Morgunblaðið - 25.10.1975, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. OKTOBER 1975
Minning:
Agúst Olason
bóndi Mávahlíð
Fæddur 21/81897
Dáinn 13/9 1975
„Hver er maðurinn að þú minn-
ist hans.“
Máriudaginn 22. september fór
fram útför Ágústs Ólasonar frá
Mávahlíð að Brimilsvöllum að við-
stöddu miklu fjölmenni. Þó var
það lítill hluti af öllum samferðar-
mönnum hans, á Iangri lífsleið, ég
fullyrði einnig að lítill hluti af
þeim mörgu sem hafa notið gest-
risni og fyrirgreiðslu á heimili
hans i meira en hálfa öld sem þau
hjón hafa búið í Mávahlíð.
Ágúst var fæddur á Stakkhamri
í Miklaholtshreppi 21/8 1897.
Sonur Lilju Benónfsdóttur og Óla
Jónssonar. Þar ólst hann upp og
átti heima fram yfir tvítugsaldur.
Árið 1921 kvæntist hann eftirlif-
andi konu sinni Þuríði Þorsteins-
dóttur frá Hólkoti i Staðarsveit.
Það ár byrjuðu þau búskap á Ingj-
aldshóli i Neshreppi. Árið 1922
kaupir hann hálfa jörðina Máva-
hlíð í Fróðárhreppi, seinna eign-
aðist hann jörðina alla. Þar hafa
þau hjón búið síðan. Nú um nokk-
ur ár hefur heilsu hans farið
hnignandi, hefur þvi búskapur-
inn hvilt á sonum hans, Þorsteini
og Leifi, sem nú hafa algjörlega
tekið þar við búskap.
Þau hjón eignuðust sex mann-
vænleg og drengileg börn, sem öll
eru á lífi, en fjögur þeirra eru
flutt í burtu en fyrrnefndir bræð-
ur eru heima i Mávahlíð. Nöfn
systkinanna eru þessi: Elínborg,
Jóna, Þorsteinn, Ragnar, Hólm-
fríður og Leifur. Mávahliðin má
teljast í röð bezt setinna bænda-
býla að húsakosti, ræktun og allri
umgengni. Þó að hjónin Ágúst og
Þuríður eigi snarastan þátt i
þessu uppbyggingarstarfi verður
ekki fram hjá því horft.að börnin
þeirra hafa líka lagt þar hönd að
verki. Þó nokkuð af systkininum
sé búsett annars staðar hafa þau
oft rétt þangað hjálparhönd.
Þessu fólki er hjálpsemi og sam-
heldni í blóð borin. Hjálpsemi
þeirra nær líka til vandalausra
sem þurfa á hjálp að halda.
Þegar þau hjón byrjuðu búskap
var bústofninn of lítill til að geta
staðið undir jarðakaupum og um-
bótum á jörðinni. Til að bæta úr
því hafði Ágúst póstferðir frá Ól-
afsvík að Gröf í Miklaholtshreppi
um áratugabil. Þeir sem fara þá
leið í bíl eins og hún er nú verða
að líta aftur í tímann til þeirra ára
þegar Ágúst hafði póstferðir á
þeirri leið. Lítið var um upp-
byggða vegi á þessari leið, ár og
lækir óbrúuð. Þegar komið var að
þeim fullum af krapi, ófærum yf-
irferðar fyrir menn og hesta i
blindhríð, þá varð að leita fyrir
sér um yfirkomuleið. Fróðárheiði,
þar er oft stórviðrasamt, gamli
vegurinn oft i kafi af snjó, oft
varð að fara langt afvega til að
komast fyrir skafla sem voru
ófærir yfirferðar. Þá var erfitt að
ná réttri stefnu á þá leið sem fara
skyldi því misvindasamt er i
kringum háar borgir. í hríð og
myrkri er reynt að átta sig á vind-
stöðu en á þessum slóðum er hún
ekki örugg. Þá var stundum reynt
að styðjast við eðlisgáfu hests og
+
Eiginmaður minn og faðir,
KJARTANHARALDSSON
bif reiðastjóri,
Grundarstlg 26.
andaðist i sjúkrahúsi Sauðárkróks, miðvikudaginn 22. október,
Maria Harmannsdóttir,
Ómar Kjartansson.
Bróðir okkar + GUNNAR ÓLAFSSON.
Véltæknifræðingur
Verður jarðsettur frá 10.30 Fossvogskirkju, mánudaginn 27. október kl.
