Morgunblaðið - 01.03.1975, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MARZ 1975
Idi Amin
hershöfðingi
FÁUM stjórnmálaleiðtogum nú-
tfmasögunnar hefur tekizt jafn vel
og forseta Uganda. Idi Main hers-
höfðingja, að þróa hjá sér tilfinn-
ingu fyrir aðsteðjandi hættum og
forðast þær. Nýverið var enn ein
tilraun gerð til að taka hann af lífi,
en hann komst undan. Engu að
slður bendir margt til að svo geti
farið fyrr eða siðar að hann verði
launráðum fjandmanna sinna að
bráð.
Siðasta tilraunin til að ráða
hann af dögum var gerð þegar
hann var á ferð í fjögurra bíla lest
á Entebbe veginum áleiðis til höf-
uðborgarinnar Kampala. Bifreiða-
lestin lenti i vel skipulögðu um-
sátri, og Citroen-Maserati bifreið
forsetans lenti i kúlnaregni svo
eldur kviknaði i henni. og herfor-
ingjarnir fjórir, sem í henni voru,
biðu allir bana. En herforinginn
slungni komst lifs af, hann hafði
flutt sig yfir i annan bil og stillt
foringjunum fjórum upp sem skot-
marki, ef á lestina yrði ráðizt.
Ekki er Ijóst hve margar tilraun-
ir hafa verið gerðar til að ráða
Arnin forseta af dögum, en vitað
er að þær hafa verið að minnsta
kosti sjö frá þvi sú fyrsta var gerð i
desember 1972.
i fyrstu tilrauninni lenti bifreið
forsetans einnig i umsátri. Þá
hafði Amin verið að fylgjast með
heræfingum i suðurhéruðum
landsins nálægt landamærum
Tanzaníu. Ætlunin var að hann
Heppnin
eltir Amin
stuðningsmanna mannsins, sem
hann steypti af valdastóli, dr.
Milton Obote og margar tilraunir
innan hersins til stórnarbyltingar.
Að nokkru leyti getur Amin
þakkað öryggisráðstöfunum eins
og stöðugum skiptum á farartækj
um það að hann skuli enn halda
lífi. Annað. sem skiptir miklu máli
er öflugur llfvörður hans skipaður
málaliðum frá Súdan, mönnum úr
Vestur-Nilar ættbálki hans,
Kakwa, og Palestínumönnum, en
málaliðunum er það Ijóst að þeim
verður útskúfað ef Amin fellur frá.
Eitt er það enn, sem þarf til að
standast allar þessar árásir og til
ræði, — heppni. Og Amin hefur
þegar hlotið meira en sinn skerf af
heppni. Svo getur ekki gengið
endalaust.
Að sögn þriggja fyrrverandi ráð-
herra hans, sem flúið hafa land.
i-W'?
THE OBSEKVER
C'Tts
Eftir
David Martin
æki fylgdarlaust eftir þjóðvegin-
um milli Mutukula og Masaka á
leið sinni til Kampala. Þegar
Mercedes bifreið hans var ekið
fyrir blindbeygju var skotið á hana
úr vélbyssum. Hermaðurinn, sem
ók bifreiðinni, og herforingi I
aftursæti létust báðir samstundis.
En Amin hershöfðingi hafði flutt
sig yfir I leigubifreið skömmu
áður, og umsátursmennirnir náðu
aðeins tálbeitunni.
Gjörbreyting hefur orðið á öllum
aðstæðum frá því fyrst eftir
stjórnarbyltingu Ámins í janúar
1971. Fyrst eftir valdatökuna ók
hann um ( opinni jeppabifreið á
almannafæri, en nú er hann orð-
inn mjög aðgætinn og varkár. Yfir-
leitt er ekkert tilkynnt um fyrir-
ætlanir hans opinberlega, og einn
landa hans, sem ferðaðist með
honum 60 kílómetra leið út á
land, segir að forsetinn hafi fimm
sinnum skipt um farartæki á leið-
inni.
Á árinu 1974 var vitað um að
minnsta kosti sex sámsæri um að
myrða Amin. Tvisvar sinnum ætl-
uðu foringjar úr flughernum að
skjóta niður flugvél forsetans, en i
bæði skiptin komst upp um fyrir-
ætlanir þeirra.
