Morgunblaðið - 01.03.1975, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MARZ 1975
Jón Ármann Héðins-
son sat hjá við af
greiðslu söluskatts
einkasýningar á verkum slnum,
bæði í Reykjavik, þar sem hún
sýndi síðast fyrir um fjórum
árum i Casa Nova — og úti á
landi. Nýlega hélt hún einnig
sýningu í Oslo, en hún hefur
dvalið langdvölum í Noregi og
var þar síðast um tveggja mán-
aða skeið sl. vor, þar sem
norska utanríkisráðuneytið
bauð henni afnot af listamanna-
íbúð ríkisins i Oslo, Statens
Kunstnerlejlighet. Margar
myndanna, sem hún sýnir nú í
Hamragörðum eru frá þeim
tíma. Þá tók Astríður þátt í
Málverkasýning Astríðar
Andersen í Hamragörðum
I DAG, laugardag kl. 3 siðdegis,
opnar Astrfður Andersen mál-
verkasýningu í Hamragörðum
við Hávallagötu. Sýnir hún þar
um fimmtfu olíumálverk.
Astriður hefur áður haldið
samsýningu i New York I des-
ember sl., í Gallerie Inter-
nationale á Madison Avenue.
Olíustyrkur kr. 8.200.oo:
50% hærri til elli-
og örorkulífeyrisþega
KRUMVARP til laga um ráðstaf-
anir vegna snjóflóða í Neskaup-
stað og fjáröflun til Viðlagasjóðs
var afgreitt sem lög frá Alþingi í
Fámennur fundur
1 Morgunblaðinu i gær er birt
mynd af kvöldfundi í neðri
deild Alþingis með myndskýr-
ingu þess efnis, að fundarefnið
hafi verið fundarslitin ein,
enda aðeins fjórir þingmenn
viðstaddir, auk deildarforseta.
Af þessu tilefni þykir rétt að
skýra frá því, sem raunar
mátti lesa á milii lína i mynd-
skýringu, að þessi fundur var
boðaður i þeirri trú, að viða-
mikil þingmál, er vóru i und- 1
irbúningi i þingflokkum og
nefndum þingdeilda, yrðu til-
tæk dagskrármál á kvöldfund-
inum. Svo varð ekki og var
flestum þingmönnum kunnugt
um, að aðeins lá fyrir að fram-
fylgja formsatriði á kvöldfund-
inum, þ.e. að slíta fundi, sem
hafði verió frestað fyrr um
daginn. Fámenni fundarins
átti rætur f þeirri vitneskju.
Þykir rétt að þetta komi fram
sem og, að fréttamanni var
ekki um þetta kunnugt, er
myndskýring var skrifuð, og
að stjórnarandstaðan hafði
beðið um frestun fundarins.
Andenœs
jarðsettur
Osió, 28. febr. NTB.
UTFÖR Tönnes M. Andenæs
þingmanns er fórst f járn-
brautarslysinu í síðustu viku
var gerð í dag frá Haslum-
kapellu f Bærum.
Auk fjölskyldu, ættingja og
vina hins látna mættu við út-
förina forseti Stórþingsins,
forsætisráðherra, kirkju- og
mcnntamálaráðherra og marg-
ir vinir og starfsbra'ður
Andenæs úr Stórþinginu.
Agnar Klemenz Jónsson,
sendiherra Islands í Osló lagði
blómsveig að leiði hins látna
frá íslenzku ríkisstjórninni
með hlýrri þökk fyrir skilning
hans á málefnum Islands og
baráttu hans i þágu Islands.
-ÞETTA ER KOM(POTr
HREIHA VITLEysu!
efri deild i gær. Fjáröflunarleið
frumvarpsins, 2% álag á sölu-
skattsstofn (í stað 1% áður) i 10
mánuði, var samþykkt með 17 at-
kvæðum gegn 1, einn sat hjá og
einn var fjarverandi. Þrír þing-
menn Alþýðubandalagsins: Helgi
F. Seljan, Ragnar Arnalds og
Stefán Jónsson greiddu þessum
frumvarpslið atkvæði, eftir að
breytingartillögur höfðu verið
felldar, en Geir Gunnarsson
greiddi atkvæði gegn honum.
