Morgunblaðið - 16.08.1975, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. AGUST 1975
4
RAUOARÁRSTÍG 31
/^BÍLALEIGAN—
V^IEYSIR
CAR RENTAL
24460
28810
PIONCEEJ?
Útvarpog stereo, kasettutækí
FERÐABÍLAR h.f.
Bílaleiga, sími 81260.
Fólksbílar — stationbílar
— sendibílar — hópferðabílar.
BÍLALEIGAN
MIÐBORG hf.
simi 19492
Nýir Datsun-bílar.
Bíleigendur ath:
Höfum á boðstólum mikið úrval
af bílútvörpum, segulböndum,
sambyggðum tækjum, loftnets-
stöngum og hátölurum.
ísetningar og öll þjónusta á
staðnum.
TÍÐNI H.F. Einholti 2
s: 23220
Athugasemd
Vegna fréttar í Morgunblaðinu
15. ágúst, þar sem formaður Tón-
skáldafélags Islands, hr. Atli
Heimir Sveinsson tónskáld og hr.
Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld
fjalla um Norrænu músikdagana,
vill undirritaður koma á framfæri
eftirfarandi leiðréttingu: I um-
ræddri frétt eru talin upp tvö
verk eftir ísl. tónskáld og þess
getið að þau hafi verið frumflutt
á Norrænu músikdögunum i
Kaupmannahöfn s.l. sumar, en
verk eftir undirritaðan, sem auk
þess að vera frumflutt á tónleik-
um, var og flutt í danska sjón-
varpinu er í þessari frétt frá hags-
munasamtökum Isl. tónskálda
hvergi getið. Svona til upprifj-
unar þá heitir tónverkið A þessari
rímlausu skeggöld, við texta Jó-
hannesar úr Kötlum. Eitt af
„temum“ þessara músikdaga var
barnatónlist og í því tilefni pant-
aði danska tónskáldafélagið tón-
verk frá einu tónskáldi frá hverju
Norðurlandanna. Þessi verk voru
síðan flutt á sérstökum tónleikum
og auk þess flutt i heild í danska
sjónvarpinu og eins og tekið er
fram í fréttinni um verk Jónasar
Tómassonar og Hafliða Hall-
grímssonar, þá hefur og verk
undirritaðs ekki enn verið flutt
hérlendis.
Nú er það svo, að ástæðan fyrir
þessari athugasemd er ekki að-
eins til orðin vegna þess að for-
maður Tónskáldafélags Islands
gleymir að geta mín i sambandi
við Norrænu músikdagana í
Kaupmannahöfn, heldur og keðja
atvika, þar sem mín ærulausa per-
sóna hefur orðið aðnjótandi sér-
staks heiðurs frá hendi þess
manns, er gæta skal hagsmuna og
heiðurs ísl. tónskálda.
Jón Asgeirsson,
r .
Utvarp Reykjavíh
L4U64RD4GUR
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8-.15 og
10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.) 9.00 og
10.00.
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Sigríður Eyþórsdóttir
les sögu sina. „Gengið á
reka“.
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða.
KI. 10.25: „Mig hendir aldrei
neitt“, umferðarþáttur Kára
Jónassonar. (endurtekinn).
Óskalög sjúklinga kl. 10.30:
Kristln Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
SÍÐDEGIÐ___________________
14.00 Á þriðja tfmanum;
Páll Heiðar Jónsson sér um
þáttinn
15.00 Miðdegistónleikar.
15.45 I umferðinni.
Árni Þór Eymundsson
stjórnar þættinum.
(16.00 Fréttir. 16.15 Veður-
fregnir).
16.30 Hálf fimm.
Jökull Jal^obsson sér um
þáttinn.
17.20 Nýtt undir nálinni
örn Petersen annast dægur-
lagaþátt.
18.10 Sfðdegissöngvar. Til-
kynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIO
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Háíftfminn
Ingólfur Margeirsson og
Lárus Óskarsson sjá um þátt-
inn, sem fjallar um tónlist f
Ríkisútvarpinu.