Fyrir utan allar tilraunirnar til að
koma honum fyrir kattarnef hefur
Amin staðið af sér innrás 1.000
hafa að minnsta kosti 80 þúsund
manns verið teknir af lifi frá þvi
hann tók við völdum. „Þeir sem
telja Amin hetju Afriku hugsa ekki
um blóðbaðið í landinu. í öllum
héruðum landsins hafa menn ver-
ið liflátnir. Allir ættflokkar lands-
ins hafa orðið fyrir mannfalli. Að
búa við Amin er ekki sama og að
virða hann. Menn óttat hann, en
hann er engin hetja í Uganda,"
skrifaði einn landsmanna forset-
ans eftir að hafa flúið land. Til að
skilja þessi orð f lóttamannsins
verður að skilja styrk fjölskyldu-
banda i Afriku. Morð á ættingja
krefst hefndar. Þess vegna er það
svo i dag að Amin stendur and-
spænis þúsundum syrgjandi ætt-
ingja, sem allir gætu hugsanlega
gerzt launmorðingjar. Ofan á
þetta bætist svo efnahagsöng-
þveiti landsins. Útgjöld til hermála
hafa aukizt verulega, þau riki, sem
áður veittu Uganda efnahagsað-
stoð, hafa nú snúið baki við Amin,
Ugandabúar af asiskum ættum
hafa verið hraktir úr landi, og
almennrar óánægju gætir hjá þjóð
inni. Allt þetta hefur leitt Úganda
á barm gjaldþrots. Helztu nauð-
synjar eins og salt, sykur hveiti
o.fl. fæst sjaldan í verzlunum,
nema þá helzt gegn orkuverði á
svörtum markaði. Enga varahluti
er aðfá i bifreiðarfáar börubifreið
ar eru i umferð til að flytja upp-
skeruna á markað opinberir starfs
menn hafa engin laun fengið
greidd undanfarna mánuði vegna
þess að ríkiskassinn er tómur. Og
þegar fjármálaráðherrann varaði
Amin við þvi á rikisstjórnarfundi
að landið væri að verða gjald-
þrota, gaf forsetinn honum utan
undir og skipaði honum að láta
prenta fleiri peningaseðla.
I sjálfstæðum Afríkurikjum utan
Uganda vona margir leiðtoganna
að Amin verði steypt af stóli innan
fárra vikna. Samtök Afrikurikja,
O.A.U., gerðu þá skyssu að fallast
á að næsti leiðtogafundur samtak-
anna skyldi haldinn i Kampala, þar
sem hann á að hefjast 28. júli.
Það væri ekki eingöngu niður-
lægjandi fyrir O.A.U. að hald leið-
togafund í landi þar sem svo mikið
hefur verið um fjöldaaftökur að
undanförnu. Öllu verra er að sam-
kvæmt venju yrði þá Amin forseti
samtakanna næsta árið og þar af
leiðandi talsmaður O.A.U. Á með-
an Afríkurikin eiga i vandasömum
samningaviðræðum til að koma í
veg fyrir algjöra skæruliðastyrjöld
i suðurhéruðum álfunnar, er ekki
beinlinis æskilegt að grafið sé
undan áhrifum rikjanna með þeim
fjöldamorðum, manndrápum og
endalausum straumi fúkyrða og
hlægilegra simskeyta, sem forseti
Uganda er þekktur af. Verði leið-
togafundurinn haldinn i Kampala
þrátt fyrir allt, má búast við að
margir afriskir leiðtogar eins og
Julius Nyerere i Tanzaniu,
Kenneth Kaunda i Zambiu og
Yakubu Gowon hershöfðingi i
Nígeríu láti ekki sjá sig. Vafasamt
er jafnvel talið að Amin takist að
fá 10 af 43 leiðtogum aðildarrikj-
anna til að mæta til fundarins.
Margir afrískir leiðtogar reyna
að finna ástæðu til að flytja leið-
togafundinn eitthvað annað. Ef til
óeirða kæmi rétt fyrir fundinn i
Uganda — sem jafnvel utanað-
komandi aðilar kæmu af stað —
yrðu þær ærin ástæða fyrir að
halda leiðtogafundinn annars
staðar. En allra bezt væri að sjá á
bak hershöfðingjanum.
Ekki er með öllu hættulaust að
halda leiðtogafundinn utan
Uganda á meðan Amin fer enn
með völd. Margir halda þvi fram að
ákvörðunin um fundarhaldið I
Kampala hafi nú þegar leitt til
þess að dregið hafi úr manndráp-
um i landinu. Verði fundarstaðn
um breytt óttast þessir sömu
menn að það geti leitt til nýrra
ofsókna og fjöldamorða.
