Morgunblaðið - 09.12.1975, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1975
Tvær nýjar plötur
frá Hljóma-útgáfunni
NV PLATA með „Ðe Lðnlf BIú
Bojs“ er komin út á vegum
Hljómaútgáfunnar f Keflavfk. Er
um tólf laga plötu að ræða eftir
ýmsa höfunda með fslenskum
textum. Plata þessi er nokkuð f
stfl við fyrri plötu „Ðe Lónlf BIú
Bojs“, en að sjálfsögðu hefur
tónlist dularfyllstu hljómsveitar
landsmanna þróast f takt við
tfmann, segir f fréttatilkynningu.
önnur plata er og komin frá
Hljóma-útgáfunni. Ber hún heitið
„Gleðileg jól“ og eru á henni tólf
jólalög i flutningi ýmissa hljóm-
listamanna. Má nefna meðal
þeirra Björgvin Halldórsson,
Engilbert Jensen, Maríu Baldurs-
dóttur, Þóri Baldursson, Gunnar
Þórðarson, Rúnar Júlfusson og
Hljóma.
Lögin eru úr ýmsum áttum með
íslenskum textum m.a. er á plöt-
unni „Heims um ból“ eftir Svein-
björn Egilsson sem Engilbert
syngur.
Báðar plötur Hljóma-
útgáfunnar eru hljóðritaðar við
fullkomnustu skilyrði í London
og Múnchen. Pressun fór fram í
New York.
Magnusson von-
ast eftir 2:1
meirihlutafylgi
FRUMVARP Warren Magnus-
sons öldungadeildarþing-
manns um 200 mflna útfærslu
Bandarfkjanna er nú komið á
dagskrá bandarfsku öldunga-
deildarinnar, en þar eð afar
mörg frumvörp bfða nú af-
greiðslu fyrir áramót er ekki
ljóst hvort 200 mflna frum-
varpið kemst að fyrir þann
tfma, að þvf er einkaritari
Magnussons, Ken Reigner,
tjáði Morgunblaðinu f gær.
Hins vegar eru einnig mögu-
leikar á þvf að frumvarpið
komist að, jafnvel f þessari
viku, en þó ekki fyrr en á
miðvikudag eða fimmtudag.
Að sögn Reigners væntir
Magnusson þess að frumvarpið
muni hljóta 2:1 meirihluta at-
kvæða f deildinni.
Skozkir þjóð-
ernissinnar á
móti flotavernd
Bridge of Allen,
8. desember — AP.
LANDSRÁÐ Skozka þjóðernis-
sinnaflokksins samþykkti ein-
róma á laugardagskvöld ályktun
þar sem brezka ríkisstjórnin er
hvött til að kalla brezku herskipin
heim af Islandsmiðum og semja
um veiðikvóta innan 200 mílna
markanna. Landsráðið er
fylgjandi 200 mílna fiskveiðilög-
sögu fyrir Skotland.
„Kafteinn
Scott og harm-
leikurinn á
Suðm,skautinu, ’
BÖKAUTGÁFAN örn og Orlygur
hefur gefið út annað bindi f bóka-
flokknum „Frömuðir landa-
funda“, sem Sir Vivian Fuchs rit-
stýrir. Þetta bindi fjallar um
Robert F. Scott og för hans til
Suðurskautslandsins 1912. en sem
kunnugt er lenti hann þar í hin-
um mestu hrakningum og harm-
leiknum lauk með því, að hann og
allir félagar hans létu lffið.
I bókinni eru 116 myndir, sem
teknar voru og teiknaðar f
leiðangrinum. I fréttatilkynningu
frá útgefanda segir, að höfundur,
sem er Peter Brent, lýsi ekki ein-
vörðungu þeim atburðum, sem
tengdir eru Suðurskauts-
leiðangrinum, heldur einnig
margslunginni skapgerð þessa
einstæða manns.
Þýðandi bókarinnar er
Rögnvaldur Finnbogason.
