Morgunblaðið - 01.03.1975, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MARZ 1975
— Kjarvalsstaðir
Framhald af bls. 32
mun Kínverska alþýðulýðveldiö
opna þar grafíksýningu og þá
tekur Sveinn Björnsson við með
málverkasýningu. Síðan kemur
að flestum þeirra, sem nú hafa
fengið loforð fyrir sýningar-
aðstöðu i Kjarvalsstöðum, en í
nóv. verður Gutenberg sýning þar
á vegum Germaníu.
— Óskuðu eftir
Framhald af bls. 32
þar hefði hann lýst þeirri skoðun
VSI, að heppilegra væri að aðilum
yrði gefinn meiri tími til þess að
reyna að komast að samkomulagi
um jafnlaunabætur áður en sett
yrði löggjöf um þær.
Mbl. reyndi í gærkveldi að ná
tali af Birni Jónssyni til þess að
spyrjast fyrir um ástæður ASl
fyrir þessum tilmælum, en ekki
tókst að ná sambandi við hann.
— Húsaleigust.
Framhald af bls. 3
A MÓTI HÆKKUN
AUKAGREIÐSLNA
Sigurlaug Bjarnadóttir sagð-
ist leggja megináherslu á að
gera yrði mikinn mun á kjörum
þingmanna, sem búsettir væru
í Reykjavik og hinna, er byggju
úti á landi. Sín skoðun væri sú,
að óeðlilegt væri að greiða þing-
mönnum Reykjavíkur 200 þús-
und króna ferðastyrk • eins og
landsbyggðarþingmönnum.
Sanngirni mælti með því, að
þessi styrkur væri a.m.k. helm-
ingi lægri til Reykjavikurþing-
manna.
Að því er fæðispeningana
varðaði sagði Siguriaug, að ljóst
væri, að ýmsir þingmenn
þyrftu að dvelja i Reykjavík.
Að þvi leyti væru þeir réttlátir,
þó aó endurskoða yrði, hvort
þingmenn búsettir í nágrenni
Reykjavíkur ættu að fá þennan
styrk eins og aðrir. Þá sagðist
hún telja, að Alþingi setti ofan,
ef því væri ekki trúað til þess
að ákveða laun þingmanna.
Hún sagði, að alþingismenn
ættu að taka á sig byrðar eins
og aðrir landsmenn og hún
hefði þvi ekki sætt sig við þá
hækkun, sem nýlega hafi verið
ákveðin á aukagreiðslum á
sama tíma og annað kaupgjald í
landinu væri bundíð.
Eggert G. Þorsteinsson sagði,
að það væri algjör fjarstæða, að
þingmenn Reykjavikur
þyrftu ekki að hreyfasig. Þeir
sæktu fundi úti um allt land.
Hann taldi, að þingmenn yrðu
að hafa góð laun til þess m.a. að
menn með lágar tekjur gætu
tekið kjöri til Alþingis.
Aðspurður um það hvort
þingmenn þyrftu að gera grein
fyrir aukagreiðslum gagnvart
skattyfirvöldum sagði Friðjón
Sigurðsson, skrifstofustjóri Al-
þingis, að svo væri ekki. Það
byggðist á gamalli hefð, að
ferðakostnaður væri ekki
talinn fram til tekna, enda
fengist hann dreginn frá
tekjum samkvæmt skatta-
lögum, þó svo að hann væri
talinn fram.
KJARADÓMUR MYNDI
SMYRJA MEIRA A
Sverrir Hermannsson sagði,
að þingflokkarnir hefðu vísað
því til þingfararkaupsnefndar,
hvort rétt væri að láta kjara-
dóm ákveða laun þingmanna.
Nefndin myndi taka málið fyrir
á fundi i næstu viku. Hann
sagðist þó vera sannfæróur um,
að meira yrði smurt á, ef opin-
berir aðilar ættu að fjalla um
þessi atriði, samanber ferða-
peninga opinberra starfs-
manna. Hann sagði ennfremur,
að ekki væri sanngjarnt, að
landsbyggðarþingmenn hefðu
sama ferðastyrk og Reykja-
vikurþingmenn.
Síðasti hluti fundarins fór
þannig fram, að þingmennirnir
spurðu blaðamennina um
launakjör þeirra og óskuðu
eftir skýrum svörum um fæðis-
peninga þeirra, ferðakostnað
og skattgreiðslur. Formaður
Blaðamannafélags Islands svar-
aði spurningunum.
— Ung kirkja
Framhald af bls. 17
eða þakka honum. Kvæðið
endar hann með þessari bæn:
Guð oss láti lenda
lífs nær endast mál,
himnum á fyrir herrans vörð!
unnum, þjónum þangað til
þessari fósturjörð.
xxXxx
Það er gleðilegt tímanna tákn
að æskulýðsstarf kirkjunnar á
Islandi er í miklum vexti.
Einkunnarorð þeirrar æsku er
þetta: Ég vil leitast við af
fremsta megni að hafa Drottin
vorn, Jesúm Krist að leiðtoga
lífs míns. — Þessi er hin sígilda
spurning og játning fermingar,
sem kemur hverjum unglingi
til hjálpar á göngu hans um
heiminn i dag. Mættu sem flest-
ir taka undir með Kristínu Sig-
fúsdóttur skáldkonu, sem kvað:
„Ég man eitt vor, við komum
kirkju frá, þar kjarkprúð
æskan vann sitt dýra heit.“
Skrifstofustarf
Óskum að ráða vanan skrifstofumann til
almennra skrifstofustarfa. Framtiðar-
vinna.
