Morgunblaðið - 22.08.1975, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. AGÚST 1975
Sigurjón Pálsson
Hjörtsbœ — Minning
Fæddur 12. ágúst 1896.
Dáinn 15. ágúst 1975.
I dag fer fram frá Fossvogs-
kirkju útför Sigurjóns Pálssonar,
en hann lést i Borgarspítalanum
síðast liðinn föstudag, nýlega orð-
inn 79 ára.
Sigurjón fæddist í Hjörtsbæ í
Keflavík og ólst þar upp hjá for-
eldrum sínum, Páli Magnússyni
og Þuríði Nikulásdóttur, ásamt
systkinum sínum þeim Sigríði,
Sigurði, Magnúsi, Guðlaugu og
Jóni sem nú eru öll látin. Sigur-
jón fór ungur til sjós og stundaði
sjó meðan hann bjó í foreldrahús-
um, síðast á m.b. Huldu, sem hann
og Magnús bróðir hans áttu sam-
an.
Sigurjón kvæntist 20. mai 1920
eftirlifandi konu sinni, Helgu
Finnsd. Sifurfinnssonar og Ólafar
Þórðardóttur, er ættuð voru und-
an Eyjafjöllum. Þau bjuggu
fyrstu árin ýmist í Vestmannaeyj-
um eða Keflavík og stundaði
Sigurjón þar alla almenna vinnu
til sjós og lands. Árið 1930 flytur
Sigurjón með fjölskyldu sína til
Reykjavíkur, á þeim árum og allt
fram til 1940 þóttist hver maður
góður ef hann fékk að vinna og
beindist öll verkalýðsbarátta
þeirra ára fyrst og fremst að því
að fá vinnu. Sigurjón skildi gildi
þess að verkamenn stæðu saman
og gekk strax í Dagsbrún og var
þar ætíð dyggur félagi.
Sigurjón vann nú öll almenn
störf er til féllu í Reykjavlk, bæði
á sjó og landi. Síðustu 25 árin var
hann fastur starfsmaður hjá
Grjótnámi Reykjavlkurborgar við
vélgæslu.
Sigurjón var kominn yfir sjö-
tugt þegar hann fyrst eignaðist
'sína eigin Ibúð, að Ferjubakka 10,
fram að því bjó hann með fjöl-
skyldu sinni I ýmsum leiguíbúð-
um I Reykjavík. Oft var þröngt á
þingi, þegar börnin voru öll
heima og Helga, konan hans, var
með heila saumastofu I gangi, því
hún er saumakona af Guðs náð og
hefur aflað heimilinu lífsviður-
væris með því, þegar annað var
ekki að hafa.
Sigurjón og Helga eignuðust 6
börn: Tvíburana Sigurjón Helga,
en hann lést aðeins 17 ára gamall
og var öllum harmdauði, og mun
það sár aldrei hafa gróið I hjarta
Sigurjóns. Finn, sem nú er bóka-
vörður hjá Bókasafni Seltjarnar-
ness, og dæturnar Hennýju Dag-
ný, sem gift er Einari Þorsteins-
syni hárskera, Ólöfu Ingibjörgu,
sem gift er Helga Eiríkssyni aðal-
bókara, Pálínu Þurlði, sem gift er
Sigmundi R. Helgasyni skrifstofu-
stjóra og Jóhönnu Kristínu, sem
gift er Fróða Ellerup vélstjóra.
Heima hjá Sigurjóni og Helgu
fæddist einnig þeirra elsta barna-
barn, dótturdóttirin Sigrún Dúfa,
og átti þar heima fimm fyrstu
æviár sín og alltaf sem ein af
dætrunum.
Fjölskyldan var Sigurjóni allt.
Hann bjó I farsælu hjónabandi I
rúm 55 ár og voru hann og Helga
mjög samhent i því að gera heim-
ili sitt hlýlegt og þótt húsakynni
væru ekki alltaf mikil var alltaf
nóg rúm fyrir gesti og sannast þar
+
Eiginmaður minn
GUÐMUNDUR HRÓBJARTSSON
frá Landlyst i Vestmannaeyjum.
andaðist að heimili sinu. Hátúni 10 A miðvikudaginn 20 þ m
Þórhildur Guðnadóttir.
+
Maðurinn minn, faðir okkar og sonur,
HARALDUR N. JAKOBSSON
Hverfisgötu 32 B.
sem andaðist 16. þ.m. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju laugar-
daginn 23. þ.m. kl. 10.30. f.h. Blóm afþökkuð, en þeir sem vilja
minnast hans láti góðgerðarstarfsemi njóta þess.
Jónína Sísí Bender
börnin og foreldrar.
+
Útför eiginmanns míns
SIGURJÓNS PÁLSSONAR,
frá Hjörtsbæ, Keflavík,
Ferjubakka 10.
verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 3.
Helga Finnsdóttir.
