Morgunblaðið - 09.12.1975, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1975
5
EgHl Frlðlelfsson Jðn Asgelrsson
Tónlistargagnrýnend-
ur Morgunblaðsins
VEGNA eindreginna tilmæla rit-
stjóra Mbl. hefur Jón Asgeirsson
tónskáld fallist á að halda áfram
skrifum sínum um tónlist hér í
blaðið, enda bera þeir fyllsta
traust til hans.
Þá hefur Egill Friðleifsson tón-
listarkennari tekið að sér að
skrifa tónlistargagnrýni að stað-
aldri ásamt Jóni Asgeirssyni enda
bera ritstjórar einnig til hans
fyllsta traust, en þess ber að getá,
að hann hefur orðið fyrir miklu
persónulegu ónæði og óþægind-
um vegna starfa sinna að undan-
förnu.
Jón Jónsson, forstjóri Hafrannséknastofnunarinnan
Brezki sjávarútvegs-
ráðherrann hefur
misskilið skýrsluna
I FRAMHALDI af þeirri yfirlýs-
ingu Fred Peart, sjávarútvegsráð-
herra Breta, að ástand þorsk-
stofnsins við tsland væri ekki
eins alvarlegt og fslenzkir fiski-
fræðingar segðu, hafðí Mbi. sam-
band við Jón Jónsson, forstjóra
Hafrannsóknastofnunarinnar.
Jón hafði eftirfarandi að segja
um ummæli Peart:
Ég ætla ekki að fara að deila við
sjávarútvegsráðherra Breta um
ástand fiskstofnanna við tsland,
Jðn Jónsson.
en mér sýnist hann hafa misskilið
skýrslu íslenzku og brezku fiski-
fræðinganna um áhrif veiðanna á
fslenzka þorskstofninn. A fundi
brezkra og islenzkra fiskifræð-
inga hér f Reykjavík í fyrri mán-
uði viðurkenndu Bretar þau gildi
sem íslenzkir fiskifræðingar hafa
sett á fiskveiðidánartöluna, en í
upphafi viðræðnanna héldu þeir
fram talsvert lægri dánartölu en
viðurkenndu þó að lokum niður-
stöður okkar hvað þetta varðar.
Þegar þetta gildi er fundið þarf
ekki nema tiltölulega einfalda út-
reikninga til þess að reikna út
magn fisks í sjónum árið eftir og
að ákvarða leyfilegan hámarks-
afla enda er sú viðmiðun sem við
notum um það atriði sú sama og
Alþjóðahafrannsóknaráðið hefur
notað undanfarin ár.
Eins og kom fram f hinni sam-
eiginlegu skýrslu sem reyndar
birtist f Mbl. fyrir nokkru bar
nokkuð á milli mats okkar og
brezku fiskifræðinganna á kom-
andi árgöngum. Við notuðum
árangur af seiðarannsóknum
undanfarinna ára enda er það
einasta sem vitað er um styrk-
leika þeirra árganga sem ennþá
eru ekki komnir inn í veiðina en
Bretar sem ekkert hafa gert á
þessu sviði hér við land undan-
farin ár vildu ekki fallast skil-
yrðislaust á þessar niðurstöður og
vildu heldur nota meðaltöl um
styrkleika þessara árganga á
undanförnum árum eftir að þeir
eru komnir í veiðina. Þrátt fyrir
þessar mismunandi aðferðir, bar
nú ekki meira á milli en svo, að
með íslenzku aðferðinni fengum
við leyfilegan hámarksafla á
þorski 230 þúsund tonn en með
aðferð þeirri sem brezku fiski-
fræðingarnir vildu hafa var leyfi-
legur hámarksafli 265 þúsund
tonn. Jafnvel tölur brezku fiski-
fræðinganna gefa ótvírætt til
kynna, að nauðsyn sé á umtals-
verðri minnkun á heildarafla
1976 þegar við höfum í huga að á
árinu 1974 varð heildarþorskafl-
inn við Island 375 þúsund tonn.
Að segja að íslenzkir fiskifræð-
ingar hafi mistúlkað niðurstöður
fundarins er algjörlega út í hött.
Þessi sameiginlega skýrsla hefur
þegar birzt í einu íslenzku dag-
blaðanna, Mbl., og er því hægur
vandi að bera hana saman við
túlkun okkar á henni.
Rúður brotnuðu í 30
húsum í Neskaupstað
Neskaupstað, 8. desember.
AFTAKAVEÐUR var i Neskaup-
stað f fyrrinótt og urðu af þvf
allmiklar skemmdir. Meðal
annars fauk þak af húsi harðfisk-
gerðarinnar Clipper, tveir gamlir
nótabðtar fuku og nokkur fbúðar-
hús skemmdust af völdum þak-
platna sem skullu á þeim. Þá
munu rúður hafa brotnað f um 30
húsum.
Það var um kl. 02 sem byrjaði
að hvessa og smám saman jókst
veðurhamurinn þar til hann varð
mestur á milli 4 og 5. Veðrið stóð
af norðvestri og kom síðan út yfir
bæinn úr Borgarkrók. A meðan
mestu lætin voru í veðrinu munu
allflestir bæjarbúar hafa verið
klæddir og ekki orðið svefnsamt
fyrr en veður lægði upp úr kl. 5. Á
milli kl. 4 og 5 voru gífurleg Iæti í
bænum. Þakið fór þá af húsi
Clippers, ennfremur skemmdist
timburhús, sem stóð við Urðar-
teig, mjög mikið, en f því var ekki
búið. Nokkur hús í smíðum
Framhald á bls. 38
LÆKJARGÖTU 2 - SÍMI FRA SKIPTIBORÐI 28155
Úrvalið eykst
um
■Á JAKKAFÖT með og án vestis o
★ STAKIR JAKKAR úr velvet og riffluðu flaueli
BLAZER JAKKAR margir litir
it STÓRKOSTLEGT ÚRVAL af herra peysum og skyrtum
it BLÚSSUR OG PEYSUR fyrir dömur nýkomið mikið úrval
it KÁPUR úr riffluðu flaueli og ull með og án hettu
★ HETTUPEYSUR * BINDI OG SLAUFUR ★ NÆRFÖT
'Á' STAKAR BUXUR úrval af sniðum og litum.
TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS
KARNABÆR
AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 2Oa
Sími frá skiptiborði 281 55