Morgunblaðið - 16.08.1975, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 16.08.1975, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. AGÚST 1975 X3 Vinnusvæði mörg hundruð manna og stórvirkra vinnutækja við Sigöldu. Framkvæmdir eru f hámarki á þessu sumri og lætur nærri að þar vinni 700 manns. Framleiðslugeta Landsvirkjunar eykst um 40% með Sigölduvirkjun Rœða Jóhannesar Nordals fbrmanns Landsvirkjunar er homsteinninn var í gœr lagður að stöðvarhúsinu Fyrir hönd stjórnar Lands- virkjunar býð ég yður öll vel- komin hingað að Sigöldu, þar sem nú verður lagður horn- steinn að stöðvarhúsi fyrstu virkjunar Tungnaár. Ég vil þakka forseta Islands, dr. Krist- jáni Eldjárn, þá virðingu, er hann sýnir Landsvirkjun með því að taka þátt i athöfn þessari og leggja hornstein þessa mikla mannvirkis. Vér erum ekki hingað komin til að fagna verk- lokum, heldur marka með tákn- rænum hætti lagningu fyrsta steins mikilla bygginga, er verk framtíðarinnar skulu grund- völluð á. Þótt framkvæmdir hér við Sigöldu séu nú vel á veg komnar, er enn geysimikið verk óunnið. Fagnar Landsvirkjun þessu tækifæri til þess að sýna yður hin nýju mannvirki, á meðan þau eru enn i byggingu og innviðir þeirra, sem margir eiga eftir að hyljast af vatni og veggjum, koma skýrt fram. Fyrir skömmu minntist stjórn Landsvirkjunar þess, að tíu ár voru liðin frá þvl, að ríkið og Reykjavikurborg gerðu með sér samning á grundvelli ný- settra laga um stofnun sam- eignarfélags, er hafa skyldi það meginverkefni að sjá fyrir raf- orkuöflun fyrir hið samtengda orkuveitusvæði Suður- og Vesturlands, þar sem nú búa u.þ.b. þrir af hverjum fjórum íslendingum. I þessu skyni var Landsvirkjun falið að hefjast handa um virkjun Þjórsár, mesta vatnsfalls á Islandi, en með byggingu Búrfellsvirkjun- ar, sem fulllokið var með sex vélasamstæðum árið 1972, var SIIEIK Mujibur Rahm- an, sem byltingarmenn tóku af lífi í gær, má með sanni kalla föður Bangla- desh. Bangladesh, sem þýðir Bengalþjóð og tel- ur 75 milljónir manna, varð til upp úr stríði Ind- verja og Pakistana 1971. Dauði Mujibs markar lok þess tfmabils í sögu þjóð- arinnar, sem einkenndist af þjóðernisbaráttu og tilraunum til að koma fótum undir efnahags- Iegasjálfstætt rfki. Þau fjögur ár, sem hann var forsætisráðherra, einkenndust af hungursneyð og pólitiskum óeirðum, sem kostuðu þúsundir manna lífið. Álitið er, að 9.560 hafi verið myrtir síðan 1971 og vWt'Fí i framleiðslugeta vatnsorkuvera á Islandi rúmlega þrefölduð. Annar stóráfanginn I virkjun fallvatna Þjórsársvæðisins er bygging þess orkuvers, sem hér er að rísa. Með Sigölduvirkjun mun framleiðslugeta Lands- virkjunarkerfisins aukast um 850 millj. kllóvattstunda eða um 40%, en auk þess mun hún gera kleift að selja um 400 millj. kílóvattstunda árlega af afgangsorku. Samkvæmt markaðsspám er með þessu vel séð fyrir aukningu eftir spurnar á orkuveitusvæðinu til ársloka 1980, þ. á m. til stór- aukinnar húshitunar, auk orku- sölu til nýs iðnaðar, er rlsa mun 'með byggingu járnblendiverk- smiðju við Hvalfjörð. Val Sigölduvirkjunar sem næsta áfanga í beizlun Þjórsár réðst ekki sizt af því, að hún mun mjög auka rekstraröryggi raforkukerfisins. Ofan við hina miklu stlflu, sem yður verður sýnd á eftir, myndast stöðu- vatn, sem bæði mun bægja frá ísvandamálum og auka miðlunarmöguleika. Eiga þá að nýtast betur en áður