Morgunblaðið - 01.03.1975, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MARZ 1975
Þórkatla
Þorkelsdóttir frá
ísafirði níræð
NÍRÆÐ er f dag, 1. marz, frú
Þórkatla Þorkelsdóttir frá Isa-
firði. Hún er fædd í Fremri
Hjarðardal i Dýrafirði, dóttir
hjónanna Guðfinnu Jónsdóttur
frá Læk í Dýrafirði og Þorkels
Arnasonar frá Isafirði. Faðir
hennar lézt af slysförum, áður en
hún fæddist.
Fycstu ellefu ár ævinnar var
Þórkatla i fóstri hjá skyldfólki
sínu i Dýrafirði, en fluttist þá til
móður sinnar og stjúpa í Bol-
ungarvík. Hans naut þó ekki lengi
við, því að þremur árum seinna
fórst hann i sjóslysi.
Þórkatla giftist fyrri manni
sinum Hálfdani Brynjólfssyni,
ættuðum af Barðaströndinni,
átján ára gömul, og eignuðust þau
tvö börn, Henry og Þórhildi, sem
bæði eru nú látin. Hálfdan fórst
af slysförum árið 1909.
Nokkrum árum seinna giftist
Þórkatla Birni Friðfinnssyni,
ættuðum norðan úr Svarfaðardal.
Þau eignuðust fimm börn: Guð-
rúnu, Harald, Guðbjörgu, Sigriði
og Birnu. Dæturnar eru allar á
lífi, en Haraldur fórst, árið 1937.
Björn missti Þórkatla i sjóslysi
árið 1927, er hún lá á sæng að
yngsta barninu.
Öll sín hjúskaparár bjó Þór-
katla á Isafirði, en árið 1935 flutt-
ist hún til Reykjavíkur og gerðist
ári síðar ráðskona hjá Sigurði
Hannessyni, bónda að Sumarliða-
bæ i Holtum. Þar var hún í nær
tíu ár, eða þar til hann brá búi, en
þá fluttist hún með honum til
Reykjavikur og síðan Keflavikur,
en hjá honum var hún ráðskona
til 79 ára aldurs. Síðustu tiu árin
hefur hún búið að Hrafnistu,
Dvalarheimili aldraðra sjómanna,
sem sonur hennar, Henry, hafði
átt svo miki.nn þátt í að reisa.
Lif Þórkötlu hefur ekki verið
neinn dans á rósum, en forsjónin
hefur búið hana vel úr garði frá
upphafi og hún getur nú litið sátt
til baka yfir hin erfiðu ár. Hún er
enn vel ern og fylgist af áhuga
með vexti og viðgangi afkomenda
sinna og lætur sér annt um vel-
ferð þeirra. Ekki ósjaldan bregð-
ur enn fyrir þeim mikla krafti og
andlegri reisn, sem gert hefur
þessari dugmiklu konu kleift að
sigrast á svo mörgu mótlætinu í
lífinu.
Vinir og ættingjar senda henni
á þessum timamótum hlýjar
kveðjur, með óskum um, að hún
fái enn um sinn notið margra
ánægjustunda i hópi ástvina.
H.Þ.H.
Félagsiíf
Kvöldvaka laugardag 1.
marz
að Langagerði 1 kl. 20.30.
Kristilegt stúdentafélag Árgeisli.
Kjötafgreiðslumaður
óskast
Upplýsingar í síma 33166 eftir hádegi laugar-
dag og sunnudag.
Torfæru mótorhjól
Eigum fyrirliggjandi, á gamla verðinu, Montesa
mótorhjól „Cota 247" (250 cub.) og skelli-
nöðru „Scorpion 50".
Upplýsingar í síma 26550, einnig eftir lokun.
Stafn h. f
Eftirfarandi tæki
með mönnum
óskast á leigu:
1. Fyrir tímabilið 1 5. apríl 1975 — 1. nóvem-
ber 1975. Tveir fólksflutningavagnar frá
30—45 sæti. Einn kranabíll 5 tonna
(krani). Einn sturtubíll 8—1 2 tonna.
2. Fyrir tímabilið 15. apríl 1975 til 15. októ-
ber 1975. Einn bílkrani, 4 tonn, 12 metra.
Einn bílkrani, 6 tonn, 20—30 metra krani.
Einn sturtubíll 8 — 1 2 tonna. Ein hjólaskófla
1 —1,5 Cum.
3. Fyrir tímabilið 15. apríl 1975 til 1. ágúst
1975 Ein jarðýta með ryðtönn D 7/D
8/D9.
Tilboð sendist á skrifstofuna á Suðurlands-
braut 12, Reykjavík. Upplýsingar veittar í
síma 12935, Sigöldu.
Borgfirðingafélagið
í Reykjavík
heldur árshátíð sína í Domus Medica laugardaginn 8.
marz og hefst kl. 19. Borðhald. Skemmtiatriði. Dans.
Gestir úr Héraði verða á hátiðinni.
Aðgöngumiðar og borðapantanir i Domus Medica 6.
og 7. marz kl. 17 — 19 báða daganna. Stjórnin.
Frá Árnesingakórnum
í Reykjavík
Þeir áskrifendur sem ekki hafa en fengið plöt-
una „Þú Árnesþing" geta vitjað hennar í Fálkan-
um, Suðurlandsbraut 8 Rpvkiavík
Árnesingakórmn í Reykjavik —
Árnesingafélagið í Reykjavdík.
Vélritunarstúlka
Óskum að ráða vélritunarstúlku hálfan eða allan
daginn. Uppl. í skrifstofunni mánudag og
þriðjudag
Endurskoð unarskrifs to fa
Ragnar Magnússonar s.f., Hverfisgötu 76.
F0ROYA
/FYRSTU FRÍMERKll
30.1. I975
Óstimpluð frímerki og fyrstadagsumslög kom-
in. Pantanir óskast sóttar strax.
Frímerkjamiðstöðin, Skólavörðustíg 21 a. sími
21 1 70.
i
í SIGTÚNI SUNNUDAGSKVÖLDIÐ KL. 20.30.
Nú býður KSI upp á eitt af hinum stærstu og
glæsilegustu bingóum, sem efnt hefur verið til á
landinu. Þetta verður trúlega eitt af síðustu
stórbingóum vetrarins. Mætið snemma.
f:;v- a;-
BfiÉl
ÉS
5 Kanaríeyjaferðir og
13 aðrir glæsilegir vinningar
að verðmæti um 700 þús. kr.
Spilaðar MEÐAL VINNINGA: Húsið
verða Auk Kanarleyjaferða: Útvarpstæki. speglakommóða, kaffivél. opnar
18 plötuspilarar, brauðristar. carnon hárliðunartæki klukkan
umferðir matar- og kaffistell. húsbóndastóll. 09 fleiri glæsilegir vinningar. 7
Stjórnandi: Baldur Hólmgeirsson.