Morgunblaðið - 20.12.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1975
3
Tilnefnt í listráð samkvæmt
nýium reglum um Kjarvalsstaði
ÁKVEDIÐ hefur verið hverjir
skuli sitja f iistráði Kjarvalsstaða
samkvæmt samkomulagi því er
gert hefur verið milli Revkjavfk-
urborgar annars vegar og Banda-
lags fsl. listamanna og Félags fsl.
myndlistarmanna hins vegar
varðandi rekstrarfvrirkomulag
hússins. Svo sem Morgunblaðið
skýrði frá í gær samþvkkti borg-
arstjórn þetta samkomulag á
fundi sfnum f fyrrakvöld og einn-
ig var það samþykkt á fjölmenn-
um fundi f FlM þá um kvöldið en
stjórn Bandalags fsl. listamanna
hafði einróma samþykkt sam-
komulagsdrögin daginn áður.
A þessum fundum tilnefndu
listamennirnir einnig fulltrúa
sfna f listráðið, er mun marka
listræna stefnu Kjarvalsstaða
næsta hálfa annað árið, og af
hálfu Félags fsl. myndlistar-
manna munu sitja f þvf sem aðal-
menn þeir Jóhannes Jóhannes-
son, Snorri Sveinn Friðriksson og
Guðmundur Benediktsson mynd-
höggvari en sem varamenn Ragn-
heiður Ream, Þorbjörg Höskulds-*
dóttir og Hringur Jóhannesson.
Af hálfu Bandalags listamanna
var Þorgerður Ingólfsdóttir úr
Félagi fsl. tónlistarmanna til-
nefnd en Stefán Jónsson, arki-
tekt, til vara. Auk þessara sitja f
listráðinu þeir er mynda hús-
stjórn Kjarvalsstaða, þau Ólafur
B. Thors, forseti borgarstjórnar,
Davfð Oddsson og Elfsabet
Gunnarsdóttir.
Markmiðið
að húsið
verði lifandi
menningar-
miðstöð
borgarbúa,
segir borgar-
stjóri
Þetta kom fram á fundi sem
Reykjavíkurborg hélt blaðamönn-
um í gær en þar voru mættir
fulltrúar deiluaðila sem stóðu í
sjálfum samningaviðræðunum,
þeir Birgir Isleifur Gunnarsson,
borgarstjóri, og Ölafur B. Thors
af hálfu borgarinnar en þeir Thor
Vilhjálmsson, forseti Bandalags
ísi. listamanna og Hjörleifur Sig-
urðsson, formaður Félags fsl.
myndlistarmanna, af hálfu lista-
manna. Báðir aðilar kváðust
fagna þvf að náðst hefði sam-
komulag í þessari deilu, og það
væri höfuðatriðið enda þótt vafa-
laust mætti finna f samkomulag-
inu atriði sem aðilar hvor um sig
hefðu viljað að væru öðru vísi.
Borgarstjóri sagði, að þótt þeir
sem í viðræðunum stóðu hefðu
ekki ætíð verið sammála, hefðu
þær jafnan verið mjög vinsamleg-
ar og þar gætt fullkomins trúnað-
artrausts, sem hann kvaðst vænta
að bæri vitni um að báðir aðilar
hygðust vinna heilshugar að því
markmiði sem að væri stefnt með
starfsemi Kjarvalsstaða — það er
ÞEIR SÖMDU — talið frá vinstri, Thor Vilhjálmsson, forseti Bandalags fsl. listamanna, Ólafur B. Thors
forseti borgarstjórnar, Birgir Isleifur Gunnarsson, borgarstjóri, og Hjörleifur Sigurðsson, formaður
Félags fsl. myndlistarmanna.
að vera lifandi menningarmiðstöð
borgarbúa. Thor Vilhjálmsson,
forseti Bandalags ísl. listamanna,
kvað þvf ekki að neita að leiðin að
samkomulagi hefði verið íöng og
stundum torsött en kvað þá full-
trúa listamanna í þessum viðræð-
um álíta samkomulagið vera mjög
góðan grundvöll undir samstarfið
milli borgar og listamanna. Hann
tók undir orð borgarstjóra um
gagnkvæmt trúnaðartraust í við-
ræðunum — þar hefði verið leikið
á ýmsa strengi en aðilar hefðu
alltaf verið mjög hreinskilnir og
heiðarlegir, og taldi Thor það lofa
góðu um framtíðina.
