Morgunblaðið - 14.10.1975, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.10.1975, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR MEÐ 4 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 234. tbl. 62. árg. ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1975_______Prentsmiðja Morgunblaðsins. Hækkun fjárlagafrumvarpsins 21,5%: — 12% vörugjald fellt niður um áramót Sjá nánar greinargerð f járlagafrv. á bls 16. FJÁRLAGAFRUMVARPIÐ fyrir árið 1976 var lagt fram á Alþingi f gær. Heildarútgjöld rfkisins á næsta ári skv. þvf eru áætluð 57,4 milljarðar króna. Er þetta 21,5% hækkun frá fjárlögum yfirstandandi árs en til saman- burðar má geta þess, að f járiög hækkuðu um 60,6% milli áranna 1974 og 1975. Greiðsluafgangur skv. frv. er áætlaður 220 milljónir króna. Megineinkenni þessa fjárlagafrumvarps er 4700 milljón króna sparnaður á útgjöldum frá því, sem verið hefði, ef öllum kostnaðarhækkunum sem nema 45—50% í ár, hefði verið fylgt. Þessi sparnaður er framkvæmdur með eftirtöldum hætti: • Ríkisstjórnin boðar frumvarp um breytingar á lögum um al- Bandaríska öldungadeildin: 200 mílurnar teknar fyrir á næstu vikum FRUMVARPIÐ um útfærslu bandarísku fiskveiðilögsögunnar í 200 mílur var sem kunnugt er af fréttum afgreitt úr nefnd til öld- ungadeildarinnar fyrir einum tveimur vikum, og bfður nú af- greiðslu f deildinni sjálfri, en f sfðustu viku samþvkkti fulltrúa- deildin frumvarp þessa efnis. Að sögn Haralds Kröyer sendiherra Framhald á bls. 39 mannatryggingar. Sparnaður: 2000 milljónir. Niðurgreiðslur á búvörum verða minnkaðar um fjórðung. Sparnaður: 1425 milljónir. Utflutningsuppbótum á land- búnaðarvörum verður haldið innan núverandi marka: Sparnaður: 870 milljónir. Ríkisstjórnin mun leggja fram ’frumvarp um 5% niðurskurð á lögbundnum framlögum á fjár- lögum. Sparnaður: 300 milljónir. Vikulegum kennslustundum á grunnskólastigi verður fækkað. Sparnaður: 50 milljónir. 12% vörugjald verður afnumið um áramót og veldur 12 stiga lækkun framfærsluvísitölu, sem þurrkar út 10—11 stiga hækkun vísitölunnar vegna minni niðurgreiðslna. Sparn- aður fyrir skattborgara (ásamt tollalækkunum): 4000 milljónir. i Útgjaldaauki neytenda vegna Framhald á bls. 39 Sakharov reynir að útvega ferðaleyfin Moskvu, 13. október. NTB.—Reuter. ANDREI Sakharov, sovézki Nóbelshafinn, hefur ákveðið að hefjast handa við að reyna að fá leyfi opinberra stjórnvalda í Moskvu til að fara til Osló og veita friðarverðlaununum við- töku 10. desember n.k. Sakharov segir f samtali við fréttamann NTB-fréttastofunnar f dag, að hann hafi þó enn ekki gert neinar ákveðnar ráðstafanir til að fá hin nauðsynlegu leyfi, þar eð hann þurfi fyrst að kynna sér gildandi reglur um mál af þessu tagi. Hann sagðist einnig að öllum Ifk- indum ætla að hafa samband við norska sendiráðið f Moskvu til að fá að vita um nauðsynleg skilyrði frá norskri hálfu, en sendiráðið hefur m.a. boðizt tíl að aðstoða Sakharov við að afla nauðsyn- legra leyfa bæði til Osló og heim aftur. Sakharov dvelst nú á sveitasetri sinu fyrir utan höfuðborgina til að jafna sig eftir eril síðustu daga vegna verðlaunaveitingarinnar. Hann sagði f dag að hann hefði þó ekki fengið hina opinberu til- kynningu um veitinguna fyrr en í gær í skeyti frá formanni Nóbels- nefndarinnar, Aase Lionæs. Þar segir að upphæð verðlaunanna sé Framhald á bls. 39 SINAISAMKOMULAGIÐ — Yfirmaður gæzlusveita Sameinuðu þjóðanna f Miðausturlöndum, Ensio Siilasvuo hershöfðingi, (t.v.) undirritar bráðabirgðasamkomulagið um brottflutning herja á Sinai, f aðalstöðvum S. Þ. f Jerúsalem s.l. föstudag, ásamt Avraham Kidron, ráðuneytisstjóra fsraelska utanrfkisráðuneytisins og Herzl Shafir hershöfðingja, yfirmanni herráðsins. AP-mynd, Azevedo boðar nú við- tækar aðhaldsgerðir Lissabon, 13. október, Reuter — AP O JOSE Pinheiro de Azevedo, forsætisráðherra Portúgals, sagði f sjónvarpsræðu til þjóðarinnar f kvöld, þar sem hann málaði óhrjálega mynd af efnahags- ástandi landsins, að menn yrðu að framleiða meira og neyta minna. Azevedo sem boðaði vfðtækar aðhaldsaðgerðir, sagði að hann gerði sér grein fyrir þvf að fórnir væru óvinsælar, en kvað ríkis- stjórnina staðráðna f að bjarga landinu og hún ætti skilið að hljóta þakklæti þjóðarinnar. Hann bætti hins vegar við að sú upplausn sem skollið hefði yfir landið innan hers, atvinnulffs og stjórnmálalffs að undanförnu, gæti leitt til falls stjórnarinnar, jafnvel áður en hún hefði stigið sfn fyrstu skref. Azevedo gaf ber- lega f skyn að hann teldi sam- steypustjórn sfna eina kostinn fyrir þjóðina, fyrir utan nýtt ein- ræði, en hann lofaði að verja portúgölsku byltinguna fyrir öll- um árásum afturhaldssinna, — hvort sem væri frá hægri eða vinstri. „Fasisma á ný? Nei!“ sagði hann. Forsætisráðherran lagði enn Ankara, 13. október — AP. SULEYMAN Demirel, forsætis- ráðherra Tyrklands, sagði í kvöld að útilokað væri að einhverjar breytingar yrðu á núverandi sam- steypustjórn fjögurra flokka f landinu, en Réttlætisflokkur Demirels vann mjög á f kosn- ingunum til öldungadeildarinnar sem fram fóru f gær. Er Demirel var spurður hvort von væri á bættri sambúð Tyrkja og Grikkja svaraði hann: „Við erum stað- ráðnir f að standa vörð um friðinn áherzlu á nauðsyn valds og aga ef ríkisstjórninni ætti að takast að framkvæma ætlunarverk sín, og sagði að óróinn og agaleysið sið- Framhald á bls. 39 og leysa alþjóðleg vandamál okkar á friðsamlegan hátt á meðan okkur og rétti okkar er sýnd virðing.“ Næststærsti flokk- urinn f samsteypustjórninni, Þjóðfrelsunarflokkur Múhameðs- trúarmanna, sem berst mjög gegn undanslætti f Kýpurdeilunni af Tyrkja hálfu, tapaði fylgi f kosn- ingunum sem nemur þriðjungi frá síðustu kosningum, og er talið hugsanlegt að þetta gefi Demirel aukið svigrúm til að ná samn- Framhald á bls. 39 Stjórn Demirels mun sitja áfram

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.