Morgunblaðið - 25.10.1975, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. OKTOBER 1975
3
Svipmyndir
frá
vinnustöðum
Söknuðu
kvennanna
„Það hefur bókstaflega ekkert
verið að gera," sögðu til að mynda
tveir karlmenn í Útvegsbankanum
sem orðið höfðu að hlaupa i skarð
stúlknanna í sparisjóðsdeildinni. Og
i þvi mátti heyra Guðrúnu Á.SÍmon-
ar flytja ofurlitla tölu um góðsemi
við karlmenn til að sjá þeim fyrir
iþróttum „Það er hugur i þeim
þarna hinum megin við þilið," taut-
aði þá annar bankastarfsmannanna.
Hjá Silla & Valda i Austurstræti
var töluvert verzlað og meira að
segja mátti sjá þar konur innan um
með innkaupakörfur undir hendinni
en ekki eina einustu stúlku við af-
greiðslu. „Við urðum að setja strák-
ana i Kjötinu við afgreiðslukassana,"
sagði einn af starfsmönnunum, „og
jafnvel orðið að kalla inn bilstjórana
sem keyra út vörurnar, til að af-
greiða Þess vegna verður ekkert
keyrt heim i kvöld né tekið á móti
pöntunum í sima i dag. Þetta hefur
þó allt bjargazt sæmilega vegna
MEÐAN um 25 þúsund
konur stöppuSu stálinu
hver ( aðra með ræðum og
baráttusöngvum á útifund-
inum á Lækjartorgi i gær,
reyndu karlmennirnir af
fremsta megni að halda
rekstri fyrirtækja og stofn-
ana í miðbænum gangandi.
Raunar mátti sjá konur við
störf á örfáum stöðum, en í
flestum tilfellum voru þær
þó á vinnustað sínum með
hugarfari miskunnsama
Samverjans — a.m.k. var
því þannig farið um
konurnar í Reykjavíkur-
apóteki og á Talsamband-
inu við útlönd.
Það var yfirleitt sam-
dóma álit þeirra karlmanna
sem Morgunblaðsmenn
hittu í gær í upp undir það
kvenmannslausum fyrir-
tækjunum, að sæmilega
gengi að halda þeim gang-
andi og þökkuðu þeir það
hversu litið væri að gera
þennan dag — m.a. vegna
þess hversu mörg fyrirtæki
hefðu orðið að loka vegna
almennrar þátttöku í
kvennafríinu.
KARLKYNS KENNARAR GÁFU SIG HVERGI OG STUNDUOU KENNSLU
ÞÓTT ÞEIR YRÐU AÐ TAKA BÖRNIN MEÐ i SKÓLANN, EINS OG
STEFÁN HALLDÓRSSON, SEM HÉR ER AÐ HLÝÐA YFIR EINUM
NEMANDANUM f VALHÚSASKÓLA.
(Ljósm. Mbl. Ól. K. M)
• KARLMENN TÓKU VIÐ AFGREIÐSLUKASSANUM f SILLA & VALDA f
AUSTURSTRÆTI. • EINN KARLMAÐUR VANN 9 KVENNA VERK I
PÓSTHÚSINU. • SUMIR URÐU AÐ TAKA MEÐ SÉR BÖRNIN f VINN
UNA.
þess að það hefur ekki verið mikið
að gera I dag. Hins vegar var hér allt
brjálað að gera i gær (fimmtudag)
og við vorum að keyra út pantanir
alveg fram til kl 10 um kvöldið
Okkur var einnig tjáð að alla jafnan
ynnu um 30 stúlkur i verzluninni,
„en þær tóku sér allar fri i dag —
hver og ein einasta."
Tvær konur voru við afgreiðslu i
Reykjavikurapóteki „Á nú að fara að
auglýsa fyrir alþjóð að við séum að
svikja lit," sögðu þær er Ijósmynd-
arinn mundaði myndavélina en
bættu við „en þá ætlum við að láta
ykkur vita að venjulega vinna hér
um tiu konur við afgreiðslu en núna
erum við bara tvær. Við höfum
skipzt á að vinna hér i dag en aldrei
fleiri en tvær í einu — þvi að við
teljum annað ekki forsvaranlegt
vegna okkar þáttar i heilsugæzlunni.