Meir en
100 fórust
í Líbanon
Beirut, 8. desember
— Reuter.
UTGÖNGUBANN var sett í
Beirut í dag f heilan sólarhring í
fyrsta skipti á þeim átta mán-
uðum sem átök múhameðstrúar-
manna og kristinna manna hafa
geisað í Libanon. Ríkisstjórn
Rashid Karamis reynir nú allt
hvað af tekur að koma í veg fyrir
algjöra borgarastyrjöld og kom
saman i dag til að ræða hið nýja
áfall sem varð um helgina er meir
en 100 manns biðu bana í miklum
átökum.
— Rúður
brotnuðu
Framhald af bls. 5
skemmdust, t.d. í nýja hverfinu á
Bakka-Bakka, þar sem einingahús
í byggingu skekktist, og alls
konar brak var þar á flugi.
Nú er unnið að viðgerðum á
skemmdunum og byrjuðu Norð-
firðingar að dytta að strax á
sunnudagsmorgun.
Fréttaritari.
— Sleppt
Framhald af bls. 1
sem foreldrar þeirra áttu að
hitta þau.
Það mun hafa ráðið úrslitum
f málinu að hollenzk yfirvöld
höfðu milligöngu um fund
milli séVa Metieris og háttsetts
sendiráðsstarfsmanns f sendi-
ráði Indónesfu f Haag, sem á
að fara fram á morgun f lög-
reglustöðinni f Amsterdam.
Tekið var fram að sendiráðs-
starfsmaðurinn kæmj til fund-
arins sem einkaaðili en ekki
fulltrúi Indónesfustjórnar.
Fregnir frá Beilen f norður-
hluta HoIIands, þar sem aðrir
6 skæruliðar frá S-
Molukkaeyjum halda 31
manni f gfslingu f járnbrautar-
lest, herma að þar hafi ekkert
miðað f samkomulagsátt og
engar frekari viðræður milli
yfirvalda og skæruliða fyrir-
hugaðar. Hollenzka stjórnin
vfsaði f dag enn á bug kröfum
skæruliðanna um náðun til
handa öllum föngum frá S-
Molukkaeyjum f hollenzkum
fangelsum, að hollenzka
stjórnin biðjist opinberlega af-
sökunar á þvf að hafa leyft
Indónesfu að innlima eyjarnar
og að hollenzka stjórnin beiti
sér fyrir viðræðum yfirvalda f
Indónesfu og leiðtoga S-
Molukkaeyjamanna.
— Samkomulag
Framhald af bls. 2
kvöldi, að hann væri jafnvel
svo bjartsýnn að vona að mála-
lok yrðu á fundi nefndanna,
sem haldinn yrði f dag. Jón
Rögnvaldsson. formaður
launamálaráðs BHM, var
einnig bjartsýnn á samkomu-
lag. Þetta er aðalsamningur
milli aðila, sem gilda á frá 1.
júlf 1976 til 1. júlf 1978 ef
samkomulag næst og var
ekkert hægt að fá upp gefið
um efni hans f gærkvöldi. Við-
ræðunefndir rfkisins og BSRB
hafa ekki ræðst við f langan
tfma.
— Fara hvergi
Framhald af bls. 1
myndu snúa aftur til veitinga-
hússins. Það gerðu þeir á
laugardagskvöldið og er þeir
uppgötvuðu lögregluna lögðu
þeir á flótta í bfl sínum og upp-
hófst þá æðisgenginn eltingar-
leikur, þar sem aðilar skiptust
margoft á skotum. Tókst lög-
reglunni að lokum að króa
skæruliðana af en þá yfirgáfu
þeir bflinn og lögðu á flótta á
harðahlaupum með lögregluna
á hælunum. örþrifaráð þeirra
var svo að brjótast inn f íbúð
hjónanna John og Sheilu
Matthews. Lögreglumenn kom-
ust einnig inn f íbúðina og skil-
ur nú aðeins ein hurð á milli.
Skæruliðarnir eru í 10 fer-
metra stofu ásamt hjónunum.
