Morgunblaðið - 07.11.1974, Page 20
20
MORGUNBLAÖIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1974
Gfsli Pálmason kjallaravörður og Sfmon Sigurjðnsson barþjónn, sem
báðir hafa starfað hjá Naustinu öll 20 árin, ásamt Geir Zöega veitinga-
manni og Ib Wessman matreiðslumaður Naustsins.
(Ljðsm. Ól. K. M.).
Naustið 20 ára
Framhald af bls. 35
ÖNNUR úrsiit f Evrópukeppn-
inni í kvöld voru þessi:
UEFA-keppnin: Partizan
Belgrad-Portadown: 1—1.
Banik Ostrava (Tékkóslóva
kfu)—F.C. Nantes (Frakk-
landi): 2—0. Dynamo Moskva
Dynamo Dresden: 1—0. Real
Zaragoza (Spánn)— Grass
hoppen Ziirich: 5—0. Dukla
Prag — Djurgardens
(Svfþjóð): 3—1. Juventus
(ttalfa) — Hibernian (Skot-
land): 4 — 0. Molenbeek
(Belgfa) — Twente Enschede
(Holland): 0—1.
Keppni meistaraliða: Leeds
United — Ujpezt Doza
(Ungverjaland): 3 — 0.
Atvidaberg (Svfþjóð) —
Helsinki: 1 — 0. Ararat
Yerevan-Cork Ceitic: 5 — 0.
Keppni bikarmeistara: Psv
Eindhoven (Holland) —
Gwardia Varsjá: 3 — 0.
Vienna-Real Madrid: 2 — 2.
— Orkuvandamál
Framhald af bls. 1
fyrsta konan í rúmlega tuttugu
ára sögu Norðurlandaráðs, sem
tekur sæti í henni, Jóhannes Ant-
onsson, Svíþjóð, sem er formaður,
Anker Jörgensen, Danmörku,
Odvar Nordli, Noregi og V. J.
Sukselainen, Finnland.
Þetta er í annað sinn sem auka-
þing Norðurlandaráðs er haldið,
og er óvfst að efnt verði til auka-
þinga aftur. Tilgangurinn með
aukaþingunum er sá að flýta af-
greiðslu mála, en Norðurlandaráð
hefur talsvert verið gagnrýnt fyr-
ir seinagang í afgreiðslu mála.
Aukaþingin eru vinnuþing og eru
því veizluhöld í lágmarki. I flest-
um Norðurlandanna hefur átt sér
stað verulegur niðurskurður á
fjárlögum og reynt að draga sem
mest úr öllum útgjöldum og þess
vegna er talið ólfklegt að ráðizt
verði í að h, ida fleiri aukaþing,
næstu árin að minnsta kosti.
Næsta þing Norðurlandaráðs,
hið tuttugasta og þriðja, verður
haldið í Reykjavík í febrúar n.k.
— Argentína
Framhald af bls. 1
orðið til þessara neyðarráðstafana
vegna ofbeldisöldunnar sem
gengið hefði yfir landið og hefði
jafnvel náðtil skólabarna.
Isabella Peron undirritaði um-
sátursyfirlýsinguna. Aðeins eru
129 dagar síðan hún tók við for-
setaembættinu eftir lát Juan Per-
ons. Eiginmanns sín. Sfðan hafa
136 menn verið myrtir í sprengju-
tilræðum, mannránum og morðtil-
ræðum af ýmsu tagi frá bæði
hægri og vinstri öfgaflokkum.
Mikill ótti hefur gripið um sig í
Argentínu vegna þessara ofbeld-
isverka.
— Æfingar
Framhald af bls. 36
erfióara en þeir höfðu reynt á
æfingunum sjálfum. Langar og
strangar æfingar höfðu greinilega
ekki verið unnar fyrir gýg.
