Morgunblaðið - 07.11.1974, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÖVEMBER 1974
27
Horfðu
hiktaust
a...
iMuín
/tSKULYÐSVIKA Kf U.M & K.
3 -9. NOV 1974
Amtmannsstig 2b
Kl 8,30 eh
Hvað eru KFUM
& KFUK?
KROSSGOTUR
Umsjón:
Jóhannes Tómasson
Gunnar E. Finnbogason.
17 ára og eldri. Vikulegir fund-
ir eru með vönduðu kristilegu
efni og á sunnudagskvöldum
eru almennar samkomur, sem
eru öllum opnar.
Hér hefur verið talið upp það
helzta í starfi KFUM & K og að
öðru leyti látum við myndirnar
tala. Frekari upplýsingar um
starfið má svo fá á aðalskrif-
stofu félaganna, Amtmannsstíg
2b.
Hér í Reykjavík og víðar á
landinu hafa KFUM & K leit-
azt við að ná til barna og ungl-
inga með starfsemi sína. Félög-
in starfa í deildum, yngri deild-
ir (Yd.) eru fyrir börn á aldrin-
um 9—12 ára. Börnin eru köll-
uð saman á vikulega fundi. Á
þessum fundum er haft efni við
hæfi barna. Sérstaklega er lögð
áherzla á boðun Guðs orðs,
enda er tilgangur félaganna sá
frá upphafi. Einnig er starf-
rækt svokölluð vinadeild (Vd.)
fyrir drengi á aldrinum 7—9
ára. Fundaform hjá þeirri deild
er svipað og í yngri deild félag-
anna.
Sunnudagaskólí fyrir þau
allra yngstu er einnig starf-
ræktur og mun það vera elzti
sunnudagaskóli landsins. Hann
er til húsa að Amtmannsstíg 2b,
svo og í Breiðholti.
Yfir sumartfmann þegar allt
deildastarf í félögunum liggur
niðri, starfrækja þau sumar-
starf. KFUM hefur sumarbúðir
fyrir drengi í Vatnaskógi. Þar
gefst drengjunum tækifæri til
að taka þátt í heilbrigðum leikj-
um og íþróttum. i Vindáshlíð er
KFUK með sumarbúðir. Þar er
ákjósanlegur staður fyrir ungar
stúlkur til að eiga góðar stundir
við skemmtun og uppfræðslu i
Guðs orði, sem er mikil á báð-
um þessum stöðum.
Unglingadeildir (UD.)
KFUM & K eru ætlaðar
unglingum á aldrinum 13—17
ára. Reynt er áð hafa vandað
efni fyrir unglingana, gestir
eru fengnir í heimsókn og farið
er í ferðalög. Fundir eru viku-
lega á veturna og á sumrin eru
„leikjakvöld" á félagssvæðinu
við Holtaveg. Árlega er haldin
unglingavika, þá eru samkomur
á hverju kvöldi í heila viku
sérstaklega fyrir unglinga.
Um verzlunarmannahelgina
er unglingamót i Vatnaskógi.
Þangað sækja árlega um 300
unglingar og'er farið í ýmsa
leiki og íþróttir stundaðar.
Aðaltilgangur þessara móta er
samt sá að boða Guðs orð og
miðar allt starf félaganna að
því að segja bæði ungum og
öldnum frá Guði og hjálpræðis-
verki hans í Jesú Kristi.
1 framhaldi af þessu er rétt
að iiefna námskeið, sem nú
stendur yfir fyrir félagsfólk.
Það er biblíu- og trúfræðinám-
skeið og er það m.a. haldið til að
gera starfsfólk hæfara til að
útbreiða boðskap Biblíunnar,
en barna og unglingastarf er nú
á 10 stöðum í Reykjavík og ná-
grenni, sem yfir 100 sjálfboða-
liðar annast.
Aðaldeildir (Ad.) eru fyrir
Að Hólavatni við Eyjafjörð eru sumarbúðir
KFUM & K á Akureyri. Um þessa helgi er
haldið þar æskulýðsmót og í framhaldi að því
er síðan æskulýðs- og kristniboðsvika í húsi
félaganna á Akureyri. Yfirskrift vikunnar
er: Trú þú á Drottin Jesúm. Margir ræðu-
menn taka þátt í samkomunum m.a. guð-
fræðingarnir Benedikt Arnkelsson og Gunn-
ar Sigurjónsson og Ingunn Gísladóttir,
kristniboði. Samkomur verða hvert kvöld vik-
unnar 3.—10. nóv. kl. 20:30.
Ljósmyndir: Ragnar
Gunnarsson og Ragnar
Thor Sigurösson.
Frú Kristfn Möller formaður
KFUK sýnir Yd-stúlkunum
félagsmerkið.
Yngri-deildarfundur KFUM f Langagerði
A ungiingamótum er hlustað vel...
... og Ifka skvett úr sér.
Utisamvera í Vatnaskógi. Arni Sigurjónsson, formaður KFUM,
ávarpar unglingana.
Æskulýðskór KFUM & K
Æskulýðs-
vika
1 þessari viku hefst svonefnd
æskulýðsvika KFUM & K. Hún
hefur verið haldin um áraraðir
og er til þess að koma á fram-
færi boðskap Biblíunnar um
Jesúm Krist, nú undir yfir-
skriftinni: Horfðu hiklaust á
Jesúm. Nefnd skipuð fulltrúum
félaganna hefur undirbúið vik-
una í ár pg er hún með líku
sniði og áður, samkomur hvert
kvöld kl. 20:30. Á þeim tala
ungir ræðumenn úr hópi félags-
manna og mikið verður um
söng. Ekki færri en 6 mismun-
andi sönghópar láta til sín
heyra og má búast við fjöl-
breytilegri tónlist frá þeim.
Eitt er þó sameiginlegt: Allir
hóparnir syngja um Jesúm
Krist, syngja um það, sem hann
vill gera fyrir menn i dag. Við
hvetjum ungt fólk til að sækja
Hljómsveitin Rut leikur og
syngur tvö kvöld. Hér sjáum
við einn meðlima.
samkomur vikunnar og athuga
hvað þar fer fram, það verður
enginn fyrir vonbirgðum.