miðlunar- félagar I Awami-sambandinu, flokki Mujibs, voru fyrst og fremst fórnarlömb hryðju- verkamanna. Morðið á vinsæl- um flokksbróður hans, sem lá á bæn I musteri I desember 1974, átti mikinn þátt I því, að Mujib tók sér næstum einræðisvald. I janúar kom hann af stað þvl, sem hann kallaði „aðra byltinguna", afnam þingræði og bannaði aðra stjórnmála- flokka en Awami-sambandið, og endurskýrði það Þjóðar- flokkinn, og gerði sjálfan sig að forseta. I baráttu sinni gegn skálmöld I landinu studdist hann mikið við herinn, sem steypti honum á föstudag. Hann lofaði að vinna gegn spill- ingu og koma á heilbrigðari stjórnarháttum, en árangurinn varð harla lítill. Meðal óleystra vandamála úr striðinu eru 350.000 Bihari- mannvirki þau, sem reist hafa verið á undanförnum árum við Þórisvatn. Munu því frekari virkjunarframkvæmdir neðar I Tungnaá og Þjórsá I framtlð- inni njóta mjög góðrar miðl- unar, en I því felst bæði hag- kvæmni og stóraukið öryggi. Undirbúningur orkuvera og bygging er tímafrekari en flestra mannvirkja annarra. Traustar langtimaspár um orkuþörf og áætlanir um bygg- ingu orkuvera og dreifikerfa er því forsenda þess, að ætlð sé til nægileg raforka fyrir hendi á viðunandi verði. Það hefur því verið stefna Landsvirkjunar að undirbúa nýjar virkjanir með nægilegum fyrirvara, þannig að ákvarðanir megi taka tíman- lega og á grundvelli traustra verkfræðilegra áætlana. Nú þegar, — að þessum virkjunar- framkvæmdum hér við Sigöldu rétt hálfnuðum, — er fulllokið verkfræðilegum undirbúningi virkjunar við Hrauneyjarfoss nokkrum kílómetrum neðar I ánni. Benda allar áætlanir til þess, að þar sé um óvenjulega hagstæða virkjun að ræða, enda Mujib — oft f fangelsi. menn, sem eiga meira sameig- inlegt með Vestur-Pakistönum en Bengölum, enda börðust þeir með þeim fyrrnefndu I strlðinu. Vestur-Pakistan telur sig ekki geta tekið við fólkinu og dvelst það því i miklum fangabúðum. Bangladesh varð til úr þjóð- arvakningu, sem vakti hrifn- ingu og velvilja um allan heim, en undir stjórn Mujibs lenti það I pólitísku og efnahagslegu kviksyndi. Landið hefur notið nýtur hún bæði miðlunar Þóris- vatns og Sigöldu, auk hinnar margháttuðu aðstöðu til bygg- ingaframkvæmda, sem hér er fyrir hendi. Þannig er að því stefnt, að með hverjum áfanga bætist nýting þeirrar vatns- orku, sem beizluð hefur verið, og rekstraröryggi kerfisins aukizt. Framkvæmdir við Sigöldu eru I hámarki á þessu sumri, og mun láta nærri, að hér vinni nú um 700 manns. Vil ég fyrir hönd stjórnar Landsvirkjúnar þakka öllum, sem hér leggja hönd á plóginn, atorku þeirra og áhuga, og óska þeim vel- farnaðar I því starfi, sem fram- undan er. Þótt ýmsir þættir verksins séu nokkuð á eftir áætlun, er ekki ástæða til þess að efa, að orkuframleiðsla geti hafizt hér fyrir haustið 1976, eins og að hefur verið stefnt frá upphafi. Fullgerð ætti þá virkjun að verða með þremur 50 MW vélasamstæðum sumarið 1977. Með hverjum virkjun- aráfanga eykst ekki aðeins sköpun verðmæta úr afli ríkulegrar aðstoðar erlendis frá en ekkert bendir til þess, að það muni geta fætt íbúa slna eins og Indland, en fólksfjölg- un er mikil og mun fbúatalan líklega tvöfaldast fyrir næstu aldamót. Sérfræðingar állta, að um 1 milljón manna hafi farizt í hungursneyð 1974, og Bangla- desh er afar háð innflutningi korns og annarra matvæla. Starfsmenn alþjóðasamtaka segja, að