Eiginhandarumsóknir leggist inn á skrif-
stofu okkar. ,
Si/a og fiskur,
Bergstaöastræti 3 7.
Sölufólk
Bókaútgáfa óskar eftir fólki til að selja
bækur í Reykjavík.
Góð sölulaun fyrir duglegt fólk.
Tilboð óskast send Morgunbl. fyrir mið-
vikudag merkt. Sölufólk 8575.
Háseta vantar
á góðan netabát með vönum skipstjóra.
Uppl. í síma 92-8008.
Atvinna
Piltur eða stúlka óskast nú þegar til
bókhalds og skrifstofustarfa. Viðkomandi
þarf að vera vanur bókhaldi, helst véla-
bókhaldi. Nokkur mála- og vélritunar-
kunnátta einnig nauðsynleg. Framtíðar-
storf fyrir hæfan starfskraft. Tilboð
sendist Mbl. fyrir 6. mars n.k. merkt:
Hæfni 6637.
Sjómenn athugið
II. vélstjóra og háseta, vana netaveiðum
vantar nú þegar á nýlegan 120 tonna
netabát. Upplýsingar hjá Meitlinum h.f.
Þorlákshöfn í síma 3700 og hjá Benedikt
Thorarensen í síma 3601 eftirkl. 18.00.
Bezt að auglýsa
í Morgunblaðinu
Reykjaneskjördæmi
SjálfstæðisfélagVatnsleysustrandahreppsheldur bingó í Glað-
heimum, Vogum sunnudaginn 2. marz kl. 20:30. Spilaðar 1 2
umferðrr. Mjög góðir vinningar í boði.
Skemmtinefndin.
Reykjaneskjördæmi
Stofnfundur launþegaráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjanes-
kjördæmi verður haldinn i Sjálfstæðishúsinu í Hafnarfirði n.k.
laugardag kl. 2 e.h.
Oagskra:
1. Fundarsetning. Jóhann Petersen
formaður Kjördæmisráðs.
2. Ávarp: Gunnar Helgason form.
Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins.
3. Stofnun launþegaráðs: Hilmar
Guðlaugsson framkvæmdastjóri Verka-
lýðsráðs.
4. Umræður um kjaramál og stjórn-
málavið horf.
Málshefjandi Guðmundur Garðarsson
alþingismaður, formaður Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur.
Rétt til fundarsetu hafa launþegar í Reykjaneskjördæmi er
styðja Sjálfstæðisflokkinn.
Stjórn Kjördæmaráðs Sjálfstæðisflokksins
i Reykjaneskjördæmi.
Verkalýðsskóli
Sjálfstæðisflokksins
20.—23. marz n.k.
Áríðandi er, að þeir sem hug hafa á þátttöku i Verkalýðsskóla
Sjálfstæðisflokksins, sem hefst fimmtudaginn 20. marz og
stendur til sunnudagsins 23. marz tilkynni þátttöku strax i
sima 17100 eða 18192. Er það nauðsynlegt vegna alls
undirbúnings.
Eins og þegar hefur verið auglýst er það megintilgangur
skólans að veita þátttakendum fræðslu um verkalýðshreyfing-
una, uppbyggingu hennar, störf og stefnu, og ennfremur að
þjálfa nemendur i að koma fyrir sig orði, taka þátt i almennum
umræðum og ná valdi á góðum vinnubrögðum i félagsstarfi.
Skólinn verður heilsdagsskóli meðan hann stendur yfir. Skól-
inn er opinn öllu Sjálfstæðisfólki á öllum aldri hvort sem það
er flokksbundið eða ekki.
Tilkynnið þátttöku strax.
Efnahagsráðstafanir
ríkisstjórnarinnar
Geir Hallgrímsson.
Matthias
Matthiesen
Matthías Bjarnason Gunnar Thoroddsen.
Á VARÐARFUNDINUM mánudaginn 3.
marz fjalla Geir Hallgrimsson forsætisráð-
herra, Gunnar Thoroddsen, iðnaðar- og
félagsmálaráðherra, Matthias Bjarnason,
sjávarútvegs, heilbrigðis- og trygginga-
ráðherra og Matthías Á. Matthisen, fjár-
málaráðherra um efnahagsráðstafanir rik-
isstjórnarinnar.
Ráðherrarnir flytja stuttar framsöguræður
og munu siðan svara fyrirspurnum fund-
armanna.
GLÆSIBÆR — MÁNUDAGUR
3 MARZ — KL. 20.30.
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavik.
Heimdailur
Þátttakendur i ræðunámskeiði og stjórnmálafræðslu HEIM-
DALLAR eru boðaðir til kaffisamsætis LAUGARDAGINN 1.
mars n.k. kl. 14.00. á Hótel Esju 2. hæð.
STJÓRNIN.
Akureyri — Eyjafjörður
Hvað er framundan i efnahags-
málum?
Ólafur Björnsson, prófessor flytur
erindi og svarár fyrirspurnum um
ástand efnahagsmála.
Fundurinn verður i Sjálfstæðishús-
inu, litla sal, n.k. sunnudag kl. 4
siðdegis.
Sjálfstæðisfélögin Akureyri,
Kjördæmisráð sjálfstæðisfélaganna
Norðurlandi-eystra.