Morgunblaðið - 01.03.1975, Síða 32
LAUGARDAGUR 1. MARZ 1975
nuGivsincRR
#^•22480
JWor0xmblaí)ili
nucivsmcnR
<^^22480
Kjarvalsstaðir:
,STEFNT AÐ METVERTH)’
FRA RANNSOKN A SOVÉZKU HLUSTUNARDUFLUNUM I GÆR, —
og Landhelgisgæzlunnar voru að opna duflin.
— L,josm.: n. augsson.
er sérfræðingar Pósts og síma
Sex sýningar
þegar ákveðnar
6 LISTMALURUM var nú í
vikunni úthlutað sýningartíma í
Kjarvalsstöðum á þessu ári auk
þeirra sem höfðu fengið jákvætt
svar við leigubeiðni fyrir áramót.
Þessir 6 listmálarar eru Gunnar
J. Guðjónsson, sýnir i júni, Guð-
mundur Karl, sýnir í júní, Pétur
Friðrik, sýnir i sept.—okt., Ragn-
ar Páll, sýnir í okt., Halla
Haraldsd., sýnir í okt.—nóv. og
Örn Ingi frá Akureyri, sem sýnir í
desember.
Um þessar mundir sýnir Jón M.
Baldvinsson iistmálari i Kjarvals-
stöðum, í marz verður þar yfirlits-
sýning á verkum Guðmundar
Einarssonar frá Miðdal og i apríl
verður Steinunn Marteinsdóttir
leirkerasmiður með sýningu þar,
en að lokinni sýningu Steinunnar
Framhald á bls. 18
til undantekninga ef bátur hef-
ur orðið að bíða meira en tvo
sólarhringa eftir löndun.
„Þetta löndunarkerfi hefur
verið i notkun nú um nokkurt
skeið og skipstjórar og verk-
smiðjurnar eru farin að þekkja
vel inná það og virða það. Þá
hefur það létt undir, að lítil
sem engin frysting hefur verið
það sem af er vertíðinni. Ég
held að óhætt sé að segja, að
þetta fyrirkomulag á loðnu-
lönduninni hafi ótvírætt sann-
að gildi sitt,“ sagði Gylfi.
Gylfi var bjartsýnn á að met-
vertíð næðist, enda þótt aflinn
nú væri miklu minni en á sama
tíma í fyrra, enda verður að
hafa í huga, að loðnan er nú
hálfum mánuði til þremur
vikum seinna á ferðinni en í
fyrra. „Það leit ekki út fyrir
neina metvertíð i byrjun,“
sagði Gylfi. „Við verðlagningu
var ekki miðað lengur en 15.
marz og verðið þá orðið svo lágt
að útlit var fyrir að mjög marg-
ir bátar yrðu hættir veiðum fyr-
ir þann tíma. En eftir gengis-
breytinguna og nýja verðlagn-
ingu henni samfara hafa við-
horfin breytzt, og nú horfir svo
að öllu óbreyttu að um metver-
tíð verði að ræða.“
Það skal tekið fram að lokum,
að frá og með morgundeginum,
breytist loðnuverð, lækkar úr
2,10 krónum kílóið i 1,75 krón-
ur.
þangað. Bátarnir, sem verið
hafa á veiðum á eystri veiði-
svæðunum hafa siglt til Aust-
fjarða og jafnan fyllt upp í þau
göt, sem þar hafa myndast. Á
syðri fjörðunum hefur stund-
um orðió bið, en á nyrðri fjörð-
unum geta bátarnir yfirleitt
komist strax undir löndunar-
Allar loðnuþrœr fullar
eftir þrjá mokveiðidaga
„AÐ ÖLLU óbreytiu stefnir að
metvertíð," ,agói Gylfi Þórðar-
son fnrmaður loðnunefndar er
blm. Morgunblaðsins heimsótti
hann og starfsmenn nefndar-
innar f höfuðstöðvar hennar að
Tjarnargötu 4. Þar var allt í
fullum gangi, þriðji mokveiði-
dagurinn í röð og því I nógu að
snúast og mörg vandamálin að
glíma við. Það er reyndar ekk-
ert óeðlilegt að vandamál skjóti
upp koliinum þegar 100 bátar
moka upp loðnunni og hvergi
er hægt að koma henni fyrir
vegna skorts á þróarrými.
Heildaraflinn á vertfðinni nálg-
ast nú 300 þúsund lestir, en á
allri vertíðinni í fyrra sem var
metvertíð, varð heildaraflinn
um 460 þúsund lestir.
Mokveiðin á 6. svæði undan
Garðskaga hefur haft það í för
með sér, aó allt þróarrými frá
Þorlákshöfn til Akraness er
orðið fullt, og þar losnar ekki
rými fyrr en á morgun, sunnu-
dag, en þá losna samtals 3000
lestir. Allt það rými er þegar
upppantaö. 1 dag losnar 5.500
lesta rými í Vestmannaeyjum
en það er einnig upppantað.
Eru bátar þegar byrjaðir að
bíða í Eyjum og aðrir á leið
kranana, og hafa margir siglt
þangað. Allt er orðið fullt á
Bolungarvík, en nokkrir hafa
siglt til Raufarhafnar og Siglu
fjarðar. T.d. ætlaði Sigurður í
gær til Siglufjarðar með 850
lestir.
„Okkur hér hjá loðnunefnd-
inni finnst þessi vertíð hafa
gengið bezt af þeim vertíðum
sem við höfum starfað við,“
sagði Gylfi Þórðarson. Nefndi
hann sem dæmi, að þrátt fyrir
allan þann afla sem á land hef-
ur borizt hjá flotanum, telst það
LOÐNUNEFNDIN — Það var nóg að gera hjá loðnunefndinni í gær,
enda þriðji mokveiðidagurinn í röð og erfitt verk að raða bátunum
niður á kúffullar hafnirnar.
