Morgunblaðið - 09.12.1975, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1975
Lifði af hættur kapp-
akstursbrautanna í 21
ár en fórst í flugslysi
tilboði með þessari yfirlýsingu
sinni, og er þegar vitað um a.m.k.
eitt félag sem er fúst til þess að
greiða álitlega upphæð fyrir
hann. Er það spánska félagið FC
Barcelona en það hefur innan
sinna vébanda tvo fræga Hol-
lendinga: Johan Cruyff og Johan
Neeskens. Segir þjálfari
félagsins, Hennes Weisweiler, að
Beckenbauer sé einmitt maður-
inn sem Barcelona þurfi á að
halda um þessar mundir. Þá
hefur einnig Udo Lattek, fyrrum
þjálfari Beckenbauer hjá Bayern
Múnchen, lýst því yfir að það
félag sem hann þjálfar nú,
Borussia Mönchengladbach, hafi
mikinn áhuga á „keisaranum", en
ólíklegt er talið að hann hafi
áhuga á að fara til þess liðs.
Sagt er að Beckenbauer hafi
margar ástæður fyrir þvf að yfir-
gefa Bayern Múnchen en félagið
hins vegar aðeins eina til þess að
gefa hann eftir: peninga. Bayern
Múnchen er nú mjög illa statt
peningalega, og komist félagið
ekki a.m.k. í úrslit í Evrópubikar-
keppninni í knattspyrnu er hætt
við að það verði að selja, ekki
aðeins Beckenbauer, heldur og
flesta beztu leikmenn félagins.
Beckenbauer er mjög óvinsæll
meðal félaga sinna í Bayern
Múnchen og kenna þeir m.a. mikl-
um peningagreiðslum til hans um
hvernig komið er fyrir félaginu.
Auk þess er Beckenbauer stöðugt
i keisarahlutverki sínu hjá
félaginu, hvort sem er á æfingum
eða f leikjum og talar helzt ekki
orð við félaga sína fyrir utan
knattspyrnuvöllinn. Upp úr sauð
hjá leikmönnum liðsins er það var
að keppa við Malmö FF f Múncen
á dögunum, en þá hljóp Becken-
bauer til þjálfara liðsins, Dettmar
Carmer, meðan á leiknum stóð,
benti á tvo félaga sinna, Klaus
Wunder og Rummenigge, og
hrópaði svo hátt að heyra mátti
víða: „Hvað ertu að gera með
þessar vínarpylsur inni á vellin-
um.“
Þá ganga einnig sögur um það
að Beckenbauer vilji komast frá
Þýzkalandi vegna eiginkonu
sinnar, Birgitte, sem slúðurdálka-
höfundar segja að geri allt annað
en að fylgjast með bónda sfnum í
sjónvarpi meðan hann er á
keppnisferðum með liði sfnu. Þau
hjón eiga þrjá stráka sem Becken-
bauer lætur mikið með og óttast
að missa, verði af skilnaði.
Víst er, að Bayern Múnchen má
muna sinn fífil fegri í þýzku 1.
deildar keppninni í knattspyrnu.
Liðið er nú í 7. sæti í deildinni
með 17 stig eftir 16 leiki, en
Borussia Mönchengladbach hefur
forystu með 23 stig. I öðru sæti er
svo Hamburger SV með 20 stig.
Ahorfendum að leikjum Bayern
hefur fækkað mjög mikið að
undanförnu, og vel kann að vera
að stórveldi félagsins í þýzkri
knattspyrnu líði endanlega undir
lok selji það „keisara" sinn.
Franz Beckenbauer á hátindi frægðar sinnar, eftir sigur Þjóðverja f heimsmeistarakeppninni 1974.
Walther Scheel forseti Þýzkalands virðist jafnglaður og fyrirliðinn.
ÍBK gefur
út platta
íþróttabandalag Keflavlkur hefur
nú gefið út postulínsplatta i
tilefni Bikarmeistaratitils félags-
ins i knattspyrnu. Er á plattanum
mynd af fyrirliða ÍBK sem hampar
hinum fagara verðlaunagrip sem
veittur er fyrir keppni þessa og
áletrunin: fþróttabandalag Kefla
vikur — Bikarmeistarar i knatt-
spyrnu. Upplag plattans er aðeins
200 eintök, og er hver platti
númeraður og verða ekki fram-
leiddir fleiri. Má þvi búast við að
plattinn verði eftirsóttur safn-
gripur. Plattann teiknaði Haukur
Halldórsson og er hann fram-
leiddur hjá Gler og postulíni h.f.
