Morgunblaðið - 07.11.1974, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1974
BÆJAR- og héraðsbókasafn-
ið í Keflavfk er um þessar
mundir að flytjast í nýtt
húsnæði að Mánagötu 7, en
hús þetta hefur Keflavíkur-
bær keypt fyrir bókasafnið.
Húsið er þriggja hæða og er
hver hæð 120 fermetrar að
stærð.
Teknir hafa verið í notkun
útlánssalir á miðhæð húss-
ins. 1 kjallara er gert ráð
fyrir geymslum og lestrar-
sal. A efstu hæð eru vinnu-
herbergi starfsfólks safns-
ins og þar er áformað að
plötudeild verði til húsa.
Þar verður einnig lesher-
bergi fyrir fræðimenn. Með-
fylgjandi mynd er frá opnun
útlánsdeildar safnsins. —
Ljósm.: H. Stfgsson.
Ráðstefna um matvælaeft-
irlit —17 erindi verða flutt
Dagana 11. og 12. nóv. n.k.
verður haldin ráðstefna um mat-
vælaeftirlit á íslandi. Efnafræði-
deild Verkfræðingafélags Islands
og Efnafræðistofa Raunvfsinda-
stofnunar háskólans hafa undir-
búið hana. Hefst ráðstefnan f
Kristalssal Hótel Loftleiða mánu-
daginn 11. nóv. og stendur til há-
degis daginn eftir. Kl. 9 setur dr.
Sigmundur Guðbjartsson próf-
essor ráðstefnuna.
Fyrri daginn verða þessi erindi:
Fræðsla á sviði matvæla og nær-
ingarfræði i fsl. skólakerfinu, sem
dr. Jónas Bjarnason, dósent flyt-
ur; Mataræði íslendinga og al-
menningsfræðsla á sviði matvæla-
og næringarfræði, er Vigdís Jóns-
dóttir, skólastjóri, flytur; Gerla-
fræðilegt matvælaeftirlit á ís-
landi eftir gerlafræðingana dr.
Sigurð Pétursson og Guðlaug
Hannesson; Matvælarannsóknir
efnafræðistofu RH, er Jón Óttar
Ragnarsson, lektor, flytur; Efna-
rannsóknir á fiski og fiskafurð-
um, er dr. Björn Dagbjartsson,
forstjóri RF, flytur; Rannsóknir
og eftirlit með matvælum og
fóðurvörum, er dr. Björn Sigur-
björnsson, forstjóri RL flytur;
Staða, vandamál og þróun ís-
lenzks matvælaiðnaðar, er Davíð
Sch. Thorsteinsson flytur; Gæða-
mat og vörumerkingar f matvæla-
iðnaði, er Guðrún Hallgrímsdóttir
matvælaverkfræðingur flytur;
Isl. mjólkuriðnaður, er Sævar
Magnússon, mjólkuriðnaðar-
kandidat flytur; Eftirlit með
sláturafurðum, er Brynjólfur
Sandholt, héraðsdýralæknir,
flytur; Hlutverk og árangur af
starfi Neytendasamtakanna á
sviði matvælaeftirlits, er Eiríka
A. Friðriksdóttir, hagfræðingur,
flytur; Lög og reglugerðir um
matvælaeftirlit, er Ingimar
Sigurðsson, lögfræðingur, flytur.
Á þriðjudag flytja erindi Ólaf
Chr. Sundvold frá Stavanger og
talar um rannsóknir og eftirlit
með niðursuðuvörum, Pétur
Sigurjónsson forstjóri RI um
efnarannsóknir á matvælum hjá
RI, Almar Grímsson, lyfjafræð-
ingur um lyfjaeftirlit á Islandi,
Þórhallur Halldórsson, forstjóri
Heilbrigðiseftirlits Reykjavikur,
talar um eftirlit með matvælum
og hreinlæti í matvælaverk-
smiðjum í Reykjavík, Baldur
Johnsen, forstm. Heilbrigðiseftir-
lits rfkisins, um skipulagningu
matvælaeftirlits á Islandi. Kl.
11.55 er áformað að Pálmi
Stefánsson, form. EVFl, slíti ráð-
stefnunni.
Bifreiðaeign almennust í
Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
Max von der Grún.
Þýzkur rithöf-
undur les úr
verkum sínum
Kunnur þýzkur rithöfundur,
Max von der Grún, er kominn
hingað til lands og les úr verkum
sfnum að Hótel Esju á fimmtu-
dagskvöldið 7. nóv.
Max von der Grún er fæddur
1926 í Bayreuth. Hann vann sem
námuverkamaður frá 1951—1964,
en sneri sér þá að ritstörfum. 1962
kom út fyrsta skáldsaga hans,
„Mánner in zweifacher Nacht“.
