Morgunblaðið - 07.11.1974, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1974
5
Heiðursgestur
Sinfóníuhljómsveitarinnar:
stórhrifnir af honum. Hann þekkti
hverja einustu nótu í tónverkunum."
Siðan hefur Borge komið árlega til
Indianapolis og hátiðahaldið
blómstrað.
Sömuleiðis segir Cooper frá því, er
Borge settist við dágóðan Bösen-
dorfer Imperial flygil i háskólanum
og sagði: „Ef svona flygil væri að
finna i öllum hljómleikasölum, væri
svo sem ekkert á móti þvi að leika
einhverntima eitthvert verk til
enda," — en þeir, sem hafa séð
Borge og heyrt, minnast þess vænt-
anlega, að hann leikur sjaldnast
nema hluta úr lögum, blandar auk
þess iðulega saman mörgum tón-
smiðum og teygir þær og afbakar á
þann veg, að fáum yrði liðin slik
meðferð tónlistar. En Borge kemst
upp með ótrúlegustu hluti vegna
þess hve fyndinn hann er.
Victor Borge byrjaði að læra á
píanó hjá móður sinni þriggja ára að
aldri. Faðir hans. sem var fiðluleikari
I konunglegu hljómsveitinni dönsku,
vildi að hann tæki sig til fyrirmyndar
og lærði á fiðlu, en hann neitaði þvl
alfarið og hélt áfram við planóið.
Átta ára að aldri hélt hann slna
fyrstu hljómleika I Kaupmannahöfn
og var þá þegar yfirlýstur undrabarn
og mikið með hann látið. Hann fékk
styrk til náms við tónlistarháskólann
Victor Borge
væntanlegur
í næstu viku
Fallegir útskornir trémunir frá Júgóslavíu
Tilvalin gjafavara
Hjá okkur er sýning
á grjótmyndum
Þorsteins Kristinssonar
Húsgögn,
vönduð
og falleg
i næstu viku kemur til landsins
planóleikarinn og háðfuglinn frægi,
Victor Borge. Heldur hann hljóm-
leika I Háskólabíói sunnudaginn 17.
nóvember kl. 2 slðdegis og um
kvöldið verður hann heiðursgestur á
árshátlð Sinfónluhljómsveitar fs-
lands, sem haldin verður að Hótel
Sögu. f för með Borge verður
sópransöngkonan Marylyn Mulvey
og koma þau væntanlega laugar-
daginn 1 6. nóv.
Áskrifendur að hljómleikum Sin-
fónluhljómsveitarinnar hafa for-
gangsrétt að aðgöngumiðum að
hljómleikunum og geta notfært sér
hann I dag og á morgun með þvl að
panta miða I slma hljómsveitarinnar,
en eftir þann tlma verða miðar seldir
öðrum.
Vart er of djúpt I árinni tekið þótt
sagt sé að Victor Borge eigi engan
sinn llka. Hann byrjaði feril sinn sem
undrabarn I planóleik, en ágæti hans
sem tónlistarmanns hefur að mörgu
leyti fallið I skugga kimnigáfu hans.
Er og vafasamt, að nafn hans hefði
flogið jafn vlða og raun ber vitni, ef
hann hefði haldið sig við að leika
slgilda músik á planó. Sem tónlistar-
manni er honum þó sannarlega ekki
fisjað saman, og hann hefur m.a.
getið sér gott orð fyrir hljómsveitar-
stjórn á slðari árum.
Bandarlskur tónlistarmaður, Frank
Cooper, hefur sagt frá þvl I grein, er
Victor Borge stjórnaði I fyrsta sinn
sinfónluhljómsveitinni I Indianapolis
fyrir nokkrum árum, á tónlistarhátlð
við Butlerháskólann þar og bjargaði
hátiðinni úr alvarlegum fjárhags-
kröggum.
„Æfingin með Borge var ævintýri
likust," segir Cooper, „þvl að hann
reyndist ekki einasta hafa tónsprot-
ann fullkomlega á slnu valdi, heldur
hafði hann lært utanað hvert einasta
tónverk á efnisskránni. Hljóm-
sveitarmenn voru agndofa. Einn
þeirra sagði: „Ég hélt, að hann ætl-
aði einungis að halda uppi gamni,"
og annar: „hann er eins og fæddur á
hljómsveitarstjórapallinum". Og
efnisskráin var hreint ekki auðveld.
