Morgunblaðið - 20.12.1975, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.12.1975, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1975 Minnisvarði skútualdar Hið stórmerka byggðasafn á Akranesi hefir nýlega eignazt stærsta safngrip, sem fyrirfinnst á þessu landi, þilskipið Sigurfara, en það skip á allmerkilega sögu. Séra Jón M. Guðjónsson prófastur á Akranesi, sem um langan aldur hefir borið hagpefnds safns fyrir brjósti, átti fyrstu uppástunguna að þessu máli, og Kiwanisfélags- skapurinn á Akranesi tók málið óðar upp á sfna arma. Sigurfari lá í Klakksvík f Færeýjum og hafði verið lagt fyrir fullt og allt, svo eigendur skipsins voru fúsir að selja það á tiltölulega vægu verði. Skipið var keypt og dregið til Akraness, og með aðstoð góðra manna og öflugum flutningatækjum var þessi 100 tonna þungi skipsskrokkur dreginn upp að hinu forna höfuð- bóli og prestssetri að Görðum, þar sem byggðasafnið er nú til húsa. Sigurfari á Ianga og merka sögu. Hann var byggður árið 1885 í Burton Strater í Englandi, að stærð rúm 85 tonn, og gerður út frá Hull næstu ár, til 1897, að hann var keyptur hingað til lands. Fyrstu eigendurnir voru: Pétur Sigurðsson útvegsbóndi í Hrófs- skála á Seltjarnarnesi og Gunn- steinn Einarsson skipstjóri í Skildinganesi, síðar að Nesi við Seltjörn. Gáfu þeir honum nafnið Sigurfari og gerðu hann út um 10 ára skeið. Þá komst hann í eigu Duus-fyrirtækisins, 1908, og var þar, þar til Færeyingar keyptu hann 1920. Kaupendurnir voru frá Klakksvík, og þaðan var honum haldið úti, á skaki, sam- fleytt til ársins 1970. Skútuöldin var merkilegt tíma- bil f sögu þjóðarinnar. Otgerðin var tiltölulega ódýr og flutti mikil verðmæti inn í fátækt þjóðarbúið en hlaut þó að renna sitt skeið á enda. Hlutaskipti voru á skútun- um, en við lok gamla stríðsins kolféll fiskverðið. Sældarlíf var aldrei á þessum skipum, þar sem 25—28 manns þurftu að kúldrast saman við vosbúð og þrengsli. Fæðið þar um borð þætti ekki boðlegt nú á dögum en var þó ekki verra en gerðist á alþýðu- heimilum við sjávarsfðuna. Björgunartæki voru engin um borð nema einn skipsbátur sem vart rúmaði meir en hálfa skips- höfnina ef eitthvað út af bar. Skútuöldin kostaði geigvænlega mannskaða.' Þilskipaútgerðin lagðist fyrst og fremst niður sökum þess, að ógerlegt reyndist að manna skip- in. Eftir ófriðarlok 1918 tóku nýir togarar að streyma til landsins, og þar fékk hver skipshöfn mánaðar- kaup auk lifrarpeninga. Fæðið þar um borð var allt annað og betra en verið hafði á skútunum. Þilskipin höfðu orðið að liggja af sér flest fárviðri á hafi úti en togararnir gátu leitað i landvar eða inn á firði, og fram að Hala- veðrinu 1918 var það því nær trúarsetning, að togarar gætu ekki farizt á rúmsjó. Mætir menn hafa, með rann- sóknum og útgáfu bóka, gert skútuöldinni góð skil, þótt lengi megi þar fróðleik við bæta. En annar minnisvarði er heilt og áþreifanlegt þilskip með rá og reiða, sem marga bratta báru hefir klofið um höfin við Bret- land, Island, Færeyjar og Græn- land í 90 ár, og jafnan skilað hverri áhöfn heilli heim. — Hver öld er fljót að líða hjá, og það þarf engin hundrað ár til þess að ekki ein flís fyrirfinnist af nokkru þil- skipi frá þessum timum, að Sig- urfara einum undanskildum, sem þegar er kominn í trygga varðveizlu i eitt merkasta byggða- safn landsins. Hugmyndin er að færa skipið sem mest í hinn forna búning, eins og það var í eigu Islendinga. Gamlir munir skipsins, sem haldið var eftir, þegar það var selt úr landi, svo og þess gamli fáni, hafa nú verið gefnir skipinu, sem góður vísir að sjóminjasafni. Skipshafnaskrár skipsins frá 1907 til 1920 eru til í bæjarfógeta- deild f Þjóðskjalasafni, og verða ljósrit af þeim varðveitt til sýnis í Sigurfara. En allar endurbætur, breytingar og viðhald á skipinu kosta sína peninga. Kiwanisfélagsskapurinn á Akranesi og aðrir góðir bæjar- búar hafa lagt hér hönd á plóginn, og væru vel að þvf komnir, að hið háá alþingi veitti hér einhverja aðstoð við að ljúka þessu nytja- verki, sem mun áreiðanlega verða bæði metið og þakkað á ókomnum tfmum. K.S. MOkkAIIÚW FRÁ HETTI, BORGARi\E$I KLÆÐIR ALLA \V S\ll) *\V,IAR GERÐIR FAST I KAUPFELAGINU OG í SÉRVERZLUNUM UM LAND ALLT HVAÐ ER BETRA I SKAM HALENDIÐ HEILLAR SAGAN AF Dúdúdú Loftur Guðmundsson hefur skróð œvintýralegar frósagnir Hin gamansoma bók eftir Örn Snorrason heitir Saganaf Dúdúdú. Bókina myndskreyfir Halldór Pétursson. H þekktra Islendinga. Þeir voru brautryójendur sem örœfabílstjórar og opnuðu, öórum fremur, fyrir almenningi hina stórkostlegu hólendisparodís. Fjöldi mynda prýóa bókina. BOKAUTGAFA ÞÓRHALLS BJARNARSONAR Sigurfari f friðarhöfn eftir 90 ára siglingu. Byggða- safn Akraness að Görðum og gamla prestsetrið. Akrafjall í baksýn. Sigur- fari f sinni síðustu ferð, frá höfninni á Skipaskaga og upp að Görðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.