Mercury Motego '74 má seljast gegn 3ja til 10 ára fasteignabréfum. Opið i dag til kl. 4. Bilasalan Höfðatúni 10, simar 18881 — 18870. Vönduð svefn- herbergishúsgögn óskast keypt (tvö stór rúm, náttborð og e.t.v. snyrtiborð). Simi 33498.
Exakta hlutir óskast Vil kaupa Flektogon gleiðhorns- linsu, belgi til nærmyndunar eða millihringi. Hringið í síma 1 1 644 eða 1 7956. Nýkomið grófar barnamyndir, strengir og púðar. Uppfyllingargarn i hespum, páska- dúkar o.m.fl. Hannyrðabúðin, Linnetsstig 6, Hafnarf. Simi 51314.
Ytri-Njarðvík Til sölu litið einbýlishús, 3 herb. og eldhús, ásamtstórum bilskúr. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns, Keflavík, simar 1 263 og 2890. Til sölu 280 hestafla MVM bátavél, ásamt gír, skrúfu og miklu af fylgihlut- um. Upplvsingar i síma 99-1 426.
Til sölu 3ja herb. íbúð i fjölbýlishúsi. íbúð- in er í mjög góðu standi. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns, Keflavík, simar 1 263 og 1 890. VW '72 1300 litið keyrður, fallegur bill, til sölu. Má borgast með 2ja—3ja ára skuldabréfi eða eftir samkomulagi. Simi 1 6289.
Ytri Njarðvik Til sölu 4ra herb. risibúð ásamt bilskúr. Hagstætt verð. Fastéignasala Vilhjálms og Guðfinns, Keflavik, símar 1 263 og 2890. Keflavík Til sölu glæsilegar 3ja herb. ibúð- ir. Stór bilskúr. Eigna- og verðbréfasalan, Hringbraut 90, Keflavik, simi 92-3222.
Ytri-Njarðvík Til sölu 4ra herb. ibúð, neðri hæð, sér inngangur, þarfnast lagfæring- ar. Mjög góð kjör. FasteignasalaVilhjálms og Guðfinns Keflavik, simar 1 263 og 2890. Vil kaupa trillubát 3 til 4 tonna. Má vera vélalaus. Upplýsingar i síma 20962.
Verkamenn Menn vanir byggingarvinnu ósk- ast. Upplýsingar í síma 35847. Ráðskona óskast sem fyrst i einn til tvo mánuði, vön húsverkum. Uppl. í sima 99-1 262 eftirkl. 18.
Ódýr barna- og unglinga skrifborðsett til sölu, tilbúin undir bæs eða málningu. Opið alla helgina. Smíðastofan, Hringbraut 41, simi 16517. Sumarhús Við byggjum sumarbústaði i stöðl- um stærðum frá 24,5 fm. Fast verð. Eigum einnig lönd. Þegar er komin mjög góð reynsla á okkar Sumarhúsaþjónustan, kvölds. 85446.
Tvo háseta vantar á 270 rúml. netabát frá Vestfjörðum. Uppl. i sima 94—2534, Tálkna- firði og hjá Landssambandi isl. útvegsmanna eftir helgina. morgnnbTaíiib nucLvsincHR <g&4-»22480
Ferðaskrifstofan ÚTSÝN
ÚTSÝNARKVÖLD
GRÍSAVEIZLA
í Súlnasal Hótel Sögu
sunnudaginn 2. marz kl. 19.00
★
★
★
★
★
★
Kl. 1 9 — Húsið opnað
Kl. 1 9.30 — Hátíðin hefst: Svaladrykkur Sangria,
alisvín, kjúklingar og fleira. Verð kr. 895.-
Kl. 20.30 — Kvikmyndasýning, ný mynd frá
Costa del Sol.
Fegurðarsamkeppni: Ungfrú Útsýn 1975. forkeppni
Stórkostlegt ferðabingó — 3 Útsýnarferðir til
sólarlanda.
Nýstárlegt skemmtiatriði.
Dans — Hin vinsæla hljómsveit Ragnars
Bjarnasonar.
Missið ekki af þessari glæsilegu en ódýru
skemmtun.
Ath. að veizlan hefst stundvislega og borðum
verður ekki haldið eftir kl. 1 9.30.
Tryqqið ykkur borð hiá yfirþjóni á föstudegi frá
kl. 1 5.00 í síma 20221.
VERIÐ VELKOMIIM — GÓÐA SKEMMTUN:
Ferðaskrifstofan ÚTSÝN