Morgunblaðið - 07.11.1974, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÖVEMBER 1974
Fa
/7 Ití l. t 1,1. H. i V
4 FVRl-
LOFTLEIÐIR
BILALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
Æbílaleigan
felEYSIR
CAR RENTAL
--s 2446CM|
^■2©610i|
mojjEEn
ÚfVARP OG STERECU
KASfTTfJTf
Hópferðábílar
Til leigu i lengri og skemmri
ferðir 8—50 farþega bílar.
KJARTAN
INGIMARSSON
Sími 86155 og 32716.
Ferðabílar hf.
Bílaleiga S 81260
5 manna Citroen G.S. fólks- og
stationbílar 1 1 manna Chevrolet
8—22 manna Mercedes-Benz
hópferðabílar (með bilstjórn).
oinsun mon-uui-BRonto
ÚTVKRP OC STEREO I ÓU.UM BILUM
Bílaleigan ÆÐI
Simi 13009 Kvöldsími 83389
Öllum þeim sem glöddu mig og
sýndu mér sóma á 80 ára afmæli
minu, sendi ég ínnilegar kveðjur
og þakkir.
Guð blessi ykkur öll.
Jórunn
Hannesdóttir.
Öllum þeim ættingjum og vin-
um, sem glöddu okkur með
heimsóknum, gjöfum og kveðj-
um á gullbrúðkaupsdegi okkar
1. þ.m., þökkum við innilega.
Lifið heil.
Sigríður Guðmunds-
dóttir og
Jón Guðmundsson,
Hrafnistu. .
„Sökinni” skipt
Otvarpsumræður um stefnu-
ræðu forsætisráðherra vðru
með „hefðbundnu“ sniði. Leik-
rænar tjáningar, mismunandi
velheppnaðar tilraunir til að
spila á það þjóðarhljóðfæri,
sem áheyrendur eru, og ná út
úr þvf samhljómi við flokks-
pólitísk áhugamál, er flytjend-
ur báru fyrir brjósti. Furðu
mikill hluti ræðutfma fór f
vinstri stjórnar uppgjörið,
gagnkvæmar ásakanir, þar sem
hver skenkti öðrum þá orsök,
sem bersýnilega var sameign
viðkomenda og bar svipmót
þeirra allra. Þessi tilhneiging
til að horfa aftur en ekki fram,
til að ræða um annað en raun-
verulega var á dagskrá, segir
sfna sögu, talar skýru og skilj-
anlegu máli, sem situr f áheyr-
endum, löngu eftir að gagn-
kvæmar ásakanir eru hljóðnað-
ar.
Að baki orðanna
Að haki orðanna, sem sögð
vóru, hver sem ræðumaðurinn
var, eygðu hlustendur þann
efnahagsvanda, sem við er að
etja. Enginn ræðumaður komst
fram hjá honum, þótt ýmsir
reyndu það, og allir viður-
kenndu, beint eða óbeint, nauð-
syn aðgerða, er tryggðu at-
vinnuvegunum rekstrargrund-
völl og bægðu frá dyrum al-
mennings vofu atvinnuleysis.
Allir viðurkenndu skaðsemi
verðbólguvaxtarins og nauðsyn
þess að spyrna við fótum.
Óhjákvæmileg kjaraskerðing,
meðan rétt væri úr kútnum, var
baksvið orðanna, þó margur
félli f þá freistni, að reyna að
fiska I þeim grugguga polli, er
hann skyldi eftir sig.
Efnahagsvandinn og nauð-
synleg úrræði vóru því rauði
þráður umræðnanna. Önnur
umræðuefni, sem svip settu á
málflutning, vóru útfærsla
landhelginnar og öryggismálin.
Landhelgismálið varð þó ekki
ýkja fyrirferðarmikið bitbein,
en varnarmálin urðu sem áður
tilefni stórra orða, sem sögðu
þó ekkert nýtt.
Niðurstaða umræðnanna f
huga þeirra, er á hlýddu, hlýtur
að verða sú, að aðgerðir núver-
andi ríkisstjórnar hafi I senn
verið nauðsynlegar og
óhjákvæmilegar, ef vandamál-
in áttu ekki að vaxa þjóðínni
yfir höfuð.
Sjónvarpsþáttur
Sjónvarpsþáttur, sem sýndur
var sl. sunnudagskvöld, hefur
orðið umræðuefni alls þorra
manna. Sá var eini kostur þátt-
arins. En það eitt, að vekja
menn tíl umhugsunar og um-
ræðu er góðra gjalda vert. Efni
þessa þáttar var að skopstæla
það, sem kallað er „frystihúsa-
menning", gera lftið úr and-
legu atgervi og menningarvið-
leitni fólks, er starfar f útgerð
og fiskvinnslu. Islenzk sjávar-
pláss og fbúar þeirra fá niðr-
andi umsögn og lága menn-
ingareinkunn sjálfskipaðra
prófdómenda, sem ekki tfund-
uðu þó eigið menningar- eða
verðmætaframlag í þjóðfélag-
inu.
