Morgunblaðið - 16.08.1975, Page 20

Morgunblaðið - 16.08.1975, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. AGÚST 1975 Sonur ekkjunnar þar skaltu biðja um vinnu. Og ef þú þarft mín, þá komdu bara hingað og hringlaðu beislinu, og þá skal ég koma til þín“. „Jú, piltur gerði, eins og hesturinn hafði sagt, og þegar hann var búinn að setja á sig laufparrukið, varð hann svo fölur og ræfislegur í framan, að hann var óþekkjanlegur. Fyrst kom hann í eld- húsið, og bað eldamanninn þess að fá að vera í eldhúsinu og bera eldivið og vatn. En þá spurði eldhússtúlkan: „Hvers- vegna hefirðu þessa andstyggilegu hár- kollu. Taktu hana af þér, ég vil ekki sjá svona ljótan mann hér inni.“ „Ég get ekki tekið af mér kolluna", sagði piltur. „Ég er nefnilega ekki almennilega hreinn í höfðinu“. „Heldurðu að ég vilji hafa þig hér við matinn, fyrst þú ert svona?“ sagði matsveinninn. „Farðu heldur til hesta- sveinsins, þú átt heima í hesthúsinu, piltur minn!“ En þegar hestasveinninn bað hann að taka af sér hárkolluna, fékk hann sama svarið og matreiðslumaðurinn, og vildi þá heldur hafa hann. — „Þú getur farið til garðyrkjumannsins, þú ert víst bestur að róta í moldinni, eins og svín!“ Og hjá garðyrkjumanninum fékk hann svo að vera. En enginn af hinum mönn- unum, sem þar unnu, vildu sofa nálægt honum, og þessvegna varð hann að sofa einn undir tröppunum við garðhúsið, það stóð á stólpum og hafði háar tröppur. Hann reytti dálítið af mosa og bjó sér til bæli undir tröppunum, og lét fara eins vel um sig eins og hann gat. Þegar piltur hafði verið nokkurn tíma í konungsgarði, þá kom það fyrir einn morgun, að í sama mund og sólin rann upp, stóð hann úti við garðhúsið og hafði tekið af sér kolluna, hann var að þvo sér, og hann var svo laglegur, að það var yndi að horfa á hann. Konungsdóttir sá þennan fallega garðyrkjudreng út um gluggann, og fannst hún aldrei hafa séð jafnfallegan pilt áður. Hún spurði garðyrkjumanninn hversvegna hann svæfi undir tröppun- um. „Æ, það vill enginn lofa honum að sofa hjá sér“, sagði garðyrkjumaðurinn. „Láttu hann koma upp í kvöld og sofa fyrir utan herbergisdyrnar mínar, og svo skulum við sjá hvort þeim finnst hann ekki fullgóóur til þess að sofa hjá þeim á eftir“, sagði kóngsdóttir. Þetta sagði garðyrkjumaðurinn svo piltinum. „Heldurðu að mér dettí í hug að gera það“, sagói piltur. „Þá myndu allir segja, að eitthvað væri milli mín og kóngs- dóttur“. „Ja, helst þarftu að vera hræddur um það“, sagði garðyrkjumaðurinn, — „eins fallegur og þú ert!“ „Jæja, fyrst þú skipar, þá verð ég víst að gera þetta“, sagði piltur. Þegar hann svo fór upp tröppurnar um kvöldið, þá trampaði hann og stappaði svo á leiðinni, að það þurfti að áminna hann um að hafa lágt, annars gæti kóngurinn fengið að vita um þetta. Svo kom hann inn í anddyrið, skellti sér þar á gólfið, og fór strax að hrjóta hástöfum. Þá sagði kóngsdóttir við þernu sína: „Læðstu nú og náðu af honum kollunni", og það gerði þernan, en þegar hún ætlaði að ná i hana, greip hann í hana með báðum höndum, og þá náði þernan henni ekki. Því næst fór piltur að hrjóta aftur, og í það skiptið tókst henni að ná hárkollunni og þarna lá nú pilturinn, svona indæll, rjóður og hvítur, eins og vt» MORöJKf kafp/nu Er hann orðinn nógu stór til að vera með boxhanzkana? Ég veit að þú ert saklaus. — Þú Eitt högg enn og þá ertu ekki veizt að þú ert saklaus — en læknir lengur heldur dauður vita allir sjónarvottarnir það? læknir. Kvikmyndahandrit aö morði Eftir Lillian O'Donnell Þýðandi Jóhanna Kristjónsdóttir. 