Morgunblaðið - 16.08.1975, Side 22

Morgunblaðið - 16.08.1975, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. AGUST 1975 Ólafur Bjarnason skipstjóri -Minning Fæddur 18. september 1894. Dáinn 8. ágúst 1975. Föstudaginn 8. þ.m. andaðist Ólafur Bjarnason skipstjóri í Keflavík. Fæddur var hann hér í Keflavík hinn 18. sept. 1894. Hér ól hann allan sinn aldur. Ölst hér upp með foreldrum sínum Vil- borgu Benediktsdóttur og Bjarna Ólafssyni útvegsbónda, sóma og dugnaðarfólki, sem tók mikinn þátt í uþpbyggingu bæjarfélags okkar. Bjarni faðir hans var einn af dugmestu formönnum og sjó- sóknurum árabátaflotans hér um slóðir, aðgætinn, sækinn og feng- sæll. Stórbrotinn athafnamaður þeirra tfma. Á þeim tímum reyndi á útsjón þeirra er með skipstjórn fóru. Var þá hvorki treyst á veðurfréttir né nútíma siglinga- tækni. Við þessar aðstæður ólst Olafur upp og varð snemma þátttakandi í baráttunni við Ægi. Fyrst á opnu skipunum og siðar um áratugi skipstjóri á vélbátum, lengst af þeim, sem báru nafnið Sæfari. ,Faðir hans og fleiri stórhuga framfara- og athafnamenn höfðu forgöngu um kaup og útgerð einna fyrstu vélbátanna hér. Gerðist Ólafur ungur skipstjóri á þeim. I fyrstu voru bátar þessir aðeins nokkurra smálesta en fóru smástækkandi, eftir því sem þeir voru endurnýjaðir. Alla starfsævi sina helgaði Ólafur sjónum eða sjávarstörfum. Þar var réttur . maður á réttum stað. Hagsýni og gætni voru sterkir þættir í athöfn- um og störfum hans. Starfsfélaga í útgerðarrekstrinum valdi hann eftir því. Lengst af línnu þeir saman að útgerðarmálum æsku- vinirnir Elías sál. Þorsteinsson og hann. Unnu þar saman framsýnir og framgjarnir áhogamenn, sem fúsir voru til nýbreyttni í veiðiaðferðum og varð árang- ur starfsins eftir því. Vin- átta þeirra var traust og end- ingargóð meðan báðir lifðu. — Ólafur var óáleitinn ágæt- ismaður. Hversdagshægur, en hélt sina braut með hógværð en festu. Mannheill hafði hann mikla og voru sömu menn í skiprúiui hjá honum árum sarnun. Veit ég af persónulegum kynnum við marga þeirra, að vel báru þeir honum söguna um viðkynningu og skipstjórn. — Hann var ekki viðhlæjuudi allra en Iryggur vinur vina sinna. Naut þess að vera með fólki og ræða áhugamál sín og dægurmálin. Gamansamur var hann og léttmáll i sinn hóp, en gerði Iítið að því að trana sér fram. Langskólanáms naut hann ekki. Hæfileika til þess skorti þó ekki því hann var greindur vel og einkar athugull, eins og fyrr segir, en krókurinn beygðist fljótt að því, sem verða vildi, starfi sem hann helgaði sér. — Hann var einn af forustumönnum þessarar byggðar í uppbyggingu þeirrar Keflavikur, sem við nú búum í. Breytingarnar eru miklar frá þvi hann fyrst hóf sfn sjómanns- störf á opnum bátum við hafn- lausa strönd til þess, sem nú er. Lengi framan af skipstjórnartima hans lágu bátar við legufæri hér á víkinni. Varð þá oft þegar illa viðraði að skipa afla og veiðar- færum i land á erfiðum upp- skipunarbátum. Voru það engar sældarferðir, erfiðar og oft hættu- iegar. Minnisstæðar eru þær þeim, sem í landi voru og horfðu á, eins og að sjálfsögðu þeim sem við þetta unnu. Ekki minnist ég þess að Ólafi hlekktist á við þessi störf. I heimilislífi hygg ég að Ólafur hafi verið einkar farsæll í sam- búðinní við konu sína, Severínu Högnadóttur, hina mestu dugnaðar- og ráðdeildarkonu. Ekki fór hann um langa vegu til að afla sér konunnar. Bæði inn- fæddir Keflvikingar og nágrannar frá frumbernsku. Með hógværð og hyggindum hafa þau búið sér gott heimili, sem þau hafa unað í langa ævi. Eina dóttur barna eignuðust þau, Elínu, sem gift er Marteini Árnasyni kaupmanni í Keflavik. Samheldni er mikil með fjölskyld- unni. Nú er Ólafur horfinn. Hann leit oft inn hjá okkur hjónum. Nú er því lokið. Við söknum þeirra stunda. Samúðarkveðjur sendum við þeim mæðgum og fjölskyldum þeirra, og biðjum Ólafi farar- heilla. Þorgr. St. Eyjólfsson. Mig