Karlmennirnir þarna innanbúðar sjá
að öðru leyti um afgreiðsluna þegar
við höfum ekki undan "
I Pósthúsinu voru fáeinir karl-
menn að vinnu — engin kona Einn
karlmaður annaðist frímerkjasöluna
þar sem hann undir venjulegum
kringumstæðum vinnur með niu
stúlkum „Nei, það er ekki hægt að
segja að þetta hafi verið dauflegur
dagur," sagði hann. „Öll útibúin eru
lokuð út af kvennafriinu svo að allur
straumurinn liggur hingað í dag Ég
er þvi orðinn sveittur eins og þið
sjáið En það er ósköp tómlegt að
vera án stúlknanna og ég sakna
þeirra, mikil ósköp." Og það er varla
skrítið þótt honum þætti tómlegt,
þvi að alla jafnan starfa um 25
stúlkur í aðalsalnum í Pósthúsinu en
í gær voru þar innan við tíu karl-
menn
Þeir Landsbankamenn minntust
naumast náðugri daga en i gær.
Sólon Sigurðsson, fulltrúi i vixla-
deild aðalbankans og formaður
Sambands isl bankamanna, sagði
okkur að störfin i bankanum hefðu
gengið nokkurn veginn eðlilega fyrir
sig, enda óvenju rólegt um að vera
„Ég geri ráð fyrir að alls hafi um
5—10 konur verið að störfum hjá
Landsbankanum i dag — af um
500 konum i allt, svo að það má
einna helzt likja þátttöku kvennanna
hér við kosningaþátttökuna austur á
Fjörðum, þar sem að 99,99% kusu
i einum kosningunum." Oddur
félagi hans Guðmundsson hafði
orðið að taka börn sin tvö með i
vinnuna og voru þau að leik innan
um bankastarfsmennina í vixladeild
Sólon lét vel yfir krökkunum og
kvað þau ekki hafa valdið truflunum
á neinn hátt — „þetta eru svo góðir
krakkar", sagði hann í sparisjóðs-
deildinni hittum við lika annan
eiginmann, sem eins var ástatt fyrir
en eins og Oddur og börn hans,
tóku þau hlutskipti sinu með jafn-
aðargeði Við höfðum af þvi fréttir,
að ef komið hefði til tals innan
bankans að koma upp barnagæzlu
innan bfnkans, hefðu eiginkonur
bankamannanna almennt krafizt
þess að eiginmennirnir önnuðust
börnin þennan dag „Svo fór þó
ekki," sagði Sólon, „en þvi er ekki
að neita að i gamni var um það rætt
meðal okkar, að réttast væri að fá
einhverjum bankastjóranum barna-
gæzlustarfið, ef karlmennirnir kæmu
með börn sín til vinnu i miklum
mæli "
Karlmenn önnuðust öll gjaldkera-
störf i vixladeildinni, en þau annast
konur alla jafnan Karlmennirnir þar
kváðust þó ekki kvarta undan
þessum störfum, þar eð þeir væru
vanir þeim frá fyrri tið en kváðust
samt sakna stúlknanna. Hvers sökn-
uðu þeir mest varðandi fráhvarf
kvennanna? „Að sjá þær — horfa á
þær," var svarið. í þann mund sem
við vorum að yfirgefa bankann
komu starfsstúlkur i sparisjóðsdeild
bankans askvaðandi inn um dyrnar
og afhentu karlmönnunum sem þar
stóðu í þeirra sporum eina stóra
rauða rós. Einhvern veginn virtist
AUÐ SKIPTIBORÐIN A TALSAM-
BANDINU VIÐ ÚTLÖND EN
STÚLKURNAR ERU EKKI FJARRI
EF NEYÐARTILFELLI SKYLDU
KOMA UPP.
svo sem karlmennirnir vissu ekki
hvernig þeir áttu að taka þessari
óvæntu auðsýndu samúð og það
kom á daginn, að það er álika
árangursrikt fyrir konur að gefa karl-
mönnum blóm og fyrir íslendinga
almennt að leggja peningana inn á
sparisjóð — þeir höfðu ekki einú
sinni vit á þvi að setja rósina i vatn,
svo að gefendurnir urðu að annast
það
Loks höfðum við viðkomu hjá
stúlkunum á Talsambandinu við út
lönd. Þar sitja venjulega i kringum
tiu önnum kafnar stúlkur við mæla-
borð en að þessu sinni voru þau auð
en tvær stúlkur sátu i dálitilli setu-
stofu. drukku kaffi og nörtuðu i
köku „Hér veitum við ekkert nema
neyðarþjónustu i dag," sögðu þær
„Við byrjuðum vaktina kl 2 í dag og
það hefur bókstaflega ekkert verið
að gera nema hvað öðru hverju
skreppum við fram til að slökkva
pöntunarljósin þegar okkur virðast
borðin vera að brenna yfir Annað
gerum við ekki."
