Morgunblaðið - 07.11.1974, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1974
Bruni í Meðallandi:
Melhóll brann
til kaldra kola
Fyrirlestur og
litskuggamyndir
A SÖGUSVNINGUNNI I kvöld
flytur dr. Sveinbjörn Rafnsson
erindi sem hann nefnir „Aldur
Landnámabókar". Hefst erindi
Sögusýningin í kvöld:
Erfitt að koma boðum um brunann
BÆRINN Melhóll I Meðallandi
brann til kaldra kola f fyrrinótt.
Einnig brunnu fjós og 2 geymsl-
ur. Tjónió er tilfinnanlegt fyrir
bóndann, Sigurð Einarsson, og
fjölskyldu hans, sem fluttist frá
Reykjavfk að Melhól fyrir tæpum
mánuði. Innbú allt var óvátryggt.
Mjög erfiðlega gekk að koma
skilaboðum um eldinn til slökkvi-
liðsins á Klaustri, því sfminn var
bilaður og ve.rið að endurbæta
aðvörunarkerfi Almannavarna
Lúðvík Jósepsson:
Möguleiki var á
minnihlutastjóm
I OTVARi'SUMRÆÐUM um
stefnuræðu forsætisráðherra
sl. þriðjudagskvöld sagði Lúð-
vfk Jósepsson, að mögulciki
hefði verið á myndun minni-
hlutastjórnar Framsóknar-
flokksins, Alþýðubandalagsins
og Samtaka frjálslyndra og
vinstri manna eftir kosning-
arnar 30. júnf sl.
Lúðvík ræddi um stjórnar-
myndunarmöguleika eftir
kosningar og sagði, að þessi
kostur hefði verið fyrir hendi.
Hann fullyrti ennfremur, að
Alþýðuflokkurinn hefði ekki
þorað að fella slíka stjórn af
ótta við nýjar kosningar.
Minnihlutastjórn af þessu tagi
hefði notið stuðnings 30 þing-
manna af 60 í sameinuðu
þingi, en verið í hreinum
minnihluta í annarri þingdeild-
inni.
vegna Kötlu um þessar myndir og
það þvf ekki f sambandi.
Siggeir Björnsson í Holti á Síðu,
fréttaritari Mbl., tjáði blaðinu, að
eldsins hefði orðið vart skömmu
fyrir miðnætti. Þá fór rafmagn af
húsinu. Þegar Sigurður bóndi fór
að aðgæta hverju þetta sætti, sá
hann að mikill eldur var í risi, en
húsið er timburhús á steyptum
grunni, ein hæð og ris. Var strax
farið að bjarga verðmætum úr.
stofu og tókst það að mestu, en
allt brann sem var í eldhúsi og
þvottahúsi og eitthvað í svefnher-
bergjum. Engir nautgripir voru á
bænum, hins vegar voru svín
geymd í fjósinu og tókst að bjarga
þeim. Auk Sigurðar voru á bæn-
um kona hans og tvö börn. Er tjón
fjölskyldunnar mikið, því hún
hefur nýlega fest kaup á jörðinni
og er því skuldum vafin.
Sem fyrr segir gekk erfiðlega
að koma boðum um brunann til
slökkviliðsins á Klaustri. Ekki f ar
næturvakt á símanum, og hann
auk þess bilaður að sögn Siggeirs.
Þá var neyðartalstöð á bænum
Strönd, sem sett var upp af Al-
mannavörnum vegna hættu á
Kötluhlaupi, ekki í sambandi.
Þurfi því að fara á bil að Klaustri
til að gera viðvart um eldinn.
Mbl. hafði í gær samband við
Guðjón Petersen hjá Almanna-
vörnum og spurði hann hvers
vegna aðvörunarkerfið hefði ekki
verið í sambandi. Sagði Guðjón,
að þetta væri gömul stöð sett upp
1969, og orðin mjög léleg. Væri nú
unnið að því að koma upp nýju og
fullkomnu örbylgjukerfi. Búið er
að komá uþp stöðvum á Herjólfs-
stöðum og lóranstöðinni á Reynis-
fjalli, en eftir væri að setja upp
stöðvar á Strönd og Hrífunesi.
Framhald á bls. 20
- •» „■
I gær var unnið að þv( að lagfæra Sjómannaskólann, en hann
nokkuð illa farinn eins og sjá má. Ljósm. Mbl. Ól. K. Mag.
er
Sveinbjarnar kiukkan 21 f
Kjarvalssal.