ASI—VSÍ og VS:
Oskuðu frest-
unar á tillögum
ríkisstjórnar
RlKISSTJÓRNIN hefur fallizt á
þau tilmæii Alþýðusambands ís-
lands og Vinnuveitendasambands
Islands og Vinnumálasambands
samvinnufclaganna að fresta að
23% hækkun
gjaldskrár
Hitaveitu
RÍKISSTJÖRNIN hefur
heimilað 23% hækkun ágjald-
skrá Hitaveitu Reykjavtkur
frá og með 1. marz. Með þess-
ari hækkun verður því kynd-
ingarkostnaður með hitaveitu
24% af kostnaði olíukynd-
ingar. Áður en hækkunin var
samþykkt var kostnaður af
kyndingu á hitaveitusvæði rétt
innan við 20% af olíu-
kyndingarkostnaði.
Jóhannes Zoéga hitaveitu-
stjóri sagði í viðtali við Mbl. í
gær rð upphafleg beiðni Hita-
veitunnar um hækkun hefði
verið um 30%, en síðan var
þessi beiðni lækkuð í 24%
samkvæmt tilmælum til
borgarráðs, sem það sam-
þykkti. Síðan samþykkti ríkis-
stjórnin að úthluta Hitaveit-
unni nú 23% hækkun.
um hœkkun
launajöfn-
unarbóta og
tryggingabóta
svo stöddu framlagningu tillagna
um endurskoðun launajöfnunar-
bóta og bóta almannatrygginga.
Kemur þetta fram í fréttatilkynn-
ingu, sem Morgunblaðinu barst í
gær frá forsætisráðuneytinu.
Eins og fram kom i Morgun-
blaðinu sl. miðvikudag lýsti Geir
Hallgrímsson forsætisráðherra
yfir því í þingræðu sl. þriðjudag,
að þar sem vonlítið virtist um
samkomulag um þetta efni milli
aðila vinnumarkaðarins mundi
ríkisstjórnin beita sér fyrir hækk-
un iaunajöfnunarbóta er tæki mið
af hækkun framfærsluvisitölu úr
358 stigum í 372 stig svo og
hækkun söluskatts um eitt
prósentustig. Ríkisstjórnin hafði i
hyggju að leggja tillögu um slíka
hækkun launajöfnunarbóta fram
á Alþingi í gær eða fyrradag en
vegna framangreindra tilmæla
aðiia vinnumarkaðarins var þvi
frestað. í dag mun sáttasemjari
hafa boðað aðila kjaradeilunnar
til sáttafundar.
Jón H. Bergs, formaður Vinnu-
veitendasambands Islands sagði
um frestunina, að hann hefði rætt
þetta mál við forsætisráðherra og
Framhald á bls. 18
Enn fleiri dufl koma fram:
Er hínn hluti sov-
ézku duflanna fundinn?
FYRIR ellefu mánuðum, eða í
aprílmánuði síðastliðnum rak á
fjöru framan við Breiðabólstaða-
bæina í Suðursveit alltorkenni-
lega bauju. Fjölnir Torfason á
Hala í Suðursveit hafði þá þegar
samband við Vitamálaskrif-
stofuna og tilkynnti fundinn, en
ekkert frekar var gert í málinu.
Bauja þessi er hálft tonn að
þyngd, 150 cm í þvermál og um 1
metri á hæð, en ofan á baujunni
er Ijóskúpiil, um 15 cm hár.
Baujan mjókkar heldur niður og
niður úr henni er stöng um 1,5
tommur 1 þvermál, um það bil
metri að lengd, sem endar í auga.
Þá er einnig niður úr baujunni
sexþættur kapall, sem slitnað
hefur og benda sterkar lfkur til
að hann sé sams konar og kaplar,
sem eru á duflunum sem rak á
fjörur vestan Stokksness og á
Landeyjasandsfjöru. Þá rak og á
Kálfafellsfjöru í Suðursveit um
100 faðma kapal, sem virðist
sömu gerðar.
Að sögn Fjölnis Torfasonar,
sem fann þetta dufl, virðist það
nýlegt úr mjög þykku áli. A því er
5 stafa orð Kopma, en innan í þvi
er plata, sem á stendur ákveðin
tala og svo oró, sem stafsett er
KopnoboN. Þá fanst og flotbelgur,
sem Fjölnir lýsti þannig að utan
um hann eru keðjur og innan í
tvöföld slanga. Boltuð eru á hvorn
enda stálskífa og handföng. Þá
skal þess getið, aó ef ljóskúpli efst
á baujunni er lyft, kemur í ljós
talsímatæki.
Þetta dufl virðist svo sem hin
fyrri, sem fundizt hafa, vera af
sovézkri gerð, þar sem það er
merkt með Cyrilska stafrófinu.
Duflið er enn í vörzlu Fjölnis á
Hala, en landhelgisgæzlunni mun
hafa verið falið að sækja það.
Tæknimenn Pósts og síma og
Landhelgisgæzlunnar fóru í gær
suður til Keflavíkurflugvallar, en
þangað voru hlustunarduflin tvö
komin í rær — Stokksnessdufl-
ið kom þ^ngaó í gærmorgun. Að
sögn Harnesar Guðmundssonar
stjórnarráðsfulltrúa, sem var í
fylgd með tæknimönnunum
reyndist erfitt að komast inn í
duflin til þess að kanna innihald
þeirra og þegar botninn var tek-
inn úr, kom í ljós annar botn
innar í duflinu. Er rannsókn á
þeim því enn ekki lokið.