Síðast var gefin út bók hans
„Stellenweise Glatteis“, sem hann
hefur orðið frægastur fyrir. Vest-
ur-þýzka sjónvarpið er að gera
kvikmynd í tveimur hlutum eftir
bókinni og verður hún sýnd innan
skamms. Rithöfundurinn mun
m.a. lesa úr þessari skáldsögu, en
hún fjallar, eins og allar bækur
hans, um lif og starf verkamanna
í Vestur-Þýzkalandi nútímans og
stöðu þeirra í þjóðfél^ginu.
UM SlÐASTLIÐIN áramót voru
skráð alls 63.532 vélknúin öku-
tæki á landinu. Kemur þetta m.a.
fram f nýútkominni Bifreiða-
skýrslu Hagstofu Islands. Fólks-
bifreiðar allt að 8 farþegum voru
um áramótin alls 56.274, yfir 8
farþega voru þær 845. Vörubif-
reiðar undir 2 tonnum voru 1.850,
en yfir 2 tonnum 4.220. Þá voru
skráð 343 bifhjól á landinu.
Flest voru ökutækin i Reykjá-
vík eða alls 26.058, þá kom Hafn-
arfjörður, Gullbringu- og Kjósar-
sýsla, en þar voru skráð 7.171
ökutæki, á Akureyri og í Eyja-
fjarðarsýslu voru skráð 4.372 öku-
tæki. Ef miðað er við hverja 1000
íbúa, var 281 fólksbifreið á hverja
1000 fbúa í Reykjavík, í Kópavogi
voru bifreiðarnar 276 á hverja
1000 íbúa og í Hafnarfirði 266.
Lægst er hinsvegar hlutfallið á
Ölafsfirði og Siglufirði, þar eru
ekki nema 187 bifreiðar á hverja
1000 íbúa. Af sýslum landSins er
bifreiðaeignin mest i Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu, en þar eru
hvorki meira né minna en 327
bifreiðar á hverja 1000 íbúa og i
Dalasýslu og Árnessýslu er 301
bifreið á hverja 1000 íbúa. Þannig
virðist bifreiðaeign vera lang al-
mennust i Mýra- og Borgarfjarð-
arsýslu.
Flestar bifreiðarnar voru af
Volkswagen-gerð um s.l. áramót
eða 7.903, sem er 13,8% af heildar
fólksbílaeign landsmanna. Þá
kom Ford 7.427 eða 13,0%,
Moskwitch 3.350 eða 5,9%, Land
Jörfagleði
JÖklamanna
Jöklarannsóknafélag Islands
efnir að venju til árlegrar jörfa-
gleði á Hótel Sögu laugardaginn
16. nóv. Veizlustjóri verður Einar
Sæmundsson og borðræðu flytur
Þórarinn Guðnason.
Rover 3.255 eða 5,7%, Fiat 3.087
eða 5,4%, Skoda 2.910 eða 5,1%
ogVolvo 2.752 eða 4,8%.
Vörubifreiðar voru flestar af
gerðinni Ford eða 1.094, sem er
18,0% af heildinni, af gerðinni
Mercedes Benz eru 954 eða
15,7%, af Bedford voru 515 eða
8,15% og Volvo 515 eða 8,5%.
Lengri næturgist-
ing og setustofa
fyrir drykkjumenn
ÞANN 23. október voru lið-
in 5 ár frá því, að Gistiskýl-
ið að Þingholtsstræti 25
var opnað, en þar fá húsa-
skjól og aðhlynningu
drykkjumenn í borginni,
sem hvergi eiga höfði sínu
að halla. Hefur gistiskýlið
verið opnað kl. 22 á kvöldin
og veitt næturgisting, en
menn orðið að fara út á
morgnana.
Nú, á 5 ára afmælinu, var opn-
unartíma breytt og gistitími
lengdur og er nú opnað kl. 19.30 á
kvöldin. Auk þess hefur verið tek-
in í notkun á efri hæð hússins,
sem er gamla Farsóttarhúsið i
Þingholtsstræti, ný setustofa með
tómstunda- og sjónvarpsaðstöðu.
Skálholts-
kirkju
gefnar 600
þúsund
krónur
DANSKUR vinur Skálholts-
kirkju gaf kirkjunni um
helgina 600 þús. fsl. kr., en
þá var hann á ferð hér ásamt
konu sinni.
Maðurinn, sem heitir Kaj
Kaae Sörensen, fór ásamt
konu sinni, biskupi tslands
og nokkrum öðrum vinum
austur í Skálholt á sunnu-
dag og við athöfn f kirkj-
unni afhenti hann biskupn-
um peningagjöf til Skál-
holtskirkju að upphæð 600
þús. kr. fsl.
Gjöfinni fylgir sú ósk, að
fénu verði varið til þess að
styrkja útgáfu bókar um
endurreisn þá, sem orðið
hefur f Skálholti.