Fyrir hönd aðstandenda
Nanna, Sigrún og Kristin Ólafsdætur.
t
Konan mín
ODDNÝ JÓHANNA ZÓPHANÍASDÓTTIR
frá Göngustöðum,
Svarfaðardal.
lést á Landspitalanum að kvöldi 20 október Minningarathöfn fer fram
i Fossvogskirkju þriðjudaginn 28 þ m kl 10,30 Jarðsett verður að
Urðum Svarfaðardal miðvikudaginn 29 þ m kl 14 00 Blóm og
kransar áfþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á
Sjálfsbjörg
Fyrir mina hönd barna, tengdabarna, barnabarna og annarra vanda-
manna
Þórarinn Valdimarsson.
+
Innilegt þakklæti færum við öllum þeim fjölmörgu, sem auðsýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útfær,
HARÐARJÓNASSONAR,
Rauðagerði 1 6,
Sérstakt þakklæti færum við samstarfsfólki hins látna við Gjaldheimt-
una i Reykjavík
Fyrir hönd aðstandenda.
Kristin B. Árnadóttir.
hunds, ratvisina. Þessar ferðir
voru ekki færar nema afburða
duglegum ferðamönnum. Það tel
ég, að Ágúst Ólason hafi verið.
Þú ókunnugi maður sem lest
þessar línur skalt fletta upp i Öld-
inni okkar II B bls. 105, þá veistu
hver maðurinn er sem ég minnist.
Þar er stutt frásögn af einni póst-
ferð hans.
Ágúst andaðist á Stykkishólms-
spítala 13/9 s.l. og var þá nokkr-
um dögum meir en 78 ára. Ég var
svo heppinn að eiga Mávahlíðar-
hjónin að nágrönnum i 43 ár.
Leitaði ég oft til þeirra þeg-
ar mér lá á bæði til hjálpar
mönnum og skepnum. Það
var alltaf efst í huga mín-
um þegar erfiðleikar voru á
mínu heimili að biðja um hjálp
í Mávahlíð, ég fór aldrei
ómaksferð þangað. Ef læknis
þurfti að vitja á nótt eða degi
voru synirnir jafnt fljótir til að
ræsa bílinn. I vondum næturferð-
um fór Ágúst með, aldrei ók hann
bíl, hann kunni betur taumhald-
inu á hestinum. Samferðamenn-
irnir sakna hans og kveðja hann
með þökk og virðingu. Hann var
sá maður, sem ekki var eitt í dag,
annað á morgun, honum mátti
ávallt treysta.
„Sorgin hin bljúga og blíða, er
brúðir hins æðsta í heimi.“
Ástvinirnir syrgja hann, þeir
sjá sætið hans autt. Dauðinn ber
líkn til þeirra sem þjáðir eru og
þarfnast hvíldar. Það er huggun í
harmi.
Við hjónin vottum Þuríði í
Mávahlíð og vandamönnum henn-
ar samúð okkar.
Við þökkum góðum samferðar-
manni góða og langa samfylgd á
lifsleiðinni. Það er ekki ofsagt að
Ágúst Ólason var góður drengur.
Þegar við hefjum búskap á
landi eilífðarinnar óskum við að
eiga Mávahlíðarfólkið fyrir ná-
granna.
Ágúst Lárusson frá Kötluholti.
Sveinn Sigurð-
ur Gunnarsson
Fæddur 7/8 1955
Dáinn 20/9 1975.
Kveðja frá bekkjarfélögum
Það Iiggur fyrir öllum að deyja.:
Samt er það nú svo að engum er
það gefið að geta tekið dauða ná-
ins vinar eða ættingja með tómri
léttúð. Sárust verður sorgin þegar
hann er ungur og á lífið fyrir sér.
Sumir segja: Er maður ekki ein-
ungis að vorkenna sjálfum sér?
Ekkert þýðir að vorkenna hinum
látnu.
En er maður ekki einmitt
áhorfandi að hinum eina og sanna
harmleik þegar líf, ólifað líf ungs
manns ásamt öllum hans draum-
um er tekið frá honum?
Svenni er dáinn. Hér verður
ekki gerð tilraun til að lýsa
persónueinkennum hans. Öll slík
orð verða á sama veg og í raun-
inni tilgangslaus. Og fyrir þá, sem
þekktu Svenna, eru orð svo
óendanlega lítilf jörleg.
