Morgunblaðið - 09.12.1975, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1975
31
A BORGARSTJÓÍINARFUNDI
s.l. fimmtudag lagði Sigurjðn
Pétursson fram tiilögu um að
stofnað yrði sérstakt fram-
kvæmdaráð til að hafa umsjón
með stofnunum, er heyra undir
embætti borgarverkfræðings.
Skyidi ráðið leitast við að sam-
ræma störf hinna ýmsu deilda og
stofnana og vera borgarstjórn til
ráðuneytis um verklegar fram-
kvæmdir.
I greinargerð taldi tillögu-
maður stofnun slíks fram-
kvæmdaráðs geta orðið til þess að
stuðla að nánara sambandi kjör-
inna fulltrúa og þeirra er hefðu
með höndum verklegar fram-
kvæmdir, en taldi jafnframt að
nú færu um 3 milljarðar um
hendur þessara aðila, án þess að
borgarfulltrúar kæmu þar nærri.
Jafnframt sagðist Sigurjón telja,
að leggja mætti niður ýmsar
nefndir á vegum borgarinnar,
þannig að stofnun framkvæmda-
ráðsins myndi ekki hafa í för með
sér að nefndum fjölgaði.
Markús Örn Antonsson taldi
borgarráð fjalla að mjög verulegu
leyti um þau verkefni, sem gert
væri ráð fyrir að framkvæmdaráð
annaðist, þvi að raunverulega
væri borgarráð framkvæmdaráð,
sem m.a. fylgdist náið með fram-
kvæmdum á vegum borgarinnar
og þeim framkvæmdum, sem
fram færu á vegum borgarverk-
Margar gerðir
Fást víða
Sendum gegn
póstkröfu
fræðings. Kvað hann samstarf
borgarráðs við borgarstofnanir
hafa gefið góða raun, og væri því
ekki þörf á sérstöku fram-
kvæmdaráði. Lagði hann siðan til
að tillögu Sigurjóns Péturssonar
yrði vísað frá og var það sam-
þykkt með 9 atkvæðum borgar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins á
móti 6 atkvæðum minnihlutans.
FÁLKINN*
Suðurlandsbraut 8,
sími 84670.
Fiat 131 mirafiori 1300 / 1600 2ja og 4ra dyra station.
Vél 75—85 ha. Eyðsla 1 0 I pr 1 00 km.
Fyrirliggjandi til afgreiðslu strax.
EIIMKAUMBOÐ A ISLANDI
Davíð Sigurðsson hf
SIÐUMULA 35, SIMAR 38845 — 38888
r
Attrœð í gœr:
Helga Jónsdóttir
frá Gunnfríðarstöðum
Helga frá Gunnfríðarstöðum
var áttræð í gær. Hún fæddist 8.
des. 1895 þáverandi búendum
þar, Jóni Hróbjartssyni, ættuðum
úr Arnesþingi og konu hans önnu
dóttur Einars Andréssonar, ej>
kenndur var við Bólu og kunnúr
vegna gáfna sinna og þagmælsku.
Helga ólzt upp hjá foreldrum
sínum til fermingaraldurs en þá
andaðist móðir hennar. Sextán
ára að aldri innritast hún á
kvennaskólann á Blönduósi og að
loknu námi þar dvelur hún um
skeið við hjúkrunarnám og störf á
Sauðárkróki. Þá var þar læknir
Jónas Kristjánsson, og árið 1918
giftist hún Steingrími Davíðssyni,
síðar skólastjóra á Blönduósi og
yfirverkstjóra vegagerðar í
Austur-Húnavatnssýslu.
Þau Helga og Steingrímur eign-
uðust 14 börn, og 2 þeirra létust í
frumbernsku. Hin 12 komust öll
til aldurs og eru nú velmetnir
borgarar í þjóðfélagi okkar og má
það teljast allgott framlag einna
hjóna, einkum séu höfð f huga
skilyrði þau er allur þorri manna
bjó við þá.
Um 40 ára skeið bjuggu þau
hjón á Blönduósi og hlóðst þar á
Steingrím fjöldi trúnaðarstarfa,
sem orsökuðu umsvif, ferðalög og
gestakonur til ábætis á mann-
margt heimili. Arið 1959 lét Stein-
grfmur af störfum og fluttust þau
hjón þá til Reykjavíkur og eiga nú
heima að Hofteigi 18 þar í bæ.