Hinir slösuðu um borð í Stolt
Vista voru allt Filipseyingar. Öll
áhöfnin var frá Filipseyjum utan
tveir yfirmenn, stýrimaður og
fyrsti vélstjóri. Þeir voru báðir
norskir. Þegar sjúklingarnir
höfðu farið frá borði Stolt Vista,
fóru Bandaríkjamennirnir um
borð í varðskipið Þór. Sögðust
þeir hafa hlotið þar mjög ánægju-
legar viðtökur, en þó hefðu þeir
verið dálítið sjóveikir um borð í
varðskipinu fyrst framan af eða
Uf |Hor0íunbIöí>ií>
éNmnRGFninflR
I mflRKBÐVBflR
unz komið var, upp undir tsland.
Þá hefðu þeir fengið góðan mat
um borð í Þór og tekið að hress-
ast. Þeir félagar sögðu að skip-
verjarnir á Stolt Vista hefðu beð-
ið þá fyrir kveðjur og þakklæti til
allra, sem unnið hefðu að því að
koma þeim til hjálpar.
Þeir félagar David Milsten og
Steven Tyre fóru utan til
Englands um miðjan dag i gær.
Milsten er kvæntur f Bretlandi og
þar eru höfuðstöðvar björgunar-
sveitarinnar, sem björgunarsveit-
in á Keflavíkurflugvelli telst til
og að jafnaði er skipt um menn
hér vikulega. Var dvalartfmi
þeirra útrunninn.
Þá hefur Mbl. frétt að spreng-
ingin um borð í Stolt Vista hafi
verið svo öflug að 6 íbúðarher-
bergi í skipinu hafi hrunið gjör-
samlega eins og spilaborg og hafi
eftir verió sem stór geymur fullur
af drasli.
— Oánægðir
Framhald af bis. 2
höfðu þó tæki til að taka upp lag
og ljóð og hljóðfæraleik i þessu
atriði, þótt þeir segðu fyrir fram-
an alþjóð, að þeir hefðu ekki tæki
til upptöku á samræðum við fólk
á heimilum. Ég vil einnig taka
það fram að hvorki mér né nem-
endum mfnum var ljóst, að þetta
væri áróðursmynd. Og þar sem ég
hefi einnig samið lög, sem bæði
hafa verið flutt í útvarp og á
skemmtunum hérna, vil ég fría
mig af þeim rógi, þegar „flagar-
inn“ hokir við flygil félagsheimil-
isins, og sagt er: „Skyldi einhver
vera að semja tónverk?“ — að ég
sé að" stela umræddu verki
Daniels Helden. Menn gætu efa-
laust getið í eyðurnar, þar sem
þessi efni eru ekki kynnt i þætti
þeirra.
Menningarlegt gildi myndar-
innar tel ég vafasamt. Þar sem
nemendur mínir í skólanum eru
duglegir og höfðu vænzt þess að
fá að sjá öðruvfsu uppfærslu at-
riðis sfns og býst ég við að þeir
hafi orðið fyrir vonbrigðum með
útfærsluna. Eins vil ég nefna um-
ræddan teiknitfma, sem var kvik-
myndaður. Hann var allur kvik-
myndaður — meira að segja við-
töl við nemendurna, en öllu þessu
var sleppt, aðeins sýnd lok tfm-
ans, þegar fáeinar mínútur voru
eftir og ég settist niður.
Það er munur að vera æðri en
dýrin og geta meira en talað, eins
og þeir skilgreindu orðið menn-
ing f upphafi umræðnanna. Hvað
kostar gerð slíkrar myndar, og
hvað kemur næst frá þeim?“
— Staða Fords
Framhald af bls. 1
halda enn, þ.e. forsetaembættis-
ins, heldur muni aukazt innbyrðis
klofningur í flokknum og and-
staða myndast gegn því að Ford
verði í framboði í forsetakosning-
unum 1976.