20.15 Hljómplöturabb>
Þorsteinn Hannesson bregð-
ur plötum á fóninn.
20.45 Á ágústkvöldi.
Sigmar B. Hauksson annast
þáttinn.
21.15 Kvöldstund með Peter
Kreuder,
sem leikur með félögum sfn-
um lög eftir Heymann,
Carste, Jary og fleiri.
21.45 „Segðu mér að sunnan"
Edda Þórarinsdóttir leik-
kona les Ijóð eftir Huldu.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir.
Danslög.
23.55 Fréttir f stuttu máli.
Dagskrárlok.
18.00 Iþróttir
Umsjónarmaður Ómar
Ragnarsson
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Dagskrá og auglýsingar
20.30 Læknir í vanda
Brezkur gamanmynda-
flokkur
Hver er sekur?
Þýðandi Stefán Jökulsson
20.55 Eigum við að dansa?
Kennarar og nemendur
Dansskóla Heiðars Ástvalds-
sonar sýna nokkra dansa.
Stjórn upptöku Andrés
Indriðason.
21.20 Rauðá
(Red River)
Bandarfsk bíómynd frá ár-
inu 1952, byggð á gamalli
sögu frá Texas.
Áðalhlutverk John Wayne
og Montgomery Clift.
Þýðandi Dóra Hafsteinsdótt-
ir.
Myndin gerist f Texas um
1850 og greinir frá bónda,
Tom Dunson að nafni, sem
þar hefur komið upp stórri
nautgripahjörð. Reka verð-
ur gripina um langan veg til
markaðsborgarinnar, og er
sú leið torfarin og erfið.
Dunson bóndi sýnir kúrek-
um sfnum mikla hörku á
ferðalaginu, og þar kemur
loks, að fóstursyni hans,
Matthew, ofbýður fram-
koma hans.
23.30 Dagskrárlok
Itzhak Pearlman André Previn
ÞEKKTIR SNILLINGAR
LEIKA TÓNLIST JOPLINS
Klukkan 15 í dag taka tveir
heimsfrægir tónlistarmenn,
Itzhak Pearlman og André Pre-
vin, saman höndum og leika
„ragtime“ — tónlist eftir Scott
Joplin, en lög hans hafa náð
miklum vinsældum hérlendis
eftir að kvikmyndin „Sting“
var sýnd hér fyrir nokkru.
Pearlman leikur á fiðlu og
Previn á píanó. Þeir eru báðir
Islendingum að góðu kunnir og
hafa Ieikið hérlendis. Óvana-
legt er að snillingar sem þessir
leiki opinberlega léttmeti af
þessu tagi, en platan sem leikið
er af er tiltölulega nýkomin út
og verður nú leikin í fyrsta sinn
f útvarpinu.
Þetta dagskrárstriði kemur í
stað knattspurnulýsingar sem
ráðgerð hafði verið, en fellur
niður.
FJALLAÐ UM TÓNLISTAR-
FLUTNING I RlKISUTVARP-
INU
Ingólfur Margeirsson og Lár-
us Óskarsson taka í kvöld kl.
19.35 fyrir í þætti sínum, Hálf-
tímanum tónlistarflutning í
Ríkisútvarpinu og stefnu
stjórnenda stofnunarinnar í
þeim málum. Verður þátturinn
byggður upp á líkan hátt og
fyrri þættir Ingölfs og Lárusar.
Strax að þætti þeirra loknum,
kl. 20.15, er á dagskrá þáttur
Þorsteins Hannessonar tónlist-
arstjóra hljóðvarps, Hljóm-
plöturabb. Þar munu Þor-
steinn, Jón Þórarinsson for-
stöðumaður Lista- og skemmti-
deildar sjónvarpsins og Atli
Heimir Sveinsson formaður
tónskáldafélags íslands ræða
saman um stefnuna í tónlistar-
flutningi útvarpsins, en Ingólf-
ur og Lárus stýra umræðunum.