langar til þess að minnast nokkrum orðum vinar okkar Ólafs Bjarnasonar skipstjóra frá Keflavík, sem lézt f Landakots- spítala hinn 8. þ.m. Ekki treysti ég mér til þess að rekja hér ættir Ólafs eða ævistarf, þótt hann hafi sagt mér undan og ofan af ýmsu, sem á daga hans dreif, enda munu sjálfsagt mér kunnugrj menn um þau fjalla. Hann kvæntist frænku minni, Severínu Högnadóttur, h. 21. október 1921 og bjuggu þau allan sinn búskap í Keflavík. Eina dóttur eignuðust þau, Elínu, sem gift er Marteini Árnasyni bóksala í Keflavík. Ólafur stundaði útgerð og for- mennsku fram undir 1960 að hann hætti til sjós en hóf störf i landi. Ekki get ég sagt að ég hafi kynnzt Ólafi að nokkru ráði fyrr en eftir að hann hætti sjómennsk- unni, en eftir það lágu leiðir okkar oft saman. Hann var mikill áhugamaður um allt, er að sjó- sókn laut og fiskverkun og fylgd- ist ótrúlega vel með öllu, sem var að gerast í þeim málum fram til hins siðasta. Oft var gaman að ræða við þennan reynda sjómann um veiðihorfur o.fl. Hann reyndist furðulega oft sannspár. Hann ræddi jafnan málin af alvöru, sem þó var blönduð þægi- legri kimni og gamni. Eftir að Ólafur hætti sjó- mennsku gaf hann sér betri tíma en áður til þess að bregða sér í silungs- eða laxveiði með Marteini, tengdasyni sfnum, og þeim mæðgunum, Rínu og Ellu. Hann hafði mjög gaman af þessu, — fór reyndar í sina síðustu veiði- ferð í sumar. Nokkuð voru veiði- sögur hans frábrugðnar hinum hefðbundnu, — enda vanur meiri afla en þeim, sem menn koma með úr slikum ferðum, — en þeim mun gamansamari. Það eru nú rúm fimmtíu ár síðan Rína, eftirlifandi eiginkona Ólafs, og tengdamóðir mín, Margrét heitin Jónsdóttir, kynntust og með þeim tókst vin- átta, sem hélzt meðan báðar lifðu. Ólafur átti vissulega sinn góða þátt í því. Þessi vinátta varð til þess, að sú hefð komst á, að Óli og Rína dvöldu hjá okkur hver áramót um nokkurra ára skeið. Ég minnist þess, hve börnin okkar hlökkuðu til á gamlársdag að fá að fara suður í Keflavík að sækja þau. — Þá var hátíðin byrjuð í hugum þeirra. Það kom alltaf einhver ferskur blær með þeim og gaman- semi Ólafs lífgaði upp á þessi hátíðlegu tímamót. Síðustu áramót urðu því okkur hjónunum og ekki síður börn- unum okkar aðeins svipur hjá sjón, vegna þess að heilsa Óla og Rinu leyfði ekki að þau kæmu. Nú er Ólafur horfinn, og við eigum öll bágt með að sætta okkur við það. Mér finnst sem Ólafur hafi til- einkað sér heilræði Hávamála: glaðr ok reifr skyli gumna hverr unz sinn blðr bana.“ Þannig kynntist ég honum, og þannig kom hann mér fyrir sjónir, — sáttur við Guð og menn. Ég vil að endingu þakka Ólafi og Rínu frænku minni tryggð þeirra og vináttu við tengda- móður mína alla tíð og ekki sízt eftir að hún varð ekkja og farin að heilsu, svo og góðvild þeirra og vináttu við okkur hjónin og ^börnin okkar. Við sendum svo þér, elsku Rína, okkar innilegustu samúðar- kveðjur, svo og Ellu, Matta og börnunum þeirra og erum hjá ykkur i huganum í dag. Góðan Guð biðjum við að blessa Ólaf um alla eilífð, en gefa ykkur huggun og styrk. Einar. Kristín Magnúsdóttir Skógum — Minning Fædd 12.2. 1887. Dáin 7. 8. 1975. I dag verður til moldar borin frá Asólfsskálakirkju undir Eyja- fjöllum Kristín Magnúsdóttir i Skógum, sem um langt skeið var húsmóðir í Vallnatúni i Eyja- fjallasveit. Hún andaðist á Land- spítalanum í Reykjavik eftir skamma legu hinn 7. þ.m. Með Kristinu er gengin gagnmerk heiðurskona, sem gott og vert er að minnast. Kristín fæddist hinn 12. febr- úar 1887 í Norður- Búðarhólshjáleigu í Austur- Landeyjum. Foreldrar hennar voru Magnús Magnússon bóndi þar, og kona hans Jóhanna Magn- úsdóttir, bæði af traustum rang- æskum ættum. Sem kornabarn var Kristín tekin f fóstur af Jóni Einarssyni, bónda á Yzta-Skála undir Eyjafjöllum, og konu hans Kristínu Björnsdóttur, og þar ólst hún upp til fullorðinsaldurs. Árið 1908 