Stendur þá þingflokkur Alþýðu-
bandalagsins allur, utan tveir
þingmenn, Eðvarð Sigurðsson og
Geir Gunnarsson, ásamt þing-
mönnum stjórnarflokkanna, að
samþykkt frumvarpsins.
Það vakti athygli við afgreiðslu
málsins, að einn þingmaður
Framsóknarflokksins, Steingrím-
ur Hermannsson, flutti á lokastigi
þess skriflega breytingartillögu,
sem gekk þvert á frumvarp
stjórnarinnar, þ.e. lenging á gild-
istima 1% viðlagasjóðsálags á
söluskattsstofn til ársloka 1976 í
stað 2% álags til 10 mánaða. Til-
laga hans var felld að viðhöfðu
nafnakalli með 13 atkvæðum
gegn 7. Að tillögu sinni felldri,
greiddi hann á sama hátt og þing-
menn Alþýðubandalagsins, að
breytingartillögum þeirra fölln-
um, atkvæði með frumvarpi
stjórnarinnar.
Þá vakti það ekki síður athygli,
að hvorugur þingmanna Alþýðu-
flokksins í efri deild greiddi at-
kvæði gegn frumvarpinu, þrátt
fyrir það sem á undan var gengið
i neðri deild: Jón Armann Héðins-
son sat hjá og Eggert Þorsteins-
son var fjarverandi.
SJALFSTÆÐISFÉLÖGIN í
Reykjavík efna til fundar um
efnahagsráðstafanir rfkisstjórn-
arinnar mánudaginn 3. marz n.k.
Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins
verða frummælendur á fundin-
um, sem haldinn verður í Glæsi-
bæ og hefst kl. 20.30.
I upphafi fundarins munu Geir
Hallgrímsson, forsætisráðherra,
Matthías A. Mathiesen fjármála-
ráðherra, Matthias Bjarnason
sjávarútvegs-, heilbrigðis- og
tryggingaráðherra, og Gunnar
Thoroddsen iðnaðar- og félags-
málaráðherra stuttar framsögu-
ræður um efnahagsráðstafanir
rikisstjórnarinnar. Að loknum
ræðum ráðherranna verða frjáls-
ár umræður og ráðherrarnir
Æskulýðsdagur
kirkjunnar
á morgun
ARLEGUR æskulýðsdagur þjóð-
kirkjunnar er á morgun. Að
þessu sinni er yfirskrift dagsins
„Fjölskyldan".
I fréttatilkynningu frá æsku-
lýðsfulltrúa þjóðkirkjunnar segir
að markmiðið sé að benda á, að
Kristur sé það afl, sem varðveitt
geti heiir.ili og fjölskyldu í nú-
timaþjóðfélagi.
Sérstakar guðsþjónustur í til-
efni dagsins verða í flestum kirkj-
um landsins og er þess vænzt, að
fjölskyldur fjölmenni og geri dag-
inn að hátíðis- og fjölskyldudegi.
Æskulýðsstarf kirkjunnar
gengst fyrir samkomu í Bústaða-
kirkju á sunnudagskvöld og hefst
hún kl. 22. Þar mun biskupinn,
herra Sigurbjörn Einarsson sitja
fyrir svörum og svara spurn-
ingum samkomugesta og Árna
Gunnarssonar, fréttamanns. Þá er
hljómsveitarleikur í „poppstíl" og
kórsöngur á dagskránni.
STJÓRNARFRUMVARP
um ráðstafanir til að draga
úr áhrifum oliuverðshækk-
unar á hitunarkostnað
íbúða var samþykkt sem
lög frá Alþingi í gær i neðri
deild. Frumvarpið gerir
ráó fyrir því, svo sem
munu svara fyrirspurnum fund-
armanna.