Það kom fram að helztu breyt-
ingarnar, sem felast í þessu sam-
komulagi, eru þær, að áfrýjunar-
ákvæði f eldri reglunum er nú
fellt niður. Aður var starfandi
sérstakt sýningarráð, sem í voru
7 menn — þ.e. hússtjórnarmenn-
irnir þrír og síðan 4 sem tilnefnd-
ir voru af bandalagi ísl. lista-
manna. Síðan var í reglum húss-
ins ákvæði um að ef einhver teldi
sér ranglega synjað um sýningar
aðstöðu i húsinu gæti sá hinn
sami snúið sér til borgarráðs, er
tilnefndi þá 2 menn til viðbótar í
sýningarnefndina og þannig skip
uð væri umsóknin tekin fyrir að
nýju.
Með reglum þeim sem nú hafa
tekið gildi fær hins vegar Iistráðið
endanlegt vald hvað snertir notk-
un og fyrirkomulag sýninga í
vestursal hússins og reyndar
einnig yfir Kjarvalssalnum þegar
hann er tekinn undir annað en
sýningu á verkum Kjarvals. Þá
töldu einnig báðir aðilar það mik-
ilsvert, að nú skyldi ráðinn að
húsinu listfræðingur, sem yrði
framkvæmdastjóri listráðs. Hús-
stjórn ræður þennan starfsmann
að fengnum tillögum listráðs og
skal ráðning hans miðast við tvö
ár.
Fulltrúar borgarinnar, þeir
Birgir Isleifur og Ólafur, voru
spurðir hvort þetta samkomulag
táknaði ekki algjöran sigur fyrir
myndlistarmennina. Borgarstjóri
svaraði því til, að ef hann hefði
staðið í samningastappi við Breta
út af landhelgi kynni hann að
hafa reynt að vega og meta niður-
stöðuna á þennan hátt en hér
hefði ekki verið neitt slíkt á ferð-
inni heldur ágreining við lista-
menn, þar sem um það var að
tefla hvort Kjarvalsstaðiryrðu líf-
vænleg stofnun eða ekki. 1 huga
hans hefði það því verið efst að
myndlistarhúsið gæti þjónað til-
gangi sínum. Thor Vilhjálmsson
tók í sama streng og kvaðst ætla
að það væru fyrst og fremst
borgarbúar sjálfir sem unnið
hefðu sigur.
Hjörleifur Sigurðsson tók fram,
að hann teldi e.t.v. mestu framför-
ina í þessu samkomulagi vera
fólgna f því, að nú gæti listráðið
sjálft haft frumkvæði um
sýningar i húsinu í stað þess að
vera einungis afgreiðslustofnun
fyrir myndlistarmenn er sendu
inn beiðni um að fá sýningarað-
stöðu í húsinu. Kom fram bæði
hjá Hjörleifi og Thor að mikill
hugur er nú í listamönnum að
koma á lifandi og fjölbreyttri lista
og- menningarstarfsemi í húsinu,
og þá ekki aðeins í formi sýninga
heldur einnig með listkynningum
og fyrirlestraháldi.
Þá var það einnig upplýst á
fundinum, að starfsemi á Kjar-
valsstöðum ætti að geta komizt f
eðlilegt horf mjög fljótlega.
Ölafur B. Thors, formaður hús-
stjórnar, upplýsti að frá því á
miðju sumri hefðu ekki verið
veitt nein fyrirheit um sýningar f
húsinu á næsta ári, sem á ein-
hvern hátt gætu bundið hendur
listráðsins, þegar það tæki til
starfa. Einu sýningarnar sem
ákveðnar væru nú þegar væri
yfirlitssýning á verkum Asgrfms
Jónssonar, sýning á Ijósmyndum
kunns bandarísk-kóreansks
ljósmyndara og sýning finnskrar
listakonu.
BIBR COSMETieS