Viðbrögð leiðtoga demókrata
voru ekki á einn veg, þótt allir
fögnuðu þeir sigrinum. Miké
Mansfield leiðtogi fiokksins í öld-
ungadeildinni lýsti sig reiðubú-
inn til samvinnu og málamiðlunai
milli framkvæmdavalds og lög-
gjafarvalds. Carl Albert leiðtogi
flokksins í fulltrúadeildinni sagði
hins vegar aó úrslitin gæfu demó-
krötum umboð til að snúast gegn
áætlunum stjórnarinnar i t.d. al-
mannatryggingum, skattamálum
og málefnum rfkisstarfsmanna,
og knýja fram sínar eigin hug-
myndir. I svipaðan streng tóku
Robert Byrd aðstoðarleiðtogi
flokksins og Robert Strauss for-
maður hans, og lögðu mesta
áherzlu á umbætur í skatta-
málum.
Repúblikanar tóku ósigrinum
flestir með stiliingu. Formaður
landsstjórnar flokksins, Mary
Louise Smith, sagði: „Ég hafði
gert mér vonir um að áhrif Water-
gate yrðu ekki svona alvarleg," en
bætti við: „Kosningarnar eru
sennilega síðasti kafli þessa
erfiða tímabils og mun marka
nýtt endurreisnarskeið Repú-
blikanaflokksins." Sama sagði
Ford sjálfur í yfirlýsingu, og
kvaðst mundu beita sér fyrir ein-
ingu innan flokksins og hvetja
menn til að safna kröftum til
nýtta átaka.
I GÆR voru liðin 20 ár frá þvf að
veitingahúsið Naust tók til starfa.
Það var stofnað af nokkrum ung-
um mönnum sem þá voru flestir
enn við skólanám, en fyrsti for-
stöðumaður þess var einn úr
hópnum, Halldór Gröndal, sem
nú er prestur Grensássóknar.
Gegndi hann starfinu um tfu ára
skeið, en þá tók annar úr hópi
stofnenda, Geir Zöega yngri, við
og hefur hann rekið Naustið sfð-
an.
Undir forsjá þessara tveggja
veitingamanna hefur Naustið á
liðnum árum orðið einn vinsæl-
asti veitingastaður borgarinnar,
jafnt hjá þeim sem koma þangað í
þeim erindum að njóta góðs máls-
verðar og hinum sem vilja hressa
upp á sálartetrið í góðum félags-
skap á barnum undir súðinni.
Geir Zoéga tjáði blaðamönnum á
dögunum, að Naustinu hefði ekki
verið spáð langiífi þegar það hóf
rekstur sinn, þar sem kunnugir
hefðu verið heldur vantrúaðir á
rekstrarformið. Þær hrakspár
hefði þó Naustið sjálft hrakið með
því að dafna og eflast þessi 20 ár.
Geir sagði þó að Naustið væri í
smæsta lagi sem rekstrareinig og
þess vegna afar viðkvæmt fyrir
öllum sveiflum.
Hvers konar óárán í þjóðfélag-
inu kemur því fyrr fram í rekstri
Naustsins en ýmissa annarra
stærri veitingastaða, en um leið
hafa einmitt þessir erfiðleikar
orðið kveikjan að ýmsum nýmæl-
um í rekstrinum. Þannig stóð t.d.
á þjóðlandavikunum, sem Naustið
efndi til fyrir nokkrum árum og
margir munu minnast. Urðu þær
geysilega vinsælar og má nefna að
bandarisku vikuna varð að fram-
lengja í nokkrar vikur. Annað
frægt nýmæli sem Naustið brydd-
aði upp á er þorramaturinn, sem
löngu er orðinn fastur liður í borg
arlífinu og má fullvíst telja að
þetta framtak Naustsins eigi ekki
svo lftinn þátt í að endurvekja
vinsældir þessa fprna og rammís-
lenzka matar I nútímanum.
