Morgunblaðið - 25.10.1975, Page 1
16 SIÐUR
244. tbl. 62. árg.
LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Ljósm.: 01. K. M
Frá hinum fjölmenna fundi kvenna á Lækjartorgi f gær
Útifundur kvenna á Laekiartorgi:
20 — 25 þúsund manns
GÍFURLEGUR fjöldi
kvenna tók þátt f útifundi
á Lækjartorgi í gærdag —
og að mati lögreglunnar
munu 20 til 25 þúsund
manns hafa verið á fund-
inum. Hann stóð í hartnær
tvær klukkustundir og
þrátt fyrir lengd fundarins
stóðu fundarmenn allan
tfmann og hlýddu á dag-
skrá hans, enda var það
mál manna að hún hefði f
senn verið skemmtileg óg
óvenjuleg og ekki hlaðin
sfgildum útifundaræðum,
sem jafnan eru betri þeim
mun styttri sem þær eru
(Sjá forystugrein blaðsins
í dag.)
Mannfjöldinn naoi yfir allt
Lækjartorg og upp eftir Banka-
stræti að Ingólfsstræti og í
Lækjargötu var einnig mikill
fjöldi, sem náði allt að
Amtmannsstig. Þá var mikill
mannfjöldi í Austurstræti allt að
Pósthússtræti. Á sjálfu Lækjar-
torgi var staðið svo þétt að ógern-
ingur var að komast yfir torgið.
Fundarmenn héldu á borðum og
skiltum með vígorðum í tilefni
dagsins og baráttunnar, sem verið
var að leggja áherzlu á. Sem dæmi
má nefna örfá vígorð: „Ást er
sameigínleg barátta“, Jafnrétti
„strax í dag“, Við erum margar,
Hver er nakti maðurinn í list-
inni?, Jafnrétti í stöðuveitingum!,
Kvennafrf, hvað svo????, Ekki
bara dömufrí o.s.frv. Þá mátti
viða sjá vígorðið: Jafnrétti, fram-
þróun, friður, en það eru
einkunnarorð kvennaárs Sam-
einuðu þjóðanna.
Enn langt í full
réttindi f reynd.
Áður en hin eiginlega dagskrá
fundarins hófst lék lúðrasveit
stúlkna úr Kópavogi nokkur
kvennabaráttulög undir stjórn
Þórunnar Björnsdóttur. Því næst
tók til máls Guðrún Erlendsdótt-
ir, hæstaréttarlögmaður, en hún
er jafnframt formaður hinnar
ríkisskipuðu Kvennaársnefndár.
Guðrún sagði, er hún setti fund-
inn, að þótt íslenzkar konur hefðu
þegar fengið flest þau réttindi,
sem kynsystur þeirra væru að I
berjast fyrir viða um heim, þá
væri þó enn langt f land til þess að
koma á fullu jafnrétti í reynd. Til
þess að vekja athygli á þessu og
til þess að flýta fyrir jafnréttis-
þróuninni hefði verið ákveðið að
hafa kvennafri 24. október og
Guðrún kvað þann dag ekki hafa
verið valinn af handahófi, þvi að
dagurinn væri dagur Sameinuðu
þjóðanna og f ár væri kvennaár
samtakanna. Sameinuðu þjóð-
irnar hefðu ákveðið kvennaárið
fyrst og fremst til stuðnings kon-
um f þróunarlöndunum. „Með því
að hafa þessar aðgerðir í dag vilj-
um við minna á samstöðu okkar
við allar konur, hvar í heiminum
sem er,“ sagði Guðrún og sagði
hún að með kjörorði kvennaárs,
„Jafnrétti, framþróun, friður",
væru allar rfkisstjórnir hvattar til
þess að leggja sitt af mörkum til
þess að slíkt takmark næðist sem
fyrst. „Við höfum þá trú, að með
þpssum aðgerðum hvetjum við
allar konur til að standa vörð um
Framhald á bls. 8
Tæplega helmingur fast-
ráðins starfsfólks Mbl. er
konur og lögðu flestar
þeirra niður vinnu föstu-
daginn 24. október til
stuðnings jafnréttisbar-
áttunni. Meðal þeirra
voru setjarar blaðsins
(en það er eingöngu sett
af konum).
Við útgáfu dagblaðs
eins og Morgunblaðsins
er ávallt viss hluti þess
settur fyrirfram, þó að
meginhlutinn sé að sjálf-
sögðu unninn deginum
áður.
Eins og fram hefur
komið var ekkert sett í
blaðið í gær, en setjarar
mættu til vinnu kl. 24, til
að koma mætti sem fyrst
út fréttum af baráttu-
fundinum á Lækjartorgi,
og er þetta blað því jafn-
framt sérstakt framlag
þeirra til jafnréttisbar-
áttunnar.