22 eigin spýtur og ég laðaðist sncmma að leikhúsinu. Þvf miður hafði ég enga hæfilcika og ég gerði mér grein fyrir þvf sjálfur! Þvf var ekki um annað að ræða en leita að og styðja hæfileika ann- arra. Að ég yrði sjálfstæður kvik- mynda- eða leikhússtjóri kom ekki tfl greina vegna þess að fjöl skyldan vildi ekkí styrkja mig peningalega og þá var aðeins einn möguleiki eftir fyrir mig; að verða umboðsmaður leikara. En það er ekki eins einfalt og maður gæti hyllzt til að halda f fyrstu og ég uppgötvaði fljótiega að ekki var nóg að opna sjálfstæða skrif- stofu. Þær stjörnur, sem þegar höfðu öðlast frægð og frama höfðu enga þörf fyrir mig, en óþekktu Ieikararnir sáu mig ekki f friði eina stund. Ég var ekki nógu ákvcðinn'og ég sá að allt var að renna út f sandinn. Tíl að bjarga þessu sá ég að ekki yrði hjá þvf komist að ég fyndi ein- hverja stjörnu sem hægt væri að tryggja að kæmist áfram. Lausnin á vandamáli mfnu birtist mér þegar ég heyrði um Mariettu Shaw. Sögusagnir gengu um að JK gamli hefði uppgötvað nýja Gretu Garbo og héldi henni leyndri fyr- ir umheiminum, þangað til hún hefði verið slfpuð og fáguð. En skömmu sfðar fréttist að henni gengi ekki allt of vel. Hér var sem sagt á ferðinni kona sem hafði enn ekki skapað sér nafn, en hafði þó komið tánni inn fyrir dyrnar. Tækist mér að leysa mál hennar þá gætum við f samein- ingu unnið okkur upp á við. Eg fylgdist lengi með henni svo að Iftið bar á og það ver ekki auðvelt verk, þvf að JK gerði allt sem hann gat til að vernda hana og gæta þess að enginn kæmist f tæri við hana. En ég sá að hér var stórkostiegt efni á ferðinni, svo fremi sem rétt væri að henni bú- ið. Hún gerði sér Ijóst, að hún tók engum framförum, en meðfætt sjálfstraust hennar var óbugað. Afleiðingin var sú að hún var niðurdregin og vondauf — og þá var kominn tfmi til að ég birtist á sviðinu. Hagen hallaði sér aftur f sófan- um, spennti greipar yfir breiðri bumbunni og hvarf inn f endur- minningalandið, komst sem sagt f sams konar ástand og Link hafði séð tvo aðra menn gera. Það var steikjandi hiti daginn sem ég ákvað að hafa samband við hana og ég var óstyrkur f meira lagi. Það er óhætt um það! Ég fór til kvikmyndaversins, þar sem kennsla stjörnuefna fór fram og beið eftir að gefið yrði há- degisverðarhlé. Ég hafði fylgst með henni úr fjarska, eins og ég hef vikið að, og vissi að hún hélt sig mikið út af fyrir sig og borð- aði yfirleitt ein. Ég beið lengi, en þó að hin væru flest löngu komin á vettvang sá ég henni hvergi bregða fyrir. Um það bil sem ég var að hugsa um að tygja mig til brottferðar kom hún. Ég sá að hún hafði grátið. Ég lét hana f friði dálitla stund, svo gekk ég að borðinu hennar og kynnti mig. Ég sá að enni hennar var baðað f svita. Hún var klædd f þunnan ermalausan kjól sem var nánast Ifmdur við lfkama hennar og sýndi vissulega þokka hans I rfkum mæli. Ég bið ykkur að mis- skilja mig ekki. Ég hafði séð konulfkami áður og það var ekki beinlfnis þokki hennar sem dró mig að henni. Það var þetta óáþreifanlega f fari hennar, sem má kannski kalla „útgeislun" þótt það hljómi tilgerðarlega. Ég var heillaður af henni. Auðvitað var mér kunnugt um söguna um málverkið og Brahm og hvernig hún hafði egnt fyrir Kroneberg og ég hafðí heyrt um framhleypni hcnnar, en á þessari stundu fannst mér hún næstum feimin. Ég gleymdi samstundis öllum mfnum eigin áformum og sú hugsun komst ein að hjá mér að mig langaði til að styðja hana og styrkja. — Hver eruð þér? spurði hún og horfði kuldalega á mig. — Ég heiti Bill Hagen. Ég er umboðsmaður. — Ég þarf ekki á umboðsmanni að halda. Ég er kominn á sjö ára bráðabirgðasamning við fyrir- tækið. — Já, og fyrsti frestur rennur út eftir hálfan mánuð. En ég býst ekki við að þeir varpi yður á dyr að svo stöddu. JK gamli gefst ekki svo glatt upp, hann hefur fjárfest of míkið I yður til þess. En þegar bráðabirgðasamningurinn verður endurnýjaóur næst — eftir hálft ár, haldið þér að hann verði þá jafn áhugasamur? — Þá verð ég búin að leika f tveimur kvikmyndum, sagði hún, en ég tók eftir þvf að hún beit á vör sér. — Ekki með þeim hægagangi sem er á öllu, benti ég á. — Ungfrú Shaw. Hagsmuna yðar er engan veginn gætt svo að nein mynd sé á. Þér eyðið tfma yðar til ónýtis við þetta fokk hér og verðið ráðiaus og örvæntingar- full. Bezta aðferðin fyrir yður er að ráðast strax til atlögu. Ég get farið á fund JK fyrir yðar hönd og skýrt það fyrir honum og talið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.