fluttist hún með fósturfor- eldrum sínum til Vestmannaeyja og átti langst af heima í Hlaðbæ til 1919, er leið hennar lá aftur til Eyjafjalla. Svo sem nærri má geta, vandist Kristín snemma hvers kyns störfum eins og títt var um börn og unglinga á fyrri árum, enda starfsöm og tápmikil frá fyrstu tið. Framan af ævi vann hún mest á heimili fóstur- foreldra sinna, en stundaði þó ýmsa vinnu annars staðar eftir að hún komst til fullorðinsára og m.a. fór hún í kaupavinnu til Austfjarða og í vist í Reykjavík. Árið 1919 urðu þáttaskil í lífi Kristínar, því að þá giftist hún eftirlifandi manni sinum, Tómasi Þórðarsyni frá Varmahlíð undir Eyjafjöllum. Hófu þau hjónin sama ár búskap i Vallnatúni í Eyjafjallasveit og bjuggu þar samfleytt til 1959 cða i 40 ár í Vallnatúni vegnaði þeim vel, enda hjónin samhent í bezta lagi, dugmikil og úrræðagóð. Tómas vann oft utan heimilisins við sjó- sókn, smiðar og fleira, og hvíldi t Eiginkona min BIRTA FRÓÐADÓTTIR, Dalsgarði. Mosfellssveit, lézt 9 þ m Jarðarförin hefur farið fram Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna. Jóhann Kr. Jónsson. t Dóttir mín, ÞÓRA GUOMUNDSDÓTTIR, Háaleitisbraut 46, andaðist 1 4 ágúst Kristín Vigfúsdóttir. t Dóttir mín og móðir okkar, SJÖFN BJÖRNSDÓTTIR, lézt 1 3 þ m Björn Gislason, Bonnie Laufey Dupuis, Linda Lee Dupuis, Debora S. Dupuis. t Þökkum auðsýnda samúð við fráfall og útför eiginkonu minnar, dóttur, móður og tengdamóður, HALLDÓRU GUÐMUNDSDÓTTUR, Barmahlið 35, Stefán Steingrimsson, Marta Þorleifsdóttir, Stefán Stefánsson, Guðmundur Hilmar Hákonarson, Maria Valdimarsdóttir. t Þökkum innilega auðsýnda samúð viðandlát og jarðarför BRYNJÓLFS GUÐMUNDSSONAR, járnsmiðs, frá Miðdal, Selásbletti 22, Reykjavík Vandamenn. t Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og útför HALLDÓRS GUÐMUNDSSONAR frá Seli Holtum Kristin Ingimundadóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. þá forsjá búsins mjög á Kristínu og fórst henni það allt vel úr hendi. Börn þeirra Vallnatúns- hjóna urðu fjögur. Elztur var Kristinn stálsmiður í Reykjavík, þá Þórður, safnvörður í Skógum, Þóra Sigríður starfsstúlka á Land- spítalanum í Reykjavík, og Guð- rún, húsmóðir í Skógum, gift Magnúsi Tómassyni, smið, frá Skarðshlið. Eru öll þau systkin hið mesta dugnaðar- og myndar- fólk. Arið 1959 hættu þau Kristín og Tómas búskap í Vallnatúni og fluttust að Skógum, þar sem þau áttu heimili ásamt börnum sínum Þórði og Guðrúnu, en um það leyti gerðist Þórður forstöðu- maður Byggðasafnsins þar og jafnframt kennari við Skóga- skóla. 1 Skógum reisti fjölskyldan frá Vallnatúni sér gott ibúðarhús og eignaðist þar fagurt og friðsælt heimili, þar sem öllum þótti gott að koma. Kristin Magnúsdóttir átti löng- um við góða heilsu að búa og vann I höndum eða las i bók fram undir það síðasta. Hún var skynsöm kona, margfróð, langminnug, víð- lesin og viðræðugóð og alltaf gott til hennar að leita. Síðustu ævi- árjn naut hún góðs skjóls og að- hlynningar á heimili Guðrúnar, dóttur sinnar og manns hennar, Magnúsar Tómassonar, umvafin ást og umhyggju fjölskyldu sinnar. Þá voru ættingjar og vinir á nálægum slóðum og margir lögðu leið sína til hennar og Tóm- asar, enda var þar ætíð gestrisni og góðvild að mæta. Að Ieiðarlokum færi ég og fjöl- skylda mín Kristínu Magnús- dóttur hugheilar þakkir fyrir ágætt nágrenni nú um langt skeið. Við vitum að leiðin er orðin löng og hvíldin kær. En við sökn- um vinar í stað og minnumst hennar með trega og virðingu, Eftirlifandi eiginmanni hennar, Tómasi Þórðarsyni, börnum þeirra og vandafólki öllu, vottum við dýpstu samúð okkar. Blessuð sé minning Kristínar Magnúsdóttur. Jón R. Hjálmarsson t Sonur okkar og bróðir LEIFUR HRAFNSSON lézt á landspítalanum 1 1. þ.m. Jarðarförin hefur farið fram Hrafn Harðarson Anna SigrFSur Einarsdóttir Hörn Hrafnsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.