Morgunblaðið - 21.12.1975, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 21.12.1975, Qupperneq 11
ií»ri0nwM®foiiífo Jólalesbók barnanna X •j HÉRNA sérðu teikn- LilXcL” *ngu húsi. Eftir er að lita húsið og það skaltu DO 0*íl gera, en við skulum gefa ^ **'©**' ! j>ér nokkrar ábendingar að fara eftir, sem segja þér dálftið um litina sem nota má. Litli svarti kettlingurinn hún Trilla, var i sjöunda himni. Rauði boltinn hennar hafði verið týndur í nokkra daga en nú hafði boltinn fundist aftur undir græna trénu með rauðu kirsu- berjunum. Trilla flýtti sér inn til að sýna vini sínum, brúna bangsanum, boltann. En þegar Trilla var komin inn um rauðu dyrnar með gula sólarandlitinu fann Trilla ekki Bangsa. Trilla gægðist nú undir gula borðið og gulu stólana með bláu sessunum. Hún kikti ofan í grænu skálina með gula banananum, rauð- gulu appeslínunum og grænu perun- um. Kisa skimaði einnig bak við bláu kaffikönnuna, en Bangsa var hvergi að sjá. Ekki heldur bak við myndina af rauðu blómunum í bláa rammanum. Trilla ætlaði að gefast upp á leitinni, þegar hún heyrði þrusk uppi á loftinu. Þangað flýtti hún sér — og þarna stóð Bangsi í grænu peysunni sinni við rauða rúmið. Hann hafði kveikt á gula lampanum sínum. Eg er að leita að brúna boltanum mínum, sagði Bangsi. Hefurðu gáð undir bláu stólana? spurði Trilla kisa. — Já, sagði Bangsi — og ég hef einnig leitað í gulu sængurfötunum, en ég sé hann hvergi. Nú er spurningin hvort þið getið fundið boltann hans Bangsa og lokið við að lita myndina? Sagan af montna hananum EINU SINNI var hani. Han- inn átti heima 1 litlu þorpi. þar sem hanar og hænur spígsporuðu út um allt þorp. Nú, þessi hani, sem ég var að segja frá, var ósköp venjulegur nema hann hafði einn galla. Hann þóttist vita alla heimsins vísdóma og allar hæn- urnar nema ein dáðust að honum. Hænan, sem dáð- ist ekki að honum hét Fiður- mjúk. Hún var svört á lit og með Ijósrauðar fætur. Þessi hæna var mjög gömul. Hún vissi allt um hanann hroka- fulla. Einn dag voru Fiður- mjúk, Rauðkambur og Gull- fótur heima hjá Goggu, vin- konu Fiðurmjúkar. Gullfótur byrjaði á samræðunum. „Ég þoli bara ekki þennan nýja montrass, þennan hana montrass. Ég vildi að lög- regluhaninn gerði hann út- lægan úr þorpinu. „Það er nú full mikið sagt," sagði Gogga. „Hann veit um allt sem til er á jörðinni." „Úff, þú trúir því þó ekki, Gogga mín. Ég veit um allt sem hann snertir," sagði Fiður- mjúk. „Menntamálaráðherra- haninn sagði einu sinni að hann hlyti að vita allt. Þess vegna hefur hann orðið svona montinn eins og hann er nú í dag." Þá sagði Rauð- kambur: „Mér finnst að við ættum að reyna að koma honum í kltpu, þannig að hann sjái eftir að hafa verið svona og þá verður hann ekki montinn lengur." „Já, það skulum við reyna," sögðu þau öll i kór. Daginn eftir var Rauð- kambur að labba á götunni fyrir framan húsið sitt. Þá heyrði hann háa rödd kalla: „Soldáninn í Indlandi á af- mæli á morgun." Hann gekk á hljóðið og sá að montni haninn var að kalla þetta yfir hænurnar." Rauðkambur flýtti sér til hans og sagði eins og satt var: „Soldáninn á ekki afmæli á morgun. Hann á afmæli í dag.” „Nú, jæja," sagði sá montni. Þá sagði Rauðkambur: „Veiztu hvað jörðin gengur marga hringi t kringum sólina á dag?" „Já, það held ég nú. Hún gengur fjóra hringi." „Nei," sagði Rauðkambur. „Hún gengur einn hring á dag kringum sólina." Það kom dálitið fát á þann montna. Allar hænurnar hlógu að montna hananum og fóru að ptskra sin á milli um að hann hefði bara skrökvað öllu sem hann hefði sagt. Haninn varð svo smeykur að hann hljóp eitt- hvað út í buskann og hefur ekki sést siðan. Endir. Eftir Hörpu Ámadóttur, 10 íra Enniabraut 14, Ólafsvtk. Teikninguna af Bjúgnakræki gerði Harpa 10 ára Ólafsvík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.