Engin hreinlætisaðstaða er á
staðnum, en lögreglumenn hafa
sent efnablöndusalerni ásamt
vatni inn í stofuna.
Ræningjarnir hafa krafist
þess að fá mat og vindlinga
senda, en lögreglumenn
neituðu, nema skæruliðar
slepptu konunni. Eftir nokkra
umhugsun var því hafnað. Lög-
reglan ætlar ekki að verða við
neinum kröfum skæruliðanna,
en aðeins bfða þar til þeir gef-
ast upp þótt það kunni að taka
vikur. Ræningjarnir hafa ekki
hótað að gera gíslum sínum
mein og eru sagðir nokkuð
kurteisir f samtölum við lög-
reglumenn.
— Kjánalegt
Framhald af bls. 2
rýr. Ég vildi t.d. sjálfur fá að
ráða þvf, hvar ég veiddi, en
freigáturnar úthluta okkur
ákveðnu svæði. Helzt vildi ég á
þessum tíma árs veiða úti fyrir
Vestfjörðum. I raun er heldur
ekkert við því að segja þótt eitt
og eitt troll fari við þessar að-
stæður — á því getum við
togarasjómenn alltaf átt von.
Evans sagðist vera ánægður
með söluna á aflanum — hann
hafi fengið rúmlega 130 krónur
fyrir hvert kg, sem væri mjög
góð sala. Hann var þá spurður
að því, hvenær hann myndi
halda aftur á tslandsmið og
sagði hann þá: „Ég veit ekki
hvenær við siglum, þvf að nú
eru þessi jól að koma og við
eigum ekki löndun aftur fyrr
en f byrjun næsta árs og því
getum við ekki selt aflann fyrr
en eftir áramót. Þvf held ég
ekki að við höldum af stað fyrr
en um miðjan desember."
Þá spurði Morgunblaðið Ev-
ans hvernig hann hugsaði til
hinna erfiðu vetrarmánaða,
sem væru framundan við slikar
kringumstæður. Evans sagði að
hann óttaðist ekki veðrin. Tog-
araflotinn myndi leita vars við
Islandsstrendur og hann kvaðst
ekki búast við því að fslenzk
stjórnvöld væru svo ómannúð-
leg að neita þeim um að fara í
var. Að lokum spurði Mbl.,
hvort hann vildi segja eitthvað
við lesendur blaðsins. Evans
sagði: „Hvað get ég f raun sagt?
Jú, ég vona að leysa megi þessa
deilu á diplomatiskan hátt milli
ríkisstjórnanna. Það ætti raun-
ar að vera búið fyrir löngu. Og
svo langar mig til þess að senda
Gunnari Ólafssyni, skipherra á
Ægi, mínar beztu jólaóskir."
Það þarf vart að endurtaka
það, að það var Ægir undir
stjórn Gunnars Ölafssonar sem
klippti á togvíra Evans hinn 3.
desember sfðastliðinn.
Sindra-Stál hf hefur um áraraðir séð íslenzkum byggingariðnaði fyrir járni og
stáli, jafnframt því sem birgðastöð fyrirtækisins hefur kappkostað að hafa ætíð
á boðstólum nýjungar, sem stuðla að betri byggingarháttum.
SINDRA STÁL
í dag býður Sindra-Stál h.f. ál til byggingaframkvæmda á
vegum sjávarútvegs, stofnanana og einstaklinga. í birgðastöð-
inni er jafnan úrval af bygginga-áli: — álplötum, flatáli,
vinkiláli, ferköntuðu áli o.fl. Álklæðningar frá Sindra-Stáli h.f.
hafa nú þegar sýnt sig að vera til hagkvæmni jafnt sem
fegurðarauka. Skoðið álklæðningu á nýtízku byggingum og þér
munuð vera okkur sammála um að „Sindra-álu er sérstaklega
athyglisvert.
SINDRA-STÁLHF Borgartúni 31 símar 19422-21684