+
Minningarathöfn um eiginmann minn, ^
SIGURÐ ÞÓRI ÁGÚSTSSON
flugvirkja,
verður haldin laugardaginn 23. þ.m. kl. 11 f.h. i Bústaðakirkju.
Fyrir hönd vandamanna
Oddrún Pálsdóttir.
+
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og útför
sonar míns, föður okkar og bróður
BIRGIS EINARS SIGURÐSSONAR
Petrína Jónsdóttir,
Berglind Birgisdóttir,
Kristln Birgisdóttir,
Auður S. Barnes,
Hlöðver Sigurðsson.
hið fornkveðna, að nóg er hús-
rými þar sem hjartarými er.
Sigurjón fylgdist mjög vel með
líðan barna sinna, barnabarna og
annarra nákominna og var alltaf
fyrsti maður á vettvang ef ein-
hver slys eða veikindi hentu fjöl-
skyldu hans, lá stundum við að
ákafi hans væri broslegur, þá er
hann kom beint úr grjótmulnings-
vélinni heim til einhvers nákom-
ins, sem hlotið hafði minni háttar
meiðsl, en hann tók þetta allt al-
varlega. Svona var Sigurjón. Góð-
ur maður er genginn, maður, sem
öllum þótti vænt um, er honum
kynntust. Megi minning hans lifa.
Loftur Baldvinsson.
ir, til Keflavíkur eða bara ekið
um bæinn, þá var oft glatt á
hjalla, ýmist sungið eða sagt frá
bæjum eða öðru, sem fyrir augu
bar á leiðinni. Þá koma fram I
hugann samverustundir um jól og
aðrar stórhátlðir og þá ekki hvað
slzt þann tíma, sem fjölskylda
okkar bjó heima hjá afa og ömmu
I Ferjubakka, það var ekki langur
tími, en þeim mun ánægjulegri.
Einnig eigum við systkinin ó-
gleymanlegar endurminningar
frá ferðalögum með honum I Dan-
mörku, en þar var afi hrókur alls
fagnaðar og naut þess að hafa
okkur með sér.
En hvað sem skoðað var og
hvert sem farið var á erlendri
grundu, þá var Islendingseðlið
svo sterkt, að ekkert jafnaðist á
við Island og það, sem íslenzkt
var. Við þökkum forsjóninni fyrir
það að hafa átt hann fyrir afa —
hann var alla tíð svo góður okkur
og reyndar öllum slnum barna-
börnum og barnabarnabörnum,
allur hugur hans var bundinn
fjölskyldunni, ef einhver var
veikur, þá var hann annaðhvort
kominn á staðinn eða búinn að
hringja, því hann vildi fylgjast
með öllu — alltvar þetta hluti af
hondum sjálfum.
En nú er hann allur og ekki
kemur hann oftar til dyra með sitt
ljúfa bros — við söknum öll vinar
I stað, en ekki hvað sizt yngsti
dóttursonurinn, Helgi Kr., sem
átti þvi láni að fagna að dveljast
meira og minna hjá afa og ömmu
síðast Iiðna vetur og naut þar um-
hyggju þeirra beggja. Afi var trú-
maður mikill, þótt hann/hefði
ekki hátt um það, og margar voru
bænirnar, sem hann bað fyrir
okkur systkinunum og öllu sínu
fólki. Hafi hann þökk fyrir þetta
allt.
Sigurjón afi fæddist I Keflavík
12. ágúst 1896, sonur hjónanna
Þuríðar Nikulásdóttur og Páls
Magnússonar, útvegsbónda frá
Hjörtsbæ i Keflavík. Bræður hans
voru Magnús og Jón og systirin
Guðlaug, sem öll bjuggu I Kefla-
vík og eru nú látin. Þau voru
alsystkin. Börn Þuríðar frá fyrra
hjónabandi voru Sigríður og Sig-
urður Guðnason, sem einnig eru
látin.
Afi og amma, Helga Finnsdótt-
ir, giftu sig 20. maí 1920 og eign-
uðust 6 börn. Elztir voru Finnur
og Sigurjón Helgi, en hann lézt
1937. Þá koma systurnar Henný,
Ölöf, Pálína og Jóhanna.
Framan af ævinni stundaði afi
sjómennsku bæði I Keflavík,
Vestmannaeyjum og víðar. Eftir
1930 bjó hann I Reykjavik og
stundaði almenna verkamanna-
vinnu, lengst af hjá Grjótnámi
Reykjavíkurborgar, sem vél-
gæzlumaður.
Trú á eigin dug og dáð,
drengskap, vit og bjargarráð,
trú á íslands tign og auð,
trú á meir en þrældómsbrauð
(M. Joch.)
Með þessum Ijóðlínum kveðjum
við afa hinzta sinni.
F.H. okkar systkinanna
Ingibjörg Sigmundsdóttir.
Kveðja frá dótturbörnum.