I tilefni afmælisins mun Naust-
ið á næstunni taka upp enn eitt
nýmælið í rekstri sfnum, en það
er svokallaður málsverður kaup-
sýslumanna. Að sögn forráða-
manna veitingahússins hefur það
færzt æ meir í vöxt á liðnum
árum, að kaupsýslumenn borði í
Naustinu í hádeginu með gestum
sínum og nú hyggst Naustið koma
til móts við þessa menn með því
að bjóða upp á sjö mismunandi og
mjög fjölbreytta matseðla í viku
hverri. Þá stendur einnig til að
stokka upp sérréttaseðil Nausts-
ins, auka mjög á fjölbreytni hans
og gera sjálfan matseðilinn að-
gengilegri fyrir gestina. Yfirmat-
reiðslumaður Nautsins er Ib
Wessman.
Hjá Naustinu starfa nú milli
40—50 manns. Naustinu hefur
haldizt vel á starfsfólki sínu og
margt af starfsfólki Naustsins
hefur starfað þar árum saman.
Tveir starfsmenn hafa þó starfað
hjá Naustinu öll 20 árin, þeir
Símon Sigurjónsson barþjónn og
Gísli Pálmason kjallaravörður, og
héldu þeir þess vegna upp á 20
ára starfsafmæli sitt um leið og
veitingahúsið.
Minnisvarðinn um
Inga T. Lárusson
I fréttinni f blaðinu um fyrir-
hugaðan minnisvarða um Inga T.
Lárusson var sagt að Aust-
firðingafélagið í Reykjavfk hefði
kosið nefnd til þess að sjá um
framkvæmd málsins. Það er ekki
rétt. Átthagafélag Héraðsmanna
boðaði fulltrúa allra austfirzku
átthagafélaganna á fund, þar sem
nefndin var kosin. Formaður
hennar er Þórarinn Þórarinsson,
fyrrv. skólastjóri.
Eins og fram kemur í fréttinni
er Austfirðingafélagið 70 ára um
þessar mundir. Stjórn þess skipa:
Guðrún Jörgensen formaður,
Sigrún Haraldsdóttir, Brynjólfur
Ingólfsson, Eiríkur Lárusson og
Gunnar Valdimarsson.
— Stýrimanna-
skólinn
Framhald af bls. 2
stólana hafði Jónas þau orð, að
þeir væru sömu tegundar og
tíðkuðust í öðrum skólum og
miklu betri en þeir sem hann
sjálfur hefði t.d. vanizt á sfnum
skólaárum. Að lokum sagði Jónas,
að hann væri ekki samþykkur
þessum aðgerðum nemendanna
að mæta ekki í tíma í dag, enda
samræmdist það ekki skólaregl-
um.
Loks ræddi Mbl. við Vilhjálm
Hjálmarsson menntamálaráð-
herra. Hann sagði, að ekki hefði
verið rætt við sig um þessi mál og
væri hann svolftið óánægður, að
ekki skyldi rætt við hann áður en
til þessara aðgerða var gripið. Fé
hefði verið veitt á fjárlögum til
endurbóta á húsnæði skólans, og
skildist sér að skortur á iðnaðar-
mönnum hefði frekar komið í veg
fyrir endurbætur í sumar en
skortur á fé. Hann minnti á. að
fjárveitinganefnd hefði i fyrra
staðið að því að skólinn fengi utan
fjárlaga nýtt 10 milljón króna
tæki til kennslu, og hefði hann þá
átt sæti í nefndinni. Ráðherra
sagði að lokum, að unnið yrði að
lausn þessa máls í ráðuneyti sínu
og kvaðst vona að gott samkomu-
lag ríkti framvegis milli hans og
sj ómannsef nanna.
EM í bridge:
SVÍAR ERU
ENNEFSTIR
í SJÖTTU umferð sat íslenzka
sveitin yfir og gefur það 12 stig.