Þá mun Gunnar Hannesson
sýna litskuggamyndir með skýr-
ingum. Gunnar hefur áður haldið
sýningar á landslagsmyndum sín-
um á Sögusýningunni að
Kjarvalsstöðum við góðar undir-
tektir. Þá skal enn einu sinni
vakin á því athygli, að mynd feðg-
anna Vilhjálms og Ósvaldar
Knudsen, Eldar í Heimaey,
verður sýnd í sfðasta sinn á Sögu-
sýningunni annað kvöld.
Jónas Jónsson
situr Matvæla-
ráðstefnu S.Þ.
Mbl. fékk þær upplýsingar hjá
utanríkisráðuneytinu f gær, að
einn íslendingur sæti Matvæla-
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna
sem nú stendur yfir i Róm. Er það
Jónas Jónsson ráðunautur, fyrr-
verandi ráðherraritari. Er hann
sérstakur fulltrúi landbúnaðar-
ráðherra á ráðstefnunni.
„Það verður ekkert mætt
í skólann í dag”
„ÞAÐ VERÐUR ekkert mætt f
skólann f dag, það er alveg ákveð-
ið mál af okkar hálfu“, sagði
Jóhann Ragnarsson formaður
nemendaráðs Stýrimannaskólans
f samtali við Mbl. f gær. Með þvf
að mæta ekki til kennslu f dag,
allir sem einn, eru nemendur
_ Ij ,‘J * i /A/r V ■[
—rn r
Þannig mun gosbrunnurinn f Tjörninni hugsanlega lfta út.
Gosbrunnur settur upp í Tjörninni í vetur
1 VETUR verður settur upp gos-
brunnur f Tjörninni f Reykjavfk.
Hefur honum verið valinn staður
skammt frá Iðnó. 4 gosbunur
munu stfga til lofts, ca. 5 metra,
og verða bunurnar lýstar upp með
Ijósum. Gosbrunnurinn er keypt-
ur frá Danmörku, og er hann
væntanlegur til landsins á næst-
unni. Gefandi er Luther B.
Replogle, fyrrverandi sendiherra
Bandarfkjanna á Islandi. Þegar
hann fór héðan á brott, gaf hann
Reykvíkingum andvirði einnar
milljónar fslenzkra króna til
kaupa á gosbrunni.
Þórður Þorbjarnarson borgar-
verkfræðingur tjáði Mbl. í gær, að
nokkur dráttur hefði orðið á því
að ákveða stað fyrir gosbrunninn.
Upphaflega átti hann að vera í
tjörn sem á að útbúa við Norræna
húsið, en fallið var frá því, þar eð
fullnaðarskipulag háskólasvæðis-
ins lá ekki fyrir. Þá var athugað
að koma brunninum fyrir í tjörn
sem þegar er tilbúin við Norræna
húsið, en stjórn hússins hafnaði
þvi af sömu ástæðum.
Bar Þórður þá fram tillögu um
að setja gosbrunninn í norður-
enda Tjarnarinnar, um 20 metra
frá Tjarnarbakkanum meðfram
Vonarstræti. Gostúðurnar verða 4
líklega alveg undir yfirborðinu og
ljós munu lýsa upp bunurnar.
Þykir slík lýsing mjög tilkomu-
mikil í myrkri. Ekki er ákveðið
hvernig lokafrágangurinn verður,
því nokkrum vanda veldur áhrif
flóðs og fjöru á yfirborð Tjarnar-
innar.
skólans að knýja fram úrbætur á
skólahúsnæðinu, sem þeir telja
mjög lélegt, og jafnframt að
knýja á um að fá viðunandi stóla
til að sitja á f kennslustofunum.
„Verkfall" nemendanna beinist á
engan hátt gegn skólastjórn,
kennurum né kennslutilhögun.
Jóhann sagði, að Sjómanna-
skólahúsið, en þar eru Stýri-
mannaskólinn og Vélskólinn til
húsa hefði upphaflega verið illa
byggt. Trassað hefði verið að gera
við það og fé hefði verið af skorn-
um skammti. I rigningarveðrum
læki m.a. inn um glugga á tveim-
ur hliðum og þyrfti alveg að
skipta um þá. Um stólamálin
sagði Jóhann, að nemendur, sem
væru allt fullorðnir menn, þyrftu
að sitja á hörðum tréstólum með
trébaki allan daginn, og i mörgum
tilvikum væru þeir of litlir. I
fyrra hefðu þeir ritað mennta-
málaráðherra og beðið um úr-
'lausrr, en enga fengið. Einnig
hefðu þeir rætt við nýja mennta-
málaráðherrann, en hann hefði
bara beðið þá að tala við sig
seinna, en það væri oftast svarið
þegar farið væri fram á eitthvað.
Því gripu nemendur nú til þess-
ara aðgerða til að knýja á um
úrbætur og frekari aðgerðir yrðu
byggðar á reynslu næstu daga.