Stofukommúnistar, sem hafa
lítil sem engin tengsl við hið
raunverulega lff, sem lifað er f
landinu, setja f æ rfkara mæli
svipmót sitt á dagskrá fjöl-
miðla. Þeir eru f orði kveðnu
verkalýðssinnaðir, en ógeðfelld
fyrirlitning á högum og hugsun
hins vinnandi manns skýtur
þó jafnan upp kolli f hegðan
þeirra. Afstaða þeirra mótast
ekki af samskiptum við hinn
almenna borgara, ekki af þátt-
töku f störfum og kjörum hans.
Þekking þeirra mótast ekki af
eigin reynslu, eigin þátttöku f
daglegum störfum hins vinn-
andi manns, heldur hundrað
ára gömlum „fræðikenning-
um“ höfunda marxismans.
Þekking þeirra á nútfma kjör-
um og hugsunarhætti almenn-
ings nær ekki út fyrir Komm-
únistaávarpið, sem samið var á
öldinni sem leið, við allt aðrar
þjóðfélagsaðstæður en við bú-
um við f dag. Þess vegna mótast
viðhorf þeirra af kaldhæðni til
þess fólks, sem hefur með
vinnu sinni borgað skólagöngu
þeirra, og er þeim á flestan hátt
fremra, Ifka f sannri menningu
og andlegum þroska.
Höfundar umrædds sjón-
varpsþáttar eiga vonandi ekki
samleið með slikum þröngsýn-
um framfærsluþegum verka-
fólksins, þó þessi þáttur hafi
dregið um of dám af viðhorfum
þeirra. Mistök, sem verða til
þess að lærdómur sé af þeim
dreginn, eru á stundum betur
gerð en ekki. Og við bfðum og
sjáum hvaðsetur.
Bridgefélag Kópavogs.
31. okt. hófst hraOsveitar-
keppni með þátttöku 15%vei*.
Eftir^yrstu umferð er staða
efstu sveita þessi:
Sveit Armanns Lárussftiar 3^jji
Sveit Gríms Thoraren^pn * 2wJ
Sveit Gunnars Sigurbjörn
Sveit Kristm. Halldóráfe
Sveit Sigurðar Sigurjón&.j
Sveit Matthfa^ar ywdréss.
Sveit JúlíusárSveinbjörn
tEveit Bjarna Sveinssonar 251
Meðalskor 252 stig.
& „ XXX
^H'undur var haldinn i stjórn
tfíb 1 8. okb sl. og hófst hann á
Hví, að nýlflörinn forseti B.S.Í.
fijalti Eliasson, bauð stjórnar-
^ienn velkomna til starfa. Sagð-
ist Hjalti vænt« góðs samstarfs
jgyð allatstjórnarmeðlimi. Taldi
Wann að^nkið starf væri fyrir
^Rindum í að skipuleggja alla
"arfsemi við félögin, en þar
taldi hann talsverðan misbrest
á og þyrfti að koma því máli í
betra horf, bæði af hálfu B.S.I.
og félagsmanna sjálfra. Ganga
þyrfti betur eftir skýrslum frá
félögunum og senda þyrfti
þeim allar reglugerðir, lög og
gögn til að efla starfsemi félag-
anna og samband þeirra við
B.S.Í.
Samþykkt var að skipa Jón
Hjaltason sem aðstoðarmann
gjaldkera og Ragnar Björnson
sem aðstoðarmann ritara.
Samþykkt var að styrkja
landsliðið, sem nýlega er farið
út til ísrael, sem svarar til
ferða- og hótelkostnaðar með
hálfu fæði. Mun þessi styrkur
nema um 400 þúsund kr.
XXX
Miklar sviptingar eru í hrað-
sveitakeppni Tafl- og bridge-
klúbbsins og örar skiptingar í
efstu sætunum. Nú er lokið
þremur umferðum af fimm og
er þá staða efstu sveita:
Sveit:
Antons Valgarðssonar 1869
Þorsteins Kristjánssonar 1851
Þorsteins Erlingssonar 1844
Sigurbjörns
Armannssonar 1806
Kristínar Þórðardóttur 1786
Guðmundar Karlssonar 1780
Kristínar Ölafsdóttur 1764
Tryggva Gíslasonar 1760
Magnúsar Þorvaldssonar 17S2
Fjórða umferðin verður
spiluð í kvöld i Domus Medica
og hefst klukkan 20.
A.G.R.
ORÐ í EYRA
Frá oddvita
— Hetll og sæll kallinn!