spilling, hamstur og brask komi I veg fyrir, að þeir, sem þurfa á hjálp að halda, fái hana. Mujib er fæddur I Austur- Bengal 1920, og voru foreldrar hans sæmilega efnaðir. Hann nam fyrst við Islamiaháskólann I Kalkútta, þar sem hann starf- aði I samtökum múhameðstrú- armanna. Eftir að hann útskrif- aðist þaðan nam hann lög við Daccaháskóla. Arið 1947 gekk hann úr samtökunum sem börð- ust fyrir sameiningu Bengal og Pakistan, og hóf baráttu fyrir þjóðréttindum Bengala, sem vanræktir voru af ríkisstjórn- inni I Karachi, sem er I 1.500 km fjarlægð. Mujib var fangelsaður árið 1948 I stuttan tíma og ári seinna var hánn dæmdur I 3ja ára íslenzkra fallvatna, heldur bæt- ist um leið við þekkingu Is- lendinga og reynslu I byggingu orkuvera og meiri háttar mann- virkjagerð. Þótt vér metúm að verðleikum framlag þeirra fjöl- mörgu erlendu aðila, sem lagt hafa hönd að þessu og öðrum verkum Landsvirkjunar, hljót- um vér að fagna því, að hlutur Islendinga fer æ vaxandi I hönnun, eftirliti og fram- kvæmd nýrra virkjana. Er eindregið að þvi stefnt, að unnt verði að stórauka hlut Is- lendinga I öllum þáttum næstu virkjunar, sem I verður ráðizt. Yrði þetta mun auðveldara, ef hægt verður að halda áfram sleitulaust og ráðast I Hraun- eyjafossvirkjun um það leyti, sem verulega fer að draga úr verkefnum hér við Sigöldu. Þar sem vér erum nú stödd á miðju vinnusvæði mörg hundruð manna og stórvirkra vinnutækja, virðist næsta ótrú- legt, að verið hafi fyrir örfáum árum auðnir ósnortinna öræfa. Þótt kyrrð öræfanna sé nú rofin og ný mannvirki séu að hrevta mörgum dráttum I svip- Jóhannes Nordal. móti náttúrunnar, vonast ég til þess, að frágangur þeirra verði að verklokum slíkur, að enginn efist um, að Island hafi vaxið við þau og batnað. Það er von og trú Landsvirkjunar, að þannig megi halda fram stefn- unni um nýtingu íslenzkra prkulinda: þjóðinni til hag- sældar og I fullri sátt við landið, sem hún byggir. I hylki það, sem ég hef I höndum, hefur verið lagt skjal, þar sem á skinn er skráð saga þess verks, sem hér er verið að vinna. Vil ég biðja forseta Is- lands að taka við því og leggja I hornstein virkjunarinnar. fangelsi fyrir þátttöku I kröfu- göngu. Eftir að Ayub Kahn kom á einræði hersins árið 1958 herti Mujib baráttuna og sat oft I fangelsi. Lagði hann fram til- lögur um aukið sjálfræði Aust- ur-Pakistan, eins og Bengal hét, en lét sig vart dreyma um al- gert sjálfstæði. Þegar Ayub varð að víkja fyrir Yahya Kahn 1970, lofaði sá síðarnefndi að koma á borgarastjórn I Pakist- an. Kosningarnar I desember 1970 voru liður I þvf loforði. I Austur-Pakistan hlaut Mujibur Rahman og flokkur hans öll þingsæti nema 2. Vestur- pakistanska stjórnin undir for- sæti Ali Bhutto grunaði hann um að ætla að kljúfa ríkið og setti hann I fangelsi. Stuðnings- menn hans hófu þá skæruhern- að I Austur-Pakistan og brátt var Pakistanher kominn I spil- ið. Vegna vandamála, sem sköp- uðust þegar flóttamenn tóku að streyma frá Austur-Pakistan til Indlands, sendu Indverjar her inn I Bengal og gáfust hermenn Pakistanstjórnar þá upp. Muj- ib, sem dæmdur hafði verið til dauða, var sleppt og var honum fagnað sem þjóðhetju við heim- komuna. Stofnaði hann svo hið nýja ríki Bangladesh. Mujib lætur eftir sig eiginkonu og fimm börn. Mujibur Rahman - faðir Bangladesh

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.