Það sem hefir verið sagt er
aðeins lausleg grind — nánast
punktar — en innan þeirra er 80
ára æviskeið skapheitrar og við-
kvæmrar gáfukonu. Uppeldi slíks
barnahóps sem hér um ræðir
krefst alls. Þar blanda geði erfiði
og áhyggjur við unaðsstundir og
bjartar vonir og undir leika
„Brjóstsins stormar hugans
hljóðu annir.“ Engin fær talið
þær stundir, sem móðurástin
fórnar afkvæmunum og enginn
mælt þá gleði, sem gefin er að
launum.
Kvennaár kallast þetta herrans
ár, sem senn líður að lokum og
hafa konur nokkuð látið til sín
Frá borgarstjórn
heyra og krafizt réttar síns, fjarri
sé mér að andæfa eðlilegum rétti
kvenna, en einn er sá réttur sem
ekki þarf að krefjast, hann hefir
ávallt verið fyrir hendi, hinn
göfugasti og vandasamasti sem
nokkur fær á hendi haft —
uppeldi kynslóðanna frá bernsku
til manndómsára. „Og enginn
kenndi mér eins og þú,“ segir síra
Matthías.
Vart þarf að efa að Helga hafi
hneigzt til frekari mennta en
kostur var á í æsku hennar og
orðið þarmeðfærumað takast
hvert það starf á hendur, sem
þjóðfélag vort býður, svo er hún
vel gerð, en hún átti bónda og
„átti tíu unga“' — raunar urðu
þeir 14 — og að heimilinu og þeim
störfum, sem það krafði, var
kröftunum beint og hvergi dregið
af. En þrátt fyrir annir og örðug-
leika hefir hún jafnan átt sam-
fylgd með stormum sinnar tfðar,
er víðlesin og smekkvís á bækur,
ekki sízt ljóð enda vel hagmælt
sjálf, þótt hún hafi það lítt í
hámæli.
Undirritaður hefir um langt
skeið átt því láni að fagna að njóta
hlýhugs og vináttu hinna merku
hjóna Helgu og Steingríms. Ekki
er þó stöðugt samstig um skoðanir
á mönnum og málefnum og stund-
um fær sjötugi strákurinn ádrep-
ur hinna eldri og reyndari. Vel
fer á þvf, bak við þær standa
fylktu liði hreinskilni, skörp dóm-
greind og velvild, þökk sé þeim
samskiptum.
Helga er myndarkona hin
mesta og vel farin sýnum, þótt
farfi æskunnar sé tekinn að fölna,
hún hefir í fari sfnu og fram-
göngu sameinað hlýhug og reisn
hinnar lffsreyndu konu með
marga sigra að baki og vel mun
hún vita að „Allt hefðarstand er
mótuð mynt en maðurinn gullið
þrátt fyrir allt.“
Nú sitja þau Helga og Stein-
grímur í Hliðskjálf sinni og
skyggnast um í aftanskini áliðins
dags. Fullvíst má telja, þótt
áhugamálin séu mörg, að þar
skipi hið fjölmenna skyldulið
öndvegið, svo hefir jafnan verið.
Gjarnan mega þau þó verða þess
vör að vfðar eiga þau vini og eru
ekki gleymd í heimahéraði.
Afmæli eru jafnan óskastundir
og þakka. Því notum við hjónin
tækifærið, þökkum liðna daga og
óskum hinu áttræða afmælisbarni
og fjölskyldu þess allrar bless-
unar á komandi tímum.
Halldór Jónsson
Tillaga um ráð á ráð ofan
náði ekki fram að ganga
Reiðhjól — þríhjól — stignir bílar
12. flokkur:
Á morgun verður dregið í 12. flokki
31.500 vinningar aðfjárhæð 397.800.000 króna
I dag er síðasti endurnýjunardagur
9 á 2.000.000 kr. 18.000.000 kr.
9 - 500.000 — 4.500.000 —
9 - 200.000 — 1.800.000 —
2.430 - 50.000 — 121.500.000 —
21.015 - 10.000 — 210.150.000 —
8.010 - 5.000 — 40.050.000 —
31.482 396.000.000 —
Aukavinningar:
18 á 100.000 kr. 1.800.000 —
31.500 397.800.000 —