Þar sen^g veit að þú ert ifft allur upp á
vfsnasmfðma og Menninguna eins og við
hér f efra sendi éeAér ateamni mfnu
nokkrar ágjætar sAi ég nef Kveðið á
Þjóðhátfðarárinu.
f kosningaslaggn
sumar. Simbi f Hól (sAi er hifoTki hag-
mæltur né söngvinn, enda kominn af
honum Jóa Stóra) ættl<u)í að bola Mjer úr
Hreppsnefndinni og troða sjálfum sér f
vara-Oddvitastarfið. Og eins og þú
kannské veist er hann búinn að taka Ráðs-
konuna til egtaskapar, þá sem kom að
Sunnan f fyrra með þrjá rollinga með
togleðurssýkina.
Ætla ég að margir mig
muni kjósa núna.
Hugsar bara um sjálfan sig
Sigmundur — og frúna.
Þeim þótti hún góð þessi.
Svo var það í tólftu vikunni eða löngu
ettir Kosningar, að ég kom út frá messu-
gjörð hjá honum Séra Jóni mínum (ég er
f Sóknarnefnd). Þá kvað ég:
Af ég slappa eins og skott
ettir þunga pressu.
Nú er ekki veður vott
vfða eftir Messu.
Og f fyrramorgun þegar ég var að svfða
úti f Skúr og rigningin buldi á ómáluðu
þakinu kom þetta snilldarverrk fyrirvara-
laust:
Nú erkomið hret og haust,
Hausana skal svfða.
Allt framm streymir endalaust,
einnig veðurblfða.
Að sfðustu ein, Jakob minn, sem ég orti
f Göngonum, en ég var Réttarstjóri eins
og kunnugt er. Hún skfrir sig sjálf.
Viti sneyddan eymdaróð
atómskáldin sungu.
Það getur enginn þeirra 1 jóð
þýtt á nokkra tungu.
Vertu svo blessaður, Jakob minn, og ég
bið að heilsa honum Ragnari Ólafi eða
hvað hann nú heitir sem vildi fá mig með
sér á Þing.
Filipus vara-Oddviti.
Kinverskt blað segir
Liu Shao-chi látinn
Hong Kong, 4. nóv.
AP. Reuter.
KlNVERSKA blaðið Ta Kung
Pao, sem gefið er út á ensku í
Hong Kong, skýrir svo frá að
fyrrverandi forseti Kfna, Liu
Shao-chi, sé látinn. Til þessa
hefur verið talið, að hann væri f
stofufangeisi einhversstaðar f
Kfna en hann var eitt af fórnar-
lömbum menningarbyltingar-
innar svonefndu á sfðasta ára-
tug og þá hrakinn frá embætti
með skömm.
Blaðið getur þessa í sambandi
við upptalningu á því, sem
menningarbyltingin hafi fengið
áorkað, og segir: „Liu Shao-chi
og Lin Pao eru dauðir líkam-
lega sem pólitískt en nauðsyn-
legt e*r að viðhalda djúpri gagn-
rýni á þá, sérstaklega hinn
siðarnefnda, ásamt stöðugum
lærdómi í fræðum Marx, Len-
ins og Mao Tse-tungs til þess að
hjálpa fólkinu til að skynja
endurskoðunartilhneigingar og
berjast gegn þeim, hvar sem
þeirra verður vart.“
Ekki segir blaðið neitt frekar
um hvernig „líkamlegan"
dauða Liu Shao-chis hafi borið
að höndum. Orðrómur hefur
öðru hverju gosið upp frá þvl
1972 um, að hann væri látinn
en opinber viðbrögð hafa yfir-
leitt verið talin benda til þess,
að hann væri lifandi og i stofu-
fangelsi.
Franska blaðið Le Monde
bendir á, að ekki var skýrt frá
dauða fyrrverandi landvarna-
ráðherra Kína, Lin Piaos, í
blaðafréttum í Peking fyrr en í
september 1972, um það bil ári
eftir að hann lézt og opinber
staðfesting fékkst ekki fyrr en í
ágúst 1973, er Chou En lai, for-
sætisráðherra, gat þess i ræðu á
10. þingi kinverska kommún-
istaflokksins, að Lin Piao væri
ekki lengur i lifenda tölu.
Le Monde telur hugsanlegt, pSSíííSi
að skýrt verði frá skipan eftir-
manns Liu Shao-chis i forseta-
embættinu á fundi alþýðu- I..............
þingsins kínverska, sem saman . ^IIÍÍl
kemur innan skamms. Til þessa
hefur Tong Pi-wu varaforseti
gegnt störfum forseta. |
Starfsmenn kínverska sendi- |
ráósins I Paris voru spurðir
álits á þessari frétt í dag, en -MM
sögðust ekkert hafa um málið
heyrt.
«