Morgunblaðið hefur áður
greint frá, að olíustyrkur
hækki í 8.200 kr. á íbúa, er
búa við olíuupphitun
(timabilið l/3’75 til l/3’76
en verði50% hærri til elli-
og örorkulífeyrisþega. Þá
er einnig gert ráð fyrir
fjárframlagi til rafveitna,
er framleiða raforku með
dieselolíu, og til Orkusjóðs,
til jarðhitarannsókna og
hitaveituframkvæmda.
Tekjustofn frumvarpsins
er framlenging 1% gjalds á
söluskattsstofn, sem upp
var tekið i tíó fyrri ríkis-
stjórnar.
Allmargar breytingartil-
lögur komu fram við frum-
varpið í neóri deild en voru
allar felldar. Frumvarpið
var samþykkt í deildinni,
sem lög frá Alþingi, með 32
samhljóða atkvæðum.
„Fiskvinnslan stendur
undir rekstri togaranna
— segir Brgnjólfur á Ögra, aflahœsta skipinu
EINS OG fram hefur komió I
fréttum var skuttogarinn Ögri
aflahæsta skip togaraflotans á
sfðasta ári og nam heildarafla-
verðmæti skipsins um 140
milljónum króna. Skipstjórinn
á Ögra hefur frá upphafi verið
Brynjólfur Halldórsson, en
skipið kom hingað til lands I
desember 1972.
Blm. átti stutt samtal við
Brynjólf um það leyti, sem Ögri
lét úr höfn í gær. Hann sagði,
að á árinu hefði skipið landað
nitján sinnum, þar af fjórum
sinnum erlendis.
Þegar við inntum Brynjólf
eftir söluhorfum erlendis, sagði
hann að nú væri helzt að selja í
Bretlandi, þar sem Þýzkalands-
markaðurinn væri nú lokaður
íslenzkum skipum, en þar hefði
sér reynzt bezt að selja áður.
Um sölur í Belgíu sagði
Brynjólfur, að enda þótt þar
mætti fá allgott verð fyrir fisk-
inn væru þar of margir milli-
liðir, sem vildu fá sneið af kök-
unni, þannig að sölur þar væru
ekki mjög fýsilegar.
Hins vegar sagði Brynjólfur,
að þegar munurinn á fiskverði
hér og ytra væri hafður í huga
væri ekki að undra, að menn
vildu fremur selja erlendis, —
það væri ólíkt að landa þorski
hér og fá 30—40 krónur fyrir
kílóið í staðinn fyrir 110 krónur
úti og meira eftir gengisbreyt-
inguna. Brynjólfur sagði aug-
ljóst, að grundvöllur togaraút-
gerðar væri nú mjög bágborinn
og raunverulega væri það fisk-
vinnslan, sem stæði undir
rekstri togaranna. Hann sagðist
álíta, að rekstur þeirra togara
einna gæti borgað sig þar sem
fyrirtækin væru með fisk-
vinnslu jafnframt.
Brynjólfur Halldórsson, skip-
stjóri á ögra.
Brynjólfur lét vel af skipi
sínu, og sagði að ekkert hefði
gengið úrskeiðis frá upphafi
þegar undanskilin væri smá-
bilun í rafölum, en hún hefði
stafað af mannlegum mistökum
í landi.
Aður en Brynjólfur tók við
Ögra ýar hann stýrimaður á
Sigurði í sjö ár, og þegar við
spurðum hann um múninn á
vinnu og atlæti um borð í skut-
togara og síðutogara, sagði
hann, að það væri áreiðanlegt,
að enginn, sem hefði einu sinni
verið á skuttogara myndi fara
aftur á síðutogara, enda hefðu
mannaskipti svo til engin orðið
á ögra frá upphafi.
Við spurðum Brynjólf um
aflahlut manna á skuttogurum,
og sagði hann að meðalafla-
hlutur háseta á Ögra á síðasta
ári hefði verið um 1500 þúsund
krónur, eða 120—130 þúsund
krónur á mánuði.
Þegar við spurðum Brynjólf
hvar hann ætlaði að byrja að
leita fyrir sér að þessu sinni,
sagði hann:
„Úti fyrir Vesturlandi. Það er
um að gera að ná honum áður
en hann fer inn á grunnið til
bátanna."
Ráðherrar ræða aðgerðir