Dauðinn hefur höggvið skarð í
þann fámenna hóp nýstúdenta,
sem útskrifaðist frá Mennta-
skólanum að Laugarvatni í vor er
Ieið. Skarð sem aldrei verður
fyllt. Eftir eru aðeins óteljandi
fagrar minningar um góðan dreng
og vin. Svenni er farinn frá
okkur, en hann skilur eftír
ómetanleg áhrif og minningar,
sem aldrei glatast.
Mestur er missirinn foreldrum
hans og sytkinum. Við vottum
þeim okkar innilegustu samúð.
Guð blessi minningu Sveins
Gunnarssonar.
Bekkjarsystkin
frá Laugarvatni.
„Þegar Kristur kemur”
Þannig hljóðar yfirskrift
æskulýðsviku K.F.U.M. og K„
sem hefst sunnudaginn 26.
október og lýkur sunnudaginn
2. nóvember. I samræmi við yf-
irskrift vikunnar mun verða
fjallað um ýmis kjarnaatriði
kristinnar trúar, þar sem Jesús
Kristur er þungamiðja og afl-
vaki. Bent er á komu Jesú
Krists gegnum allar aldir,
að hann kemur inn í dag-
legt lif nútímamannsins
og hefur orð að segja þér,
manninum á götunni. Yfir-
skriftir eða stef kvöldanna bera
því merki, því þegar Jesús kem-
ur, menn vænta hans, hann
kallar, sýknar og sendir ásamt
fleiru.
Fjöldi manns mun koma fram
á samkomum þessum, sem fram
fara á hverju kvöldi þessa viku
i húsi K.F.U.M. og K., Amt-
mannsstíg 2B. Nefna má m.a.
skólaprestinn Jón Dalbú Hró-
bjartsson, sr. Guðmund Óla
Ólafsson auk hóps ungs fólks og
þar á meðal nokkra guðfræði-
nema. Þá munu sönghópar
koma fram, og einsöngur og tvi-
söngur verður einnig á sam-
komunum auk fjöldasöngs.
Æskulýðsvika K.F.U.M. og K.
er orðinn fastur liður í lífi borg-
arinnar, þvf f um 40 ár hafa
þessar samkomuvikur verið
haldnar. Ungt fólk hefur öll
árin sett sinn svip á og mun svo
einnig verða nú. Allir eru þó
velkomnir á samkomurnar, sem
hef jast kl. 20.30.
VOLVOSALUHINN
Fólksbílar til sölu.
Lögtaksúrskurður
Bessastaðahreppur
Samkvæmt beiðni oddvita Bessastaðahrepps ú. .urðast hér með, að
lögtök geta farið fram fyrir gjaldföllnum en ógreiddum útsvörum,
aðstöðugjöldum, fasteignagjöldum og vatnsskatti, álögðum ! Bessa-
staðahreppi árið 1 975, allt ásamt dráttarvöxtum og kostnaði.
Lögtökin geta farið fram að liðnum átta dögum frá birtingu úrskurðar
þessa, hafi ekki verið gerð skil fyrir þann tima.
Skrifstofu sýslumannsins í Kjósarsýslu,
Hafnarfirði, 20. október 1975.
Austurbær
Miðbær
Uthverfi
Kambsvegur
Vesturbær
Melabraut
Volvo 145 De Luxe
1974,
5 dyra sjálfskiptur með aflstýri og 130
ha vél. Ekinn 38 þús. km. Litur blá-
sanseraður. Verð kr. 1.8 millj.
Volvo 144 De Luxe
1973
4ra dyra, beinskiptur, Iitur Orange,
ekinn 70 þús. km. Verð kr. 1.320 þús.
Volvo 144 De Luxe
1972
4ra dyra, beinskiptur, litur ljósgrænn,
ekinn 60 þús km. Verð kr. 1.150 þús.
Volvo 144 De Luxe
1971
4ra dyra, beinskiptur, litur dökkblár,
ekinn 90 þús. km. Verð kr. 900 þús.
Volvo 144 De Luxe
1970
4ra dyra, beinskiptur, litur guldrapp,
ekinn 120 þús km. Verð kr. 720 þús.
Volvo 144, 1969
4ra dyra, beinskiptur, Iitur dökkblár,
ekinn 85 þús km. Verð kr. 580 þús.
Volvo 144, 1967
4ra dyra, beinskiptur, litur Ijósblár,
ekinn 150 þús km. Verð kr. 450 þús.
útfaraskreytingar
blófnouol
Groóurhusió v/Sigtun simi 36770