Nýkjörin stjórn Ánglfu
Nýjungar í starfi Anglíu
Félagið Anglia hélt aðalfund
sinn 20. okt. sl. í húsakynnum
enskunámsbrautar Háskóla ís-
lands að Aragötu 14.
I vetur tekur félagið til starfa
með ýmsum nýjungum, m.a.
verða mánaðarleg kaffikvöld á
fyrsta fimmtudegi hvers mánaðar
með kvikmyndasýningum, fyrir-
lestrum og fleira. Bókasafn
félagsins, sem hefur verið geymt
út í bæ í áraraðir, er nú komið í
herbergi félagsins að Aragötu 14.
Verður það opið vikulega fyrir
félagsmenn og væntanlega munu
útlán hef jast upp úr áramótum.
Enskunámskeið fara fram á
vegum félagsins í fjórum hópum,
en kennarar verða Peter Cahill
frá Oxford háskóla og Frederick
Heinemann frá New York State,
sem báðir kenna við enskunáms-
braut háskólans hér.
Stjórn félagsins skipa: Alan
Boucher formaður, Ellen Sig-
hvatsson ritari, Garðar Fenger
gjaldkeri, Erna Albertsdóttir
skjalavörður, Colin Porter for-
maður skemmtinefndar og Paul
O’Keeffe, Bergur Tómasson og
Aslaug Þórarinsdóttir meðstjórn-
endur.
Rekstur þessa gistiskýlis hefur
gengið mjög vel og komið að mikl-
um notum þessi 5 ár, síðan það
var tekið í notkun. Þarna er sem-
sagt veitt aðhlynning og nætur-
gisting, en menn fá þar ekki inni
ef þeir koma mikið drukknir.
Byggt í Lýtings-
staðahreppi
Mælifelli, fyrsta vetrardag.
SAMKVÆMT upplýsingum
Kristjáns Guðmundssonar bygg-
ingafulltrúa Lýtingsstaðahrepps
er þessara framkvæmda helzt að
geta í ár:
Hið glæsilega félagsheimili
sveitarinnar er nær fullbúið og
verður vígt 1. des., ef áætlanir
standast.
Unnið er að endurbyggingu
Reykjakirkju, eins og nýlega hef-
ur verið sagt frá i Mbl. Viðbygg-
ing er gerð við Steinsstaðaskóla,
forstofa og kennarastofa.
360 kinda fjárhús er risið á
Kristhóli og fjósbyggingar á Álf-
geirsvöllum og Daufá. Stálgrinda-
hús hafa verið reist á Varmalæk
og í Laugardal, miklar byggingar,
og stór bogaskemma á Fitjum. Þá
var steypt 1100 rúmmetra hlaða á
Brúnastöðum og verkstæðishús í
Merkigarði.
I Laugahvammi er unnið að
mikilli stækkun íbúðarhúss hjá
Stefáni Sigurðssyni, en Friðrik
Ingólfsson hefur gert skemmti-
lega sundlaug í hvamminum og
búningshús við. Gnægð er þar af
heitu vatni, eins og raunar víða i
Lýtingsstaðahreppi. —
— Séra Agúst.
Fundu marihuana
TOLLVERÐIR I Reykjavík fundu
12—13 grömm af marihuana í fór-
um eins skipverja á Brúarfossi,
þegar skipið kom til hafnar um
helgina. Kannaðist maðurinn við
að eiga þetta, og ætlaði hann að
nota það í eigin þágu.
Vitni vantar
SL. fimmtudag, 31. október var
ekið á bifreiðina R-35006, þar sem
hún stóð á bílastæði við Mennta-
skólann í Hamrahlfð. Gerðist
þetta á tímabilinu 15—16.20. Bif-
reiðin er ljósbrún Saab 96, og var
vinstra frambretti rispað og dæld-
að. Þeir sem geta gefið upplýsing-
ar um þessa ákeyrslu, eru beðnir
að hafa samband við rannsóknar-
lögregluna.
Kynningarstarf
kvenna
í Breiðholti III
A síðastliðnu ári var stofnað
félag kvenna í Breiðholti III, sem
hlaut nafnið Kvenfélag Breið-
holts III. Ætlunin er þó ekki að
það verði endanlegt nafn félags-
ins, þar sem i ráði er að breyta því
á næsta aðalfundi.
Aðalmarkmið félagsins er að
stuðla að því að konur f hverfinu
kynnist og geti unnið að ýmsu
sameiginlega. Mun það m.a. efna
til fræðslu- og skemmtifunda og
efna til fjáröflunar til styrktar
ýmsum málefnum.
Næsti fundur félagsins verður í
kvöld í Fellahelli (kjallara Fella-
skóla). Á dagskrá verður Ind-
landskvöld með myndasýningu.
Um miðjan nóvember verður svo
kökumarkaður og sælgætissala á
sama stað og jólafundur verður
haldinn 5. des.