Við spurðum þær hvort ekki hefði
frétzt um aðgerðir íslenzkra kvenna
til samsvarandi stöðva erlendis „Jú,
við höfum bæði fengið hvatmngu og
stuðning frá stúlkunum i Kaup-
mannahöfn og Montreal, og raunar
höfum við heyrt að í Kanada standi
til að gripa til einhverra svipaðra
aðgerða "
STARFSSTÚLKURNAR i SPARISJÓÐSDEILD LANDSBANKANS FÆRÐU
STAÐGENGLUM SÍNUM STÓRA RAUÐA RÓS OG ÞAÐ VAR KÁTT Á
HJALLA.
(Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.)
SIGLUFJÖRÐUR
um, söng og skemmtiatriðum og
stanzlaust rennerf var á könnuna
eins og lfklega víða um land í gær,
en ekki gengu Eyjakonur algjör-
lega karlmannslausar til leiks, því
bumbuslagurinn í göngu þeirra
var karlkyns. Nokkrir Eyjapeyjar
úr gagnfræðaskólanum göntuðust
með kröfuspjöld á móti göngu
kvenna þar sem á stóð m.a. Við
viljum vinnufrið, en konurnar
héldu sfnu striki að sjálfsögðu.
Á Siglufirði var opið hús í Hótel
Höfn og má segja að algjört fri
hafi verið hjá konum á vinnu-
markaðinum, en f Höfn skemmtu
þær sér með spjalli og skemmti-
atriðum.
BORGARNES
Almennt tóku konur sér frí frá
störfum í gær og varð Kaup-
félagið t.d. að loka að hluta. Ekki
var slátrað sauðfé i Borgarnesi í
gær vegna kvennafrfsins, en hins
vegar var slátrað nautgripum, því
karlmenn sjá um þá vinnu. Konur
hittust í hótelinu sér til dundurs i
gamni og alvöru.
HUSAVlK
Dagskrá kvennadagsins byrjaði
kl. 8 f gærkvöldi í Félagsheimil-
inu og stóð til kl. 5. Þar skemmtu
konur sér við spil, söng og ýmis-
konar dagskráratriði, en almennt
lögðu konur á Húsavik niður
vinnu f gær og margar búðir voru
hálf lamaðar vegna kvennaleysis.
Annars var óvenju rólegt i
bænum miðað við virkan dag, en
þeim mun líflegra í félagsheimil-
inu. Nokkuð var um að konur úr
nærliggjandi sveitum kæmu í
bæinn til þátttöku í dagskrá stall-
systra sinna.
AKRANES
Fjölmennur hópur Akranes-
kvenna fór til fundahalda kvenna
á Lækjartorgi i gær og ferðuðust
konurnar með Akraborginni.
Gengu þær fylktu liði frá skips-
hlið til Lækjartorgs syngjandi
sælar og glaðar, en f gærkvöldi
héldu þær samkomu í Röst á
Akranesi þar sem sitthvað var á
dagskrá í gamni og alvöru.
NESKAUPSTAÐUR
Konur komu saman kl. 9 i gær-
morgun f félagsheimilinu Egils-
búð og var þar ýmislegt til
skemmtunar i gær. Svo til allt
atvinnulif, sem konur koma
nálægt lá niðri.
HÖFN I
HORNAFIRÐI
. Þar komu konur saman kl. 9 i
gærmorgun f félagsheimilinu
Sindrabæ, en þar var opið hús i
gærdag. Ymislegt var til skemmt-
unar, leikir og ræðuhöld. Þá fóru
konur í kröfugöngu um bæinn og
tóku lagið um leið. Konur lögðu
undir sig hótelið í gærkvöldi.
SELFOSS
í morgun var samkoma kvenna
í Selfossbiói. Voru þar höfð uppi
ýmis skemmtiatriði og ræður
fluttar. Um hádegisbilið fór hóp-
ur kvenna til Reykjavikur á úti-
fundinn. Opið hús var i Tryggva-
skála.