sem Sælingsdalstunga var ættar- óðal konu Benedikts, fengu þau land af jörðinni til að byggja ný- býli, er þau létu heita Miðarð, sem nú er sveitarprýði. Hjá þeim fór saman dugnaður, áræðni og hagleikur. Þessi myndarhjón voru samhent í þvf að gera allt sem myndarlegast bæði úti og inni. Þau áttu tvö börn: Jón Jóel, er nú hefir tekið við jörðinni, búfræðingur frá Hvanneyri, og Sigríði Guðborgu, skrifstofu- stúlku, lærð frá samvinnuskólan- um Bifröst í Borgarfirði. Jón býr með kærustu sinni, Guðrúnu Ingvarsdóttur, og eiga þau ungan dreng, Eyþór Inga, er var sólar- geisli afa og ömmu. Benedikt var jafnvígur hvort heldur var á járn eða tré. Þegar komið var að Mið- garði hlutu allir að sjá, að hér hafði hög hönd verið að verki. Nú um nokkurt skeið hefir Benedikt verið kennari við Laugaskóla að vetrum síðan son- ur hans hafði tíma til að sjá um búið, og gat hann sér góðan orð- stfr við kennsluna sem önnur störf, er hann hefir haft á hendi. Heimilið að Miðgarði var eitt þeirra heimíla, er gestum fannst strax, að þeir væru velkomnir. Þarna átti ég og fjölskylda mín t Móðir mín, GUÐBJÖRG JÓNSDÓTTIR frð Bolungarvík, Njörvasundi 4, verður jarðsungin frá Langholts- kirkju þríðjudaginn 1. október kl. 3. Jensína Þóarinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.