Þetta verður bein útsending og
gefst hlustendum kostur á að
segja álit sitt á tónlistinni í
Ríkisútvarpinu með því að
hringja til útvarpsins i síma
22260.
JÖKULL RÆÐIR UM ALLT
OGEKKERT
Jökull Jakobsson rithöfund-
ur er með sinn þátt, Hálffimm,
á dagskrá útvarpsins í dag. Jök-
ull hefur dvalizt á Þingvöllum i
smátíma að undanförnu og sam-
ið efni í þáttinn. Hann sagði
Mbl. að i þættinum mundi hann
rabba um daginn og veginn og
taka fyrir það helzta, sem væri
á döfinni, f svipuðum dúr og i
fyrri þáttum.
A AgUstkvöldi
Þáttur Sigmars B. Hauks-
sonar Á ágústkvöldi er á dag-
skrá útvarpsins kl. 20.45 í
kvöld. I þættinum í kvöld kenn-
ir ýmissa grasa að vanda, lesið
verður úr bók Eiriks á Brúnum,
Lítil ferðasaga, um kvenna-
búrin í Kaupmannahöfn fyrir
100 árum og fluttur verður
fyrsti hluti framhaldsleikrits-
ins Hver drap lfkið? eftir Siggu
í Túni. Þá er atriði sem heitir
Kalt er konulausum og er út-
tekt á málsháttum sem fjalla
um konuna, konum eru gefin
nokkur góð ráð til að hrifa karl-
menn og leitað er svara nokk-
urra blómarósa í Reykjavík við
því, hvernig draumaprinsinn
þeirra sé. Annað efni er einnig
i þættinum. Sigmari Haukssyni
til aðstoðar eru Ketill Larsen og
Astríður Emilsdóttir.
KLASSlSK MYND UM
VESTRIÐ
Sjónvarpið sýnir i kvöld
bandaríska kvikmynd gerða af
Howard Hawks árið 1948.
Myndin gerist á árunum eftir
þrælastríðið í Bandaríkjunum.
John Wayne leikur búfjáreig-
anda i Texas sem vill reka naut-
gripahjörð sína inn yfir Rauðá
inn íMissouri áslóðirsem eng
inn hafði áður farið með naut-
gripi. Fóstursonur hans leikinn
af Montgomery Clift er á öðru
John Wayne og Montgomery Clift f myndinni Rauðá (Red
Riv">- raasB mm
««f
5JH í
■
M
$É
Wrn
Guðrún Pálsdóttir og Heiðar Astvaldsson í dansþætti sem sýndur
verður f sjónvarpinu í kvöld.
máli og vill senda gripina til
austurs með lest. Myndin hefur
hvarvetna hlotið hina beztu
dóma og og þykir ein af beztu
myndum Hawks. Myndin er tal-
in sýna á klassískan hátt ólík
viðhorf tveggja kynslóða. Tón-
listina í myndinni samdi Dim-
itri Tiomkin og er hún talin vel
við hæfi myndarinnar.
Sýning myndarinnar hefst kl.
21.20 og lýkur klukkan 23.30.
EIGUM VIÐ AÐ DANSA?
Dansskóli Heiðars Ástvalds-
sonar býður upp á danssýningu
i sjónvarpssal kl. 20.55 í kvöld,
þar sem nemendur og kennarar
skólans koma fram. I þættinum
verða m.a. sýndir táningadans-
ar, dansaður skiptidans, ungt
fólk tengir saman rúmbu og
sömbu og börn sýna mazurka.
Þá sýnir Heiðar Ástvaldsson
danskennari enskan vals ásamt
Eddu Pálsdóttur og Guðrún
Pálsdóttir og Heiðar dansa
Pasa Doble. Þátturinn var tek-
inn upp f apríl sl. en í honum
koma fram rúmléga hundrað
manns.