Morgunblaðið - 25.10.1975, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1975
— ÉG ER mjög ánægð með þátt-
tökuna í fundinum og kvennaárið
á eftir að bera góðan árangur.
Þannig hljómuðu flest svörin, sem
Mbl. fékk hjá þvi fólki er að var
spurt á fjöldafundinum á Lækjar-
torgi i gær. Á meðan fundurinn
stóð yfir, gekk Mbl. á milli fólks
og spurði það um álit á kvenna-
deginum og hvort það vænti
breytinga á högum kvenna i fram-
tiðinni eins og t.d. i launamálum.
200 FRÁ AKRANESI
-— Ég er fjarskalega ánægð með
daginn, sagði Borghildur Reynis frá
Akranesi Barátta kvenna þetta ár á
eftir að bera árangur, en það tekur
sinn tima
Á hvaða hátt telur þú að árang-
urinn komi i Ijós?
— Til að byrja með í launamálum
og málum tengdum launamálunum.
Siðan kemur hitt hægt og sígandi
— Hefur þú notið dagsins eins
og þú ætlaðir þér?
— Já, við komum 200 konur
saman frá Akranesi og Borgarnesi
og farkosturinn er að sjálfsögðu
Akraborg Þetta er góður hópur
HVAR VÆRUM VIÐ ÁN KVENNA?
— Mér lizt reglulega vel á þenn-
an dag, sagði Emil Helgason þar
sem hann stóð skammt frá söngpall-
inum Og þessi dagur á eftir að
verða til fyrirmyndar fyrir samtök
kvenna
— Telur þú. að hið alþjóðlega
kvennaár eigi eftir að bera árang-
ur?
— Það vona ég svo sannarlega
— Konur eiga að hafa jafn mikinn
rétt og við karlmennirnir. Og hvað
værum við án þeirra?
LAUNAJAFNRÉTTI FLJÓTLEGA
Astrid Guðmundsson vildi lítið
segja um daginn, en sagði þó að
baráttan hefði tvímælalaust borið
góðan árangur og ætti það eflaust
eftir að koma fram i launajafnrétti á
næstunni Ennfremur yrði sennilega
komið i veg fyrir fljótlega, að konur
yrðu sniðgengnar i stöðum
HLÝTUR AÐ BERA ÁRANGUR
Fyrir framan stjórnarráðið hittum
við Gizur Bergsteinsson að máli og
spurðum hann hvernig fundurinn
félli í hann
— Mér lizt einkar vel á þessa
góðu fundarsókn Hún sýnir að kon-
ur standa nú saman Þess vegna
hlýtur starfsemi ársins að bera ár-
angur Og sannarlega vona ég, að
einhver framgangur verði á þeim
málum, sem konur hafa áhuga á.
FUNDURINN
STYRKIR BARÁTTUNA
— Mér lizt Ijómandi vel á daginn,
sagði Hildur Friðriksdóttir þar sem
við hittum hana með ungan son
sinn Arnar i fanginu á Hverfisgötu
þar sem hún var á leið á fundinn
— Ég held að árangurinn vcði
góður. Eftir þessa baráttu hljótum
við að fá kauphækkun, þannig að
við stöndum jafnfætis karlmönnum.
— Hvert er álit þitt á þessari
góðu fundarsókn?
Þessar þrjár gömlu konur höfðu komið sér fyrir á góðum stað við Lækjartorg. Ein þeirra hefur sett merkii dagsins á
veskið sitt. Ljósm. Mbl.: E.B.
— Jafn stórkostlegur fundur og
þessi hlýtur að styrkja okkar baráttu
KONURSÝNA
LOKSINS SAMSTÖÐU
— Þetta er frábær fundur, og
konur sýna nú mikla samstöðu,
sagði Brynjar Snorrason, sem við
hittum að máli i Ingólfsstræti
— Telur þú að þessi barátta
kvenna eigi eftir að bera árangur?
— Að sjálfsögðu á hún eftir að
bera árangur, en það kemur auðvit-
að ekki allt! einum hvelli.