Þá áttust viö tvær efstu sveit-
irnar, Italir og Svíar, og eftir
miklar sviptingar allan leikinn
sigruðu Italir 12:8. Norðmenn
sigruðu frændur sfna Dani með
miklum mun 20:0 og komust upp f
þriðja sætið. Árangur Breta og
Frakka er mun lakari en búizt
hafði verið við fyrir keppnina og
eru sveitir þeirra í miðjum hópn-
um að loknum 6 umferðum.
Efstu sveitir eftir 6 umferðir:
Svíþjóð 95, Italfa 94, Noregur
88, Portúgal 84, Sviss 81, Tyrk-
land 69. Islendingar eru í 17. sæti
með 34 stig.
Þegar blaðið fór í prentun í
gærkvöldi hafði ekkert fréttst um
árangur þeirra í gær.
— Bruni
Framhald af bls. 2
Þar þyrfti að smíða sérstök loft-
net. Gamla stöðin væri ekki f sam-
bandi, en hins vegar væri tryggt
samband á milli lóranstöðvarinn-
ar og Herjólfsstaða. Nýja kerfið
yrði mjög fullkomið þegar það
verður allt komið í gagnið, en það
gamla var oft til lítils gagns, eink-
um á nóttinni, þvf það varð fyrir
miklum truflunum frá erlendum
stöðvum.
— Stórsigur
Framhald af bls. 1
leiðtogar demókrata mjög
ánægðir með þessi úrslit.
Flokkur þeirra getur nú fræði-
lega knúið fram öll lagafrum-
vörp, sem Ford forseti kann að
beita neitunarvaldi gegn, þar
sem hann hefur 2/3 atkvæða f
fulltrúadeildinni og vantar
aðeins nokkur sæti upp á þann
meirihluta í öldungadeildinni.
Ólíklegt er þó að demókratar
muni almennt standa svo vel
saman. En þar sem áhrif demó-
krata í þinginu hafa vaxið svo
mjög hefur ábyrgð þeirra sömu-
leiðis vaxið og ef ekki tekst að
binda enda á verðbólguástand-
ið sem hér veldur almenningi
mestum áhyggjum, má búast
við að demókrötum verði kennt
um ekki siður en repúblíkönum
og kann það að hafa sín áhrif
1976.
Það þing sem nú hefur verið
kjörið er talið munu verða tals-
vert frjálslyndara en það þing
sem nú situr. Þingmenn eru
almennt yngri að árum, 92
þingmenn eru yngri en fer-
tugir, en áður voru aðeins 50
þeirra svo ungir. Stærri hluti
þessa þings er talinn munu
vera fylgjandi minni útgjöldum
til hermála en meiri til- alls
kyns félagslegra verkefna. Og
búizt er við að fleiri þingmenn
en áður verði fylgjandi beinu
verðlagseftirliti.
Sú reglan að þingmenn sem
einu sinni eru komnir á þingið í
Washington séu ævinlega
endurkjörnir var afsönnuð í
þessum kosningum. Demókröt-
um tókst að fella nokkra
öldungadeildarþingmenn
repúblíkana sem sóttust eftir
endurkjöri og marga fulltrúa-
deildarþingmenn. Athyglisvert
er, að þeir repúblíkanar sem
harðast vörðu Nixon fyrir
dómsmálanefnd fulltrúa-
deildarinnar sl. sumar fóru illa
út úr þessum kosningum og
náðu margir ekki kjöri.
Kosningaþátttaka var dræm
eins og jafnan þegar ekkLeru
forsetakosningar, en þó óvenju-
leg í þetta sinn. Aðeins um 40%
kjósenda munu hafa neytt
atkvæðisréttar sins, en í
kosningunum 1970 kusu um
47% og 1972 um 55%. Þessar
tölur gefa til kynna, að enda
þótt demókratar hafi hlotið
yfirgnæfandi stuðning þeirra
sem kusu, stendur meirihluta
Bandaríkjamanna nákvæmlega
á Sama um hverjir stjórna land-
inu.