„Festive Polonaise" eftir Johann
Svendsen. planókonsert nr. 2 eftir
Selim Palmgren, Forleikurinn að Álf-
hól Kuhlaus, „Einvera á fjalli" eftir
Ole Bull og „Finlandia" eftir
Sibelius, I sérstakri útsetningu fyrir
kór og hljómsveit. Eftir þvl sem leið
á æfinguna varð augljóst, að hljóm-
sveitarmennirnir báru ekki einungis
virðingu fyrir Borge, heldur voru
I Kaupmannahöfn og hélt slðan
þegar á unglingsaldri til náms I
Vinarborg og Berlln. Þar voru meðal
kennara hans Frederick Lammond
og Egon Petri.
Borge var I vaxandi áliti sem
píanóleikari og organleikari — hann
aflaði sér gjarnan fjár með þvl að
leika á orgel við jarðarfarir — þegar
upp komst um hina óvenjulegu
klmnigáfu hans, fyrir hreina tilviljun.
Verzlunarráðið I Kaupmannahöfn
gekkst árlega fyrir revluflutningi,
sem var feikna vinsæll viðburður I
skemmtanallfinu. Þar komu iðulega
fram ungir listamenn, leikarar og
tónlistarmenn — og ungir rithöfund-
ar fengu tækifæri til að spreyta sig.
Meðal gesta var venjulega helzta
samkvæmisfólk borgarinnar með
dönsku hátignirnar i broddi fylk-
ingar.
Einhverju sinni var Borge beðinn
að hlaupa I skarðið fyrir mann, sem
átti að koma fram á þessari sam-
kundu og þar með voru örlög hans
ráðin. Eftir þetta héldust pianóleikar-
inn og grínistinn hönd I hönd. Orð-
stlr Borges flaug út fyrir dönsku
landamærin og hann fór I „hljóm-
leika" og skemmtiferðir um Norður-
löndin. Þegar nasistar tóku Dan-
mörku vorið 1940, var hann staddur
I Svlþjóð, og þar sem hann hafði
iðulega beint að þeim eiturörvum
slnum var Ijóst, að hann mundi ekki
mæta sérstakri blíðu, er heim kæmi.
Þvi flúði hann til Bandarikjanna með
sfðasta skipifrá Finnlandi.
I Bandarlkjunum segist Borge hafa
lifað fyrsta árið á 25 centum á dag,
og mest hafzt við I kvikmyndahús-
um. þar sem hann lærði ensku. Af
einskærri heppni heyrði einhver til
hans I einkasamkvæmi sem gat gefið
honum tækifæri til að koma fram I
útvarpi — og þar tókst honum svo
vel upp, að honum var boðið að
koma fram I útvarpsþætti Bings
Crosbys. Þar var hann fastagestur I
rúmt ár og eftir það var honum leiðin
greið um Bandaríkin, Kanada og
slðan um allan heim. Hvarvetna
hefur hann kitlað svo hláturtaugar
áheyrenda sinna, að þeir hafa vart
mátt mæla, og sjónvarpsþættir hans
hafa verið með afbrigðum vinsælir.
Eftir þvl sem árin liðu fór Borge
meira og m^irp að fást við hljóm-
sveitarstjórn og hefur hann nú á
siðustu árum stjórnað ýmsum helztu
hljómsveitum Evrópu og Bandaríkj-
Franihald á bls. 33
Vitretex
Hempalin Hempalin Hempels
Hempels
Anolin og Farvolin,
á glugga, huróir og
grindverk úti.
Hempalin
Grunnmálning,
undirmálning á tré-
verk úti og inni.
Mjúk plastmálning,
á veggi innanhúss.
Vitretex
Hörð plastmálning,
á veggi utanhúss og
inni þar sem mest
mæóir á, t. d. ganga,
geymslur, þvottahús
o. n.
Lakkmálning,
á glugga innanhúss.
Hempalin
Eldvarnarmáining,
á kyndiklefa o. fl.
Þilfarsmálning,
á gólf, stein og tré.
Vitretex
Almött plastmálning,
á loft ef þau eru
Þakmálning, á þök
og meó zinkkrómat
undirmálningu
á bárujárnshús.
Jpegrió og verndiö húsiö
meö réttri málningu
þaö eykur gildi góörar eignar
Framleióandi á íslandi
Slippfélagið íReykjavík hf
Málningarverksmiójan Dugguvogi— Símar 33433 og 33414