Þetta er annar plattinn sem
ÍBK gefur út — sá fyrsti var
gefinn út i tilefni af sigri ÍBK i 1.
deildar keppninni 1973.
Plattarnir verða tíl sölu i
Verzluninni Sportvik i Keflavik og
hjá Hafsteini Guðmundssyni. For-
gangsrétt að kaupum eiga þeir
sem einnig eiga fyrri ÍBK-
plattann, fram að næstu helgi.
„TAKMÖRK lífsins“ nefndist
kvikmynd sem gerð var fyrir
fimm árum um llf og keppnisferil
brezka kappakstursmannsins
Graham HiII, sem f fyrra lagði
hjálminn á hilluna fyrst og
fremst vegna þess að hann taldi
kappaksturinn of hættulegan og
öryggi keppenda ekki gætt sem
skyldi. Meðan hann var kapp-
akstursmaður, tæpan aldarfjðrð-
ung, var maðurinn með ljáinn oft
f nágrenni hans, en náði þá fyrst
að höggva, er Hill var hættur
keppni.
Eins og skýrt hefur verið frá í
Morgunblaðinu lézt þessi 46 ára
gamla kappaksturshetja í fl'ig-
slysi í Englandi um fyrri hel tí.
Hann var sjálfur flugmaður á
Piper Aztec flugvél sem ha ín
keypti fyrir þá 150.000 dollara
sem hann fékk í verðlaun fyrir
sigur í Indianapolis-
kappakstrinum 1966. Aðfaranótt
sunnudagsins lagði Hill af stað
áleiðis til Elstree-flugvallar,
skammt fyrir norðan London,
ásamt félaga sfnum hinum kunna
kappakstursmanni Tony Brise og
fjórum viðgerðarmönnum kapp-
akstursbifreiða, í mjög tvísýnu
veðurútliti. Þegar Hill nálgaðist
flugvöllinn var skygni aðeins um
50 metrar og hann fékk ekki lend-
ingarleyfi. Hill sem hætt hafði
kappakstri vegna þess að honum
fannst ekki öryggis gætt, lét hins
vegar ekki segjast og ákvað að
lenda. Flugvél hans lenti á trjám
við enda flugbrautarinnar og féll
til jarðar þar sem samstundis
kviknaði í henni og allir mennirn-
ir sex létust. A nákvæmlega sama
andartaki fórst önnur lítil flugvél
við Birmingham sem var að lenda
við sömu skilyrði.
Graham Hill hafði oft komizt í
hann krappann, en sloppið með
skrekkinn. Nokkrum sinnum
hafði hann lent í slysum en það
var eins og einhver hulin
verndarvættur væri með honum.
Þannig var það t.d. 1969 er hann
lenti í árekstri í Walkins Clen
kappakstrinum eftir að hjólbarði
hafði sprungið hjá honum. Gra-
ham Hill kastaðist þá langar leiðir
frá bifreiðinni, hlaut slæm
meiðsli en þó ekki meiri en svo að
hálfu ári síðar var hann aftur
meðal keppenda á kappaksturs-
brautunum. i
1 fyrra hætti Hill kappakstri. —
Ég hef ekki lengur sömu ánægju
af því að aka og ég hafði, sagði
Hill þá. Aldurinn er að færast yfir
mig og ég er að verða hræddur.
Það eru alltaf gerðar meiri og
meiri kröfur til kappaksturs-
manna, án þess að nokkuð sé gert
til þess að tryggja betur öryggi
þeirra.
Hill sagði þó ekki skilið við
kappaksturinn þótt sjálfur hætti
hann að aka. Hann ákvað að
stofna sveit kappakstursmanna
og fékk vindlingaframleiðendur
til þess að fjármagna fyrirtækið.
Sem fyrr segir var maðurinn
með ljáinn oft í nágrenni Graham
Hill meðan hann var kappaksturs-
maður, og þó ekki síður eftir að,
hann hætti að aka. Tveir kapp-
akstursmenn úr sveit hans létu
lffið af slysförum í sumar, annar
þeirra sem verið hafði bezti öku-
maður sveitarinnar. Að honum
látnum tók Tony Brise við sem
fyrsti ökumaður og voru þeir Hill
og Brise að koma frá Marseille í
Frakklandi frá því að prófa öku-
mann er slysið vildi til.