I dag er til moldar borinn Sigur-
jón Pálsson frá Hjörtsbæ I Kefla-
vlk, F. 1.2. ágúst 1896 — D. 15.
ágúst 1975.
Þú ert fallinn. Það mun sagt,
þú hafir staðið fyrstu vakt,
þú hafir fyrstu þolað hríð,
þú hafir byrjað nýja tið.
(M.Joch.)
Það er erfitt að átta sig á því, að
afi okkar, Sigurjón Pálsson, sé
fallinn frá, svo hraustur var hann
alla tíð, en eigi má sköpum renna.
Nú á kveðjustundu koma fram I
hugann ljúfar minningar um
hann frá ánægjulegum samveru-
stundum bæði heima hjá afa og
ömmu og á heimili okkar.
Við gleymum aldrei hlýja hand-
takinu hans eða gleðiglampanum
I augum hans, þegar farið var I
helgarferðir ýmist austur I sveit-
+
Konan mín og fósturmóðir
GUÐRÚN
SIGURJÓNSDÓTTIR
Drápuhlið 4, Reykjavík
andaðist á Landakotsspítala 20
þ.m.
Þorvaldur Jóhannesson
Haukur Gunnarsson.
+
Þökkum hjartanlega alla vináttu
og samúð, sem okkur var sýnd
við andlát og útför
GEIRS VIGFÚSSONAR,
bónda,
Hallanda, Hraungerðishreppi.
Margrát Þorsteinsdóttir,
börn, tengdabörn
og barnabörn.
+
Þökkum innilega auðsýnda
samúð við andlát og jarðarför
föður okkar, tengdaföður og afa,
ÞORBJÖRNSJÓNSSONAR,
Skipasundi 42.
Börn, tengdasynir og barna-
börn.
Sjöfn Björnsdótt-
ir — Minning
Mig langar til að minnast með
örfáum orðum vinkonu minnar,
Sjafnar Björnsdóttur, sem borin
er til moldar I dag. Hún fæddist I
Reykjavík 30. nóvember 1933.
Foreldrar hennar voru Björn
Gislason, bilstjóri, og Laufey
Bjarnadóttir, sem lézt fyrir
nokkrum árum. Sjöfn var ein af
fjórum dætrum þeirra mætu
hjóna.
Kynni okkar Sjafnar hófust
þegar við vorum sjö ára gamlar og
byrjuðum fyrstu skólagönguna I
Landakotsskólanum. Þar sátum
við saman ásamt annarri vinkonu,
urðum samferða I skólann og Iék-
um okkur saman I fristundum.
Einnig áttum við sama fermingar-
dag og síðar sama giftingardag.
Mér . er minnisstæður dagur
nokkru fyrir fermingardaginn að
við fórum saman þrjár stöllurnar
i bæinn til að kaupa fermingar-
gjafirnar. Ekki var nú hugmynda-
flugið mikið, því eins hlut keypt-
um við handa hver annarri.
Sjöfn var ljúf stúlka og umtals-
góð og alltaf tilbúin að rétta hlut
þess sem lægra hlut beið I lífsbar-
áttunni.
Leiðir okkar skildu er Sjöfn
giftist eiginmanni síðun, William
Dupuis 4. apríl 1953 og fluttist
með honum til Bandaríkjanna.
Leiðir þeirra skildu. Þau eígnuð-
ust þrjár dætur, Bonnie, Debbie
og Lindu, sem allar komu með
móður sinni til tslands eftir að
hún fluttist aftur heim.
Sjöfn átti við vanheilsu að
stríða siðastliðin ár. Lífið var ekki
dans á rósum fyrir Sjöfn alla tíð.
I dag þegar ég kveð æskuvin-
konu langar mig til að þakka sam-
verustundir okkar um leið og ég
bið Guð að styrkja föður hennar,
dætur, barnabörn og systur.
Hvíl þú I friði.
Stella Ólafsdóttir.
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Hvers vegna nota prestar orðalagið „fullt hjálpræði"?
Finnst yður þetta ekki gamaldags?
Biblían segir: „Fyrir því getur hann og til fulls
frelsað þá, sem fyrir hann ganga fram fyrir Guð.“
(Hebreabréfið 7,25)
Ég er fyrir mitt leyti ófeiminn að nota þetta
orðalag, „fullt hjálpræði“, sem kallað er gamal-
dags. Guð vill aldrei gera neitt til hálfs. Ég vil
ekki vera hálf-frelsaður. Ef þér væruð vélvirki,
yrðuð þér móðgaður, ef þér væruð kallaður hálf-
ur vélvirki. Ég vil vera eitthvað algjörlega, og ef
ég ætla að vera kristinn, þá vil ég vera sannkrist-
inn. Ef ég ætla fyrir náð Guðs að iðka trúna, þá vil
ég, að það sé algjör trú, ósvikin, ekta.