TEK MÉR FRlí KVÖLD
[ Bankastræti hittum við unga
konu með tvö börn, hún sagðist
heita Hrönn Hreiðarsdóttir og að-
spurð sagði hún, að reynslan yrði að
skera úr um árangur baráttunnar
— A hvaða sviði vildir þú ná
árangri strax?
— í launamálum Við erum núna
að berjast fyrir launajafnrétti fyrst og
fremst
— Hefur þú notið dagsins á
sérstakan hátt?
— Ekki get ég sagt það, en ég
vinn oft á kvöldin, og núna ætla ég
mér að taka fri.
LOSNAÐI AÐ MESTU VIÐ
HEIMILISSTÖRFIN
— Ég verð að segja, að mér lizt
Ijómandi vel á þetta ár okkar kvenn
anna og ég vona sannarlega að það
eigi eftir að bera góðan árangur,
þannig að jafnrétti i framkvæmd eigi
ekki langt í land sagði Elisabet Þór-
arinsdóttir
— Hefur þú orðið að sinna
heimilisstörfum i dag?
— Nei, mér hefur liðið sérstak-
lega vel í dag og hef losnað svo til
alveg við heimilisstörfin og dagur-
inn hefur verið eins og ég hafði
hugsað mér.
AÐALATRIÐIÐ AÐ SÝNA
SAMSTÖÐUNA
— Ég er mjög ánægð með þetta
allt og held að árangurinn verði
göður Aðalatriðið er að við konur
sýnum samstöðuna, sagði Maria
Guðvarðardóttir.
— f hverju vilt þú fyrst ná
árangri?
— Það eru mörg atriði sem koma
til greina, en ætli launamálin séu
ekki stærsta málið
— Hvernig hefur þér liðið i dag?
— Hreint stórkostlega, rétt eins
og ég ætlaði mér
HUGURKARLMANNA
NÆR OFT SKAMMT
— Árangurinn af þessu starfi
hlýtur að vera sá, að við stöndum
jafnfætis körlum eftir nokkur ár,
sagði Inga Kjartansdóttir
— Hvar ætti hann að láta sjá
sig fyrst?
— í launamálum, þau eru aðalat-
riðið Eftir þátttökuna á fundinum i
dag, er sýnilegt að við konur getum
náð árangri þótt allt komi ekki á
morgun
— Ertu ánægð með þátttöku
karla i fundinum?
— Karlmenn segjast margir vera
mjög hrifnir af þessari baráttu okkar
og samstöðu, en oft nær hugurinn
ekki lengra en það
— Hefur þú notið þessa dags
sem er tileinkaður konum?
— Alveg eins og ég hafði ætlað
mér.
LEIÐ Á ÞESSU KJAFTÆÐI
— Ég er orðin dauðleið á þessu
kjaftæði um kvennaárið, það er látið
eins og við séum að deyja út, sagði
Sigrún Hermannsdóttir, og bætti
við, hins vegar er ég hrifin af þeim
árangri sem virðist ætla að nást.
— Hvernig finnast þér konur
hafa tekið þessari baráttu, sem
verið hefur á þessu ári?
— Sumar hverjar láta þannig að
þæra vita ekkert hvað þær meina og
aðrar vilja helzt ekki taka þátt i
þessu, þar sem þær segjast hafa það
mjög gott Það verður bara að taka
það með í reikninginn, að margar
konur búa við mjög mikið óréttlæti
T.d hafa fullorðnar konur eyðilagt
mikið fyrir okkur oft á tiðum. Það
vita allir að i verksmiðjum og frysti-
húsum búa konur við gifurlegt órétt-
læti.
— Annars held ég. að karlmenn
fari nú að átta sig á þvi að það er
ekki hægt að bjóða konum allt
— Ertu ánægð með daginn?
