Morgunblaðið - 21.10.1975, Page 1

Morgunblaðið - 21.10.1975, Page 1
40 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 240. tbl. 62. árg. ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins. 11 % aukning tekna USA Washington, Bonn, 20. október. AP. Reuter. NTB. ÞJÓÐARTEKJUR Bandaríkja- manna jukust um 11.2% á árs- grundvelli f jólf, ágúst og septem- ber að sögn bandarfska viðskipta- ráðuneytisins í dag. Þetta er mesta aukning, sem orðið hefur f 20 ár. Tölurnar virðast sýna, að bat- inn í bandarfsku efnahagslífi standi traustum fótum, en hag- fræðingar hafa varað við þvf að þess sé ekki að vænta að svona mikil aukning haldist til lang- frama. 1 Bonn skýrðu fimm helztu hag- fræðistofnanir Vestur- Þýzkalands frá því f dag, að ástandið í efnahagsmálum landsins væri orðið eins slæmt og það gæti orðið og að möguleikar væru á bata ef launakröfum væri haldið niðri. Þó eru stofnanirnar ekki bjart- sýnar á varanlegan bata í skýrsl- um sem þær sendu frá sér í dag. Þær segja að forsendan séu aukn- ar fjárfestingar og að þeim sé aðeins hægt að koma til leiðar með frystingu launa. Þær telja að hagvöxtur í iðnaðarrikjum á næsta ári verði um 4.5% að meðaltali miðað við 2.5% áætlaða minnkun þjóðar- tekna á þessu ári. Eftirspurn eftir vörum og þjónustu mun aukast í æ fleiri Uramhald á bls. 39 MEHÍflVHAPOflHOE CíMUAHHE CAXAPO KOnEHrAEEH Sænskir sjómenn: Fordæma síldveiðar íslendinga í Norðursjó Frá Pétri J. Eiríkssyni fréttaritara Mbl. f Gautaborg. ÁRSFUNDUR samtaka sjómanna á vesturströnd Svíþjóðar, sem haldinn var nú um helgina, hefur krafizt þess af sænsku rfkisstjórn- inni, að hún mótmæli harðlega sfldveiðum tslendinga f Norður- sjó. „Við eigum ekki nægilega sterk orð til að fordæma aðgerðir fslenzku rfkisstjórnarinnar og at- hafnir fslenzkra sjómanna,“ sagði Georg Aberg, formaður samtak- anna, en hann er jafnframt þing- maður, f ræðu á fundinum. 25% hækkun á skinnum Ósló, 20. október. UM 121.000 dökk minnkaskinn voru boðin til sölu á uppboð- um f Ósló um helgina. Salan fór fram úr öllum vonum og staðfesti að markaðurinn er á uppleið að sögn uppboðshald- ara. Verðið hækkaði um 25% miðað við verð á heimsmark- aði í maí og júnf. Mjög hörð samkeppni var um skinnin. Fjörutfu af hundraði seldust til Vestur-Þýzkalands, 25% til Bandarfkjanna og afgangur- inn til annarra landa. „Um leið og íslendingar færa einhliða út fiskveiðilögsögu sfna f 200 mílur til að geta haft þau mið fyrir sig sjálfa stunda á milli 50 og 70' Islenzk skip rányrkju á síld á Skagerak og í Norðursjó og selja hana svo undir lágmarksverði í Danmörku," sagði Áberg. Hann sagði vera dæmi um það, að íslenzk skip hefðu veitt sfld allt upp að strönd Bohusléns og undirboðið svo skandínavíska sjómenn. Fundurinn, sem haldinn var f Smögen, tók undir þessi orð Abergs og samþykkti að fordæma útfærsluna í 200 mílur og sfld- veiðar Islendinga í Norðursjó. Þeir kröfðust jafnframt mótmæla Framhald á bls. 39 Forseti Sakharov-vitnaleiðslnanna flytur lokaræðu sina í Kristjánsborgarhöll síðdegis ásunnudaginn (Sjá ennfremur bls. 15, 16, 25 og26.) Niðurstaða