Morgunblaðið - 09.12.1975, Blaðsíða 1
282. tbl. 62. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Ljósmynd: Friðgeir Olgeirsson.
Hattersley:
.Jícld ekki
að verði
skotið”
Hull, 8. desember.
Frá Mike Smartt.
ROY Hattersley, aðstoðarutan-
ríkisráðherra Breta, sagði í dag,
að hann gerði ekki ráð fyrir þvi að
gripið yrði til fallbyssna í þessu
þorskastríði. Ráðherrann var að
svara ummælum Niels P. Sigurðs-
sonar, sendiherra Islands I
London, er hann sagði fyrir helgi
að hótun Breta um beitingu
byssuvalds gegn íslenzkum varð-
skipum hefði verið ögrandi og
klaufalegt af brezka skipherr-
anum að senda hótunina ut yfir
loftskeytastöðina svo að allur
heimur mætti heyra. Hattersley
sagði að Islendingar hefðu reynt
10 sinnum að hleypa hörku í
deiluna og sakaði þá um ævin-
týramennsku. Hattersley sagði að
Islendingar stefndu að því að
reyna að neyða Breta í stöðu, sem
þeir vildu ekki semja úr, en
Bretar myndu svara ævintýra-
mennsku Islendinga með jafn-
aðargeði að venju.
Þjóðaratkvæði á Tim-
or í náinni framtíð
segir Malik utanríkis-
ráðherra Indónesiu
Jakarta, Lissabon og Darwin,
8. desember. AP—Reuter.
ADAM Malik, utanrfkisráðherra
Indónesfu, sagði f dag, að her-
menn Indónesfu yrðu kallaðir á
brott frá A-Timor þegar er friði
og reglu hefði verið komið á á
eynni. Malik sagði að stjórn Indó-
nesfu hefði aðeins orðið við
beiðni Lýðræðissamtaka Timor
(UDT) um aðstoð, en hér hefði
ekki verið um raunverulega inn-
rás að ræða. Malik sagði að að-
gerðir Indónesfustjórnar myndu
„Þessir menn fara hvergi,
staða þeirra er vonlaus”
London 8. desember. Reuter
— AP.
„ÞESSIR menn fara hvergi og
þeir hljóta að skilja að staða
þeírra er vonlaus," sagði Sir
Robert Mark, lögreglustjóri
Lundúnaborgar, f dag við
fréttamenn, þar sem hann
stjórnaði aðgerðum f um-
sátrinu um 4 skæruliða
Provisionalarms IRA sem
höfðu búið um sig f Iftilli fbúð f
London. Skæruliðarnir fjórir
brutust inn f fbúðina sl. laugar-
dagskvöld og tóku miðaldra
hjón, sem þar bjuggu, sem
gfsla eftir ævintýranlegan
flótta um borgina undan lög-
reglunni. Er talið að hér sé um
að ræða IRA-mennina, sem
staðið hafa fyrir sprengjutil-
ræðunum f Englandi á undan-
förnum mánuðum.
Lögreglan hafði setið fyrir
ræningjunum fyrír utan veit-
ingahús Scotts i Mayfaír, þar
sem sprengja sprakk nýlega, en
lögreglan hafði einhverjar hug-
myndir um að skæruliðarnir
Framhald á bls. 38
væntanlega verða til þess að flýta
fyrir að eyjan fengi endanlegt
sjálfstæði og sagði að þjóðarat-
kvæðagreiðsla fbúanna um fram-
tfðarskipan mála myndi faraj
fram hið fyrsta og bauð sam-
einuðu þjóðunum og öðrum, sem
áhuga hefðu á, að koma og
fylgjast með framkvæmd at-
kvæðagreiðslunnar.
Lýðræðissamtök Timor, sem
eru samtök þriggja stjórnmála-
flokka á eynni, hafa undanfarna
mánuði átt f hörðum átökum við
vinstrisinnuðu frelsishreyfing-
una FRETILIN, (byltingarfylk-
ingin fyrir sjálfstæði Timor) og
hafa höfuðstöðvar hreyfing-
arinnar verið í Dili, höfuðborg
Timor, undanfarna 3 mánuði, eða
þar til hermenn Indónesíu og her-
menn UDT náðu borginni á sitt
vald í gær. FRETILIN lýsti yfir
sjálfstæði Timor fyrir 10 dögum,
en eyjan hefur verið nýlenda
Portúgala sl. 400 ár.
Portúgalsstjórn sleit f gær
stjórnmálasambandi við Indó-
nesíu í mótmælaskyni við innrás-
ina og krafðist Portúgalsstjórn
þess að öryggisráö Sameinuðu
þjóðanna tæki málið fyrir.
Fregnir frá Darwin í Ástralíu
hermdu í dag, að 500 manns,
einkum konur og börn, hefðu
fallið er hermenn Indónesíu
gengu á land á Timor og hertóku
Dili. Var það fulltrúi FRETILIN,
sem hélt þessu fram, og sagði
hann einnig að Henry Kissinger
utanríkisráðherra Bandaríkjanna
hefði vitað um innrásaráformin
og stutt Indónesíustjórn. Ford
Bandaríkjaforseti lýsti yfir
áhyggjum yfir ástandinu og sagð-
ist vonast til að hægt yrði að
komast að friðsamlegri lausn.
Hann sagðist ekki hafa vitað um
innrásaráform Indónesa.
Börnunum
sleppt
Amsterdam, 8. desember.
Reuter.
SKÆRULIÐARNIR 5 frá S-
Mólukkaeyjum, sem halda 29
manns í gfslingu f sendiráði
Indónesfu f Amsterdam,
sleþptu í kvöld börnunum 4,
sem hafa verið meðal gfslanna.
Var hér um að ræða 13 ára
stúlku og þrjá 12 ára drengi.
Ákvörðun ræningjanna um að
sleppa börnunum var tekin
eftir samningaviðræður, sem
staðið hafa f allan dag fyrir
milligöngu prests frá S-
Molukkaeyjum, Semueul
Metiaris. Börnin 4 komu út úr
sendiráðinu f fylgd með séra
Metiaris og voru þegar flutt f
sjúkrahús til rannsóknar, þar
Framhald á bls. 38