— Já, það er ég, en ég er líka
feginn að hann er að verða búinn Ef
þessu mali hefði haldið öllu lengur
áfram, hefði það ekki orðið okkur til
góðs
Rabbað við
þátttakendur
á útifundinum
á Lækjartorgi
Hrönn HreíóarsdóUii
Emil Heigason
Hiidar Fiiðriksdóttir
Elísabet Þórarinsdöttir
Launajafnrétti
er höfuðmálið
Astrid Guómnndsdóttir
Brynjar Snorrason
Marfa GuAvardsdóttfr
Inga KJartansdóttir
Sigrún Hermannsdóttir
Skipstjórar helltu uppá fyrir konumar
MORGUNBLAÐIÐ hafði samband við 12 staði á lands-
byggðinni f gærkvöldi til að fá fréttir af þátttöku kvenna
f þeim hátfðarhöldum, sem voru skipulögð í tilefni
dagsins, en almennt lögðu konur niður vinnu í gær og
fjölmenntu þar sem konur höfðu ákveðið að koma
saman. Fara hér á eftir f stuttu máli fréttir af kvenna-
frísdeginum úti á landsbyggðinni, þ.e. flestum þeirra
staða sem einhver skipulögð dagskrá fór fram.
Almenn kvenna-
dagstilþrif á
landsbyggðinni
AKUREYRI
Mikil þátttaka var í kvennafrí-
inu á Akureyri og mjög mikil
aðsókn að dagskrá Kvennadagsins
í Sjálfstæðishdsinu. Þar var þá
drepið í hverja smugu. Konur sá-
ust við afgreiðslu i tiltölulega
fáum verzlunum og sumar
verzlanir voru lokaðar.
Amaróbúðirnar t.d., nokkrar af
kjörbúðum KEA, Vöruhúsið og
fleiri verzlanir. Kennsla í skólum
gekk skrykkjótt þar sem bæði
vantaði kvenkennara og náms-
meyjar, en dagskrá dagsins stóð
til kl. 6.
Landsbanki Islands á Akureyri
tók í gær í notkun sitt gamla
húsnæði eftir gagngerðar endur-
bætur, en fremur var þar fátæk-
Iegt inni, því konurnar vantaði.
Hins vegar sendu starfskonur
bankans starfsbræðrum sínum í
bankanum veglegan blómvönd
með kvennadagsmerkinu.
SAUÐARKRÓKUR
Sumar búðir voru lokaðar í gær,
en unnið var að slátrun í báðum
sláturhúsunum. I öðru sláturhús-
inu mættu allar konurnar nema 4
ti! vinnu, en í hinu mættu mjög
fáar til vinnu. Opið hús var í
Samkomuhúsinu þar sem konur
komu saman, en skipstjórar, stýri-
menn og kokkar af togurunum
helltu upp á könnuna og báru
konunum molakaffi.
fSAFJÖRÐUR
Kl. 10 árla dags hófst dagskrá
kvennanna með miklu stuði f
félagsheimilinu í Hnífsdal þar
sem íþróttakennarar stjórnuðu
morgunleikfimi kynsystra sinna
og mættu nokkrir tugir kvenna til
leiks. Kl. 13.30 hófst síðan dag-
skrá í Alþýðuhúsinu, var þar troð-
fullt og aldrei hefur eins margt
fólk verið þar inni. Þar voru flutt
ávörp, skemmtiatriði og kammer-
tónlist og auk heimakvenna voru
þar konur frá Flateyri, Þingeyri,
Súgandafirði, Bolungarvík og
Súðavfk. Þá fylgdust konur með
æfingum hjá Litla leikklúbbnum
þar sem 4 karlmenn dönsuðu m.a.
fyrir þær, en almennt voru konur
frá vinnu. Þó mættu t.d. 11 konur
til vinnu hjá ísfélaginu.
PATREKSFJÖRÐUR
Frystihúsið var lokað f gær
vegna kvennafrísins, en búðir
voru yfirleitt opnar. Nokkuð var
um að konur á skrifstofum legðu
niður vinnu og kvenkennarar
kenndu ekki. Var ýmis gangur á f
þessum efnum hjá konunum á
Patreksfirði, en samkomuhald
var ekkert og almennt munu hús-
mæður hafa sinnt sfnum venju-
legu heimilisstörfum.
VESTMANNAEYJAR
Konur hópuðust saraan á
Stakkagerðistúninu kl. 2 og þaðan
gengu síðan um 500 konur fylktu
liði undir islenzka fánanum og
nokkrum kröfuspjöldum að
Félagsheimilinu þar sem var opið
hús fram á kvöld með ræðuhöld-