Listinn yfir sigra Graham Hill á
kappakstursbrautunum er lang-
ur. Hann varð tvívegis heims-
meistari, 1962 og 1968, og hann er
eini kappakstursmaðurinn sem
hingað til hefur unnið það sem
kallað er hinir þrír bláu borðar
kappakstursins; þ.e. heims-
meistaratitil, 24 tíma kapp-
aksturinn f Le Mans, og
Indianapolis 500.
Betty, kona HiIIs, fylgdi honum
jafnan á keppnisferðum hans, og
var sagt að hjónaband þeirra væri
óvenjulega gott, en það mun sam-
eiginlegt með kappaksturshetjum
og kvikmyndaleikurum og hjóna-
bönd þeirra endast illa. Þau áttu
þrjár dætur, Brigitte, Damon og
Samantha, og eru þær allar ungar
að aldri.
Graham HiII eftir krýningu sem heimsmeistari.
Beckenbaner vill fara
og Bayern vantar peninga
HINN frægi knattspyrnumaður,
Franz Beckenbauer, hefur lýst
því yfir að hann vilji gjarnan fara
frá félagi sínu, Baeyrn Múnchen,
og komast til einhvers félags f
Suður-Evrópu. Bayern Múnchen
hefur samning við Beckenbauer
fram til ársins 1979, en í þeim
samningi er hins vegar sá fyrir-
vari að Beckenbauer er frjálst að
fara frá félaginu, fái hann tilboð
sem bæði hann og félagið telji
hagstætt. Sjálfsagt er Becken-
bauer nú að auglýsa eftir slíku
Nýi skíðabánin^iriini v^ur S00 grömm
ÞAÐ er vfst hætt að koma fðlki á
ðvart þðtt nýr fþrðttabúnaður
komi á markaðinn. Hið mikla
kapphlaup afreksfðlks um verð-
laun og stig á stðrmðtum hefur
orðið til þess að búnaður þess
hefur tekið miklum breytingum á
undanförnum árum. Allar miða
þessar breytingar að einu marki:
Að auðvelda viðkomandi íþrðtta-
manni að ná sem beztum árangri.
Frægasta dæmið um slíkt eru
stengurnar sem nú eru notaðar í
stangarstökki en stengur úr gervi-
efni hafa nánast gjörbreytt
þessari fþrðttagrein.
Breytingar hafa ekki hvað sízt
orðið í búnaði skíðafólks, og það
nýjasta á því sviði er nýr keppnis-
búningur, sem vegur aðeins um
300 grömm. Það er norskt fyrir-
tæki sem er um það bil að senda
fatnað þennan á markaðinn, og
þegar er vitað að landslið Noregs,
Svfþjóðar, Bandarfkjanna, Sovét-
ríkjunna, Kanada og
Tékkíslóvakíu munu nota
klæðnað þennan á vetrarólympíu-
leikunum í Innsbruck f vetur.
Fatnaður þessi er sérstaklega
hannaður með tilliti til þess að
hann veiti sem minnst viðnám. I
keppni þar sem jafnvel einn
þúsundasti úr sekúndu getur skil-
ið milli sigurs og ósigurs getur
þetta haft gífurlega mikið að
segja, auk þess sem búningur
þessi er talinn veita keppendum f
Alpagreinum á skíðum meira
öryggi en þeir búningar sem verið
hafa á markaðinum til þessa, og
hefur það ýmislegt fram yfir
austurrískan skíðafatnað sem
sendur var á markaðinn 1973 og
olli þá miklu fjaðrafoki í skíða-
heiminum.
Sama fyrirtækið f Noregi og
framleiðir þennan keppnisbúning
er einnig um það bil að senda á
markaðinn nýja gerð af upphitun-
argöllum og er þar einnig um
nýjungar að ræða. Bæði er að
auðveldara á að vera að fá sig vel
heitan f búningi þessum og auk
þess er einnig auðveldara að kom-
ast úr honum en flestum öðrum
fþróttabúningum.
Þá hefur einnig komið á
markaðinn ný gerð af gönguskíð-
um, sem þykir taka öðrum fram,
en ólíklegt þykir að þau verði
notuð á Ölympíuleikunum, þar
sem ekki er öruggt að þau falli
inn í ramma reglugerða alþjóða-
skíðasambandsins um slíka gripi.