Þá ræddi Mbl. við Jónas
Sigurðsson skólastjóra Stýri-
mannaskólans. Hann sagði, að
skólahúsið hefði verið byggt á
árunum 1942—’45, þ.e. á stríðs-
árunum, en þá hefði oft skort gott
byggingaefni. Húsið væri því að
mörgu leyti ekki eins gott og
æskilegt væri. Það hefði t.d. lekið
með gluggum allt frá byrjun, þeg-
argerði sunnan og suðvestan slag-
viðri, og oft meira en þessa sið-
ustu daga, enda væri bara einfalt
gler í gluggunum. Jónas sagði, að
eina ráðið væri að skipta alveg
um glugga á suður og vesturhlið,
og væri það mikið verk sem kosta
mundi margar milljónir. Fé hefði
verið af skornum skammti til
endurbóta og það hefði m.a. á
undanförnum árum farið í að
skipta um þakglugga og lofttúður,
setja niðurföll framan við húsið
og koma upp mötuneyti sem notað
væri af nemendum. Stefnt yrði að
því að skipta um glugga um leið
og peningar yrðu handbærir til
þeirra framkvæmda, það væri
ekki hægt að gera allt i einu. Um
Framhald á bls. 20
Gísli Guðna-
son látinn
GlSLI Guðnason yfirverkstjóri í
Hreinsunardeild Reykjavíkur-
borgar lézt I fyrrinótt sextugur að
aldri eftir skamma sjúkdómslegu.
Gfsli var kunnur borgari þessa
Grindvíkingar sáróánægðir með kvikmyndina
SAMKVÆMT upplýsingum
fréttaritara Mbl. f Grindavfk eru
Grindvfkingar mjög óánægðir
með kvikmyndina „Fiskur undir
steini“, sem sjónvarpið sýndi á
sunnudagskvöldið og efndi sfðan
til umræðuþáttar um á eftir. t
tilefni sýningar myndarinnar f
sjónvarpinu barst Mbl. f gær orð-
sending frá Eyjólfi Olafssyni
kennara f Grindavfk, en hann
kennir þar m.a. tónlist. Orðsend-
ing Eyjólfs ber yfirskriftina
„Siglt undir fölsku flaggi". Hún
er svohljóðandi:
„Það ku hafa verið vinsæl
íþrótt fyrr á öldum að stunda sjó-
rán, en áhugi fyrir þeim mun
hafa dofnað með innreið menn-
ingarinnar og fyrir aðgerðir
þeirra, sem hengdu þá, er sigldu
undir fána sjðræningja. Heyrt hef
ég að fyrr á öldum hafi Grindvik-
ingar (og aðrir í hinum menning-
arsnauðu sjávarþorpum) tekið
hraustlega á móti slíkum ófögn-
uði og séu vel færir um það enn a
tímum menningarinnar.
Ég er einn þeirra snauðu, sem
er skotinn í kaf i sjóræningja-
myndinni „Fiskur undir steini”.
Höfunda hennar þarf að sjálf-
sögðu ekki að kynna. Ég tel þá
hafa kynnt sig bezt sjálfa I um-
ræðunum um ómyndina. Ég hef
að undanförnu sótt Dale
Carnegie-námskeið, sem haldið er
hér í félagsheimilinu, en þar er
fjallað m.a. um mannleg sam-
skipti, og held ég að þeir ættu
erindi þangað líka. Þeir gætu sótt
námskeiðið hingað í „ómenning-
una“. Ég teldi það gagnlegra en
að beina vopnunum inn á salerni
að einhverjum ónafngreindum
„flagara".
Það er komið inn í tíma til mín í
Tónlistarskólanum, þar sem verið
er að æfa atriði úr Davíð og Sál —
barnasöngleik eftir Svíann Daníel
Helden. Hvaða höfundarlaun fær
hann? Égvileindregiðkomaþvíá
framfæri við alþjóð, hver höfund-
ur hans er, þar sem þeir hafa því
miður ekki kynnt hann í þessari
mynd sinni, þótt ég tæki það
greinilega fram við þá, þegar um-
rætt atriði var tekið upp. Þeir
Framhald á bls. 20
bæjar og vann mikið að félags-
málum og verkalýðsmálum. Hann
átti m.a. sæti í stjórn Ráðninga-
stofu borgarinnar. Gísli studdi
Sjálfstæðisflokkinn, var m.a. í
fulltrúaráði flokksins og átti sæti
í mörgum nefndum hans. Hann
var Óðinsfélagi og átti um skeið
sæti í stjórn Óðins.
Gísli var kvæntur Jónu Krist-
mundsdóttur og lifir hún mann
sinn. Varð þeim sjö barna auðið.