Sakharov-réttarhaldanna: Milljónir í fangelsum, vinnu- búðum og geðveikrahælum Tekið undir áskorun Sakharovs um sakaruppgjöf pólitískra fanga Kaupmannahöfn 19. okt. — frá Birni Jóhannssyni og Ingva Hrafni Jónssyní blm. Mbl. AÐ LOKNUM vitnaleiðslum við Sakharovréttarhöldin hér sfð- degis voru birtar niðurstöður hinnar alþjóðlegu nefndar spyrjenda. Norski listmálarinn Victor Sparre las upp yfir- Iýsingu þeirra og kom fram, Altalað að Sakharov verði vísað úr landi Moskvu, 20. október. AP. Reuter. NTB Kaupmannahafnarblaðið Ber- iingske Tidende segir f dag að það sé altalað að sovézk yfirvöld hafi ákveðið að vfsa friðarverðlauna- hafanum Andrei Sakharov úr landi innan skamms, en ættingjar hans vildu hvorki staðfesta frétt- ina né bera hana til baka. Náinn ættingi Sakharovs sagði hins vegar, að Yelena kona hans, sem hefur dvalist síðan í ágúst á Ítalíu þar sem hún leitar sér lækninga við augnsjúkdómi hefði heyrt hjá sovézkum embættis- mönnum að svo gæti farið að manni hennar yrði vfsað úr landi. „Þeir sögðu að brottvfsun gæti komið til greina en útskýrðu það ekki,“ sagði hann. Sjálfur sótti Sakharov formlega í dag um leyfi til að fara til Óslóar til að taka við friðarverðlaunun- um. Hann kvaðst hafa „alls enga hugmynd“ um hvort honum yrði leyft að fara. „En eins og stendur held ég að ég ætti ekki að vera svartsýnn." Samkvæmt fréttum frá Moskvu undanfarna daga er ólíklegt að Sakharov verði leyft að fara en Framhald á bls. 39 að niðurstöðurnar verða sendar til sovézkra yfir- valda, Sameinuðu þjóðanna og ýmissa samtaka og einstaklinga. Þá er ráðgert, að nefnd spyrjendanna komi saman sfðar til að meta þróun mála á þessum vettvangi. Hér fer á eftir yfirlýsing spyrjendanna um niðurstöðurn- ar: „I kjölfar áskorunar frá Andrei Sakharov prófessor fóru alþjóð- legu Sakharov-réttarhöldin fram f húsakynnum danska þjóðþingsins þann 17., 18. og 19. október. Alþjóðleg nefnd spyrjenda með mismunandi stjórnmála- og trúar- skoðanir hefur hlýtt á og spurt 24 vitni, sem mörg hafa lýst mann- réttindabrotum, sem þau hafa persónulega reynt. Tilgangur réttarhaldanna hefur verið að varpa ljósi á þær að- stæður, sem ríkt hafa í Sovét- ríkjunum s.I. 10 ár. Nefnd spyrjenda var þannig skipuð: Erling Bjöl, prófessor, Árósum, Danmörku. Michael Bourdeaux, Englandi. Dr. Cornelia Gerstenmeier, Þýzkalandi. Eugene Ionesco, Frakklandi. Dr. Frantisek Janough, Svíþjóð. Haakon Lie, Noregi. Zinaida Schakovskoy, Frakklandi. Dr. A. Shtromas, Englandi. Victor Sparre, Noregi. Z. Stypulkowski, prófessor, Eng- landi. S. Swianiewicz, prófessor, Kanada. Simon Wiesenthal, Aust- urríki. Að auki aðstoðuðu fulltrúar stjórnmálafiokka í danska Þjóð- þinginu nefnd spyrjenda. Sovézkum yfirvöldum var boðið að taka þátt f réttarhöldunum en þau kusu að gera það ekki. Réttarhöldin fjölluðu um eftir- talin atriði: Meðferð á pólitfskum ándófs- mönnum, meðferð á trúuðu fólki, misbeitingu geðlækninga og stöðu sovézkra þjóðarbrota og minni- hlutahópa. Nefndin telur, að sum vitnin hafi í frásögnum sínum farið út Framhald á bls. 39

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.