Morgunblaðið - 21.12.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1975
39
„Við erum hingað komnir til að undirrita samning sem getur komið á
friði.“ Frá hinni einstæðu athöfn um borð f orrustuskipinu „Missouri**
á Tokyo-flða.
heyrt rödd keisarans. Allt at-
hafnalíf lagðist niður, þegar
ávarpinu var dtvarpað, alger
þögn færðist yfir allt landið, öll
þjóðin hlustaði. Sumir grétu,
aðrir báðust fyrir. Sumir gripu til
ofbeldisverka, aðrir frömdu
sjálfsmorð. Flestir sættu sig við
orðinn hlut.
Nóttina áður réðst hópur of-
stækisfullra liðsforingja undir
forystu Koga majórs, frænda Tojo
hershöfðingja, inn á lóð keisara-
hallarinnar f von um að fá lífvörð
keisarans í lið méð sér. Yfirmaður
lífvarðarins, Mori hershöfðingi
neitaði að styðja uppreisnar-
mennina, og einn dr hópnum dró
þá upp skammbyssu og skaut
hann til bana. Foringjar samsær-
isins notuðu innsigli hans til að
falsa tilskipanir og fengu þannig
um tíma yfirráð yfir herliði á
hallarlóðinni. Það sem eftir var
nætur leituðu þeir að hljóðritun-
inni með ávarpi keisarans, sem
enn hafði ekki verið dtvarpað og
að Kido markgreifa og öðrum
mönnum handgengnum keisaran-
um. Þeir sökuðu þá um „landráð"
og undirferli, sem þeir sögðu að
hefði orðið til þess að keisarinn
ákvað að binda enda á stríðið.
Samsærið fór dt um þdfur, og
daginn eftir voru uppreisnar-
menn yfirbugaðir.
Endalokin
í Asíu
Meðan þessu fór fram sagði
Suzuki forsætisráðherra af sér.
Higashikuni prins, frændi
keisarans, var skipaður eftir-
maður hans. Togo treysti sér ekki
til að halda áfram störfum utan-
ríkisráðherra vegna ellilasleika.
Shigemitsu sem sjálfur var
hrumur og með gervifót, var skip-
aður í hans stað, því hann var
hlynntur vestrænum ríkjum.
Anami hermálaráðherra framdi
sjálfsmorð með hefðbundinni
aðferð, kviðristu. Fleiri sviptu sig
lífi á þann hátt á næstu dögum.
Nokkuð bar á uppsteyt gegn
ákvörðuninni um uppgjöf. öfga-
menn voru hins vegar illa skipu-
lagðir og barátta þeirra fór dt um
þdfur, ekki sízt þar sem yfirmenn
landhers og sjóhers neituðu að
styðja þá. Meirihluti þjóðarinnar
hlýddi skipununum sem komu
fram i dtvarpsávarpi keisarans,
og sætti sig við óhjákvæmileg
endalok. Þannig komst friður á án
átaka, sem fáa hafði órað fyrir.
1 lok mánaðarins höfðu Rdssar
lagt undir sig alla Mansjdríu og
Kóreu. Brezki sjóherinn tók Hong
Kong eftir mánaðamótin og
japanskt herlið gafst upp á hverri
Kyrrahafseynni á fætur annarri.
Sú mikla innrás, sem hafði verið
ráðgerð frá því um sumarið og
átti að hefjast 1. nóvember
(„Hernaðaráætlun Olympic"),
reyndist óþörf. En sd innrás átti
aðeins að beinast gegn eynni
Kyosho, og aðalaðgerðirnar gegn
Honshu („Hernaðaráætlun
Coronet") áttu ekki að hefjast
fyrr en í marz og apríl 1946. „Eng-
inn vafi leikur á því, hver drslitin
hefðu orðið, en baráttan hefði
orðið erfið og kostað mikið mann-
tjón,“ segir brezkur höfundur, Sir
Peter Gretton aðmfráll. Enn hafði
herjum Japana ekki verið
splundrað, þeir stóðu enn uppi,
Japanir höfðu enn miklar birgðið
skotfæra, og þeir gátu notað þær
flugvélar sem eftir voru til sjálfs-
morðárása. I bandarfsku her-
stjórninni voru skiptar skoðanir
um, hvort innrás mundi reynast
nauðsynleg. Ymsir háttsettir yfir-
menn töldu, að hafnbannið og
loftárásirnar mundu nægja til að
knýja Japani til uppgjafar.
„Nýjar upplýsingar, sem hafa
komið fram (að nokkru raktar
hér) ... virðast styðja skoðanir
þeirra sem voru andvígir innrás-
inni,“ segir Gretton.
Skuggi sprengjunnar
Sir Basil Liddell Hart segir t
riti sínu um siðari heimsstyrjöld-
ina: „Hin raunverulegu endalok
urðu 14. ágdst, þegar keisarinn
tilkynnti uppgjöf Japana sam-
kvæmt þeim skilmálum, sem
Bandamenn settu og bardagar
hættu — einni viku eftir að fyrstu
kjarnorkusprengjunni var varp-
að. En jafnvel það voðaverk, að
þurrka dt borgina Hiroshima til
að sýna fram á eyðingarmátt
þessa nýja vopns, hafði aðeins
þau áhrif, að flýta fyrir upp-
gjöfinni. Uppgjöfin var fyrirfram
vfs, enga brýna nauðsyn bar til að
beita slíku vopni — og við þann
dimma skugga, sem frá þvi stafar
hefur heimurinn bdið æ siðan.“
Athöfnin um borð í „Missouri"
var aðeins formsatriði.
„Byssurnar eru þagnaðar," sagði
MacArthur hershöfðingi f dt-
varpsávarpi til bandarisku þjóð-
arinnar síðar sama dag, 2. septem-
ber. „MikiIIi harmsögu er lokið.
Mikill sigur hefur verið unn-
inn...“ GH
Þetta frábæra fatasnið heitir
„DISCO”. Einnig úrval af
„GATSBY” fötum, „BLAZER
jökkum og stökum terelyn
og ullar buxum.
Riffluð flauelsföt með vesti
í miklu úrvali.
Stakir flauelsjakkar og stakar
flauels buxur í miklu úrvali.
TIZKUVERZLUIM UNGA FÓLKSINS
AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a
Sími frá skiptiborði 28155
LÆKJARGÖTU 2 - SÍMI FRÁ SKIPTIBORÐI 28155
WNjf